Tíminn - 09.06.1976, Síða 9
Miðvikudagur 9. júni 1976
TÍMINN
9
Samkomu
lagið í Osló
Samkomulagið i Osló var is-
lenzkur sigur. Þar s egir, aö eftir
l. desember 1976 veiði Bretar
ekki við tsland nema „i sam-
ræmi við það, sem samþykkt
kann að verða af íslands háifu.”
— Þetta er meginatriði sam-
komuiagsins en af þvi leiöir svo
m. a. þetta:
Bundinn er endir á alvarlegt
hættuástand á fiskimiðunum og
þungri ábyrgð létt af islenzkum
stjórnvöldum.
Friðun svæða verður virt og
ungfiski þyrmt i samræmi við
islenzkar reglur, eins ogþær eru
og kunna að verða.
Sókn Breta næstu 6 mánuði
minnkar um meira en helming
miðað við togarafjölda
júni-nóvember s.l. ár. og um
tugi þúsunda smálesta hvernig
sem á málið er litiö.
Veiðisvæði Breta minnkar frá
þvi sem var fyrir útfærsluna
vegna miklu stærri friðunar-
svæða og vegna breytinganna
úr 12 i 20og 20130sjómilur.
Útlegð innlendra fiskiskipa af
Austf jarðamiðum er lokiö og ís-
lendingar fá frið til að veiða á
öðrum heimiluðum veiðisvæð-
um.
Unnt er að hefja viðgerðir á
varöskipunum og efla land-
helgisgæzluna á annan hátt til
almenns eftirlits og gæzlu i fisk-
veiðilögsögu tslands.
Tollar lækka og hagkvæmari
viðskipti fást i löndum EBE.
Islenzk -brezk viðskipti á
mörgum sviðum ná aftur að
þróast eðblega.
Gifurlegu álagi er létt af ýms-
um islenzkum aðilum, þar á
meðal Alþingi og rikisstjórn,
sem nú geta beitt sér af auknum
þunga að lausn aökallandi við-
fangsefna á sviði efnahags-
mála, atvinnurekstrar, orku-
öflunar og s.frv.
Mönnum hefur að vonum orð-
ið tíðrætt um, hvort íslending-
um hafi orðið lið að NATO i
landhelgisdeilunni við Breta.
Herskip bandalagsins skárust
ekki I leikinn á fiskimiðunum.
Og ég er ekki sannfærður um, að
það hafi verið vilji Islendinga,
að þau gerðu það. Við viljum i
lengstu lög vinna sjálfir lög-
gæzlustörfin á landi og I land-
helginni. Hins vegar mun At-
lantshafsbandalagið hafa beitt
Breta miklum þrýstingi um að
draga herskipin út og ganga til
samninga. Aðstoð I þvi formi
gátum viö þegið. örðugt er að
segja með vissu á þessari
stundu, hvern þátt það hefir átt I
sbjótum árangri við samninga-
bórðið I Osló. Og aldrei verður
vitað, hver staða okkar hefði
orðið i deilunni við Breta án
aðildar að NATO. Þar verða
menn að spá I eyður og draga
ályktanir af likum.
Samkomulagið i Osló var
harðast gagnrýnt, áður en menn
gátu að fullu gert sér grein fyrir
efnisatriðum. Slðar kom i ljós,
að mótmælin voru ekki vel
grunduðog vilég vikja stuttlega
að nokkrum þeirra.
Sumir telja þetta samkomu-
lag stjórnarskrárbrot. Þjóð-
kunnur lögfræðingur og hæsta-
réttardómari telur svo ekki
vera. Og tvær siöustu rlkis-
stjórnir hafa margsinnis staðið
á sama hátt að slikum samning-
um.
Þingflokkar stjórnarandstöö-
unnar vilja, að Alþingi sé kallað
saman. Þess eru mörg dæmi, aö
millirikjasamningar séu ekki
lagðir fyrir Alþingi jafnskjótt og
þeir eru undirritaðir af rikis-
stjórnum. Landhelgismálið var
rætt meira en önnur mál s.l.
vetur. Rikisstjórnin hefur kann-
að afstöðu þingmanna stjórnar-
flokkanna. Og I þessu máli hefur
hún tvöföld tengsl við Alþingi
um utanrikismálanefnd og
landhelgisnefnd.
Nokkrir menn úr röðum
stjórnarandstæðinga ganga svo
langt að halda þvi fram, að i
samkomulaginu felist ekki
viöurkenning á 200 milunum.
Þetta er fjarstæða sbr. texta
samkomulagsins. Slikur mál-
flutningur þjónar engum til-
gangi nema styöja hugsanlega
rangtúlkun erlendra aðila, ef
nokkur tæki mark á honum.
Þá er sagt, að samkomulagiö
sé óþarft, þar sem hafréttarráð-
stefnunni ljúki i september n.k.
En sannleikurinn er sá, að eng-
inn veit hvenærráöstefnan gerir
bindandisamþykktir né hvenær
þær samþykktir tækju gildi.
Brýn nauösyn var að binda þeg-
ar I stað endir á hættuástand á
fiskimiðum og smáfiskadráp á
friðlýstum svæðum.
Þvi er haldið fram, að Is-
lendingar láti af hendi svo og
svo mikið magn fiskjar næstu 6
mánuði. Þetta er algjör sjálfs-
blekking, þvi aflamagn Breta
skerðist við samningana
hvernig sem á málið er litið —
enekkihið gagnstæða. (Fækkun
togara, skerðing veiðisvæða, is-
lenzkar reglur virtar o.s.frv.).
Fundið er aö þvi, að haft skuli
samband við brezk eftirlitsskip
ef togari brýtur. Þetta var
einnig gert samkvæmt
samningnum 1973, og virtist
ekki valda verulegum erfiöleik-
um. Það ætti þvi ekki að skipta
meginmáli nú þegar samið er
um færriskip ogskemmri tima.
Þá er þvi haldiö fram, að bók-
un 6 falli úr gildi eftir 1. desem-
ber. Það er ekki skoöun rikis-
stjórnarinnar. Og hvaö sem þvi
líður: An samninga mundi bók-
un 6 ekki taka gildi.
Af bréfi Croslands má ráða,
að Breta fýsi aö fiska á Islands-
miðum eftir 1. desember. Varla
hefur nokkrum dottið annaö i
hug. En i 10. gr. samkomulags-
ins segir, að brezk skip veiði
ekki innan þeirra marka, sem
islenzka reglugerðin tiltekur
nema ,,i samræmi við það sem
samþykkt kann að verða af Is-
lands hálfu.” Sú yfirlýsing er án
fyrirvara.
Enn bera menn sér það i
munn, að til einskis hafi skips-
hafnir varöskipanna háð hetju-
lega baráttu við ofurefli fyrst nú
sésamið. Þetta erendaleysa þvi
samningur til stutts tima með
svo skertri sókn sem þessi
greinir, og fulla viðurkenningu
á 200 mílunum hefir aldrei fyrr
staðið til boða, og hefði ekki
fengizt nú heldur án undanfar-
andi baráttu.
Þvi ber að þakka landhelgis-
gæzlunni allt frá yngsta skip-
verjanum til æðsta yfirmanns i
landi um leið og þakka ber for-
ystu utanrikisráðherra og
ómetanleg störf þeirra fjöl-
mörgu manna, sem unnið hafa
málstað íslands gagn á haf-
réttarráðstefnunni og við
samningaborðið.
Nokkrir. menn hafa tekið sér
fyrir hendur að æpa á sam-
komulagið I Osló. Og auðvitað
hefði veriðæskilegt að öll útlend
veiðiskip heföu horfið af ls-
landsmiðum strax þegar fært
var út i 200 miiur. En af langri
reynslu vissu Islendingar að
þessvar ekki að vænta. Nú sem
fyrr varö þessi fámenna þjóð að
olnboga sig áfram að settu
marki. Og þar sem ytri aðstæð-
ur eru hagkvæmari en áður þá ,
hefir þetta tekizt á skemmri '
tima en nokkru sinni fyrr, eða á
rétt rúmlega 12 mánuðum frá
þvi að fært var út.
Mörgum er heitt i hamsi sem
von er. En I viðskiptum milli
rikja nægir skaphiti skammt.
Þar hlýtur köld skynsemi og
yfirvegun að ráða. Og eftir
rólega ihugun þá munu flestír
sannfærast um, aö samkomu-
lagiö i Osló var giftudrjúgt spor
álangri en strangri sigurgöngu
íslendinga i þessu mikla lifs-
hagsmunamáli, eins og löngum
hefir verið komizt að orði á
þessum misserum.
Vilhjálmur Hjálmarsson
Sjúkrahótelið á Akureyri. Timamynd: K.S.
Akureyri:
Sjúkrahótel tekur til starfa
KS-Akureyri
— Rauði krossinn á
Akureyri hefur nú fest kaup á
húseigninni Skólastig 5 þar i bæ.
Aætlað er að reka þar í framtið-
inni sjúkrahótel með svipuðu
sniði og gert er i Reykjavik. Þar
munu geta dvalið sjúklingar, sem
ekki þurfa daglega læknishjálp né
hjúkrun, en eru samt til rann-
sóknar og eftirmeðferðar hjá
F.S.A.
Að sögn Guðmundar Blöndals,
starfsmanns Rauða kross deildar
Akureyrar var kaupverð hússins
12 milljónir króna. Akureyrar-
deildin stendur ein að þessum
húsakaupum, en nýtur stuðnings
frá Rauða Krossi Islands. Aætlað
að afhending hússins fari fram i
ágústmánuði. I fyrstu er gert ráð
fyrir að þar verði 6-8 sjúklingar,
en þegar búið er að gera
breytingar á húsinu geta verið
þar 10-12 manns. Brýn þörf var
orðin á sliku sjúkrahóteli á Akur-
eyri, ekki sizt fyrir fólk úr ná-
grannasveitum. Ak. sem þarf að
vera undir rannsókn og eftirliti en
þarf ekki að vera á sjúkrahúsi.
Hvers virði er góður
útbúnaður? ——,
\Upphitað
ökumannshús
með
farþegasæti
Sambyggður
sveiflu- og
lyftikrókur.
Verkfærasett.
ISTEKK”
Yfirstærð dekkja.
Lágmúla 5 Simi 84525
Loftþjappa.
Þetta er meðal þeirra
hluta, sem þið oft
greiðið fyrir aukalega
með öðrium traktorum
en eru innifaldir í
verði ZETOR.
i
i
1