Tíminn - 16.03.1976, Qupperneq 19

Tíminn - 16.03.1976, Qupperneq 19
ÞriBjudagur 16, marz 1976 TÍMINN 19 Sigurður stöðv- aði sigurgöngu Haralds... — sem hefur verið ósigrandi á Reykjavíkur- meistaramótinu í badminton frá 1970 SIGURÐUR Haraldsson, markvörður Vals i knattspyrnu, stöðvaöi sigurgöngu badmintonskappans Haralds Korneliussonar, sem hefur verið ókrýndur konungur badmintonsins undanfarin ár, þegar hann sigraði Harald i úrslitaleikRevkiavikurmótsinsl badminton. Sigurður sigraði 17:15 og 15:11 — og þar með var Haraldur búinn að missa Reykjavikurmeistaratitilinn, sein hann hefur haldið frá þvi 1970. Haraldurlét þetta mótlæti ekki á sig fá — hann varð sigurvegari i tvi- liðaleik með Steinari Petersen. Þeir félagar lögðu Sigfús Ægi Árnason og Ottó Guðjónsson, TBR, að velli — 15:9 og 15:1 i úrslitaleik. Siðan sigruðu Haraldurog Hanna Lára Pálsdóttir i tvenndarkeppni — þau sigruðu (15:13 og 15:10) Steinarog Lovisu Sigurðardótturi úrslitaleik. Lovisavarð sigurvegari i einliðaleik kvenna, með þvi að sigra Hönnu Láruiúrslitaleik með yfirburðum — ll:0og 11:3. Þær Lovisaog Hanna Láraunnu sigur i tviliðaleik kvenna — Ernu Franklinog Sveirib'jergu Pálsdóttur úr KR, 15:7 og 15:13. Sigurður Kolbeinsson.TBR varð sigursæll i a-flokki, en þar sigraði hann i einliðaleik og tviliðaleik — ásamt Brodda Kristjánss. og i tvenndarkeppni — ásamt Sigrfði Jónsdóttur. Sigurðurer aðeins 16 ára gamall. Bjarnheiður ívarsdóttir, TBR varð sigurvegari i einliðaleik kvenna a-flokki, og hún varð einnig sigurvegari ásamt Asu Gunnars- dóttur úr Val, i tviliðaleik. Kjartan Magnússon, læknir og fyrrum landsliðsmaður úr Armanni i handknattleik, og Matthias Guðmundsson, TBR urðu sigurvegarar i tviliðaleik — ,,01d boys”. — ÞÓRUNN ALFREÐSDÓTTIR......varð sigurvegari I fjórum greinum. Hér á myndinni sést hún I 200 m flugsundinu. (Timamynd Róbert). Steinunn er Sigurður rauf ósiarandi... STEINUNN Sæmundsdóttir úr Ármanni vann öruggan sigur i stórsvigi kvenna. Steinunn, sem er nú ósigrandi, sýndi mikla hæfni og náði langbeztum tima i báðum umferðunum. KR-ingur- inn Jórunn Viggósdóttir varð i öðru sæti, en þessar tvær Reykja- víkurmeyjar, sem kepptu fyrir hönd islands á ólympfuleikunum i Innsbruck, eru I sérflokki. Það er ár og dagur siðan Reykvikingar hafa átt tvær beztu sklðakonur landsins. 1. Steinunn Sæmundsd., Rvk (64.6264.24) =........ 128.86 2. Jórunn Viggósdóttir, Rvk. (66.31—65.58)= ....... 131.89 3. Margrét Baldvinsd. Akureyri (66.76 — 67.40)= 134.16 4. Margrét Vilhelmsd., Akureyri (68.51—71.82)= ....... 140.33 5. Hanna D. Erlingsd. Rvk (70.24 — 71.02) = .... 141.26 sos Fram-liðinu, en hann þjálfaði og lék með Vikingi frá Ólafsvik sl. sumar. Endurkoma Ásgeirs styrkir Fram-liðið mikið, það sást vel i Keflavik. Athygli vakti, að landsliðsmennirnir Marteinn Geirsson, Árni Stefánsson, og Eggert Steingrimsson léku ekki með Fram. — Jú, þeir eru I góðri æfingu. Við erum að þreyfa fyrir okkúr og reyna leikmenn i ýms- um stöðum. Marteinn, Arni og Eggert voru látnir hvila sig i þessum leik, en við munum gera tvær breytingar á liðinu fyrir hvern leik, sagði Jóhannes Atla- son, þjálfari Fram. Þorbergur Atlasontók stöðu Arna i markinu, og skilaði hann hlutverki sinu vel. Þá áttu ungu strákarnir Kristinn Atlason og Trausti Haraldsson góðan leik, og einnig Agúst Guð- mundsson. Liðin..... KEFLAVÍK: — Þorsteinn — Ast- ráður, Gisli Guðni, Lúðvik -= Hilmar, Einar Gunnarsson (Sig- urður Björgvinsson), Einar Ás- björn, Ólafur — Jón Ólafur og Þórir. FRAM: — Þorbergur — Agúst, Kristinn, Jón Pétursson, Simon Kristjánsson, Trausti, Gunnar Guðmundsson, Asgeir, Kristinn Jörundsson, Pétur og Steinn Jónsson. ■ Varalið félaganna léku einnig, og sigraði Keflavik 2:0 — mörkin skoruðu þeir Friðrik Ragnarsson og Guðjón Guðjónsson. —SOS GÍSLI TORFASON.... skoraði fyrsta mark keppnistimabiisins i knattspyrnu. 9----► tveggja mínútna ___a • — þegar hann setti giæsilegt murmn Islandsmet í 200 m skriðsundi ★ Ægir bikarmeistari SIGURÐUR ólafsson, sundkappinn snialli ur Ægi, var hetja bikarkeppninnar hjá Sundsambandinu. Sigurður setti tvö glæsileg islandsmet í 200 m og 800 m skrið- sundi, og var metið hans í 200 m skriðsundi mjög glæsilegt, þar sem hann varð fyrsti islendingurinn til að synda vegalengdina á skemmri tíma en tveimur minútum — Sigurður synti á 1:59,6 mínútum, og sló þar með met (2:02,2) Friðriks Guðmundssonar frá 1974, Sigurður bætti einnig met Friðriks i 800 m skriðsundi, með þvi að synda vegalengdina á 9:04,9 min. — gamla metið var 9:12,5 min. Þá var Sigurður i sveit Ægis I 4x100 m fjórsundi, sem setti nýtt Islandsmet — 4:23,5 min. Sigurður sigraði einnig i 100 m skriösundi, synti vegalengdina á 55,3 sekúndum, sem er annar bezti timi Islend- ings á vegalengdinni — metið á •Finnur Garðarsson 54,9 sek., svo að ekki munaði miklu, að Sigurður næði að slá það. Sig- urður, sem hefur aldrei verið betri, enda æft mjög vel undir stjórn Guðmundar Harðarsonar að undanförnu, stefnir nú að þátttöku i ólympiuleikunum i Montreal, og má segja að hann sé kominn með annann fótinn þangað, eftir árangur hans i 200 m skriðsundi i 25 m lauginni i Sundhöllinni. Sigurður hlaut af- reksbikar Sundsambandsins i karlagreinum, fyrir afrek sitt i 200 m skriðsundinu. Brynjólfur Björnsson, Ármanni, var einnig i sviðsljós- inu. Þessi efnilegi sundmaður setti tvö drengjamet — hann bætti metið i 200 m flugsundi um hvorki meira né minna en 10,6 sek., þegar hann synti vega- lengdina á 2:24,5 min. Brynjólf- ur setti einnig nýtt met i 800 m skriðsundi — synti vegalengd- ina á 9:19,9 minútum. Vilborg Sverrisdóttir frá Hafnarfirði vann bezta afrek kvenna. Hún komst nálægt meti sinu i 100 m skriðsundi, með þvi að synda vegalengdina/á 1:03,7 min. — metið er 1:03,1 min. Vil- borg hlaut afreksbikar kvenna fyrir þetta sund. Elinborg Gunnarsdóttir.HSK, jafnaði Islandsmet Helgu Gunn- arsdóttur i 400 m bringusundi, synti vegalengdina á 6:12,1 min. Keflvikingurinn Sonja Hreið- arsdóttir setti nýtt telpnamet (13-14 ára) i 400 m bringusund- inu, hún synti vegalengdina á 6:17,0 min. Vinkona hennar, Þórunn Magnúsdóttir Keflavik synti einnig á betri tima en gamla metiö, eða 6:22,5 min. Ægir varð bikarmeistari i sundi, hlaut 251 stig. HSK var i öðru sæti með 202 stig, en i þriðja sæti var Armann -r- 173 stig. — SOS Stórsigrar Bikarmeistarar FH I hand- knattleik sigruðu (35:25) Þór á Akureyri um helgina i bikar- keppninni. Þá unnu Víkingar einnig góðan sigur (36:26) i leik gegn Aftureldingu. SIGURÐUR ÓLAFSSON....var óstöðvandi og setti tvö glæsileg ts- landsmet.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.