Fréttablaðið - 13.10.2005, Side 40

Fréttablaðið - 13.10.2005, Side 40
4 ■■■ { Kópavogur }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ 60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004 MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu. HANN ER GRIMMUR! MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER - VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár - Útvegum notaða skotbómulyftara - Úrval notaðra lyftara á lager Fjórhjóladrifinn Fjórhjólastýrður Lyftigeta: 3.400 KG Lyftihæð: 6.050 MM Gafflar: 1.200 MM Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar án aukins snúningshraða vélar. SKOTBÓMULYFTARI PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf. Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is Í nýju búðinni er boðið upp á mik- ið úrval af skarti og fylgihlutum ásamt hátískufatnaði og einnig Odille nærfatalínuna sem er sér- staklega hönnuð fyrir Oasis. Sú lína hefur fengið frábærar viðtökur er- lendis og hefur Victoria Secret ákveðið að hefja sölu á henni í verslunum sínum í Bandaríkjunum. Áfram verður Oasis með sérdeild í verslun Debenhams í Smáralind og leggur áherslu á úrval af buxum og jökkum í góðum sniðum sem falla vel að öðrum fatnaði og fylgihlut- um sem seldur er í Debenhams. Þann 3. nóvember opnar breska tískuverslunin Coast einnig í Smáralindinni við hliðina á hinni nýju verslun Oasis. Coast er þekkt fyrir einstaka hönnun með klass- ísku yfirbragði. Theodóra Þor- steinsdóttir, markaðsstjóri Smára- lindar, segir báðar þessar búðir spennandi og kærkomna viðbót við þær tískuverslanir sem fyrir eru í Smáralind. Skart, fylgihlutir og hátískufatnaður Oasis hefur opnað nýja verslun á 2. hæð í Smáralind. Hin nýja Oasis í Smáralind. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR Þeir sem aka um Reykjanesbrautina taka örugglega eftir stórhýsi sem ris- ið er við Smiðjuveginn og brosir við vegfarendum. Það er verslunin Tengi. Þar fæst allt mögulegt sem tengist baðherbergjum, eldhúsvösk- um og þvottahúsum. Er þá meðal annars átt við vaska, sturtuklefa, blöndunartæki og annað sem til- heyrir pípulögnum. Ekki má gleyma heitum pottum sem eru til í úrvali og annað sem þeim viðkemur. Í tæri við viðskiptavinina Tengi er ný og vegleg verslun við Smiðjuveginn. Á síðastliðnum árum hafa fallegir göngustígar verið lagðir víðsvegar um Kópavoginn og um þá leika fögur náttúra, gróður og haf. Kópa- vogurinn sem nær yfir mikið land- svæði hefur að geyma mörg skemmtileg útvistarsvæði og má þar fyrst nefna Hlíðargarð. Garðurinn er nánast falinn á milli Hlíðarhvamms og Lindar- hvamms og er nokkurskonar leyni- staður í miðri íbúðabyggð. Hann er elsta skipulagða útvistarsvæði í Kópavogi og var opnaður árið 1958, hannaður af Jóhanni Schröder garðyrkjumanni. Fyrir- myndin að Hlíðargarði er ítalski endurreisnargarðurinn og er garð- urinn rómantísk útgáfa þessa garð- stíls. Garðurinn er kjörinn staður til að njóta hvíldar, eða jafnvel til veisluhalda og rómantískur staður til að gifta sig á. Fjöldinn allur er af fleiri falleg- um útivistarsvæðum í Kópavogi. Neðan við Digraneskirkju er stígur sem liggur í gegnum trjálund, með- fram læk og í átt að hafi. Neðan við grundirnar þar sem Kópavogur og Fossvogur mætast eru stígar og brýr og fallegur gróður. Þar er hægt að ganga um, fjarri allri umferð og njóta náttúrunnar. Við Kópavogs- kirkju eru stokkar og steinar og aldrei að vita nema að þar mæti maður álfi. Gengið um grundir Í Kópavogi er mikið af fallegum útivistarsvæðum þar sem hægt er að ganga, skokka eða hjóla. Fallegar gönguleiðir liggja úr Kópavoginum og yfir Fossvoginn. Stígurinn hlykkjast fallega yfir brekkurnar neðan við Digraneskirkju. Hlíðargarður er ævintýralegur garður sem falinn er á milli húsa. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.