Tíminn - 14.08.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Laugardagur 14. ágúst 1976
í spegli tímans
Tennisleikarinn og prinsessan
Þúsundir manna hylltu Björn
Borg, þegar hann sigraöi i
úrslitaleik heimsmeistaramóts-
ins I tennis á Wembledon og
flykktust aö honum hópur
stúlkna. En hann leit ekki við
þeim. Hugur hans var hjá
annarri stúlku, sem ekki gat
verið viöstödd til aö fagna sigr-
inum meðhonum, vegnaþess aö
hún var á leið meö foreldrum
sinum til Bandarikjanna, til aö
vera viðstödd hátiöahöld i sam-
bandi við frelsishátiö þeirra.
Stúlka þessi er Karólina
prinsessa af Monakó. Kynni
þeirra Björns og Karólinu
hófust fyrir tveim árum, þegar
Björn flutti til Monakó. Astæöan
fyrir þvi aö hann sagöi skiliö viö
heimaland sitt var sú, aö hann
vildi ekki sjá á eftir miklum
hluta tekna sinna, sem hann
hafbi unniö fyrir höröum
höndum, i gin sænsku skatt-
heimtunnar. Þegar hin laglega
og sjálfsörugga furstadóttir
frétti aö Björn væri aö flytja til
landsins kom hún þvi strax i
kring aö þau voru kynnt. Það
vekur furöu margra, aö hún
skyldi veröa hrifin af Birni, þvi
að hún hafði áður helzt hrifizt af
hávöxnum, myndarlegum og
dökkhæröum karlmönnum.
Ekkert af þessu á viö um Björn.
Hann er framur lágvaxinn meö
mikið ljósan hárlubba, sem
hann heldur frá andlitinu meö
ennisbandi, þegar hann er aö
keppa og getur ekki talizt
snoppufriöur. Hann hefur langt
og mjótt nef i barnslegu andlit-
inu, og skeggiö, sem hann lætur
vaxa 1 þeirri trú að þaö geri
hann fullorðinslegri, breytir
engu i þá átt. En þrátt fyrir
þetta er Karólina hrifin af
honum og sú hrifning er alveg
gagnkvæm. En ekki eru allir
jafnhrifnir, — og þaö á viö um
foreldra Karólinu, furstahjónin
af Monakó. Þau kunna aö vísu
vel viö Björn, en kæra sig ekkert
um hann sem tengdasoa Þau
höföu ætlaö frumburöi sinum
annaö og vænlegra gjaforö en
son sænsks matvörukaup-
manns. En hvort þau hafa
nokkra ástæðu til aö óttast að
samband þeirra sé svo náiö,
mun timinn leiöa i ljós.
Myndirnar eru af Karólinu og
Birni Borg.
DENNI
DÆMALAUSI
„Fyrst góöu fréttina, pabbi, nú
veröur nóg hreint loft I bil-
skúrnum”.