Tíminn - 16.03.1976, Side 15
Þriftjudagur 16. marz 1976
TÍMINN
15
Þorskanet
Japönsk „Clear" (hálfgirni) no. 210
d/15 — no. 210 d/12 — no. 210 d/97" — 7
1/2" möskvi.
Japönsk (girni) 6"—7 1/4" möskvi —
nylon T—700 þorskanet frá Formósu
no. 210 d/12 7 1/4" — 32 möskva.
Netahringirá þorska- og grásleppunet.
Steina- og hringjahankar úr gerviefni
og sísal.
Teinatóg á þorskanet. Færatóg.
Plastbelgir og baujur.
Bambusstangir og flögg.
Viðgerðarefni i loðnunætur.
Garn 210 d/12 — 210 d/15 210 d/18 — 210
d/21 —210d/24—210 d/36 — 210 d/48 —
210 d/60.
Uppsettar lóðir og ábót.
KRISTJÁN Ó.SKAGFJÖRÐ HF
Hólmsgötu 4 - Reykjavík - P.O. Box 906 - Sími 24120 - 24125
Lokuðu hliðum að
hersföðinni
Gsal-Reykjavik — Herstööva-
andstæöingar lokuöu hliöum
herstöövarinnar á Miönesheiöi
s.l. laugardag, og var tilgangur-
inn aö mótmæla setu banda-
rlska hersins hér og ieggja
áherzlu á kröfur þeirra um
tafarlausan brottflutning hers-
ins af landinu og lirsögn tslands
úr NATO. Hliöum her-
stöövarinnar var lokaö kl. 6 ár-
degis meöbilum, og fengu engin
farartæki aö aka gegnum hliöin,
en hins vegar var fótgangandi
fólki hleypt I gegn.
Aö sögn lögreglunnar á Kefla-
vikurflugvelli fóru mótmælin
mjög friösamlega fram og ekki
uröu nein umtalsverö vandræöi
af lokun hliöanna. Einhverjir
Bandarikjamenn munu þó hafa
kvartaö undan sulti, en bifreiö
meö matvæli fékk ekki aö fara
leiðar sinnar.
Lokun hliöanna stóö til kl.
15.30 um daginn, en kl. 16. hófst
baráttufundur i Stapa, þar sem
skáld og tónlistarmenn komu
fram, auk þess sem ávörp voru
flutt.
Frumkvæðiö að þessum að-
gerðum áttu herstöðvaandstæð-
ingar á Suðurnesjum, en mörg
önnur samtök stóöu aö eöa
studdu aðgerðirnar. Kjörorö
þessara aðgeröa voru: Island úr
NATO — herinn burt. Enga
samninga viö Breta. Herskipin
út fyrir 200 mflur. Gegn rán-
yrkju.
Jörð óskast
með rúmgóðu íbúðar-
húsi, sem gæti verið
rammi um lif 10-15
manna, og útihúsum
fyrir fjölbreyttan bú-
skap, óskast til kaups
eða leigu. Upplýsingar
veittar gegn tilvísun
merktri Kennarar
1895.
Hóseti óskast
á MB Reykjaröst GK 17, Grindavik til
netaveiða. Simi 8086, Grindavik.
Franskur prófessor
flytur fyrirlestur
PRÓFESSOR Pierre Gibbert,
sem skipuleggur og stjórnar
kennslumálum AUiance Fran-
caise I Paris, er um þessar
mundir staddur á tslandi. Hann
fiytur I kvöld fyrirlestur á vegum
Ailiance Francaise I Reykjavík,
hins islenzka félags Frakklands-
vina.
Þetta er i fyrsta sinn sem
Gibbert gistir ísland, en fjöl-
margir íslendingar hafa kynnzt
honum gegnum Alliance
Francaise i Parls.
Fyrirlestur Pierre Gibbert
verður i franska bókasafninu að
Laufásvegi 12, kl. 20.30, og fjallar
um hið hrjóstruga „La-
Lozere”hérað i Frakklandi, þar
sem ibúar eiga við að etja svipuð
umhverfis- og efnahagsvandamál
og Islendingar.
Prófessor Pierre Gibbert
kemur hingað frá Bandarikjun-
um, þar sem hann hefur verið i
fyrirlestraferð og kynnt nýjar
kennsluaðferðir og málefni
Frakklands hjá hinum ýmsu fé-
lögum Alliance Francaise.
Frá hraðskákmótinu á laugar-
daginn.
Úrslit mótsins urðu þau, að
Guðmundur Sigurjónsson varð
hlutskarpastur með 10 vinninga
af 11 mögulegum. í öðru til þriðja
sæti urðu þeir Friðrik Ólafsson og
Ingi R. Jóhannsson meö 8 1/2 v.
Fjórði varð Helgi ólafsson með 7
v. Fimmti og sjötti uröu Ingvar
Ásmundsson og Margeir Péturs-
son með 5 1/2 v. Sjöundi varð
Bragi Halldórsson með 5 v. I
áttunda og niunda sæti urðu
Magnús Sólmundarson og
Gunnar Gunnarsson með 4 1/2 v.,
en aðrir fengu minna.
Hugmyndin er sú, að slik mót
fari þarna fram öðru hvoru.
Aöstaða er fyrir allt að 16
manns til aö tefla i „Skákstof-
unni”, og jafnframt klúbbstarf-
seminni er ætlunin að veita fólki á
öllum aldri kost á námskeiðum
þar i skák, þar sem okkar hæfustu
skákmeistarar verða leiðbein-
endur. — Þeir sem áhuga hafa á
námskeiðunum, geta snúiö sér til
timaritsinsSkák og kynnt sér fyr-
irkomulagið.
1 „Skákstofunni” er til sölu flest
það, sem að skák lýtur, töfl,
klukkur, bækur o.fl.
,Skákstofa' opnuð
við Hagamel
— þar verður fundarstaður
skákáhugamanna
OPNUÐ hefur veriö „Skákstofa” tefla skák.
aö Hagamel 67 I Reykjavlk, þar 1 tilefni þess aö stofan var opn-
sem skákáhugamönnum gefst stefndi timaritiö „Skák”
kostur á aö tylla sér niöur og saman á laugardaginn nokkrum
rabba yfir kaffibolla eða svala- beztu skákmönnum þjóöarinn-
drykk saman um áhugamáliö eöa ar til hraöskákmóts.
Tilboð dagsins
BROYT X2B — model 1973
Getum boðið til afgreiðslu nú þegar er-
lendis frá Broyt X2B model 1973. Nýjar
fóðringar og boltar i bómu. Tvöföld
gúmmihjól. Tækið hefur allt verið yfir-
farið, viðgert eftir þörfum, hreinsað og
málað og er i góðu standi.
Ótrúlega hagstætt verð.
BROYT X2 — modei 1965
Höfum til sölu innanlands Broyt X2
model 1965 i góðu standi. Tækið yfirfar-
ið og innflutt fyrir 4 árum, m.a. Volvo-
mótor og skipt um snúningskrans. — Til
afgreiðslu nú þegar, ef samið er strax.
HF HÖRÐUR
GUNNARSS0N
SKULATUNI 6 SIM119460
Bændur á Suðurlandi
Fundir um bætta hey verkun verða haldnir
á eftirtöldum stöðum:
á Kirkjubæjarklaustri, miðvikudagin 17.
marz kl. 21. Hvolsvelli, fimmtudaginn 18.
marz kl. 13,30. Flúðum sama dag kl. 21.
Tryggvaskála, Selfossi, föstudaginn 19.
marz kl. 13,30.
Auk héraðsráðunauta koma á fundina þeir
Magnús Sigsteinsson bútækniráðunautur
og Bjarni Guðmundsson kennari, Hvann-
eyri.
Búnaðarsamband Suðurlands.
;\RVERTÍÐI\