Fréttablaðið - 16.10.2005, Blaðsíða 34
14
TILKYNNINGAR/ÚTBOÐ
16. október 2005 SUNNUDAGUR
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í gatnagerð í Krikahverfi í Mosfellsbæ. Um er að ræða jarðvinnu,
holræsalagnir, vatns-og hitaveitulagnir auk lagningu strengja og ídráttarröra fyrir Orkuveituna og
Landsímann.
Helstu magntölur: Gröftur: 37.000 m3
Fyllingar: 31.000 m3
Holræsalagnir: 5.100 m
Vatnsveitulagnir: 3.400 m
Hitaveitulagnir: 2.700 m
Ídráttarrör: 3.600 m
Strengir: 46.000 m
Áætluð verklok 15. júní 2006. Prentuð útboðsgögn verða seld gegn 10.000,- kr greiðslu á tæknideild Mosfellsbæjar Völuteig
15, frá og með þriðjudeginum 18. október 2005. Hægt verður að fá útboðsgögn á geisladiski án endurgjalds. Tilboðum skall
skilað á sama stað fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 1. nóvember n.k þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem
þess óska.
Mosfellsbær er framsækið og nútímalegt bæjarfélag, þar sem byggðin teygir sig frá Leiruvogi inn í næstu dali og kringum fellin. Náin snerting við fagra náttúru, aðlað-
andi menningar- og félagslíf, fjölbreyttir möguleikar til útivistar og fölskylduvænt umhverfi eru á meðal ástæðna þess að svo margir velja að búa þar, fjarri skarkala
borgarlífsins en samt í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá miðborg Reykjavíkur, í einskonar sveitasælu með borgarbrag.
Tæknideild Mosfellsbæjar
Útboð
Krikahverfi – Gatnagerð
Auglýsing
um tillögu að aðalskipulagi
Sveitarfélagsins Árborgar 2005-2025.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar auglýsir hér með tillögu að aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2005-2025 samkvæmt 18. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73-1997 með síðari breytingum.
Skipulagsuppdrættir og greinargerð verða til sýnis á eftirtöldum stöðum:
• Í Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2 Selfossi
• Á skrifstofu Framkvæmda- og veitusviðs Árborgar, Austurvegi 67 Selfossi.
• Í húsnæði Hólmarastar, Hafnargötu 9 Stokkseyri.
• Í þjónustuskrifstofu Sveitarfélagsins Árborgar, Túngötu 40 Eyrarbakka.
Einnig verður tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 Reykjavík og á heimasíðu Árborgar www.arborg.is
Tillagan verður til sýnis frá og með fimmtudeginum 13. október 2005 til fimmtudagsins 10. nóvember 2005.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við skipulagstillöguna. Athuga-
semdir skulu hafa borist eigi síðar en 24. nóvember 2005.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu framkvæmda- og veitusviðs, Austurvegi 67 800 Selfossi. Þeir sem ekki gera athugasemdir við
skipulagstillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkja hana.
Einar Njálsson
bæjarstjóri.
Styrkumsóknir
Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum
um styrki til verkefna á sviði fjölskylduþjónustu í
Mosfellsbæ.
Umsóknir skulu berast þjónustuveri Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 1. hæð á þar til gerðum eyðublöðum í síð-
asta lagi 30. nóvember 2005. Eyðublöðin má nálgast í
þjónustuverinu og á heimasíðu bæjarfélagsins;
www.mos.is
Umsóknir sem berast eftir þann tíma hljóta að jafnaði
ekki afgreiðslu. Aðilar sem fengu styrk á síðasta ári þurfa
að skila inn greinargerð um ráðstöfun þess fjár.
Afgreiðsla styrkumsókna fer fram fyrir lok mars 2006.
Forstöðumaður fjölskyldusviðs
Læknafélag Reykjavíkur
Samninganefnd Læknafélags Reykjavíkur boðar til
fundar með sjálfstætt starfandi sérgreinalæknum
mánudagskvöldið 17. október kl. 20:00. Fundarstaður
verður í fundasal læknafélaganna Hlíðasmára 8.
Fundarefni: Framkvæmd skerðingarákvæða við
Tryggingastofnun ríkisins
Listamannalaun 2006
Umsóknarfrestur listamannalauna rennur
út 19. október kl. 16.00.
Eyðublöð fást á skrifstofu stjórnar listamannalauna
Túngötu 14 og á www.listamannalaun.is.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Stjórnar listamannalauna,
Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík.
Stjórn listamannalauna