Tíminn - 10.02.1976, Blaðsíða 7

Tíminn - 10.02.1976, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 10. febrúar 1976 TÍMINN 7 v... ........... / Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:; Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Glsla- son. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu við Lindargötu, .simar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aöalstræti 7, simi 26500. — afgreiðsiusimi 12323 — auglýsingasiim 19523. Verð j lausasölu ér. 40.00. Askriftargjald kr. 800.00 á mánuði. f' Blaöaprent fT.fJT Hvers virði er þátt- takan í Nato? Á vegum Atlantshafsbandalagsins er nú unnið að þvi að finna lausn á deilu Islendinga og Breta. Rikisstjórnin hefur talið rétt að verða við þeim ósk- um ýmissa stjórna bandalagsrikjanna að fresta á meðan slitum á stjórnmálasambandi við Bretland, sem ella væri margföld ástæða til. Að öðrum kosti myndi þvi verða kennt um, ef þessar samkomulags- tilraunir misheppnast, að það væri sök íslendinga. Þeir hefðu spillt fyrir samkomulagi á þann hátt að rjúfa stjórnmálasambandið, þegar samkomulags- tilraunirnar stóðu sem hæst. Af þessum ástæðum er vafalitið rétt að veita Nato nokkurn frest, en hann má ekki standa lengi. Fyrir Atlantshafsbandalagið ætti ekki að vera erfitt að dæma i deilu íslendinga og Breta. Bretar sjálfir viðurkenna, að óhjákvæmilegt sé að draga úr þorskveiðum við Island, ef ekki á að stefna þorsk- stofninum i stórfellda hættu. Þegar forsætisráð- herrar Islands og Bretlands hittust i London fyrir rúmum hálfum mánuði, var það lagt til grundvallar viðræðum þeirra, að leyfður hámarksafli á þorski á árinu 1976 yrði 265 þús. smálestir. Jafnframt var það lagt til grundvallar, að Islendingar leyfðu öðr- um þjóðum en Bretum að veiða um 20 þús. smál. af þorski, og var Færeyingum ætlaður bróðurpartur- inn af þvi. Eftir voru þá 245 þús. smál., sem komu til skipta milli íslendinga og Breta. Þegar hér var komið útreikningum, var komið að þvi að meta, hver forgangsréttur strandrikisins ætti að vera, en Bretar hafa margoft lýst yfir þvi, að þeir viðurkenni forgangsrétt strandrikisins i þess- um efnum. Um þetta mat náðist ekki samkomulag á fundum forsætisráðherranna. Ef Nato ætlar að láta deiluna til sin taka og vinna að lausn hennar, verður það fyrst og fremst að leggja til grundvallar, hver forgangsréttur Islendinga eigi að vera. Samkvæmt þvi, sem brezk stjórnarvöld hafa til- kynnt, hafa þau ákveðið að láta brezka togara veiða a.m.k. 85 þús. smál. af þorski á tslandsmiðum á ár- inu 1976, ef ekki næst samkomulag. Það er 10—15 þús. smál. minna en Bretar veiddu af þorski á Is- landsmiðum á siðast liðnu ári. Ef miðað er við 265 þús. smál. heildarafla þorsks á íslandsmiðum á ár- inu 1976, verða samkvæmt þessu ekki nema 160 þús. smál. eftir handa íslendingum. Þorskafli Is- lendinga var á siðast liðnu ári um 240 þús smál. ís- lendingar eiga samkvæmt þessu að veiða 80 þús. smál. minna af þorski á þessu ári en á siðast liðnu ári. Af þessum tölum má bezt ráða, hvernig Bretar meta forgangsrétt íslendinga til þorskveiðanna. Á sama tima og Bretum er ætlað að minnka þorskafla sinn um einar 10—15 þús. smál., eiga íslendingar að minnka þorskafla sinn um 80 þús. smál. Sannarlega er ekki hægt að hugsa sér meira öfugmæli en þegar Bretar lýsa hátiðlega yfir þvi, að þeir viðurkenni forgangsréttlslendinga, en hyggjast svo fylgja hon- um fram með áðurgreindum hætti! Ef Natoþjóðirnar lita með sanngirni á þessi mál, ætti ekki að þurfa að efast um úrskurð þeirra. Þær ættu ekki að þurfa marga daga til að átta sig á þvi, hvort þær eiga að taka afstöðu með íslendingum eða Bretum. Á íslandi er nú beðið með mikilli eftir- væntingu eftir þessum dómi þeirra. Nú reynir fyrst á það i alvöru, hvers virði það er Islendingum að eiga aðild að Atlantshafsbandalaginu. Eftir þetta verður auðveldara fyrir Islendingá að dæma um, hvort þeir eiga þar heima eða ekki. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Marchais hafnar alræði öreiganna Samkeppnin við Mitterrand hefur stutt að því NÚ UM helgina lauk sögu- legu þingi kommúnistaflokks Frakklands. Það tók þá ákvörðun, að flokkurinn hyrfi frá þeirri meginstefnu, sem hann hefur fylgt frá upphafi að takmark hans væri aðkoma á alræði öreiganna. 1 staðinn markaði flokkurinn sér stefnu á þingræðisgrund- velli. 1 raun og veru má segja, að hér sé ekki um stefnubreyt- ingu að ræða, heldur miklu fremur stefnubyltingu. Flokk- urinn hefur, a.m.k. i orði, hætt að vera byltingarflokkur og gerzt umbótaflokkur á borgaralegum grundvelli, i likingu við róttæka sósial- demókratlska flokka i Evrópu. 1 itarlegri ræðu, sem foringi flokksins Georges Marchais, hélt við þingsetninguna, tók hann beint og óbeint afstöðu gegn ýmsum stjórnarathöfn- um i Sovétrikjunum, en þó einkum þeim refsiaðgerðum, sem gagnrýnendur stjórn- kerfisinsþar væru beittir, eins og þrælkunarvinnu og innilok- un á geðveikrahælum. „Við viðurkennum ekki undir nein- um kringumstæðum,” sagði Marchais, „verk eða athafnir, sem setja blett á sósial- ismann. Við munum lika fara okkar eigin leið,” sagði hann, „en ekki eftir erlendum fyrir- myndum, til þess að árétta hina nýju stefnu sem bezt.” Marchais komsteinnig svo að orði, að þar sem ekki væri frelsi, væri ekki heldur sósial- ismi.Hann tók þaðþófram, að ágreiningur um slik atriði yrði ekki til þess að rjúfa sam- starfið við kommúnistaflokk Sovétrikjanna, en slik sam- vinna yrði af augljósum ástæðum að byggjast á jafn- réttisgrundvelli. Franski kommúnistaflokk- urinn hefur verið talinn tregastur kommúnistaflokka i Vestur-Evrópu til að hafna forustuhlutverki rússneska kom múnistaflokksins. Þvi vekur þing hans nú aukna athygli. Segja má, að hér hafi kommúnistaflokkur Italiu rutt brautina. Það þótti ljóst eftir fund þeirra Marchais og Berlinguers, leiðtoga italskra kommúnista, sem var haldinn i Róm i nóvember siðast liðn- um, að þess myndi skammt að biða, að franskir kommúnist- ar fylgdu hér i slóð italskra flokksbræðra sinna. Eftir fundinn birtu þeir yfirlýsingu, sem benti eindregið i þessa átt. Fyrir þá fulltrúa kommún- istaflokks Sovétrikjanna, sem Francois Mitterrand sátu flokksþing franskra kommúnista, hefur það verið allt annað en ánægjulegt að hlýða á ræðu Marchais og fylgjast með ályktanagerð þingsins. Segja má, aðhér hafi endanlega verið kippt fótum undan þeirri von valdhafanna i Moskvu, að þeim tækist á ráðgerðu þingi kommúnista- flokka i Evrópu, að fylkja þeim að nýju undir íeiðsögu sina, og að fá samþykkta sameiginlega grundvallar- stefnu i þeim anda, sem þeir helzt kysu. Það mun þó ef til vill hafa verið þeim nokkur huggun, að engir fulltrúar voru mættir frá kommúnista- flokki Kina, enda þótt þingið sætu fulltrúar kommúnista- flokka eða skyldra flokka frá 85 löndum. AÐ SJÁLFSÖGÐU er mikið um það rætt, hvað hafi ráðið mestu um þessa stefnubylú ingu frá frönskum kommún- istum. Sjálfir segja þeir, að hér sé um að ræða eðlilega þróun, sem sé I samræmi við breyttar aðstæður og breytta tima. Andstæðingar þeirra segja hins vegar, að stefnu- breytingin sé aðeins i orði, en ekki á borði. Hún sé gerð til þess að afla þeim kjörfylgis. Leanut, leiðtogi miðflokk- anna, sem á sæti i rlkisstjóm d’Estaings, hefur orðaðþetta þannig: „Þeir taka ofan grim- una, ef þeir komast til valda”. Mitterrand, leiðtogi sósial- ista, hefur verið spurður. hvort hann áliti þessa stefnu- byltingu hjá kommúnistum sýndarmennsku. Svar hans var á þá leið, að hann vissi það ekki, en hann vonaði, að svo væri ekki. Annars er það álit margra fréttaskýrenda, að Mitterrand eigi óbeint mikinn þátt i þess- ari stefnubyltingu kommún- ista. Árið 1972 komst á sam- vinna milli kommúnista og sósialista um vissan málefna- grundvöll, er gerði þessum flokkum mögulegt að standa^ saman að framboði Mitter- ands i forsetakostningunum 1974. A þeim tima, sem siðan hefur liðið, hefur komið i ljós, i aukakosningum, að fylgi sósialista fer vaxandi, en fylgi kommúnista stendur i stað, eða tæplega það. Samkvæmt skoðanakönnunum, sem ný- lega hafa farið fram, virðast sósialistar hafa um 30% kjós- enda að baki sér, en komm- únistarum 20%. Liklegt þykir, að leiðtogum kommúnista hafi þótt þetta iskyggilegar tölur. Jafnframt hafi þeir talið, að jæssari þróun yrði ekki breytt, nema þeir breyttu um stefnu og næðu til kjósenda, sem nú taka sósialista fram yfir þá. Reynslan frá Italiu getur lika hafa verið þeim hvatning i þessum efnum. ENN ER erfitt að spá um, hvaða áhrif þetta getur haft á frönsk stjórnmál. Ýmsir fréttaskýrendur draga i efa. að þetta verði til að styrkja samstarf sósialista og komm- únista. Það hefur farið versn- andi að undanförnu, m.a. vegna þess, að kommúnistar hafa óttazt samkeppnina við sósialista og gagnrýnt þá i vaxandi mæli, en sósialistar hafa svarað fullum hálsi. Nú þykir ekki ósennilegt, að sósialistar óttist meira eftir en áður samkeppnina við komm- únista, þar sem þeirhafa farið inn á svið sósialista, ef svo mætti segja. Þá þurfa sósial- istar ekki aðeins að gæta þess að missa ekki fylgi til komm- únista, heldur einnig til hægri. Nýlega hefur einn af leiðtog- um þeirra, Eric Hintermann, gengið úr flokknum og stofnað nýjan sósialdemókratiskan flokk, sem ætlar að bjóða fram i héraðsstjórnakosningum. sem fara fram á næsta ári. Þingkosningar verða ekki fyrr en 1978, og forsetakosningar ekki fyrr en 1981. Þ.Þ. Georges Marchais

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.