Tíminn - 12.02.1976, Síða 6
6
TÍMINN
Fimmtudagur 12. febrúar 1976
Lífið í brjóstum okkar
KVÆÐI 52 bls. Helgafell 1975.
Halla Lovisa Loftsdóttir:
ÞETTA ER ekki stór bók.
Blaðsiöur hennar eru ekki
margar, og ekki er heldur hægt
að segja að mjög mikið sé á
hverri slöu, og er þó miklu betur
farið með pappirinn en oft ger-
ist, þegar ljóðabækur eiga i hlut.
En þótt efni bókarinnar láti ekki
mikið yfir sér hvað fyrirferðina
snertir, og þaðan af siður ef
miðað er við það, hve hátt er
haft, þá hefur það yf ir sér ljúfan
þokka. Kvæðin anda friði til les-
enda sinna, menn ættu að geta
orðið dáli'tið sáttari við tilver-
una af að lesa þau.
Enginn vafier á þvi, að ljóðið
hefur snemma vitjað Höllu
Loftsdóttur, eins og hún segir
sjálf I fyrstu hendingum bókar-
innar:
Hrærastbak við húmsins tjöld
hendingar úr stöku.
Fyrir hartnær hálfri öld
heyrði ég þær um rökkur-
kvöld.
Hvi er þetta að halda fyrir
mér vöku?
Já, það er nú spurningin:
Hvers vegna i ósköpunum hefur
islenzk þjóð alltaf veriö að
yrkja, alla si'na daga, hver sem
ytri kjör hennar voru? Það
skyldi þó aldrei vera vegna
þess, að skáldskapurinn, sú
iþrótt, sem Egill Skallagrims-
son kallaði „vammi firrða,” er
sjálft lifiö i brjóstum ís-
lendinga? Hér var að visu
óþarft að setja spurningar-
merki, þjóðin hefur fyrir löngu
svarað spurningunni, hún hefur
verið að svara henni siðustu
þúsund árin, og hún er að þvi
enn þann dag i dag.
Nærri má geta, að húsfreyja i
sveit, sem missir mann sinn frá
mörgum ungum börnum, hefur
ekki mikinn tima til þess að
sinna ritstörfum. Ljóð hennar i
Kvæðum eru ekki ársett, og mig
brestur um þaö heimildir, hvort
þau eru ort á búskaparárum
hennar á Sandlæk, eða eftir að
hún var setzt að i Reykjavik.
Liklegast er þó, að hvort
tveggja sé.
Halla Lovisa hefur verið gædd
rikri tilfinningu fyrir náttúru-
fegurö, og ekki aðeins i þeirri
hefðbundnu merkingu, sem al-
gengast er að leggja i það orð.
Henni nægir ekki fossaniður og
fjallasýn, þótt hvort tveggja sé
harla gott, hún óskar lika eftir
gróörarskúrum og heiðum
himni, eins og hún segir i Vor-
þrá:
Kom þú vor með bliða blæinn,
birtu og fegurð allan daginn,
gróðurskúrir, bros i bæinn,
blómailm um hæð og dal,
heiðan, bláan himnasal.
Láttu út um lönd og sæinn
lifsins hörpu þina
öllum flytja dýrðarsöngva
sina.
Sýnu áhrifameira er þó ljóðið
Kom hann og söng, þvi að þar
gerir höfundur lesendum sinum
þann ómetanlega greiða að láta
þeim eftir umhugsunarefni.
Kvæðið má skilja á ýmsan veg:
Kom hann og söng i klettinum
dökkur á brún og brá.
Hlusta ég enn eftir hljóminum
sem heppnaðist ekki að ná.
Kemur hann oftar á kvöldin?
Þetta kvæði, sem alls er fimm
erindi, finnst mér með beztu
ljóðum bókarinnar.
Sum kvæðin i bók Höllu
Lovisu Loftsdóttur eru sprottin
beint úr lifsreynslu hennar
sjálfrar. Hún yrkir ljóð i minn-
ingu mannssins, sem hún missti
eftir aðeins sjö ára sambúð, og
um son sinn, sem dó á bezta
aldri. Sökunuðurinn er sár, en
styrkur skáldkonunnar er trúin,
og kemur það bæði fram i þess-
um kvæðum og ýmsum öðrum.
Það þykir mér galli á þessari
útgáfu, að ekki skuli neitt efnis-
yfirlit fylgja kvæðunum. Það
má lika telja til ókosta, að bókin
skuli ekki vera stærri en þetta,
þvi ekki leikur vafi á, að Halla
orti fleiri ljóð en standa innan
spjalda þessarar bókar. Kvæði
hennar hafa verið að birtast i
timaritum á liðnum árum, Eim-
reiðinni og sjálfsagt viðar. Enn
fremur skrifaði skáldkonan að
minnsta kosti eina smásögu, svo
kunnugt sé. Hún heitir Kona
Pilatusar, og hefur verið flutt i
útvarp. — Fyrst beðið var með
að birta skáldskap Höllu þangað
til hún var orðin háöldruð (vant-
aði hálft ár i nirætt), finnst mér
að vel hefði mátt safna saman
flestu eða öllu, sem vitað var til
að hún hafði skrifaö, og birta
það i einni myndarlegri bók.
Það var átakanlegt að Halla
skyldi ekki lifa það að sjá bók
sina komna út. Hún náði aðeins
að sjá fyrstu próförkina, rétt
fyrir andlát sitt. Ef til vill hefur
hún sjálf ekki viljað að meira
yrði tekið i þessa bók, um það er
mér ekki kunnugt, en þess ber
að vænta, að næst þegar kvæði
Höllu Lovisu Loftsdóttur verða
gefin út, verði ekki látið við, það
sitja að birta þau ljóð, sem nú
koma fyrir almennings sjónir,
heldur verði þá þvi sem eftir
hana liggur safnað á einn stað,
svo að fullt yfirlit fáist um verk
þessarar hugljúfu og smekkvisu
skáldkonu. — VS.
Þessi mynd var tekin að Sólheimum i siðustu ferð Ægis-
félaga þangað. Hafa þeir jafnan skennntidagskrá fyrir vistmenn á
litlu jólunum og vistmennirnir hafa venjulega einhverja dagskrá sjálf-
ir, sem þeir flytja fyrir gestina, setja jafnvel stundum á svið heila
helgileiki. Hér sýna piltar prikaleik, sem er þroskaheftum töluverð list
að leika.
Sjónvarpsbingó Ægis
hefst á föstudag
O Brezkir
til Brússel og kæmi til greina
að hann héldi til íslands
siðar.
t gærkvöldi var ekki búið
að tilkynna islenzka utan-
rikisráðuneytinu um árang-
ur viðræðnanna i London.
Helgi Agústsson sendi-
ráðsfulltrúi i London sagði i
gærkvöldi að undanfarna
daga hafi bersýnilega verið
um mjög hatramma
áróðursherferð að ræða af
hálfu brezku rikisstjórnar-
10. reglulegu tónleikar Sinfóniu-
hljómsveitarinnar eru haldnir i
Háskólabiói fimmtudaginn 12.
febrúar klukkan 20.30. Efnisskrá-
in er eins og hér segir:
Bach: Brandenborgarkonsert nr.
3
Weber: Concertino i Es-dúr
M. Seiber: Concertino
Dvorak: Sinfónia nr. 7
Stjórnandi er Karsten Andersen,
aöalhljómsveitarstjóri hljóm-
innar til aö réttlæta aðgerð-
irnar á islandsmiðum.
Brezkir ráðamenn með
Hattersley aðstoðarutan-
rikisráðherra i broddi
fylkingar berjast um hart i
íjölmiðlum til að leggja
áherzlu á að Islendingar séu
mjög óábyrgir i afstöðu sinni
til landshelgismála og hai'i
enga heimild til að færa
landhelgina út einhliða og
séu brezku togararnir að
veiðum á alþjóðlegu haf-
svæði. Þá segjast þeir gera
allt sem i þeirra valdi standi
bæði f'rá verndunarsjónar-
sveitarinnar og einleikari á klari-
nettu er John McCaw.
JOHN MCCAW fæddist i Dune-
din á Nýja Sjálandi, þar sem hann
fékk fyrstu tónlistarmenntun
sina. Þegar sinfóniuhljómsveit
var stofnuð i Dunedin, skipuð at-
vinnumönnum, var John McCaw
ráðinn aðalklarinettuleikari
hennar. Hann fór til Englands og
stundaði framhaldsnám hjá
Frederic Thurston og var
skömmu siðar boðið starf við Fil-
harmóniuhljómsveit Lundúna,
þar sem hann varð fyrsti klari-
nettuleikari næstu átta árin, en
árið 1966 réðst hann til nýju Fil-
harmóniu-hljómsveitarinnar þar
sem hann starfar enn. John Mc-
Caw hefur leikið einleik með
enskum hljómsveitum viða um
Evrópu og Ameriku, þar sem
hann hefur verið gestaprófessor
við nokkra háskóla á undanförn-
um árum. Þá hafa hljóðritanir
hans með Holbrokkvintettinum
og Deilmekvartettinum fengið
mjög góða dóma.
John McCaw er mjög eftirsótt-
ur kennari, og hafa fjórir islenzk-
ir klarinettuleikarar notið leið-
sagnar hans, þeir Gunnar Egil-
son, Þórir Þórisson, Einar Jó-
hannesson og Óskar Ingólfsson.
Sá siðastnefndi er við nám hjá
honum sem stendur.
miði og eins með tilboðum
sinum um samning til að
leysa deiluna. Á þessu
hamra þeir sérstaklega i út-
varpi og sjónvarpi. Þeir
endurtaka sömu staðhæfing-
arnar aftur og aftur eins og
páfagaukar. Sagði Helgi að
sendiráðið reyndi eftir
megni að sýna fram á,
hvernig málílutningur
brezku stjórnarinnar væri i
málinu og að hann kæmi
öðru hvoru fram i útvarpi og
sjónvarpi til að skýra mál-
stað Islendinga. Kvaðst hann
halda að almenningur sæi i
gegnum áróður stjórnarinn-
ar og bæru þau fjölmörgu
lesendabréf, sem birt eru i
brezkum blöðum vitni um
það, svo og bréf sem sendi-
ráðinu berast hvarvetna að
og sýna bréfritarar yfirleitt
fullan skilning á islenzka
málstaðnum.
O EBE
merki sæjust nú um það, að þró-
unin á Spáni gengi i frjálslyndis-
átt, en hann lagði til, að frekari
samskipti EBE og Spánar yrðu
undir þvi komin hvort þróunin
gengi eins langt og æskilegt væri i
lýðræðisátt. Talsmenn flokka
kristilegra demokrata voru á
þeirri skoðun, að strax ætti að
taka upp viðræður við stjórn Jó-
hanns Karls konungs og sýna
honum þannig stuðning i verki.
o íþróttir
burð, Uminn var svo naumur,
sagði Seveljev.
Þrátt fyrir þessa óheppni hjá
Sovétmönnunum, er talið, að
þeir hefðu ekki náð að sigra
Finnana, sem voru mjög sterkir
i keppninni — og tryggðu sér
gullið. Annars fengu Ijessar
sveitir verðlaun:
Finnland............2:07,59
Noregur 2:09,58
Sovétrikin..........2:10,51
Þeir sem skipuðu sveit
Finnlands voru: — Matti
Pitkænen, Juha Mieto, Pertti
Teurajærviog Arto Koivisto. —
SOS.
Eins og undanfarin ár gengst
Lionsklúbburinn Ægir fyrir
bingói i sjónvarpinu og er
vinningurinn hálf milljón króna.
Bingóspjaldið kostar kr. 400.- og
er sala þegar hafin. Útdregnar
tölur verða birtar i fyrsta auglýs-
ingatima sjónvarpsins daglega og
jafnframt kemur vikulegt yfirlit i
dagblöðum. Munu fyrstu tölur
LIONSKLÚBBURINN ÆGIR
6 21 3356 65
7 184558 74
o> o CN 67
14223652 69
5 174253 63
birtast i lok næstu viku.
Ágóðanum verður varið til
áframhaldandi uppbyggingar
heimilis vangefinna að Sólheim-
um i Grimsnesi, þar sem að jafn-
aði dveljast 40-50 vistmenn.
Frá stofnun Ægis fyrir nitján
árum hafa félagarklúbbsins valið
sér það sem aðalverkefni að
styrkja og stuðla að vexti og við-
gangi Sólheima. Á þessum árum
hafa Ægisfélagar unnið að fram-
kvæmdum viö heimilið fyrir tugi
milljóna. Á síðastliðnu ári var t.d.
skipt' um glugga og gler i elzta
húsinu, keypt og komið fyrir 100
tonna vatnsgeymi, eldvarnir
bættar og ýmislegt fleira. Hafa út
gjöld vegna þessara fram-
kvæmda einna numið um fjórum
milljónum króna. Framkvæmdir
þessar eru íjármagnaðar að
mestu með ágóða af kútmaga-
kvöldum liðinna ára og
sjónvarpsbingóum i seinni tið.
Ennfremur hefur styrktarsjóður
vangefinna lagt fé i framkvæmd-
irnar, sem þó hafa verið leystar
af hendi að töluverðu leyti i sjálf-
boðavinnu Ægisfélaga. Þá fara
Ægismenn árlega austur að
skemmta vistmönnum.
10. reglulegu tónleikar
Sinfóníuhljómsveitarinnar
í Hóskólabíói í kvöld