Tíminn - 09.06.1976, Qupperneq 8
8
TÍMINN
IYliðvikudagur 9. júni 1976
70% aukning hjá
gíró-þjónustunni
Um þessar mundir eru fímm ár
liðin frá þvf að giróþjónusta var
tekin upp hér á landi, en almenn
gh'óviðskipti hófust 1. júni 1971.
Á þessu timabili hafa giróvið-
skipti aukizt jafnt og þétt og þeim
ferstöðugtfjölgandi, sem notfæra
sér þessa þjónustu. Samtals hafa
nú verið afhentir frá prent-
smiðjum 5,6 millj. giróseðlar. Á
fyrstu fimm mánuðum þessa árs
hafa verið afgreiddir um850þús.
giróseðlar ámóti 500 þúsundum á
sama tima 1975, sem er 70%
aukning.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
BARNASPÍTALI HRINGSINS
FÓSTRA óskast i fast starf frá 15.
júli n.k. eða eftir samkomulagi.
Umsóknir, er greini aldur, mennt-
un og fyrri störf ásamt meðmælum
óskast send Skrifstofu rikisspital-
anna fyrir 1. júli n.k.
Nánari upplýsingar veitir yfir-
hjúkrunarkona, simi 24160.
FÓSTRA óskast nú þegar til af-
leysinga i sumar. Upplýsingar
veitir yfirhjúkrunarkona, simi
24160.
ENDURHÆFINGARDEILD
YFIRSJÚKRAÞJÁLFARI óskast
til starfa frá 1. júli n.k. eða eftir
samkomulagi. Umsóknir ber að
senda Skrifstofu rikisspitalanna
fyrir 27. júni n.k. Nánari upp-
lýsingar veitir yfirlæknir.
SJÚKRAÞJÁLFARI óskast til
starfa nú þegar eða eftir sam-
komulagi. Nánari upplýsingar
veitir yfirlæknir.
Reykjavik, 8. júni, 1976.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5,SÍMI 11765
Reglusamur maður
vanur sveitavinnu (heyskap) óskast til
starfa á bú við Reykjavik. Húsnæði (ibúð)
og fæði á staðnum.
Upplýsingar eftir kl. 3 i sima 41649.
Í„l!Íl!!ÍM
M.IiiiH.Sffl.lÍJlim.
AAyndlistarklúbbur Seltjarnarness
Sýna 166 verk
í Valhúsaskóla
Seltjarnarnesið er litið og
lágt, en núna er þar eigi að siður
merkilegur bær. bar búa eink-
um (held ég) vel stæðir borg-
arar, sem flestir hafa atvinnu i
Reykjavik eða nágrannabæjun-
um, þvi fátt er um fyrirtæki á
nesinu, og svo á kvöldin fara
þeir heim að slá blettinn sinn og
sjá sólina siga vestar og vestar
unz hún l'ellursnarkandi i hafið.
Þó Seltjarnarnesið sé fyrst og
fremst svefnbær, með malbik-
uðum götum og blómum, þar
sem þú hefur það á tilfinn-
ingunni að riki innra jafnvægi
ogöryggi, þá verðum við oft vör
við ólgu, sem sannar það, að
maðurinn lifir ekki á brauði
einu saman. Manninum dugar
ekki einvörðungu vinnan, þótt
hún sé vel borguð, og ekki einu
sinni garðurinn, þótt hann sé i
fegursta skrúði.
Þetta hefur leitt til þess, að
margháttuð tómstunda- og
menningarstarfsemi dafnar vel
á Seltjarnarnesi. Við höfum far-
ið þangað i leikhús oft i vetur,
ekið gegnum hriðarkófið og
skafrenninginn á Valhúsa-
hæðinni og fengið að koma i
leikhús, þar sem innlendir og
erlendir leikflokkar hafa haldið
sýningar, og svo sýndu Sel-
tirningar sjálfir ágætan gaman-
leik i vetur, sem bar af flestu i
heim dúr, sem áhugaleikflokkar
taka sér fyrir hendur.
Seltjarnarnesið hefur orðið
miðstöð gestaleikja á
höfuðborgarsvæðinu, þeirra er
ekki gera of miklar kröfur til
sviðsbúnaðar.
Nú er liðið að lokum leik-
ársins, þótt sýningum á gam-
anleik þeirra sé liklega ekki að
fullu lokið og þá tekur við annað
sem sé myndlistin, en Mynd-
listarklúbbur Seltjarnarness
hefur starfað undanfarin ár og
lýkur svo starfinu á vorin með
sýningu á verkum klúbbfél-
aganna. Nú stendur ein slik fyr-
irdyrum i hinum nýja Valhúsa-
skóla, en þar er makalaust góð
aðstaða til myndlistarsýnihga,
og ber af húsum sem jafnvel
voru ætluð til myndlistar-
sýninga fyrst og fremst.
Myndlistarklúbbur Seltjarn-
arness var stofnaður árið 1971,
þegar nokkrir menn og konur
komu saman og fóru að teikna
og nota liti i gamla Mýrarhúsa-
skólanum.
Þetta mun hafa verið 20
manna hópur. og Sigurður K.
Arnason. listmálari tók að sér
að leiöbeina þeim, en Sigurður
K. Árnason er sjóaður vel i' list-
inni, hleypidómalaus lista-
maður, sem ekki boðar trú,
heldur hefur þann ágæta skiln-
ingá myndlistarstörfum, að þar
eigi hver aðleita að sjálfum sér,
en ekki að telja listastefnurnar
einar það haldreipi, sem drýgst
verður til listsköpunar.
Sýningar Seltirninga njóta
þessa ágæta viðhorfs, mynd-
irnar eru ' persónulegar, þótt
ýmislegt megi að þeim finna,
eins og gengur hjá áhuga-
mönnum.
i vetur hefur, að sögn Sig-
urðar, verið góð aðsókn og þátt-
taka i starfi myndlistarklúbbs-
ins, og á sýningunni, sem opnar
núna um helgina, verða til sýnis
166 málverk eftir 16 einstak-
linga. F'lest oliumálverk. Þeir,
sem sýna, eru:
Auður Sigurðardóttir, Sigriður
Gyða Sigurðardóttir, Ásgeir
Valdimarsson, Grétar Guð-
mundsson, Lóa Guðjónsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir,
Garðar Ólafsson, Jóhannes
Olafsson, Magnús Valdimars-
son, Anna Bjarnadóttir, Anna
Karlsdóttir, Guðmundur Karls-
son, Sigurður Karlsson, Arni
Garðar Kristinsson, Selma
Kaldalóns og Björg Isaksdóttir.
Jóhannes Geir, listmálari
aðstoðaði nemendur við val
mynda á sýninguna og veitti
leiðbeiningar um upphengingu
myndanna.
Sýningin i Valhúsaskóla
verður opin virka daga frá kl.
17.00 - 22.00, en á laugardögum
og sunnudögum frá kl. 14.00 -
22.00, og henni lýkur sunnudag-
inn 13. júni næstkomandi.
Jónas Guðmundsson.
Tekjur af erlendum ferðamönn-
um 1975 námu 3 milljörðum
A árinu 1975 var heildarfjöldi
erlendra ferðamanna sem kom til
landsins 79.006 einstaklingar;
Sambærilegur fjöldi á árinu
1974 var 74.214 einstaklingar, en
það er fjölgun á milli ára sem
nemur 4.792 einstaklingum eða
6.5%. Af heildarfjölda ferða-
manna komu 71.068 eða 90% með
flugvélum. Meö bilferjunni
Smyrli komu til landsins 608 erl.
ferðamenn eða 0,8% af heildar-
fjöldanum. Með 16 ferðum
skemmtiferðaskipa, sem höföu
hér skamma viðdvöl, komu 7.330
erl. ferðamenn eða 9,3% af heild.
Flestir hinna erl. ferðamanna
komu frá Bandarikjunum, en þeir
voru 25.053 eða 31,7% af heild.
Næstir að höfðatölu voru
Vestur-Þjóðver jar 7.877 eða
10,0% af heild. Danir voru 6.665
eða 8,4% af heildarfjöldanum.
Sviarvoru 5.751 eða 7,3% afheild-
inni, en Englendingar voru 5.649
eða7,l% af heild. Aberandier hve
norrænum feröamönnum fjölgar
árlega, en á árinu 1975 voru þeir
samtals 18.967 eða 24,0% af
heildárfjölda erl. ferðamanna
það ár. Af heildarfjölda erl.
ferðamanna á árinu 1974 komu
51.893 eða 65,7% frá byrjun mai-
mánaðar til loka ágústmánaðar.
Beinar og óbeinar tekjur vegna
hinnaerl. ferðamanna.sem komu
til landsins á árinu 1975, námu
samkv. upplýsingum frá Hag-
deild Seðlabanka tslands 3
milljörðum og 10 milljónum isl.
kr. Sambærileg upphæð á árinu
1974 var kr. 2.372.500.000,00.
Þannig varð aukning á milli
áranna sem nemur kr.
637.500.000,00. eða 26,9%
Á árinu 1975 var heildar-
verðmæti útflutningsvöru lands-
manna kr. 47.436.600.000,00. Sam-
kvæmt þvi jafngilda beinar og ó-
beinar tekjur vegna erl. ferða-
manna 6,3% af heildarverðmæti
útfluttrar vöru.
Talið er, að nú starfi um 4% af
vinnuafli landsmanna að þjónustu
við islenzka og erl. ferðamenn,
segir i fréttabréfi Ferðamála-
ráðs.
Halló bændur
Ég er 13 ára skapgóður
og snúningsgjarn, van-
ur sveitavinnu. óska
eftir að komast á gott
sveitaheimili.
Upplýsingar i síma
40788.
Á morgun veröur dregiö í B.flokki.
9.450 vinningar aö fjárhæö nS3.93a.ooo.oo.
í dag er siöasti endurnýjunardagurinn.
6. flokkur:
9 á 1.000.000 kr. 9.000.000 kr.
9 - 500.000 —- 4.500.000 —
9 - 200.000 — 1.800.000 —
342 - 50.000 — 17.100.000 —
9.063 - 10.000 — 90.630.000 —
9.432 123.030.000 kr.
Aukavinningar:
1C á 50.000 kr. 900.000 —
9.450 123.930.000.00