Tíminn - 10.02.1976, Blaðsíða 2

Tíminn - 10.02.1976, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Þriftjudagur 10. fcbrúar 1976 Fialakötturinii sýnir tvær nýjar íslenzkar kvikmyndir gébé Rvik — Næstu tvo fimmtu- daga, verða sýndar tvær kvik- myndir eftir Þorstein .Jónsson i gamla Tjarnarbió. Nefnast myndirnar „Bóndi” og „Iiopp”, og eru sýndar á vegum kvik- myndaklúbbsins Fjalakattarins, en þetta er i fyrsta skipti sem al- menningi gefst kostur á að sjá þessar myndir Þorsteins. Kvikmyndin „Bóndi” er 30 minútur að lengd, tekin i litum á I6mm filmu. Hún er tekin á árun- um 1971-1975 — að mestu i Seyðisf- firði við Isafjarðardjúp. Höfuntí- ur handrits, stjórnandi, kvik- myndatökumaður, klippari og framleiðandi er Þorsteinn Jóns- son, en Baldvin Halldórsson flyt- ur texta og Sigfús Guðmundsson sá um hljóðblöndun. Tónlistin er eftir Edvard Grieg. Aðstoðar- menn við upptöku myndarinnar voru Agúst Guðmundsson, Bragi Jónsson, Sigurður Jakobsson og Ólafur Haukur Simonarson. t hinum afskekkta firði er ómögulegt að stunda búskap með nútfmasniði. Það vantar bæði raf- magn og vegi. Fólkið flyzt smám saman brott til kaupstaðarins og bæirnirleggjasti eyði einn af öðr- um. Guðmundur Ásgeirsson bóndi á Kleifum fer þó hvergi og býr sem fyrr án véla og raf- magns, ásamt Guðbjörgu konu sinni og þremur ungum börnum. Kvikmyndin „Hopp” er tiu minútur að lengd, og er tekin á 16 mm filmu. Hún er gerð árið 1970 af höfundif Þorsteini Jónssyni, sem verkefni við Kvikmynda- skólann i Prag. Efni myndarinn- ar verður tæpast með orðum lýst, en segja má að hún fjalli á skop- legan hátt um tilgang lífsins; Kvikmyndirnar verða sýndar fimmtudaginn 12. febrúar og fimmtudaginn 19. febrúar klukk- an 17,00, 18,00, 19,00, 20,00, 21,00, og 22 báða dagana. Verði að- göngumiða er stillt i hóf, náms- fólk fær aðgang á lækkuðu verði og að sjálfsögðu er ókeypis fyrir ellilifeyrisþega. Loðnuaflinn úm 16 þús. tönnum mínni en í fyrra Bræia Kefur vérið á miðunum undanfarna sólarhringa gébé Rvik — Aðeins sextán bátar biifðu tilkynnt um loðnuveiði kl. 18 i gærkvöldi og var afli þcirra 2.380 tonn. Aflann fengu bátarnir við Hrolllaugseyjar, en slæmt veður er á þessum slóðum og vcðurspáin einnig slæm. Heildar- loðnuaflinn nú er orðinn rúm 92 þúsund tonn, á móti 108 þúsund tonnum á sama tima i fyrra. í sið- ustu vikulok var Eldborgin GK 13 aflahæst með 3.580 tonn, en skip- stjóri er Gunnar Hermannsson. Loðnu hcfur verið landað á sam- tals 12 höfnum, auk bræðsluskips- ins Norglobal, sem hefur tekið á móti um fjögur þúsund tonnum siðan á laugardagskvöld, en skip- ið er inni á Reyðarfirði. Samkvæmt skýrslum Fiski- félags Islands, var vitað um 66 skip er fengið höfðu einhvern afla s.l. laugardagskvöld. Vikuaflinn i siðustu viku varð 32.301 tonn. Eldborg GK er aflahæst með 3.580 tonn, en fast á eftir fylgja Gisli Arni RE með 3286 tonn, Pét- ur Jónsson RE með 3149 tonn og Guðmundur RE með 3011 tonn. Allar þessar tölur eru miðaðar við vikulokin, 7. febrúar. Loðnu hefur verið landað á 12 höfnum og hefur mestu verið landað á Seyðisfirði eða alls 22.125 tonnum þann 7. febrúar. A Raufarhöfn hafi þá verið tekið á móti 14.194 tonnum og 10.912 tonn- um á Vopnafirði. Móttaka á loðnu hófst þegar á laugardagskvöld i Norglobal og var þá tekið á móti 479 tonnum, en i gærkvöldi hafði skipið tekið alls á móti um fjögur þúsund tonnum, þar sem það er inni á Reyðafirði. Atriði úr kvikmyndinni „Bóndi”. Guðmundur Ásgeirsson að störfum ásamt Ólafi syni sinum Sólveig Runólfsdóttir endurkjörin formaður — á aðalfundi fulltrúardðs Ferðafélagið reisir skýli milli Þórsmerkur og Landmannalauga gébé—Reykjavik. — Aðalfundur Fcrðafélags íslands var haldinn 3. febrúar s.l. og sóttu fundinn á þriðja hundrað manns. i skýrslu stjórnar kom fram, að hagur félagsins er ágætur, og hcfur ver- ið ákveðið að verja tekjuafgangi liðins árs til ýmissa bygginga- framkvæmda á öræfum, m.a. með smiði litilla liúsa, er verði rei.,t á leiðinni Þórsmörk—Land- kosnir fjórir menn i stjórn þess til þriggja ára. Sigurður Jóhannsson var endurkosinn forseti, en þvi starfi hefur hann gengt frá árinu 1961. Eyþór Einarsson og Lárus Ottesen voru einnig endurkosnir, en Böðvar Pétursson verzlunar- maður var kosinn i stað Gisla Gestssonar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs, en Gisli hefur setið i stjórn félagsins frá árinu 1939. Ferðaáætlun F.í. 1976 er nýkomin út, og hefur hennar áður verið getið i fjölmiðlum. Arbók þessa árs er i prentun og mun að likindum koma út i april n.k. Fjallar hún um Fjallabaksveg syðri og er skráð af Árna Böðvarssyni cand. mag. Framsóknarfélaganna í Kópavogi A aðalfundi Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna i Kópa- vogi, sem haldinn var 26. janúar s.l. var Sólveig Runólfsdóttir endurkjörin formaður fulltrúa- ráðsins. Aðrir i stjórn voru kjörnir Jóhanna Bjarnfreðsdótt- ir, Ragnar Snorri Magnússon og Hákon Sigurgrimsson. Auk þeirra eiga sæti i stjórninni formenn framsóknarfélaganna i Kópavogi þau Katrin Oddsdóttir form. Freyju, Sveinn V. Jónsson form. FUF og Skúli Sigurgrimsson form. FK. Vaiamenn voru kjörnir þeir Pétur Einarsson, Salómon Einarsson og Sigurður Geirdal. mannalaugar til hagræðis fyrir göngumenn, sem vilja fara þessa leið. Einnig verður hafizt handa um byggingarframkvæmdir á Kjalarsvæðinu og mun áherzla lögð á endurhyggingu sæluhúss- ins við llvitárvatn næsta sumar, Óvíst, hvort flugfélagið ásamt nauðsynlcgri undir- búningsvinnu að nýju sæluhúsi á llveravöllum. Samkvæmt iögum Ferðafélags íslands, voru á þessum aðalfundi Ernir hefur starfsemi — Félagið hefur fengið 750 þús. kr. árlegan styrk, en að vera þrefalt hærri, eða rúmlega þrjár milljónir kr. Hjálparstofnun kirkjunnar: Söfnunvegna jarðskjálft- anna í Guatemala gébé Rvik — Iljálparstofnun kirkjunnar á islandi hefur borizt beiðni frá aðalstöðvum Alþjóða - hjálparstofnunar kirkjunnar i Genf um fjárhagsstuðning vegna hjálparstarfsins i Guatemala, vegna hinna miklu jarðskjálfta er þar urðu 5. fcbrúar s.l. Hjálpar- stofnun kirkjunnar hér hefur þeg- ar sent 1500 dollara eða um 250 þúsund krónur. 1 þessu skyni hefur Hjálpar- stofnun kirkjunnar opnað giró- reikning númer 20000, en einnig munu sóknarprestar um land allt taka á móti fjárframlögum svo og biskupsstofa. SJ—Reykjavik. Starfsemi Flug- félagsins Arna á isafirði hefur lcgið niðri siðan um áramót, en það hefur haldið uppi sjúkraflugi á Vestfjörðum, póstferðum til Stigandafjarðar, Flateyrar, Þing- eyrar og Patreksfjarðar og dag- legum áætlunarferðum I isa- fjarðardjúp. Mjög óvist er að starfsemi félagsins hefjist á ný, að sögn Harðar Guðmundssonar flugmanns, sem er forsljóri fyrir- tækisins. önnur af tveim flugvél- um Arna hefur verið auglýst til sölu, og er von á tilboðum erlendis frá á næstunni. Félagið hefur fengið 750.000 kr. styrk á ári til sjúkra- og læknaflugs. Farið hefur verið fram á hækkun, en hún ekki fengizt. Að sögn Arna þyrfti styrkurinn að vera rúm- lega þrjár milljónir króna. Sú afturför i samgongum, sem orðið hefur við að starfsemi Arna lagðist niur, hefur mælzt illa fyrir um Vestfirði. Fólk við Djúp er uggandi um sinn hag. Að sögn Jóns Þórðarsonar i Laugarási i Skjaldfannardal, voru ibúar við Inndjúp flekaðir með loforðum til að taka þátt i að reisa heilsu- gæzlustöð á tsafirði. En þvi mun hafa verið heitið, að sjúkraflugvél yrði til staðar á ísafirði og að flugvöllum við Djúp yrði haldið nothæfum i skaplegu veðri. Flugfélagið Ernir helt uppi ferðum þrisvar i viku til Súgandafjarðar, og tvisvar i viku til Flateyrar, Þingeyrar og Pat- reksfjarðar. Þetta voru póstferð- ir, og greiddi Póstur og simi fyrir þær samkvæmt taxta, sem er sá sami hvort sem um flugvél eða bil er að ræða, sem flytur póstinn. Farþegaflutningar eru stopulir milli fjarða, og þvi var fjárhags- grundvöllur þessarar starfsemi einnig brostinn. Hins vegar kemur þetta Vestfirðingum illa, en póstur frá Isafirði til Súganda- fjarðar er nú fluttur með snjóbil, og póstur á hina firðina þrjá fer fyrst suður til Reykjavikur, og siðan þaðan aftur til Vestfjarða. Fjórðungssamband Vestljarða hefur beitt sér fyrir þvi að halda starfsemi P'lugfélagsins Arna gangandi. Þess var farið á leit við hlutaðeigandi hreppsfélög, að þau legðu til sem svarar 300 kr. á ibúa til styrktar fluginu, og tóku flestar hreppsnefndir vel i þá málaleitan. Hins vegar visaði bæjarstjórn Isafjarðar málinu til Fjármála- og heilbrigðisráðu- neytis, þar sem rikinu bæri að inna þessar greiðslur af hendi, og bæjarstjórnin vildi ekki taka á sig auknar byrðar af rikinu. Þar með féll þessi lausn um sjálfa sig, þar sem meginhluti þessa fjárstuðn- ings hefði komið i hlut tsfirðinga. Að sögn Harðar Guðmundsson- ar hefur Matthías Mathiesen fjármálaráðherra ekki sýnt máli þessu skilning, og virðist litil von til að svo verði. Hins vegar hefur fjárstuðningur við Djúpbátinn verið aukinn, og nemur nú 17 milljónum króna á ári. Flugfélagið Ernir hefur haldið uppi flugsamgöngum á Vestfjörð- um i sjö ár, og siðustu þrjú árin helur verið tap á rekstrinum. Félagið hefur tvivegis orðið fyrir tjóni, og kann það að eiga telur hann þurfa sinn þátt i erfiðleikum þess nú. Hörður benti á, að Matthias Bjarnason hefði i tilefni þessa máls sagt, að Tryggingastofnun rikisins greiddi fyrir sjúkraflug. Það kvað hann rangt vera, hins vegar endurgreiddi Trygginga- stofnunin sjúklingunum kostnað við sjúkraflug. Benti hann á, að svo sem fram hefði komið i viðtöl- um við aðra aðila, sem sjúkraflug stunda, þá væri oft erfitt að inn- heimta greiðslur fyrir sjúkraflug. Menn gengju ekki hart aö sjúku fólki, og stundum væri það látið, áður en greiðsla væri komin fyrir sjúkraflugið. Timinn sneri sér til Steingrims Hermannssonar álþingismanns vegna þessa máls, og kvað hann Flugfélagið Erni hafa veitt Vest- firðingum ómetanlega þjónustu á undanförnum árum. Framlag til sjúkraflugs á landinu var hækkað um eina milljón nú fyrir áramót, og er nú hálf fjórða milljón. Unnið er að þvi að skipta þessu fé, og mun verða leitazt við að Ernir fái aukinn hluta af fjárframlaginu, þóttsá styrkur nái e.t.v. skammt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.