Tíminn - 29.04.1976, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 29. april 1976
TÍMINN
3
Árangursríkar
aðgerðir
varðskipanna
Gsal-Reykjavik. í gærmorgun kom varðskipiö Ver að fimm brezkum
togurum á Hvalbakssvæðinu og gættu togaranna, dráttarbátarnir
Statesman og Eruoman. Statesman gerði tværásiglingartilraunir á
varðskipið, en i þriðju tilraun tókst dráttarbátnum aö sigla á stjórn-
borðshlið varðskipsins — en skemmdir urðu ekki miklar á skipunum.
Engín slys urðu á mönnum.
Eftir ásiglinguna var Euroman kominn i ásiglingarham, eins og tals-
maður Landhelgisgæzlunnar orðaði það, og sigldi að varðskipinu, en
þvi tókst naumlega að foröa árekstri.
1 gærmorgun klippti varðskipið Öðinn á báða togvira brezka togar-
ans St. Gerontíus H-350 á Hvalbakssvæðinu. Brezki togarinn Arctic
Cavalier H-204 gerði I gærmorgun ásiglingartilraunir á varöskipið
Baldur. Togaraskipstjórinn fékk að sögn Landhelgisgæzlunnar ákúrur
frá freigátunni Mermaid, og svaraði togaraskipstjórinn freigátunni á
þann hátt, að „bágt væri orðið aö lifa, þar sem hvorki væri hægt að
fiska eða sigla á varðskipin”.
Brezku togararnir fá sáralitinn afla um þessar mundir og ofan á afla-
leysið bætist það, að togararnir verða að hifa inn vörpur sinar i hvert
sinn er varðskip eöa óþekkt skip nálgast — og hafa sumir togaranna lit-
ið getað reynt veiðar af þeim sökum, og eru þess dæmi að togararnir
hafi ekki komið veiðarfærum sinum i sjó i rúmlega fimm daga.
Brezku freigáturnar hafa nú eftirlátið dráttarskipunum það hlut-
verk að sigla á islenzku varðskipin. Þessar niyndir voru teknar,
þegar freigáturnar enn reyndu ásiglingar og það er freigátan
Naiad, sem sækir að Tý, fyrst að framan Tm. Jón St. Ragnarsson.
Illlllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllilllllf lo
= seld til
1 Noregs
gébé Rvik — Nýlega hefur =
= verið veitt leyfi til að selja
Þorstein RE 303 og Alftafell
SU 101 til Noregs.
Fyrir áramót var einnig
gefið leyfi til sölu á Lofti
Baldvinssyni EA 24, einnig
til Noregs, en ekki mun
endanlega gengið frá þeim Ijj
kaupum enn. Þá var veitt =
leyfi til sölu á Faxaborg GK EE
89 og var hún seld i desember =
s.l. Ekki hefur verið sótt um =
fléiri söluleyfi tii sjávar- =
útvegsráðuneytis, —
= Þorsteinn RE 303 er 300 n
= lesta stálskip smiðað i =
— Havstad i Noregi 1967, en =
eigandi er Leifur h.f., E
Reykjavik. Alftafell SU er =
rúmlega tvö hundruð lesta E
stálskip, smiðað i =
Boizenburg i A-Þýzkalandi =
1967, en eigandi er Álftafell =
hf., Stöðvarfirði. Loftur =
j Baldvinsson EA 24 er tæp- =
: lega fjögur hundruð lesta §
stálskip, smiðaður i =
i Hommelvik i Noregi árið =
i 1968. Eigandi er Aðalsteinn —
; Loftsson, Dalvik. =
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiii —-
HLEKKTIST A
í LENDINGU
Gsal-Reykjavik. — Þaö var búið
að vera leiðinlegt veður á leið-
inni og töluverð ising hafði setzt
á vélina, en hún var þó að mestu
horfin er við nálguðumst flug-
völlinn á Blönduósi. Rétt þegar
vélin var að snerta brautina
skall á dimmt él og lendingin
varö nokkuö hörð, svo vélin
sökk niður i gljúpa brautina,
sagði Birgir Sumarliðason,
flugmaður tveggja hreyfla flug-
vélar Cessna 310 sem hlekktist á
i lendingu á Blönduósflugvelli i
fyrrinótt. Talsverðar skemmdir
urðu á vélinni, en engin slys á
mönnum.
Flugvélin var að koma með
sporhund Hjálparsveitar skáta i
Hafnarfirði og tvo leitarmenn
úr Hafnarfirði til leitar að
manni, sem horfið hafði að
heiman frá sér i Vatnsdal.
Að sögn Gunnars Sigurðar
Gunnarssonar, formanns björg-
unarsveitarinnar á Blönduósi
leituðu milli 25 og 30 manns að
25 ara gömlum manni frá Bakka
i Vatnsdal, en maðurinn er sjúk-
lingur og hefur átt það til að
hverfa. Aö sögn Gunnars var
leitað á svæði i nágrenni bæjar-
ins allt fram til kl. 4 um nóttina,
en þá kom maðurinn heim til sin
heill á húfi. Hann hafði þá falið
sig i fjóshlöðunni á bænum, en
þar hafði verið margleitað, án
þess að maðurinn fyndist.
Sporhundurinn hafði ekki haf-
ið leit að manninum, þvi leitar-
menn úr Hafnarfirði komu ekki
i Vatnsdal fyrr en um kl. 4 um
nóttina — eða um svipað leyti og
maðurinn kom fram.
KÆRÐUR
FYRIR
MEINT
AFGLÖP
í STARFI
Gsal-Reykja vik — Kristján
Pétursson, deildarstjóri tollgæzl-
unnará Keflavikurflugvelli hefur
verið kærður fyrir meint afglöp i
starfi — og hefur kæran verið
send rikissaksóknara. Kristján er
sakaður um að hafa farið út fyrir
verksvið sitt i máli, sem varðar
tvo starfsmenn bandariska hers-
ins á Keflavikurflugvelli, — jafn-
framt þvi sem hann er sakaður
um meintar ólöglegar aðferðir
við yfirheyrzlur.
Það er örn Clausen hrl. fyrir
hönd Bandarikjamannanna
tveggja, sem hefur kært deildar-
stjórann.
„Böðunarstríðið":
AAálið er í
athugun hjá
ráðuneytinu
gébé Rvik — Þriggja manna
sendinefnd Húnvetninga gekk á
fund landbúnaöarráöherra,
Halldórs E. Sigurössonar I gær-
morgun. Samkvæmt upplýsing-
um frá ráðuneytisstjóranum,
Sveinbirni Dagfinnssyni, er
máliö nú i athugun og mun ráð-
herra aftur ræöa við sendi-
nefndina f dag.
I sendinefnd Húnvetninga eru
þeir Gisli Pálsson oddviti,
Kristófer Kristjánsson form.
búnaðarsambandsins, og Stefán
Jónsson sýslunefndarmaöur.
Þeir fóru fram á það við ráöu-
neytið, aðlög eða reglugerð yrði
sett, sem heimilaði að baða fé
Bjöms bónda á Lóngumýri,
verði þeim tilmælum ekki sinnt,
áskilja Húnvetningar sér rétt til
að fara i skaðabótamál við
rikissjóð vegna mistaka við
boðun tviböðunar á sagðfé.