Fréttablaðið - 13.10.2005, Blaðsíða 48
12 ■■■ { Kópavogur }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Ozio Collection býður upp á mikið úrval af fínni skóm fyrir dömur og
herra auk þess sem þar fást töskur, belti og aðrir fylgihlutir fyrir
dömurnar. Verslunin í Smáralindinni er önnur Ozio Collection versl-
unin á Íslandi, hin er á Laugavegi. Því til viðbótar mun stefnt á opn-
un fjögurra verslana í Danmörku á næstunni.
Fínni skór fyrir
dömur og herra
VERSLUNIN OZIO COLLECTION VAR OPNUÐ Í SMÁRALINDINNI
UM SÍÐUSTU MÁNAÐAMÓT.
fatnaður }
Hjálparsveit skáta í Kópavogi var
stofnuð 4. nóvember 1969 og er því
komin á sitt 36. starfsár. Atli Már
Markússon, meðlimur í Hjálparsveit
skáta í Kópavogi, segir sveitina öfl-
uga og gott starf fara þar fram. „Við
tökum inn þá sem eru 17 ára og
eldri,“ segir Atli. „Allir þeir sem
vilja verða félagar í sveitinni þurfa
að ganga í gegnum 18 mánaða
grunnþjálfun til að verða löggildir
félagar. Fólk fær þá þjálfun í björg-
unarstarfi, fyrstu hjálp, rötun,
fjallamennsku, ísklifri og þess hátt-
ar.“
Hjálparsveitarmenn í Kópavogi
koma víða við og segir Atli sveitina
sinna verkefnum á landsvísu. „Við
förum hvert á land sem er með
stuttum fyrirvara ef þannig ber und-
ir. Á undanförnum árum höfum við
verið að sérhæfa okkur í fjallaleit,
það er björgun í brattlendi og erum
líka með sérhæfða leitarflokka fyrir
leit að týndu fólki.“
Atli segir meðlimi hjálparsveitarinn-
ar í Kópavogi hafa komið töluvert
að starfi íslensku alþjóða björgunar-
sveitarinnar sem er verkefni rekið af
Slysavarnafélagi Landsbjargar og
utanríkisráðuneytinu. „Við erum
búnir að fara nokkrum sinnum út.
Fórum til Alsír árið 2004 vegna
jarðskjálfta og til Tyrklands 1999 og
nokkrir félagar frá okkur fóru í
sjúkraflug á vegum íslenska ríkisins
til Taílands þegar flóðbylgjan reið
yfir þar. Þannig að verkefnið eru
mörg og við komum víða við.“
Leikföng og fatnaður
VERSLUNIN KRAKKAFJÖR HEFUR KOMIÐ SÉR FYRIR Í HAMRA-
BORGINNI.
Í Krakkafjöri fæst allt
mögulegt sem viðkem-
ur börnum, svo sem föt
og leikföng og líka
hjól, sparkbílar og fleiri
sportleg tæki. Vinsæl-
ustu merkin á fötunum
eru Manhattan og Toy
og Carterës og Radio-
flyer. Það eru flíkur fyr-
ir sjö ára og yngri en
væntanlegur er fatnað-
ur með merkinu Von
Dutch fyrir börn á aldr-
inum sjö til tólf ára. Frá
Radioflyer eru líka
sparkbílarnir ættaðir og ýmis önnur leikföng fyrir börn upp að 10 ára aldri.
Fyrsta Krakkafjörsverslunin var opnuð í lok síðasta árs og þá í Hlíðasmár-
anum í Kópavogi. Krakkafjör er að færa enn frekar út kvíarnar því verið er að
opna eina verslun á Laugavegi við Hlemm og aðra á Akureyri.
Björgunarmenn í Kópavogi
Hjálparsveit skáta í Kópavogi er félagi í Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Frá upphafi
hefur sveitin haft um 300 meðlimi og má með sanni segja að öflugt starf fari fram á
þeirra vegum.
Frá björgunaraðgerðum sveitarinnar 9. október 2005. Hjálparsveitarmennirnir Ómar Valur Maack og Jóhannes Hermannsson aðstoðuðu
slasaðan vélsleðamann á Langjökli. Fréttablaðið/mynd/Ólafur Arnar Gunnarsson
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
al
ga
rð
ur
Hentar íslenskum
aðstæðum
VIÐ NÝBÝLAVEG 12 ER NÝLEG BÚÐ
SEM BER HEITIÐ BIANCA.
Dúnvesti og ullarpeysur, bolir, pils
og dragtir er meðal þess sem
Bianca á Nýbýlavegi 12 býður til
kaups. Þar fást líka jakkar í úrvali,
buxur og keipar svo nokkuð sé
nefnt. Allt er þetta klassískur og
vandaður klæðnaður fyrir konur á
öllum aldri sem hentar vel íslensk-
um aðstæðum.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
al
ga
rð
ur
Fréttablaðið/Valgarður