Tíminn - 09.06.1976, Page 16
16
TÍMINN
Miðvikudagur 9. júni 1976
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall 70
það! Estelle hló. — Er ástæða til að halda upp á eitt-
hvað?
— Já, svo sannarlega!
— Þið komið í veizluna til mín, bæði tvö. Á föstudags-
kvöldið klukkan hálf átta. Ef Pollý er á vakt, þá gefið
henni frí. Ef þér eigið vakt, skal ég sjá um það. Hún hló
lágt um leið og hún hélt áf ram eftir ganginum.
Málverkinu var lokið. Simon steig eitt skref aftur á
bak og virti það fyrir sér. — Nú megið þið sjá, bæði tvö.
Myra teygði fegin úr sér og stóð stirðlega upp úr stóln-
um á pallinum. Já, þá var myndin sem sagt búin, svo að
segja um leið og hún var á förum frá París. i vikulokin
færi hún frá París og sjúkrahúsinu og manninum, sem
hún elskaði, Hún hafði ekki séð Mark síðan um kvöldið á
La Ronde — og það var nærri hálfur mánuður síðan.
Hann hafði óvænt verið kallaður á ráðstefnu í London og
hún vissi ekki, hvort hann kæmi aftur áður en hún færi.
Hún hrökk upp úr hugsunum sinum við rödd Brents:
— Simon! Þér hefur tekizt það! Það er stórkostlegt!
Hver sagði, að þú hefðir glatað neistanum? Myra!
Komdu og sjáðu!
Hún gekk yfir gólfið og nam staðar við trönurnar.
Hennar eigið andlit horfði á hana.með þrá í svipnum,
svolítið dapurt, en stolt og ákveðið.
— Er ég raunverulega svona dapurleg á svipinn,
Símon? spurði hún.
— Ekki dapurleg, vina mín. — Þetta er dreymni og
slíkt verkar alltaf aðlaðandi á málverkum. Hann leit
spyrjandi á hana. — Líkar þér það ekki?
— Þúhefurekkiglataðneinuaf tækninni. Hverig líður
þér að vera búinn með það?
— Hamingjusamari en ég hélt að ég gæti orðið fram-
ar, en alls ekki ánægður með það. Alls ekki ánægður.
— Enginn sannur listamaður er það nokkurn tíma.
— Myra þú hef ur aldrei sagt sannara orð, sagði Brent
hlæjandi. —Og myndin var tilbúin alveg í tæka tíð.
— í tæka tíð til hvers? spurði Simon.
— Bíddu bara og sjáðu til, svaraði Brent leyndar-
dómsf ullur. — Myra, þú ert þó ekki að fara strax?
— Ég verð. Ég á vakt eftir hálftíma.
Brent hjálpaði henni í kápuna og fylgdi henni til dyra.
Hún sneri sér við log leit á Simon. Hann stóð við mynd-
ina, niðursokkinn í hugsanir sínar. En það sást á hnakka-
svipnum, að hann var glaður og stoltur yfir verki sínu.
— Bless, Simon, kallaði Myra. — Þetta er falleg mynd,
of falleg!
— Það heldur þú, sagði Brent og fylgdi henni fram að
lyftunni. Henni fannst hann þreytulegur og fann skyndi-
lega til meðaumkunar með honum. — Brent sagði hún
skyndilega.— Hvers vegna heimsækirðu ekki Venetiu?
— Ef hún hef ur áhuga á mér, léti hún mig vita.
— Hún bíður kannski eftir að þú látir hana vita.
— Þaðverðurað koma frá henni, svaraði hann stutt-
lega.— Hún sagði mér að fara og ef hún vill mig aftur,
verður hún að biðja mig að koma.
— Þú elskar hana ennþá, sagði Myra eins og það væri
f ullvíst.
— Já.... og ég hef áhyggjur af því. Ég held að ég muni
elska hana á meðan ég lif i, en samt vildi ég að það hefði
orðið par úr mér og þér, Myra.
— Nei, f lýtti Myra sér að segja. — Það var blessun, að
þú skyldir slíta því, Brent. Við hefðum aldrei átt saman
og ég hefði ekki komizt að því, fyrr en við hefðum verið
gift.
— Og samt var ég svo eigingjarn að ég vildi, að þú
héldir áfram að elska mig, viðurkenndi Brent.
Hún hristi höf uðið. — Nei, Brent, það er aðeins vinátta
min, sem þú vilt og ef hún er þér einhvers virði, er þér
hún velkomin.
— Hún er mikils virði, Myra. Þú veizt ekki sjálf hvað
vinátta þín skiptir mig miklu máli. Hann ýtti á lyftu-
hnappinn. Svo sagði hann fljótmæltur:
— Viltu gera dálítið fyrir okkur Simon, áður en þú
ferð?
— Auðvitað, hvað er það?
— Komdu og borðaðu hjá okkur á föstudagskvöldið.
Ég hef boðið nokkrum gestum til að koma og sjá mynd-
ina á eftir.
— En gaman. Auðvitað kem ég.
Síðar, þegar hún fékk boðið frá Estelle, var hún
þakklát f yrir að haf a verið búin að þiggja boð Brents. Þá
gat hún hreinskilnislega sagt, að hún væri því miður
upptekin. En fyrst Estelle var að halda veizlu, hlaut
Mark að vera kominn aftur. Skyndilega langaði hana til
að þiggja boðið svo hún gæti hitt hann einu sinni enn, en
svo ýtti hún hugsununum frá sér. Hún vöðlaði bréfinu
^^Viís náfinm Þú hefur w Kominn timi tl
Sing af her^núnf h^ta vi6
Brukka sofandi eöa txeiri. ■ J hinum stóra
nf rlpiilrlrnnm til « ! / \ ROnSl, i
of drukknum til ■
þess aö þeir gátu
•wvarizt. ' A
Hirðingjai^þegar sóliir Ég Gor, mun vinna ...meö þvi að
kemurupp mun mér rétt til aö ráöa ‘ sigra Brukka
Brukka vak'na viö ^ yfir öllum hernum... fheiöarlegu
aö fá áskorun frá einvigi
A meöan i höll Luaga forseta. „
Takið til tvo kassa af dýnamil
og sprengjuþræði. Nóg til að
sprengja upp stórhýsi. Z'
Ihillliiiií
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Einar Björgvin heldur
áfram sögu sinni „Palla,
Ingu og krökkunum i Vik”
(6). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög milli atriða. Kirkju-
tónlist kl. 10.25: Kammer-
kór tónlistarskólans i Veil-
ved I Noregi syngur lög eftir
Britten, Schuts og Bach/
Johan Varn Ugland leikur á
orgel Prelúdiu og fúgu i h-
moll eftir Bach. Morguntón-
leikar kl. 11: Fllharmonlu-
sveit Vinarborgar leikur
Sinfóniu nr. 3 I d-moll eftir
Anton Bruckner, Carl
Schuricht stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miödegissagan: „Mynd-
in af Dorian Gray” eftir
Oscar Wilde. Valdimar
Lárusson les þýöingu Sig-
urðar Einarssonar (10).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.00 Lagiö mitt. Anne-Marie
Markan kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
17.30 „Eitthvað til aö lifa fyr-
ir” eftir Victor E. Frankl
Hólmfriður Gunnarsdóttir
les þýöingu sina á bók eftir
austurriskan geölækni (3).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
20.00 Einsöngur I útvarpssal:
Hreinn Llndal syngur lög
eftir Sigvalda Kaldalóns,
Pál Isólfsson, Emil Thor-
oddsen og Karl O. Runolfs-
son. ólafur Vignir Alberts-
son leikur á pianó.
20.20 Sumarvaka. a. t Laug-
arvatnsskóla veturinn 1930.
Agúst Vigfússon kennari
segir frá. b. Störin syngur.
Herdis Þorvaldsdóttir leik-
kona les ljóö eftir Guðmund
Frimann. c. Tveir á ferö um
Tungu og HlIÖ.Halldór Pét-
ursson flytur frásöguþátt,
fyrri hluta. d. Kórsöngur.
Kammerkórinn syngur.
Söngstjóri: Rut L. Magnús-
son.
21.30 tJtvarpssagan: „Siöasta
freistingin” eftir Nikos Kaz-
antzakis.Sigurður A. Magn-
ússon les þýðingu Kristins
Björnssonar (37).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Hækkandi stjarna”
eftir Jón Trausta. Sigrlöur
Schiöth les (2).
22.45 Djassþáttur Jóns Múla
Árnasonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Bilaleigan Þýskur
myndaflokkur. Tilræöi viö
ástargyöjuna Þýðandi Bríet
Héöinsdóttir.
21.05 Karlakórinn Svanir
Karlakórinn Svanir frá
Akranesi syngur undir
stjórn Hauks Guölaugsson-
ar. Undirleikari Fríöa
Lárusdóttir. Stjórn upptöku
Tage Ammendrup.
21.25 Læknisaögerö án upp-
skurðar Þýsk fræöslumynd
um nútimatækni viö læknis-
aðgeröir. Þýöandi Auður
Gestsdóttir. Þulur Ingi Karl
Jóhannesson.
22.10 Spilverk þjóöanna
Félagarnir Valgeir
Guöjónsson, Egill ólafsson
og Sigurður Bjóla fremja
eigin tónsmið með aðstoö
ýmissa vina og vanda-
manna. Tónlist þessa kalla
þeir háfjallatónlist. Stjórn
upptöku Egill Eövarðsson.
Aöur á dagskrá 6. septem-
ber 1975.
22.30 Dagskrárlok