Tíminn - 12.02.1976, Síða 7

Tíminn - 12.02.1976, Síða 7
Fimmtudagur 12. febrúar 1976 7 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: í>órarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjórir Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gfsla- son. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargötu, rsimar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, sími 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. VerðJ lausasölu ár. 40.00. Áskriftargjald kr. 800.00 á mánuði. f' BlaðaprentH'.fjr Sáttatillagan Undanfarnar vikur hafa staðið yfir viðræður um kaupgjaldsmál milli aðila vinnumarkaðarins, en kaupgjaldssamningar féllu úr gildi um siðustu áramót. Flest aðildarfélög Alþýðusambandsins hafa nú boðað vinnustöðvun frá 17. þ.m., ef samn- ingar hafa ekki náðst áður. Rikisstjórnin hefur fyrir nokkru skipað sáttanefnd til að vera sátta- semjara rikisins til aðstoðar við lausn deilunnar. Viðræðurnar um lausn hennar hafa að undan- förnu beinzt talsvert að þvi, hvort rikisvaldið gæti með skattalækkunum, og öðrum slikum aðgerð- um, stuðlað að verulegum kjarabótum, sem kæmu i stað kauphækkunar. Athuganir hafa leitt i ljós, að svigrúm rikisins er mjög litið i þeim efnum, nema farið væri i verulegum mæli inn á þá braut að skera niður opinberar framkvæmdir og draga úr ýmissi þjónustu, eins og t.d. tryggingum. Niður- skurður framkvæmda gæti leitt til atvinnuleysis, en samdráttur opinberrar þjónustu, eins og trygg- inga, myndi bitna á þeim, sem sizt skyldi. Hvorugt er i anda verkalýðsstefnu, sem frekar vill stuðla að aukinni samneyzlu en draga úr henni. Það er þvi ljóst, að verulegar kjarabætur er ekki unnt að veita, nema i formi kauphækkana, en þeim verður jafnframt að reyna að stilla svo i hóf, að þær leiði ekki til stórfelldrar verðbólgu, og renni þannig út i sandinn. Sáttanefnd rikisins hefur nýlega borið fram til- lögu, sem ætti að geta verið likleg til að stuðla að lausn málsins. Samkvæmt henni á kaup láglauna- fólks að hækka i áföngum um 16.5% á þessu ári, en hjá öðrum um 13.6%. Þetta hefði einhvern tima þótt rifleg hækkun á einu ári. Verðbólguvöxturinn hefur hins vegar verið svo hraður, að hægt er að benda á, að þetta sé ekki fullnægjandi til að vega á móti orðinni kjaraskerðingu. Hér er hins vegar óumdeilanlega gengið svo langt, að öllu lengra má áreiðanlega ekki ganga, ef afstýra á nýrri og stór- felldri verðbólguskriðu, sem yrði launþegum mest til tjóns. Jafnframt er hætta á, að henni myndi fylgja meiriháttar atvinnuleysi. Þeir sem fjalla um kaupgjaldsmálin þessa dag- ana, eiga sannarlega úr vöndu að ráða. Afkoma þjóðarbúsins hefur versnað, og atvinnuvegirnir mega ekki tæpara standa. Launþegar hafa orðið fyrir verulegri kjaraskerðingu. Horfur á efna- hagsbata virðast ekki á næsta leiti. Framhjá þessum staðreyndum er ekki hægt að ganga. Þá hefur hætta á vaxandi atvinnuleysi aldrei verið meiri en nú. Meiriháttar kauphækkun nú mynai stórauka þá hættu. Siðustu mánuðina hefur tekizt að draga nokkuð úr verðbólguvextinum. Von er um að það geti haldizt áfram, ef ekki er gengið öllu lengra, en tillögur sáttanefndar gera ráð fyrir. Það er ekki sizt hagsmunamál launþega, að þessi þróun hald- ist áfram. Þá myndi þessi þróun auðvelda veru- lega, að hægt væri að koma á verðtryggingu lif- eyris og endurbótum á húsnæðislánakerfinu, en hvort tveggja er mikið hagsmunamál launþega. Ella yrði þetta hvort tveggja miklu erfiðara. Þ.Þ. Afstaða Bandaríkjaþings auðveldar það hafði fótfestu sina i miðhluta Angóla, þar sem portúgölsk áhrif höfðu orðið mest, og menntun og menning á evrópska visu var lengst á veg komin. Fylgismenn hennar voru þvi yfirl. betur mennt- aðir og þjálfaðir og vissu betur hvað þeir vildu. Hinar hreyfingarnar áttu aðallega fylgi hjá þjóðflokkum, sem voru skemmra á veg komnir, og átti það sinn þátt i þvi, að þeir voru alltaf mjcg lausir i reipunum. Hefðu hreyfingarn- ar fengið að eigast við einar, er það yfirleitt álit þeirra, sem til þekkja, að MPLA hefði auð- veldlega borið sigur af hólmi. Þetta er lika yfirleitt mat rikisstjórna i Afriku. Þess vegna fékk rikisstjórn MPLA strax viðurkenningu margra rikja i Afriku, m.a. Nigeriu, en engin riki i Afriku viður- kenndu stjórn hinna hreyfing- anna. Eina undantekningin var Suður-Afrika, sem aldrei viðurkenndi hana formlega, en veitti henni hinsvegar ýms- an stuðning um skeið, og hefði sennilega gert það i miklu rikari mæli, ef Bandarikja- þing hefði ekki tekið áður- nefnda afstöðu. S(J SPURNING er nú að sjálfsögðu ofarlega á baugi, hvað muni gerast i Angóla, ÞAÐ er ekki aðeins mikill ávinningur fyrir ibúa Angóla, heldur einnig gang alþjóða- mála, að úrslit borgarastyrj- aldarinnar i Angóla hafa ekki dregizt á langinn, eins og óttazt var um skeið. Löng borgarastyrjöld i Angóla hefði valdið ibúum þar margvis- legum þjáningum og gert allt uppbyggingarstarf þar miklu torveldara. Jafnframt hefði hún getað valdið ýmsum viðsjám i alþjóðamálum. Það er nú ljóst orðið, að MPLA-hreyfingin er i þann veginn að ~vinna fullnaðarsig- ur. FNLA-hreyfingin virðist alveg vera úr sögunni, og UNITA-hreyfingin hefur misst allarhelztubækistöðvar sinar. Allar helztu borgir landsins eru i höndum MPLA. Mikill meirihluti rikja i Afriku hefur viðurkennt stjórn MPLA sem hina löglegu stjórn landsins. Ýms lönd utan Afriku hafa þegar viðurkennt hana, t.d. Indland. Sennilega munu Norðurlönd bráðlega viður- kenna hana eða a.m.k. Svi- þjóð. Sviar hafa veitt MPLA-hreyfingunni fjárhags- lega aðstoð i nokkur misseri, og héldu þvi áfram eftir að borgarastyrjöldin hófst. Mat þeirra hefur verið það, að hún væri eina öfluga sjálfstæðis- hreyfingin i Angóla. Þetta mat Svia hefur reynzt rétt. En Sviar voru ekki einir um þetta mat, heldur einnig meginþorri bandariskra þing- manna. Þess vegna felldu báðar þingdeildir Bandarikja- þings tillögur þeirra Fords og Kissingers um fjárveitingar til hinna hreyfinganna. Þessi afstaða Bandarikjaþings á tvimælalaust meginþátt i þvi, hve fljótt borgarastyrjöldin hefur verið til lykta leidd, og sennilega sizt minni þátt en bein aðstoð Rússa og Kúbu- manna. Eftir að kunnugt varð um þessa afstöðu Bandarikja- þings, hætti Suður-Afrika við að auka ihlutun sina i Angóla, og Uthaldið bilaði hjá FNLA og UNITA, þegar vonir um að- stoð Bandarikjanna brugðust. Ef Bandarikjaþing hefði sam- þykkt fjárveitinguna, hefði borgarastyrjöldin i Angóla getað orðið miklu lengri, og ef til vill upphaf nýrrar Vietnamstyrjaldar. STYRKUR MPLA hefur verið fólginn i þvi, að hún Agostinho Neto, leiðtogi MPLA eftir að MPLA hefur náð full- um völdum. Reynist t.d. sá uggur réttur, að stjórn MPLA muni veita Rússum eða Kúbu- mönnum herstöðvaaðstöðu eða önnur hlunnindi, sem endurgjald fyrir þá aðstoð, sem þeir veittu henni i borgarastyrjöldinni? Yfirleitt þykir þetta ótrúlegt. Flestir, sem til þekkja, virðast þeirrar skoðunar, að Rússar muni ekki fá neitt fyrir sinn snúð i Angóla, frekar en annars staðar i Afriku, þar sem þeir hafa reynt að ná fótfestu, t.d. i Egyptalandi. Stjórn MPLA muni I þessum efnum fylgja sömuutanrikisstefnu og önnur riki i Afriku. Að visu muni Rússar fá viðurkenningu og þakklæti fyrir aðstoð sina, en ekki meira. Rússar geta sennilega þakkað þeim Ford og Kissinger mest fyrir það, að þeir fá þetta þakklæti. Hefði Bandarikjastjórn látið borgarastyrjöldina i Angóla afskiptalausa, og stöðvað jafnframt afskipti Suður-Af- riku, hefði Rússum orðið miklu örðugra að skerast i leikinn og veita MPLA aðstoð. MPLA leitaði ekki siður að- stoðar i Vestur-Evrópu en Sovétrikjunum um það leyti sem átökin hófust. Þá töluðu þeir fyrir daufum eyrum þar nema helzt hjá Finnum. Af hálfu annarra Afriku- þjóða mun vafalaust verða lögð áherzla á, að her Kúbu- manna verði sem fyrst fluttur frá Angóla aö lokinni borgara- styrjöldinni. Vafalitið mun stjórn MPLA sömu skoðunar. Annars eru tölur mjög ósam- hljóða um það, hve fjölmennur hann sé og vafalitið er hann fámennari efi FNLA og UNITA hafa haldið fram. Þess hafa verið talin sjást ýms merki i seinni tið, aö stjórn MPLA vilji koma á eðli- legum stjórnmálalegum sam- skiptum milli Angóla og Batidarikjanna, og árétta þannig, að Angóla fylgi óháðri utanrikisstefnu. Jafnframt hefur hún látið berast út. að hún ætli alls ekki að sinni að þjóðnýta eignir ameriskra oliufélaga þar, heidur vilji hún hafa áfram samstarf við þau. Komist samskipti Angóla og Bandarikjastjórnar brátt i eölilegt horf, mun Angóla- tnálið fljótlega hætta að valda ágreiningi i sambúð Rússa og Bandarikjamanna. Aður- greind afstaöa Bandarikja- þings mun mjög auðvelda það. að sambúö Angóla og Banda- rikjanna geti oröiö vinsamleg aöur en langt um liður. |>.|> llolden Roberto, leiðtogi FNI.A ERLENT YFIRLIT Sættast Angóla og Bandaríkin?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.