Tíminn - 12.02.1976, Side 5
Fimmtudagur 12. febrúar 1976
TÍMINN
5
Vantar hann
rússneska
hreiminn?
t Þjóðviljanum i gær birtist
óvenju rætið lesandabréf— að
öllum likindum heimatilbúið
— um einn af fréttainönnum
Sjónvarpsins, Jón Ilákon
Magnússon, sem haft hefur
umsjón með eriendum frétta-
skvringaþáttum, ásamt öðr-
um. Astæða er til að gefa smá-
sýnishorn úr „rósagarði”
Þjóðviljans:
„Það er bókstaflega sálar-
drepandi að liorfa og hlusta á
þcnnan veslings mann,
þvoglumæltan og illa læsan,
slettandi málvillum á báða
bóga. Um heimsku eða hugs-
anlega greindarvísitölu Jóns
Hákons skal ég ekki dæma, en
a.m.k. virðist hann ekki hafa
r nægar gáfur eða sjálfsgagn-
rýni til að sjá, hversu gersam-
lega óhæfur hann er til starfs
sins. Hann virðist þvi ætla að
verða eilifur augnakall istofn-
uninni og nýtur þar líklega
góðs af hinni fáránlegu
æviráðningu rikisstarfs-
inanna.”
Þaö er enginn hörgull á
ófögruin lýsingarorðum á rit-
stjórnarskrifstofum Þjóðvilj-
ans, þcgar mikið liggur við.
En hver skyldi nú vera raun-
veruleg ástæða fyrir þessum
ófrægingarskrifum blaðsins?
Vaiitar Jón Hákon kannski
rússneska hreiminn hans
Arna Bergmanns?
Það væri miklu heiðarlegra
fyrir Þjóðviljamenn að segja
það umbúöalaust, að þeir
söknuðu Arna Bcrgmanns I
erlenda fréttaskýringaþættin-
um, i stað þess að ráöast nieð
þcssum hætti að Jóni Hákoni
IVlagnússýni, sem af flestum
Vantar Jón Hákon rússneska
hreiminn hans Arna Berg-
manns?
cr talinn góður fréttamaður.
Og ennþá verra er fyrir þá
Þjóðviljamenn að beita þeim
rökum, sem vitnað hefur verið
til að framan, ef til kæmi, að
Arni Bergmann ætti aftur-
kvæmt I þessa þætti, þvi ef
regla Þjóðviljamanna ætti að
giida yrði Arni Bergmann
fyrstur dæmdur i leik, nema
svo óliklega vildi tii, að rúss-
neskra áhrifa væri farið að
gæta hér á landi i rikara mæli
en nú er.
Orðljótur
þingmaður
En það eru vissulega fleiri
orðljótir en Þjóðviljamenn.
Sumir þingmanna Alþýðu-
bandalagsins veigra sér ekki
við að kalla andstæðinga sina
öllum illum
nöfnum.
Einn þing-
manna
þeirra gciig-
ur þó lengst i
þeim efnum.
E r þa ð
Stefán Jóns-
son. Gerir
Mbl. framkoinu þingmannsins
að umræöuefni i gær. Ræðir
blaðiö fyrst um ágreining
stjórnarþingmanna og stjórn-
arandstæðinga i landhelgís-
málinu, og telur, að umræður
uni tnálið hafi verið málcfna-
legar, með einni undantekn-
ingu. Blaðið segir:
Málflutningur stjórnarand-
stöðu hefur með einni undan-
tekningu, litt farið út fyrir
þessi sjálfsögðu inörk. Hins
vegar hefur orðfæri eins þing-
manns, Stefáns Jónssonar,
verið með þeim eindæmum,
að fordæmi finnast ekki, nema
þá i fyrri ræðum þessa sama
þingmanns. Hann segir blá-
kalt að samningarnir við V-
Þjóðverja hafi verið
„svikasamningar" sem
„þvingaðir hafi verið með flá-
ræði” upp á þjóðina af
„ciðsvörnum vinum óvina
okkar”. Hann gefur i skyn að
það hafi verið samspil is-
lenzkra og brezkra stjórn-
valda að kalla brezka flotann
út fyrir landhelgismörkin, til
að koma f veg fyrir stjórn-
máiaslit, sem og að herskipa-
ihlutun skyldi hafin á ný. Hann
likir viðræðum islenzkra
stjórnvalda við „viðræður
aumingjanna".
Orðsóði er Ijót nafngift.
Enginn þingmaður hefur þó
koinizt nær þvi að gangast
undir hana en þessi stóryrti
þingmaður. A slfkum mál-
flutningi hljóta allir, hver sem
afstaða þeirra til málsins er
að öðru leyti, að hafa skömm
og viðurstyggð.”
— a.þ.
Tíminn
er
peningar
Nýtt loðnuverð:
FULLTRÚAR KAUPENDA
MÓTMÆLA HARÐLEGA
— kr. 3,25 til 8. febrúar, en kr. 3,00 9.—15. febrúar
gébe Rvík — A fundi yfirnefndar
Verðlagsráðs sjávarútvegsins á
laugardaginn, var ákveðið nýtt
lágmarksverð á loðnu til bræðslu,
en eins og kunnugt er var verðið
áður kr. 9.50. Frá 1. til 8. febrúar
verður verðið þvi, kr. 3.25 á kg og
frá 9. til 15. febrúar kr. 3.00 á kg.
Auk framangreinds verðs greiði
kaupendur löaura fyrirhvert kíló
i loðnuflutningasjóð. Verðið var
ákveðið af oddamanni og fulltrú-
um seljcnda gegn atkvæðum full-
trúa kaupenda i nefndinni. í yfir-
nefndinni áttu sæti þeir ólafur
Davíðsson, sem var oddamaður
hennar, Páll Guðmundsson og
Tryggvi Helgason af hálfu selj-
enda og Guðmundur Kr. Jónsson
og Jón Reynir Magnússon af
hálfu kaupenda.
Fulltrúar kaupenda létu bóka
svofellda greinargerð: „Við
verðlagningu á loðnu til bræðslu
18. janúar sl. var lagt til grund-
vallar gildandi sjóðakerfi sjávar-
útvegsins,en gert ráð fyrir gildis-
töku nýs kerfis frá 1. febrúar. Þar
sem fullvist er, að fyrirhugaðar
breytingar á sjóðakerfinu taka
svo seint gildi, að þær koma
loðnuveiðum og vinnslu að litlu
gagni d þessari vertið, lögðu full-
trúar kaupenda til, að 6% af þeim
útflutningsgjöldum, sem ganga
til oliusjóðs og vátryggingasjóðs
fiskiskipa yrðu felld niður, en það
er sem næst jafngildi uinfram-
tekna sjóðanna af loðnuveiðun-
um. Tekjur oliusjóðs og vátrygg-
ingasjóðs af útflutningsgjöldum
loðnumjöls og lýsis ásamt
frystri loðnu alla loðnuvertiðina,
má ætla að nemi um 630—660
milljónum króna, en útgjöld sjóð-
anna vegna loðnuveiðanna um
310—320 milljónum. Tekjur þess-
ara sjóða umfram gjöld af loðnu-
veiðunum og vinnslu afurðanna
eru þvi um 320—340 milljónir
króna. Sli'k tekjutilfærsla yfir til
annarra greina sjávarútvegsins
þola loðnuveiðar og vinnsla díki
við þau rekstrarskilyrði, sem
þessi atvinnugrein býr við i dag.
Við mótmælum harðlega verð-
ákvörðun þessari og synjun
stjórnvalda á beiðni um niðurfell-
ingu á hluta útflutningsgjalda.
Teljum við áætlun oddamanns
um afurðanýtingu, 16% i mjöli og
6,7% i lýsi á fyrra verðtimabili,
en 5,7% á þvi siðara, alltof háa.
svo og markaðsmat, en mat hans
á vinnslukostnaði allt of lágt. Af
þeim sökum er fyrirsjáanlegt að
rekstrartap verksmiðjanna
verður þeim gjörsamlega of-
viða.”
Slaufusala ein-
stæðra foreldra
FÉLAG einstæðra foreldra
efnir til árlegrar slaufusölu
sinnar, sunnudaginn 15. febrú-
ar, og verða merkin afhent i
barnaskólunum frá kl. 10
árdegis. Þetta er þriðja árið i
röð sem félagið selur slaufur,
unnar i sjálfboðavinnu af fjölda
félaga. Allur ágóði af sölu
rennur til Húsbyggingasjóðs
sem fyrr.
Fjáröflun FEF hefur verið
með blóma síðastliðin ár, enda
eru þær byggingafram-
kvæmdir, sem að er stefnt mjög
fjárfrekar. Þá verður á næst-
unni farið út i almenna söfnun
styrktarfélaga, og er vonazt
eftir góðum undirtektum.
Félag einstæðra foreldra fór
oginn á þærnýstárlegu brautir i
fjáröflun i fyrra að hefja gerð
trefla i litum iþróttafélaganna.
Voru treflar síðan seldir á leikj-
um flestra 1. deildar
knattspyrnuliða i fyrrasumar,
og i vetur hefur salan einbeitzt
að handboltaleikjum 1. deildar-
liða. Þá mun fjáröflunarnefnd á
næstunni fara að veita viðtöku
treflapöntunum beint frá
iþróttafélögunum, og á það
einnig við um lið úti á lands-
byggðinni. Geta áhugamenn
haft samband þar að lútandi við
skrifstofu FEF i Traðarkots-
sundi 6.
BORGARHÚSGÖGN
Okkar árlega
ÚTSALA Á ÁKLÆÐI
stendur nú yfir
MIKILL AFSLÁTTUR
Getum einnig tekið klæðningar
BORGARHUSGOGN
SERSTAKT TILBOÐ
Blaupunkt SJÓNVÖRP
sem ættu að kosta kr. 92.650
seljast gegn staðgreiðslu á
KR. 85.000
Afborgunarskilmálar: Verð kr. 89.500
Útborgun kr. 30.000
Eftirstöðvar til 8 mánaða
/
(SZfageáóóon h.f.
REYKJAVÍK - AKUREYRI
auk eftir
talinna
umboðs
manna
Akranes: Verzlunin Bjarg
Borgarnes: Verzlunin Stjarnan
Búðardalur: Einar Stefánsson
Patreksfjörður: Baidvin Kristjánsson
Bildudalur: Verzlun Jóns Bjarnasonar
Bolungarvik: Jón Fr. Einarsson
Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirðinga
Siglufjörður: Gestur Fanndal
Húsavik: Bókav. Þór. Stefánssonar
Hornafjörður: Verzlunin Kristall
Vestmannaeyjar: Verzlunin Stafnes
Selfoss: G. A. Böðvarsson
Keflavik: Verzlunin Stapafell.
Auglýsið í Tímanum