Tíminn - 14.08.1976, Blaðsíða 11

Tíminn - 14.08.1976, Blaðsíða 11
Laugardagur 14. ágúst 1976 TÍMINN, n m í meæzrsrCC>ixs.>S 1 MM/ftasswsmÁ hljóðvarp Laugardagur 14. ágúst 7.00 Morgunútvarp Veöur- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.00. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Ragnar Þorsteinsson heldur áfram lestri „Útungunarvélarinnar”, sögu eftir Nikolaj Nosoff (5). óskalög sjúklinga kl. 10.25: Kristin Sveinbjörns- dóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Út og suður Asta R. Jóhannesdóttir og Hjalti Jón Sveinsson sjá um sið- degisþátt með blönduðu efni. (16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir). 17.30 i leit að sólinni Jónas Guðmundsson rithöfundur rabbar við hlustendur i fjórða sinn. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 FjaðrafokÞáttur i umsjá Sigmars B. Haukssonar. 20.00 óperutónlist: Þættir úr „Brottnáminu úr kvenna- búrinu” eftir Mozart Söng- fólk: Jutta Vulpus Rose- marie Rönisch, Rolf Apreck, Jurgen Förster og Arnsed van Mill. Kór og Hljómsveit Rikisleikhússins i Dresden syngur og leikur. Stjórnandi: Otmar Suitner. 20.55 „Friðarsinni”, smásaga eftir Arthur C. Clark Óli Hermannsson þýddi. Jón Aðils leikari les. 21.25 Vinsæl iög frá árunum 1938-41 Rosita Serrano syngur. 21.50 „Vinur i Viet-nam”, ljóð eftir Örn Bjarnason Hjalti Rögnvaldsson leikari les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Danslög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. sjonvarp Laugardagur 14. ágúst 18.00 tþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 20.00 Fréttir og veðr. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Maöur til taks. Breskur gamanmyndaflokkur. Hverju skipta nokkrar krónur? Þýðandi Stefán Jökulsson. 21.00 Skin og skúrir Bresk heimildamynd um leið- angur fjallgöngumanna á Eigertind i Alpafjöllum. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. 21.45 Hvernig komast má áfram án þess að gera handarvik. (How To Succeed In Business With- out Really Trying) Bandarisk kvikmynd frá árinu 1967. Aðalhlutverk Robert Morse, Michele Lee og Rudy Vallee. Ungur maður brýst til æðstu met- orða i stórfyrirtæki, sem hann starfr hjá, og er óvandur að meðulum. Þýö- andi Dóra Hafsteinsdóttir. 23.35 Dagskrárlok. í JÖTUNHEIMUM FJALLANNA 4- — Það er barnið, sem við verðum að hugsa um, sagði hann lágt. Grétu getur enginn bjargað. — Við getum lof að henni að deyja eins og manneskju! Heyrir þú það — heyrir þú það? Hún skal fá að deyja eins og manneskja. Lars muldraði eitthvað, og kona hans hvessti á hann augum eins og hún stæði f rammi fyrir böðli sínum. — Ef — ef eins stæði á fyrir mér — myndir — myndir þú þá...? Það var eins og líf hennar ylti á því, hvaða svar hann gæfi henni við þessari spurningu. Djúp hrukka myndað- istá enni Lars, og hann tók harðan kipp Myndi hann hafa gert það? Til dæmis, þegar Eiríka fæddist, og hin börnin höfðu f lúið út i f jós? AAyndi hann hafa þrifið hnífinn, ef allt annað hefði verið vonlaust? Nei — nei! — Hér er það Hans, sem verður að ráða, sagði hann óskýrt. Nú skulum við fara. Hann vonast sjálfsagt eftir okkur. Gamli bóndinn stakk hnífnum í slíðrin og rétti úr sér. En kona hans sat nötrandi við borðið. — Kemur þú líka? Hugur Birgittu æpti nei, nei. En hún strauk samt titr- andi hendinni um vott ennið og reikaði í áttina til dyr- anna. — Ættum við ekki að vekja AAörtu, svo að skepnunum verði gefin morgungjöfin? Kona hans kinkaði kolli, og Lars gekk að rúmi dóttur sinnar. Enhún varvakandi — augun galopinog starandi. — Ertu vakandi? Hún svaraði ekki. Stúlkan lá kyrr, eins og stirðnað lík, stundi og starði út í loftið. Lars vissi, að hún myndi hafa heyrtsamtal þeirra foreldranna. En hann lét sem ekkert væri. — Þú verður að fara á fætur og gegna skepnunum, AAarta. Við mamma þín verðum að bregða okkur f rá. Hann beið ekki eftir svari, heldur gekk brott, opnaði hurðina og skálmaði út á hlaðið. Hann átti kannski að skreppa upp eftir til Ólafíu og biðja hana að líta til AAörtu. Það gat verið ofraun fyrir 16 ára gamla telpu að heyra talað um sumt, sem fullhertur frumbýlingur varð að horfast í augu við. — Birgitta — hvar ertu? Hún svaraði honum handan við húshornið, og hann flýtti sér þangað. — AAarta veit, hvernig komið er fyrir Gretu. — Þá getum við ekki skilið hana eina eftir. Hún var örvita yf ir hvarf i Jónasar, og þegar þetta bætist við, veit enginn, hvað hún getur tekið til bragðs. Birgitta vildi fara aftur inn, en Lars varnaði henni þess. — Ólafía getur komið hingað niður eftir, sagði hann. Þú verður að hjúkra Gretu. Svo lögðu þau bæði af stað að húsi sambýlismannsins. Það var ekki enn byrjað að birta, og einhvers staðar í fjarska kvað við óhugnanlegt ýlfur soltins villidýrs. — Nei, þau eru öll í Kyrtilfelli. Það fæddist þar barn, og svo eru þeir að byggja hlöður. Það kom áhyggjusvipur á Jónas við þessi tíðindi, og stúlkan horfði undrandi á hann. — Komstu til þess að finna pabba? Jónas kinkaði kolli, hátíðlegur á svip. Já, hann ætlaði einmitt að tala við hann. — Hann kemur heim á morgun. — Á morgun, tautaði Jónas. Nú, ekki f yrr en á morg- un. Þá get ég róið yf ir að Kyrtilfelli og hitt hann þar. — Þú kemur fyrst heim og borðar. Jónas varð enn þungbúnari á svipinn. Hún bauð hon- um áð borða. Hún hélt auðvitað, að hann kæmi til þess að éta sig enn einu sinni saddan — hann skyldi þá sýna henni að hann væri ekki matarþurfi. — Ég er með mat í bakpokanum mínum, svaraði hann stuttaralega. Og svo stóðu þau þarna í vandræðum og gátu ekki látið sér detta neitt í hug til þess að segja. Það hefði kannske orðið lokaúrræðið hjá Jónasi að kveðja og fara, ef Stína hefði ekki allt í einu munað eftir bjarndýraförum, sem hún sá í flagi um morguninn, er hún haf ði verið að huga að því, hvernig liti út með moltu- berin í mýrinni. Jónas lifnaði allur við, og nú kom ekki lengur til mála, að hann sneri við að Kyrtilfelli. Bjarndýr — hann ætlaði að svipast eftir því. Hann dró bátinn í land, tók byssu sína og bakpoka og arkaði á eftir Stínu, sem trítlaði léttfætt heim götuslóðann, sem lá upp frá vörinni. HVELL G E I R I D R E K I K U B B U R

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.