Tíminn - 14.08.1976, Blaðsíða 3
Laugardagur 14. ágúst 1976
TÍMINN
Mjólkurframleiðendum fækk-
aði um 220 milli 1974 og '75
A undanfömum árum hafa
árlega um 200 bændur hætt
mjólkurframleiðslu, segir i frétt
frá Upplýsingaþjónustu land-
búnaðarins. Árið 1974 lögðu 3103
bændur inn mjólk hjá mjólkur-
samlögunum en á siðasta ári voru
þeir 2883. Þeim hafði þvi fækkað
um 220. Hver framleiðandi skilaði
að meðaltali 38.684 kg mjólkur á
siðastliðnu ári, en það var 1313kg
meiri mjólk á hvern framleið-
anda en árið áður. Mest var
mjólkin á hvem bónda á svæði
Mjólkursamlags KEA, rúmlega
64 þús. kg, en meðalinnlegg á
hvern framleiðanda hjá Mjólkur-
búi Flóamanna var 46.153 kg.
Hlutfallslega hefur mjólkur-
framleiðendum fækkað mest á
svæði mjólkursamlagsins i
Búðardal eða um 21%. Þeim
fækkaði um 9,4%, sem lögðu inn
hjá mjólkursamlagi KEA, en hjá
mjólkurbúi Flóamanna rétt um
4%, en á öllu landinu nam fækk-
unin 7%.
Meðalflutningskostnaður á
hvert kg mjólkur frá framleið-
anda að stöövarvegg var á siðast-
Aðsókn að Listasafni tslands
það sem af er þessu ári hefur
verið óvenjumikil segir i
frétt frá safninu, eða alls um
25.000 gestir. Opnunartimi
safnsins var fyrstu fimm
mánuði ársins fjóra daga
vikunnar frá kl. 13.30-16.00
en yfir sumartimann alla
daga vikunnar frá
13.30-16.00.
t haust verður haldið áfram
með listsögulega fyrirlestra
á vegum safnsins og fræðsiu-
hópa I listsögu auk þess sem
kvikmyndasýningar um er-
lenda iist verða tvisvar i
mánuði. Auk sýninga á is-
lenzkum og erlendum verk-
um safnsins verður i haust
haldin yfirlitssýning á verk-
um Finns Jónssonar.
Tveir togarar með
undirmálsfisk í afla
— 13 humarbátar lönduðu undirmáls-
humri sem var gerður upptækur
gébé Rvik —Hluti af afla tveggja
islenzkra togara og þrettán
humarbáta hefur verið gerður
upptækur, þar sem nokkuð magn
Lítil loðnuveiði
ASK-Reykjavik.Óhagstæð veður-
skilyrði hafa komið i veg fyrir að
nokkuð hafi veiðzt á svæði því, er
loðnuleitarskipið Arni Sigurður
fann loðnu I fyrrinótt. Atta bátar
eru á svæðinu og telja skip-
sijórnarmenn næga loðnu vera
þarna. Einhverjir munu hafa
reynt að kasta þrátt fyrir bræl-
una, en loðnan er stygg.
Einungis tveir bátar tilkynntu
afla siðast liðinn sólarhring. Voru
það Harpan RE (250) og Ársæli
KE (230). Báðir bátarnir fóru
með aflann til Siglufjarðar. Þeir
voru á norðursvæðinu, sem er
NNA af Horni.
Skattarnir á Austurlandi
rálagningin
tæpir 1,3 milliarðar
MÓL-Reykjavik. — Ég var rétt I
þessu að ná i skýrslurnar út á
flugvöll, sagði Páll Halldórsson,
skattstjóri Austurlandsum-
dæmis, þegar Timinn spurði
hann um skattana i umdæminu.
Heildargjöldin nema einum
milljarð, 280 milljónum, 197 þús.
og 265 krónum. Söluskatturinn
er ekki talinn með i þessari tölu.
5976 einstaklingar greiða
1.085.431.543 krónur og 294 félög
greiða 194.765.722 krónur.
Skattskrá Vesturlandsumdæmis:
HEILDAR-
GJÖLDIN
1,5 AAILLJARÐAR
MÓL-Reykjavik. Skattskrá
Vesturlandsumdæmis hefur ný-
lega verið lögð fram og nema
heildargjöld iumdæminueinum
milljarð, 515 milljónum, 912
þúsundum og 57 krónum. Skipt-
ist heildartalan þannig, að 6751
einstaklingur greiðir alls
1.245.927.116 krónur og 467 fyrir-
tæki ails 269.984.941 krónur.
Fjögur umdæmi heyra undir
Vesturlandsumdæmiog eru það
Akranes, Mýra- og Borgar-
fjaröarsýsla, Snæfells- og
Hnappadalssýsla og Dalasýsla.
Af einstaklingum greiðir
Kristján Guömundsson, út-
gerðar maöur á Rif i, hæstu skatt
ana, 4.458.730 krónur. Soffanlus
Cecilsson, útgeröamaður á
Stykkishólmi greiðir 4.042.440
krónur og d/b Frlðu Proppé lyf-
sala á Akranesi greiðir 3.925.162
krónur.
Af fyrirtækjum greiðir Kaup-
félag Borgarness hæstu skatt-
ana, 16 milljónir, 635 þús. og 584
krónur. Oliufélagið hf. I Hval-
firði greiðir 13.396.414krónur og
Haraldur Böðvarsson, Akra-
nesi, greiðir 11.614.556 krónur.
SKATTAR
ÓBIRTIR
í TVEIAAUR
UAADÆAAUAA
AF NÍU
MÓL-Rey kjavik. Nt
liggja fyrir upplýsingar
um skatta i sjö skattum-
dæmum á landinu af niu.
Eftir eru Suðurlands-
umdæmi, en niöurstöður
skattaútreikninganna i
þvi verða sendar til um-
dæmisins fljótlega eftir
helgi, og Norðurlandsum-
dæmi vestra, en ibúar
þess munu siðastir allra
landsmanna fá upp-
lýsingar um sina skatta.
Skattarnir skiptast þannig
milli kaupstaða og hreppa:
Seyðisfjörður: 116.513.627 kr-
onur.
Neskaupstaður: 253.743.475
krónur.
Eskifjörður: 137.057.849 krón-
ur.
Vopnaf jaröarhreppur:
83.797.480 krónur.
Egilsstaðarhreppur:
125.587.429 krónur.
Reyðarfjarðarhreppur:
74.266.827 krónur.
Búðarhreppur (Fáskrúðs-
fjörður): 82.975.189 krónur.
Höfn I Hornafirði: 178.201.229
krónur.
Gjaldhæstu einstaklingarnir i
umdæminu eru Hjörleifur Gutt-
ormsson á Neskaupstað meö 2
milljónir, 349 þús. og 323 krónur,
Þorsteinn Sigurðsson, héraðs-
læknir á Egilsstöðum með
2.189580 og Valgarður Jó-
hannesson, bifreiðarstjóri Nes-
kaupstað með 2.114.482 krónur.
Gjaldhæsta fyrirtækíð er
Kaupfélag Austur-Skaftafells-
sýslu og á það að borga
16.289.703 krónur. Þá koma
Hraðfrystihús Eskifjarðar með
14.992.427 krónur, Kaupfélag
Héraðsbúa með 11.629.050 krón-
ur. Þessi þrjú félög eru þau
einu, sem eiga að greiða meir en
10 milljónir, en næst koma
Sildarvinnslan hf. Neskaupstað
með 9.965.125 krónur og Hrað-
frystihús Fáskrúðsfjarðar með
8.485.200 krónur.
af undirmálsfiski var i afla
þeirra. Magnið er þó mjög mis-
jafnt hjá skipunum. Andvirði afl-
ans rennur I sérstakan sjóð, sem
safnað er i og útdeilt úr honum
fjárhæðum til fiskirannsókna og
til ýmissa visindarannsókna.
Timinn ræddi stuttlega viö Arn-
mund Backmann I sjávarútvegs-
ráðuneytinu, en hann hefur með
þessar kærur og úrskurði að gera.
t—Nýlega voru rúmlega 2000 kg
af ýsu og tæp 20 tonn af karfa,
gerð upptæk af afla Ingólfs
Arnarsonar, og reyndist verð-
mæti þessa undirmálsfisks vera
um 737 þúsund krónur, sem renna
i sjóðinn, sagði Arnmundur.
Leyfilegt er, að 5% af karfaafla sé
undirmálsfiskur, en i afla Ingólfs
Arnarsonar var karfinn allt upp i
21% af heildarmagninu.
Eitthvað magn af undirmáls-
fiski fannst i afla togarans Júni,
en það var miklu minna en hjá
Ingólfi Arnarsyni. Að sögn Arn-
mundar er það mál enn i rann-
sókn.
Sem kunnugt er, er humarver-
tið nýlokið, nánar tiltekið þann 7.
ágúst s.l., en samkvæmt reglu-
gerð um humarveiðar er algjör-
lega bannaö að vera með nokkurn
undirmálshumar. Þrettán
humarbátar voru kærðir fyrir að
vera með undirmálshumar og afli
þeirra gerður upptækur. Misjafn-
lega mikið af afla þessara báta
var undirmálshumar, en mest
var hann allt upp i 24% af heildar-
afla eins bátsins. Þvi miður gat
Arnmundur ekki upplýst nokkuð
um hve mikla fjárhæð hér væri
um að ræða.
liðnuári kr. 2,47, en árið 1974 kr.
1,60. Hæsti flutningskostnaöur
var kr. 5,73 á hvert kg, en lægstur
kr. 1,75.
BEZTA
KÝRIN
MJÓLK
AÐI 8149
KG.
1 siðasta hefti Freys eru
birtar niðurstöður úr skýrsl-
um nautgriparæktarfélag-
anna árið 1975. Þar kemur
fram, að kýr á skýrslum
voru 21746, en það eru 58% af
kúm landsmanna. Meðalnyt
reyndist vera 3594 kg með
4.13% fitu. Hæst var nytin
hjá kúnum i Eyjafiröi, 3797
kg með 4.33% fitu, eða 165kg
af mjólkurfitu, þar var
meðalbúiö einnig stærst, 28.4
árskýr.
Afurðir eftir reiknaöa árs-
kú mælt i kg mjólkur hafa
minnkað um 145 kg frá árinu
áður. Þetta er fjórða árið i
röö, sem meðaltalsafurðir
kúnna dragast saman og er
lækkunin frá árinu 1971, þeg-
ar afurðir voru þær hæstu,
sem þær hafa orðið, fast að
300 kg á kú eða 7.7%. Aðal-
ástæðan er fjölgun skýrslu-
færðra kúa.
Félagsbúið að Hamri,
Ripurhreppi I Skagafirði
hafði afurðahæstu kýrnar
árið 1975. Þar voru 22.6 kýr,
meðalnytin var4917 kg. Næst
i röðinni var kúabú þeirra
bræðra Sigurjóns og Bjarna i
Neðri-Tungu, Isafirði. Þar
voru 14,7 árskýr. Meðalnyt
þeirra var 4910 kg og þaö
þriðja I röðinni var hjá Steini
Snorrasyni, Syðri-Bægisá,
öxnadal. Þar voru árskýrn-
ar 26.1. Meöalnyt þeirra var
4830kg. Bezta kýrin árið 1975
var Hrefna 61 á Kroppi,
Hrafnagilshreppi. Mjólkaði
hún 8149 kg með 4.71% fitu.
Mjólkurfita var 384 kg.
Næstmesta mjólkurfita hafði
Bláma i Hróarsholti, Vill-
ingaholtshreppi. Hún mjólk-
aði 5668 kg meö 6.68% fitu
eða 379 kg af mjólkurfitu.
Afurðir Hrefnu eru næst-
hæstu, sem um getur hér á
landi, hvort sem mælt er i kg
mjólkur eða mjólkurfitu.
Grána á Reykjarhóli i Fljót-
um mjólkaöi 8190 kg árið
1972, en Kæti á Ljótsstööum i
Vopnafirði gaf af sér 430 kg
af mjólkurfitu árið 1973.
Undirskrifta*
söfnun gegn
lokun
mjólkurbúða
Fundur starfsstúlkna i mjólk-
urbúðum og neytenda var haldinn
i Lindarbæ á fimmtudagskvöld og
var þar samþykkt að skora á öll
verkalýösfélög, launþega og aðra
neytendur að leggja lið barátt-
unni gegn lokun mjólkurbúða og
styðja aðgerðir gegn lokun mjólk-
urbúða, bæði með fjárframlögum
og starfi. Fyrsta aðgerð er þegar
hafin segir I frétt frá hreyfing-
unni. Það er söfnun undirskrifta i
ibúðarhverfum stór-Reykjavikur.
Utanríkisráðherrafundur
Norðurlandanna í Kaup-
mannahöfn 19. og 20. ágúst
Utanrikisráðherrafundur
Norðurlanda verður haldinn i
Kaupmannahöfn dagana 19. og
20. ágúst n.k. Er hér um að ræða
reglulegan haustfund ráðherr-
anna, þar sem fjallað verður um
ástandalþjóðamála meðsérstöku
tilliti til 31. allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna sem hefst i
næsta mánuði, segir i frétt frá
utanrikisráðuneytinu.
Auk Einars Agústssonar, utan-
rikisráðherra, fara héban á fund-
inn þeir Henrik Sv. Björnsson,
ráðuneytisstjóri, og Höröur
Helgason, skrifstofustjóri, en
einnig munu sitja fundinn af Is-
lands hálfu Agnar Kl. Jónsson,
sendiherra, Ingvi S. Ingvarsson,
fastafulltrúi Islands hjá Samein-
uðu þjóðunum og Þorleifur
Thorlacius, sendifulltrúi.
1 fyrradag var haldinn hér i
Reykjavik til undirbúnings ráö-
herrafundinum fundur forstööu-
manna þeirra deilda utanrikis-
ráðuneytanna á Norðurlöndum
sem fjalla um málefni Sameinuðu
þjóðanna. Fulltrúar lslands á
þeim fundi voru Höröur Helga-
son, skrifstofustjóri, ölafur
Egilsson, deildarstjóri, og Bene-
dikt Asgeirsson fulltrúi.