Tíminn - 26.08.1976, Qupperneq 11

Tíminn - 26.08.1976, Qupperneq 11
Fimmtudagur 26. ágúst 1976 TÍMINN, 11 < hljóðvarp Fimmtudagur 26. ágúst 7.00 Morgunútvarp Veöur- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Frétör kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr.dagbl),9.00og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45 Baldur Pálmason les söguna ,5umardaga á Völl- um” eftir Guörúnu Sveins dóttur (4). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriöa. Viösjóinnkl. 10.25: Ingólfur Stefánsson sér um þáttinn. Tónleikar. Morguntónleikar kl. 11.00: Zdenék Bruder- hans og Pavel Stépán leika Sónötu nr. 8 i G-dúr fyrir flautu og pianó eftir Haydn/ Nicanor Zabaleta og kamm- ersveit undir stjórn Paul Kuentz leika Konsert fyrir hörpu og hljómsveit nr. 1 i C-dúr eftir Ernst Eichner/ Italski kvartettinn leikur Strengjakvartett i B-dúr (K589) eftir Mozart. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frivaktinni Sigrún Siguröardóttir kynn- ir óskalög sjómanna. 14.30 Miödegissagan: „Leikir i fjörunni” eftir Jón óskar Höfundurinn byrjar lestur- inn. 15.00 Miödegistónleikar Sinfóniuhljómsveitin í San Francisco leikur „Protée”, sinfóniska svitu nr. 2 eftir Milhaud, Pierre Monteus stjórnar. Sinfóniuhljóm- sveit Lundúna leikur Sin- fóniu nr. 4 i f-moll eftir Vaughan Williams, André Previn stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). Tón- leikar. 16.40 Litli barnatiminn Sigrún Björnsdóttir hefur umsjón með höndum. 17.00 Tónleikar. 17.30 Færeyska kirkjan, saga og sagnir, — annar hluti Halldór Stefánsson tók sam- an og flytur ásamt öörum. Einnig flutt dæmi um fær- eyska kirkjutónlist. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 IsjónmáliSkafti Harðar- sonog Steingrimur Ari Ara- son sjá um þáttinn. 20.00 Gestir iútvarpssai: Aage Kvaibein og Harald Bratlie leika saman á selló og pianó: a. Sellósónata i G-dúr eftir Sammartini. b. Sellósónata i d-moll eftir Debussy. 20.20 Leikrit: „Æðikoilurinn” eftir Ludvig Holberg (áöur útv. 13. febrúar 1965). Þýð- andi: Dr. Jakob Benedikts- son. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Persónur og leik- endur: Vilgeschrei: Valur Gislason. Leonóra dóttir hans: Bryndis Pétursdóttir. Krókarefur: Bessi Bjarna- son. Pernilla: Herdis Þor- valdsdóttir. Magöalóna ráöskóna: Inga Þóröardótt- ir. Leandir: Baldvin Hall- dórsson. Leónard bróöir Vilgeschreis: Jón Aöils. Korfits: Gestur Pálsson. Ei- ríkur Maösson: Rúrik Haraldsson: Pétur Eiriks- son: Gisli Halldórsson. Aör- ir leikendur: Jóhanna Norö- fjörö, Guðmundur Pálsson. Flosi Ólafsson, Helgi Skúla- son, Þorgrimur Einarsson, Ævar R. Kvaran, Valdemar Helgason, Karl Guðmunds- son og Benedikt Arnason. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Kvöldsag- an Ævisaga Siguröar Ingjaldssonar frá Bala- skaröi Indriöi G. Þorsteins- son rithöfundur les (2). 22.40 A sumarkvöldi Guð- mundur Jónssonkynnir tón- list um drauma. f í JÖTUNHEIMUM FJALLANNA 5, Þegar Jónas hafði legið svona hálfa klukkustund, voru dyrnar loks opnaðar. En það var ekki Stína sem kom inn heldur Nikki bróðir hennar. Hann var á aldur við Jónas, nýkvæntur og búsettur í Kyrtilfelli, tæplega eina mílu í austur frá Björk. Þessir ungu menn höfðu varla sézt fyrr, þótt tiltölu- lega skammt væri milli Bjarkar og Marzhlíðar.Heimilin voru í rauninni sitt á hverju samgöngusvæði. Sumir frumbýlinganna höfðu helgað sér land við Malgómaj- vatnið og þaðan upp með Angurmannselfi að Koltur- vatni, en annar hópur þessara útherja hafði leitað upp með Flumá að Flaumsvatni og inn með Síkisvatni, Bjarkarvatni og Feðgafljóti. Þeir sóttu að vísu einnig i norskan kaupstað, en verzlunarstaður þeirra var mun norðar en Krókurinn. I Sikisnesi var kirkja og grafreit- ur. Enginn vissi til hlítar, hvort þessara svæða hafði byggzt fyrr. Það var þó engum vafa undirorpið, hvað snerti Marzhlíð og Björk. Faðir Brands hafði verið her- maður í stríðinu við Rússa. Eftir friðargerðina 1809 hafði hann lagt land undir fót og loks slegið tjöldum sín- um við norðvesturenda Bjarkarvatns og hafið á eigin spýtur nýtt stríð og ekki ævintýraminna við auðnina þarna upp f rá. Brandur sá, sem nú var á Iffi, hafði fæðzt í Björk. Svona langa sögu átti byggðin í Marzhlíð sér ekki. Nikki og Jónas heilsuðust með handabandi og þó ekki tortryggnislaust. En ekki leið á löngu, áður en þeim skildist, að þeir gátu talað frjálsmannlega saman. Brandur hafði sagt syni sínum, að Jónas hefði meitt sig og viilzt af réttri leið. Nánar hafði hann ekki spurt um málavexti, en Jónas var líka fús að segja frá ævintýri sínu. — Ég komst á jarfaslóð, og vargurinn hafði hlaupið alla leið inn á Hrísháls. Ég var að grafa hann út úr skaf li, þegar veðrið skall allt í einu á eins og hendi væri veifað. Það var óstætt á svipstundu og ég átti ekki annars úrkostar en skríða niður í holuna og láta skefla yfir mig. Jarfinn var þarna líka í skaflinum. Ég fann óþefinn af kvikindinu, en þótti ekki ráðlegt að reyna að grafa mig niður að honum. Jónas lýsti nú fyrir Nikka vist sinni þarna í skaf linum, þar til upp birti daginn eftir. Hún hafði ekki verið sem verst. Hálfsoltinn hafði hann náttúrlega verið, og svo varð hann auðvitað að halda sér vakandi. — Það var orðið lygnt, þegar ég skreið upp úr f önninni, en svo lágskýjað að ég sá lítið í kringum mig. — Og þú hefir tekið skakka stefnu? — Nei, ekki þá. Jarf inn hafði rif ið sig upp rétt á undan mér, og ég fór í slóð hans. — Fórstu að elta jarfann? hrópaði Nikki. Frá mörgum þrekraunum hafði hann heyrt sagt, en þess hafði hann aldrei heyrt getið, að maður héldi áf ram að elta villidýr, eftir að hafa legið upp undir tuttugu klukkutíma í fönn. Jónas leit undrandi á hann. — Auðvitað elti ég jarfaskrattann, sagði hann. Ein- hvers staðar hlaut ég að finna hann. Ég gekk svo í nokkra klukkutima og loks kom ég auga á hann. Hann var að klifra upp í klettagil og ég skaut á hann en hitti víst ekki. Ég hljóp þá eftir honum og komst upp á gil- barminn svo barst leikurinn niður í gilið aftur og þá fór löppin á mér svona. Þá lá við að Jónas roðnaði af blygðun, þegar hann sagði frá þvi, að hann hefði sett á sig skiðin og ætlað að renna sér niður gilbrekkuna en misst vald á þeim á svell- glotta og endasenzt langt niður í gilið. Hann hafði með naumindum getað risið upp er hann stöðvaðist loks. — Ég sá jarfanum ekki einu sinni bregða fyrir eftir þetta og hugsaði að nú væri skammar nær fyrir mig að halda heim. Ég litaðist um, en gat ekki almennilega áttað mig á stefnunni. Ég reyndi að nota skíðin, sem bæði voru heil, en þá brást mér fóturinn alveg. Og svo datt myrkrið á. Jónas þagði um hríðog velti því fyrir sér, sem hann nú tók til bragðs. Nikki beið nokkur andartök, en svo hrópaði hann ákafur? — Jæja! Og hvað gerðir þú þá? — Ja, ég varð náttúrlega að grafa mig í fönn og hafast þar við um nóttina. En daginn eftir var heiðskírt veður, og þá sá ég reykinn héðan. Þetta virtist ekki vera langt, en þó var komið f ram undir kvöld þegar ég komst hérna niður að vatninu og ég var víst ekki orðinn til mikilla af- reka, þegar f aðir þinn kom á móti mér með sieða. Þannig var sagan af því er Jónas hvarf á f jallinu, og f rásögn hans bar það ekki með sér, að honum þætti þetta

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.