Tíminn - 26.08.1976, Side 3
Fimmtudagur 26. ágúst 1976
TÍMINN
3
REYKJAVfKUR-SKÁKAAÓTIÐ
Ingi R. á betri biðskák
— móti Tukmakov
MÓL-Reykjavlk. I annarri um-
ferð Reykjavikurskákmötsins
bar þaðhelzt til tiðinda, að þeg-
ar skák Inga R. Jóhannssonar
fór í bið, þá bentu allar likur til
þess, að staðan væri unnin hjá
Inga, en hann var að tefla við
sovézka stórmeistarann
Tukmakov.
íupphafi leit Ut sem viðureign
þeirra ætlaði að verða róleg
stöðubaráttuskák, þar sem Ingi
átti við veikleika á c6 að striða,
en hann hafði svart. Þegar Ingi
hugðistlosa sig við veikleikann,
þá fór allt ibálogbrandog virt-
istlngi eiga i vök að verjast, en i
timahrakinu tefldi hann vel og
vann skiptamun.
En það voru fleiri, sem tefldu
vel i timahrakinu. Gunnar
Gunnarsson tapaði peði i
byrjuninni á móti Helga Ólafs-
syni og hafði verra tafl allt und-
ir lokin er honum tókst að ná
peðinu til baka og jafntefli var
samið.
Skák Najdorfs við Margeir
var mjög skemmtileg fyrir
áhorfendur, enda þótt úrslitin
hefðuekkiverið ánægjuleg. Upp
úr byr juninni kom nokkurs kon-
ar grjótgarðsstaða, þar sem
Najdorf sótti á kóngsvængnum.
Tefldi gamli maðurinn mjög vel
og vann sannfærandi.
Skák Hauks við sovézka stór-
meistarann var aldrei
skemmtileg fyrir áhorfendur,
þvi hún var rétt að byrja, þegar
Haukur var kominn i timahrak,
enhann féll á t&na skömmufyr-
ir bið.
Björn og Matera tefldu sikil-
eyjarvörn og virtist sem Björn
hefði góðar sóknarlikur, en
Bandarikjamaðurinn varðist
vel, hrundi árásinni og bætti
stöðusina jafnt og þétt. í tima-
hrakinu vann hann skiptamun
og verður ekki annað séð en
Matera vinni biðskákina.
Timman vann aftur góðan
keppanda — Bretann Keen. Þeir
tefldu Nimzo-indverska vörn og
varð staðan fljótlega allflókin.
Skemmst er frá þvi að segja, að
Hollendingurinn tefldi af-
bragðsvel og var vel að sigrin-
um kominn. Verði hann I þess-
um ham út allt mótið, þá eru
þeir ekki margir, sem koma til
með að stöðva hann.
Skák Friðriks og Vukcvich
var tíðindalitil,enda skiptu þeir
upp drottningum snemma i
skákinni.
Guðmundur byggði upp góða
sóknarstöðu gegn Westerinen,
en Finninn varðist vel og hélt
jafntefli.
Úrslit
2. umferð
1/2
l/ UóciiZAIW LUkJIMw
Helgi Ólafsson — Gunnar Gunnarsson 1/2
Haukur Angantýsson — V. Antoshin 0-1
V. Tukmakov — Ingi R. Jóhannsson biðskák
Björn Þorsteinsson — S. Matera biðskák
M. Najdorf — Margeir Pétursson 1-0
J. Timman — R. Keen 1-0
Friðrik ólafsson — M. Vukecevich 1/2 - 1/2
Guðmundur Sigurjónsson — H. Westerinen 1/2 - 1/2
foukiarik Í9 / l 3 V f 6 7 $ 9 /2 (/ U // /y /3 /6
1 Helgi ólafsson X 'U Ti
? Gunnar Gunnarsson 'U X o
3 Ingi R Jóhannsson X 0
y Margeir Pétursson X il o
f Milan Vukcevich X 'íx
6 Heikki Westerinen X 0 lk
7 Raymond Keen X o
fi Salvatore Matera X 'h.
9 Vladimir Antoshin 7i X 1
/ó Björn Þorsteinsson X
f/ Jan Timman i i X
/2 Guðmundur Sigurjónsson lh X
/$ Friðrik ólafsson 7i lil X
/y Miguel Najdorf i \ X
/s Vladimir Tukmakov r X
iL Haukur Angantýsson ‘A o X
Yngsti og elzti keppandinn á Reykjavikurskákmótinu, Margeir
Pétursson og Miguel Najdorf áttust við i Hagaskóla I gær er 2.
umferðin var tefld, en á þeim er 50 ára aldursmunur.
Timamynd: Róbert.
Skemmtilega tefld
skák hjá Timman
Þvi miður átti undirritaður
þess ekki kost að fylgjast með
fyrstu umferð Reykjavikur-
skákmótsins, þannig að skák
Westerinens og Timmans er ef
til vill eki bezta skák umferðar-
innar, en óneitanlega tefldi
Timman skákina mjög vei og
skemmtilega.
Gegn kóngspeði Finnans kaus
Hollendingurinn að velja
spænska leikinn, sem er einna
þekktastur fyrir hve gaumgæfi-
lega hann hefur verið rannsak-
aður. Reyndar er það orðið
sjaldgæft, að menn fari út af
þekktum leiðum fyrr en ein-
hvern tima upp úr 20. leik.
Hvitt: H. Westerinen
Svart: J. Timman
1. e4-e5 2. RÍ3-RC6 3. Bb5 (þetta
er sjálfur spænski leikurinn) -a6
4. Ba4-Rf6 5.0-0-Be7 6. Hel-b5 7.
Bb3-d6 8. C3-0-0 9. h3-Rb8.
Timman hefur málsháttinn
„heima er bezt” ekki i huga,
þegar hann leikur Rb8, heldur
er þetta upphafið að hinu svo-
nefnda Breyer-afbrigði, sem
Karpov og Spassky hafa haft
mikið dálæti á. Hér áður fyrr
sást varla annað i þessari stöðu
en Ra5 eða h6. Hugmyndin er að
tengja svörtu peðin á
drottningarvængnum sem bezt
saman og auka svigrúm mann-
anna.
10. d4-Rbd7 11. Rbd2. Ekki veit
ég hvað hefur orðið um 11. c4,
sem var svo hvass leikur og vin-
sæll sbr. Fischer-Portisch 1966.
En hins vegar hefur það sýnt
sig, að Rh4 er skaðlaus, þvi ekki
þarf að þiggja peðið á e4. 11. -
Bb7 12. Bc2. Meginhugmyndin
er að valda peðið á e4, svo hægt
sé að koma riddaranum á d2
fyrirá betri reit., en auk þess er
losað um b-peðið. 12. -He8 13.
Rfl-Hér kom b4 til greina. 13. -
Bf8 14. Rg3-g6 15.a4 (Bg5 leiðir
ekkitil neins fyrir hvitann)c5 16.
b3. Að minu mati, þá getur
þetta ekki veriö annað en lé-
legur leikur. Bezt er d5 sbr.
Spassky-Karpov 1974, en
Westerinen er trúlega einn af
þeim, sem vilja hafa taflið sem
mest opið. Það fær hann svo
sannarlega i þessari skák. 16. -
d5. Nú er Timman kominn með
betri stöðu. 17. Rxe5-Rxe4
18. Rxe4 dxe4 19. Bf4. Auðvitað
ekki Bxe4, þvi þá tapar hvitur
manni eins og lesendur geta séð.
19. -cxd4 20. cxd4-f6 21. Rg4.Með
tilliti til framhaldsins, þá hlýtur
Rxd7 að vera sterkara. 21. -g5
22. Bh2-f5 23. Re5-Bd6 24. axb5-
axb5 25. Hxa8-Bxa8 26. b4. Eftir
þennan leik er taflið auðunnið
fyrirTimman. Meiri mótspyrnu
hefði veitt Rxd7 ásamt Dd2. 26. -
Rxe5 27. dxe5-Bxb4 28. Bb3+-
Kg7 29. Dxd8-Hxd8 30. Hal-Bc5
31. e6-f4 32. g3-e3 33. gxf4-exf2+
34. Kfl-Be4 35. Bdl-Hd2 36.Be2-
Bf5 og Westerinen gaf enda
staðan gjörtöpuð. Skemmtilega
tefld skák hjá Timman.
MÓL.
Járnblendisamningar
á lokastig í haust
Eins og áður hefur komið fram i
fréttum, var viðræðum haldið
áfram i Reykjavik s.l. mánudags-
kvöld 23. þ.m. milli fulltrúa
iðnaðarráðuneytisins og norska
fyrirtækisins Elkem-Spigerverk-
eta/s um þátttöku fyrirtækisins i
byggingu og rekstri Járnblendi-
verksmiðjunnar i Hvalfirði, segir
i fréttatilkynningu frá iðnaðar-
ráðuneytinu.
Almennar samningsviðræður
fóru fram i gær og leiddu þær til
jákvæðrar niðurstöðu. Hafa full-
trúar viðræðuhópanna náð sam-
komulagi um þau meginatriði,
sem verið hafa til umræðu á fyrri
fundum.
Þess er að vænta, að gerð aðal-
samnings og tæknisamninga
verði komin á lokastig að rúmum
mánuði liðnum. Standa vonir til
að unnt verði að ljúka endanlegri
afgreiðslu þeirra mála, sem enn
eru óútkljáð varðandi byggingu
verksmiðjunnar á skömmum
tima eftir það.
Sérfræðingar beggja aðila
munu næstu daga fjalla um
tæknileg atriði varðandi
samningana og fyrirtækið.
Fyrir nokkru var sótt um lán til
byggingar verksmiðjunnar hjá
Norræna fjárfestingarbankanum
I Helsingfors. Lánsumsóknin var
rædd I dag við bankastjóra Nor-
ræna fjárfestingarbankans, hr. B.
Lindström. Endanleg afstaða
bankastjórnarinnar mun liggja
fyrir siðar I haust.
1 byrjun þessa mánaðar var
hafin bygging vinnubúða að
Grundartanga fyrir 64 menn.
Verða þær fullbúnar i lok október
n.k. Þvi næst er áformað aö hefja
framkvæmdir við undirstööur
verksmiðjunnar.
Samkvæmt þeim áætlunum,
sem nú liggja fyrir, mun verk-
smiðjan hefja framleiðslu með
einum bræðsluofni á miðju ári
1978, en siðari ofn verða tekinn i
notkun um áramótin 1979-1980.
Formenn viðræðunefndanna
eru sem áður dr. Rolf Nordheim,
framkvæmdastjóri hjá Elkem-
Spigerverket a/s og dr. Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóri.
(frá iðnaðarráðuneytinu).
Auglýsið í Tímanum
Þýzkur lífefna-
fræðingur til
aðstoðar
við rannsókn
JH-Reykjavik. —
Siðastliðinn laugardag kom
hingað til lands þýzkur visinda-
maður, dr. Kiesling að nafni og
lifefnafræðingur að mcnnt, til
aðstoðar þýzka rannsóknarlög-
reglumanninum Karli Schutz.
Dr. Kiesling er frá Wiesbaden,
starfsmaður i tæknideild saka-
málalögreglunnar þar, en það
er einmitt i Wiesbaden, sem
Karl Schutz gegnir störfum
rannsóknarlögreglumanns.
Dr. Kiesling er sérfræðingur i
rannsókn likamsefna og likams-
leifa á sviði sakamála, svo sem
blóðs, þvags, saurs og sæöis, og
hefur hinn bezta tækjabúnað til
rannsókna sinna.
Það mun hafa verið fyrir
meðalgöngu Karls Schutz, að
hann fékkst hingað til lands,
enda munu þeir vera gamlir
samstarfsmenn.
Dr. Kiesling mun þegar hafa
rannsakað gögn, sem til greina
töldust geta komið, og að ein-
hverja vitneskju gætu gefið, en
ekki liggur á lausu vitneskja um
það, hvaða gögn það hafi verið
eða hvað i ljós kann að hafa
komið.