Fréttablaðið - 13.10.2005, Blaðsíða 38
2 ■■■ { Kópavogur }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Áhersla á raungreinar
FYRSTI ÁFANGI VATNSENDASKÓLA ER RISINN OG SKÓLASTARF
HAFIÐ. SKÓLINN VAR VÍGÐUR FYRR Í ÞESSUM MÁNUÐI.
Vatnsendaskóli er nýr grunnskóli í Funahverfi sem vígður var fyrr í
þessum mánuði. Þegar er risinn fyrsti áfangi skólans og skólastarf
með 120 nemendum í 5 bekkjadeildum hefur þegar hafist. Næsti
áfangi skólans verður tek-
inn í notkun að ári.
Við hönnun á Vatnsenda-
skóla var gert ráð fyrir að
í skólanum verði ríkjandi
áherslur á raungreinanám
með sérstökum áherslum á
náttúrufræði. Í skólabygg-
ingunni er gert ráð fyrir
sérstakri aðstöðu sem á að
styðja við þessar áherslur en umhverfi skólans við Elliðavatn er sér-
staklega vel til þess fallið að fara með nemendur í vettvangsferðir
umhverfis vatnið og inn í Heiðmörkina sem er hinum megin við vatn-
ið. Arkitekt að byggingunni er Sveinn Ívarsson.
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan á
Íslandi mun standa fyrir rétttrún-
aðarmessu og lofsöng í Kópavogs-
kirkju á morgun kl.18 og má segja
það vera óformlega opnun á Rúss-
neskri menningarhátíð í Kópa-
vogi.
„Messan er í tengslum við hátíð
sem verður í okkar rétttrúnaðar-
kirkju á Rússlandi,“ segir Sergey
Guschin, þriðji sendiráðsritari
rússneska sendiráðsins. „Hátíðin
er haldin í tilefni af verndardegi
Maríu meyjar 14. október og
verður sunginn lofsöngur fyrir
henni til handa, sem var samin á
6. öld,“ segir Sergey og bætir við
að lofsöngurinn sé mjög þekktur
innan rétttrúnaðarkirkjunnar.
Safnaðarprestur rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar í Reykjavíkur-
borg, Séra Timothey, mun þjóna
við messuna, þó mun ekki vera
haldið hefðbundið sakramenti
eins og tíðkast í messum hjá rúss-
nesku rétttrúnaðarkirkjunni.
„Við höfum boðið biskupi Íslands
að sækja messuna, auk þess sem
allir eru velkomnir,“ segir Sergey.
Kórinn sem syngur lofsönginn
samanstendur af safnaðarmeðlið-
mum rússneskur rétttrúnaðar-
kirkjunnar í Reykjavíkurborg.
Messur eru hjá söfnuðinum eru
hvern laugardag og sunnudag að
Túngötu 24 í húsakynnum rúss-
neska sendiráðsins.
Rússneskur rétttrúnaður
í Kópavogskirkju
Rússnesk messa verður haldin í Kópavogskirkju á morgun í tengslum við
rússneska menningarhátíð sem hefst á laugardag.
Séra Timothey er safnaðarprestur
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í
Reykjavík og mun hann þjóna við
messu í Kópavogskirkju á morgun.
Fréttablaðið/E.Ól.
Heimsfrægur baritónsöngvari, rúss-
neskar kvikmyndir, íkon og Guð-
spjallabókin eru meðal þess sem í
boði verður á rússneskri menningar-
hátíð í Kópavogi dagana 15.-23.
október. Kópavogsbær stendur fyrir
hátíðinni í samvinnu við lista- og
menningarstofnanir í Kópavogi og
fleiri samstarfsaðila og er dagskráin
bæði vönduð og spennandi. Hæst
ber að nefna tónleika hins heims-
fræga barítónsöngvara Vladimir
Chernov og Terem-kvartettsins í
Salnum og hina merku sýningu Tími
Romanov-ættarinnar í Gerðarsafni
þar sem sýndir verða yfir 200 gripir í
eigu Ríkisminjasafnsins Tsarskoje
Selo og gefur þar að líta dýrgripi á
borð við Guðspjallabókina (Nýja
testamentið) frá 17. öld sem er sér-
legur fjölskylduhelgidómur Roman-
ov-ættarinnar. Enn fremur má nefna
fjölda gripa sem tengjast síðasta
keisara Rússlands, búninga, postulín,
málverk og ljósmyndir. Auk þess
verður kvikmynda- og ljósmynda-
sýning í Bókasafni Kópavogs, mál-
þing sem nefnist Rússland og ég,
bókmenntakynningar og fjölskyldu-
hátíð í Vetrargarðinum í Smáralind.
Frekari upplýsingar og dagskrá
má nálgast á vefsíðunni www.kopa-
vogur.is.
Dýrgripir og sjaldgæfar kvikmyndir
RÚSSNESK MENNINGARHÁTÍÐ VERÐUR HALDIN Í KÓPAVOGI DAGANA 15.-23. OKTÓBER. MERK SÝN-
ING VERÐUR Í GERÐARSAFNI, KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í BÓKASAFNI KÓPAVOGS OG TÓNLEIKAR Í SALNUM.
Gjánni lokað
GJÁIN SEM KLOFIÐ HEFUR MIÐBÆ KÓPAVOGS TIL MARGRA
ÁRA MUN BRÁTT HEYRA SÖGUNNI TIL. MIKLAR FRAMKVÆMD-
IR STANDA YFIR OG SKEMMTILEGT SVÆÐI MYNDAST FYRIR
GANGANDI VEGFARENDUR.
framkvæmdir }
Gamla skiptistöðin á brúnni brann til kaldra kola fyrr á þessu ári. Til stóð
að rífa bygginguna þar sem miklar breytingar eru fyrirhugaðar á svæð-
inu, svo skiptistöðin verður ekki endurbyggð á sama stað. Framkvæmd-
ir standa nú yfir þar sem gjánni verður lokað og þar kemur heilmikið
torg. Skemmtilegt útivistarsvæði mun myndast með göngusvæði og
tenging myndast milli menningarbygginganna, og stjórnsýslunnar sem
stendur hinum megin við gjána. Þarafleiðandi verða samgöngur þar á
milli mun auðveldari fyrir gangandi vegfarendur. Skiptistöðin mun fær-
ast og standa við tónlistarhúsið þar sem strætisvagnarnir koma. Svæðið
breikkar töluvert og gjáin sem klofið hefur bæinn til margra ára mun
heyra sögunni til.
Tölvuteikning af skipulagi gjárinnar í Kópavogi.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/N
or
di
cP
ho
to
s/
G
et
ty
Im
ag
es
Vladimir Chernov baritónsöngvari mun syngja í Salnum í Kópavogi á rússneskri menn-
ingarhátíð.
Búningur verndara Níundu kazönsku
Dragúnasveitar hennar keisaralegu tignar
verður á sýningunni Tími Romanov-ættar-
innar.
Úr Purpurastellinu frá Rússlandi, sem verður á sýningunni í Gerðarsafni sem verður
opnuð um helgina.