Tíminn - 26.08.1976, Qupperneq 16
mrn
Fimmtudagur 26. ágúst 1976
)
kFk
FÓÐURVÖRUR
þekktar
UM LAND ALLT
fyrir gæði
Guöbjörn
Guðjónsson
Heildverzlun Siöumúla 22
Simar 85694 & 85295
Auglýsingasími
Tímans er
19513
ALLAR TEGUNDIR'
FÆRIBANDAREIMA
Lárétta
færslu
a' f*rsi
Einnig: Færibandareimar úr 0
ryöfriu og galvaniseruðu stáli
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
. 40088 a* 40098——
Nýr forsætisráðherra skipaður í Frakklandi:
Raymond Barre tekur við
embætti af Jacques Chirac
— Talið hugsanlegt að Gaullistar dragi sig úr stjórn
Reuter.Parls. — Valery Giscard
d’Estaing, forseti Frakklands,
hefur valiö Raymond Barre,
utanrikisviöskiptaráöherra, til
þess aö taka viö embætti forsætis-
ráöherra landsins, að þvi er tals
maður forsetans skýröi frá I gær.
Barre, sem áður hefur gegnt
ýmsum háum embættum, meðal
annars hjá Efnahagsbandalagi
Evrópu, er ekki bundinn neinum
stjórnmálaflokki.
Skömmu áður en tilkynnt var
um embættistöku hans, fór hann
til forsetahallarinnar til þess aö
ræða viö forsetann.
Barre er fimmtiu og tveggja
ára gamall.
Hann sagöi viö fréttamenn I
gær, aö meginverkefni stjórnar
hans yrðu aö berjast gegn verö-
bólgu og viðhalda stööugleika
franska frankans.
Barre, sem er hagfræöingur aö
mennt og var áöur prófessor viö
háskóla, kom inn I ríkisstjórn
Frakklands sem viðskiptaráö-
herra i janúar siðastliðnum.
Hann tekur nú við embætti for-
sætisráðherra af Jacques Chirac,
sem sagöi af ser fyrr i gærdag.
Jacques Chirac, sem nú
hverfur frá embætti forsætisraö-
herra, hefur veriö leiðtogi
frönsku stjórnarinnar um tveggja
ára skeið. Hann er úr flokki
Skýrslan um Bernhard
og Lockheed fyrir þing
Reuter, Haag. — Talsmaður
hollenzku rikisstjórnarinnar
skýrði frá þvi I gær, aö niöur-
stöður rannsóknarinnar á
ásökunum um aö Bernhard
prins, eiginmaöur Júliönnu Hol-
landsdrottningar, hafi þegiö
mútur af bandarlsku flugvéla-
verksmiðjunum Lockheed,
veröi lagðar fyrir hollenzka
þingið i dag.
Talsmaðurinn sagöi ennfrem-
ur, aö Joop den Uyl, forsætis-
ráöherra landsins, myndi þá til-
kynna niðurstöðu rikisstjórnar-
innar, gagnvart skýrslu þeirri,
sem þriggja manna rann-
sóknarnefnd hefur afhent
stjórninni.
Júlianna drottning og Bern-
hard prins munu enn snúa heim
til Hollands i dag, en þetta er I
þriöja sinn undanfarna tiu daga,
sem þau snúa heim frá Italiu,
þar sem þau eru I orlofi um
þessar mundir.
Almennt hefur verið taliö, aö
drottningin, sem er sextiu og sjö
ára gömul, muni segja af sér,ef
skýrslan hreinsar ekki nafn
manns hennar algerlega af
áburöinum um mútuþægni.
Bernhard prins, sem er sextiu
og fimm ára gamall, hefur með
öllu neitað aö hafa tekiö viö
þeirri rúmlega einni milljón
bandarikjadala, sem hann er
sakaður um aö hafa þegið af
Lockheed. Samkvæmt orð-
róminum á hann aö hafa þegió
mútur þessar fyrir aö ýta undir
kaup Hollendinga bæöi á her-
flugvélum Lockheedverksmiöj-
anna, svo og farþega- og flutn-
ingavélum þeirra.
Átta skæruliðar
handteknir
í gær
Reuter, Belfast. Þrir menn,
sem grunaöir eru um aö vera
skæruliöar, gáfust I gær upp
fyrir lögreglu, eftir aö hafa
haldið eldri karlmanni i gisl-
ingu I húsi I Belfast um
tveggja klukkustunda skeiö.
Umsátriö hófst, þegar lög-
reglan kom I veg fyrir tilraun
til þess aö koma stórri
sprengju aftan I sendiferðabil
inn i miöborg Belfast.
Lögreglan fylgdi bifreiðinni
eftir til útjaöars borgarinnar,
eftir aö grunsemdir þeirra
vöknuöu.
Atta menn voru I bifreiðinni,
og annarri fólksbifreið, sem
var I fylgd meö henni, en fimm
þeirra náöust skömmu eftir aö
þær stöðvuöust I hliöargötu.
Hinir þrir komust inn i hús i
nágrenninu.
Tóku japansk-
an fiskibót
Reuter, Jóhanncsarborg. —
Hópar Zulumanna fóru um
bæjarhverfi blökkumanna I
Soweto, skammt frá Jó-
hannesarborg, I Suöur-Afriku i
gær, réöust á kynþáttarbræö-
ur sina meö kylfum og öxum,
þannig að heilar fjölskyldur
flýöu undan þeim.
Samkvæmt opinberum töl-
um hafa aö minnsta kosti
nitján manns látið lifiö, og
hundruð hafa særzt i Soweto
siöan ofbeldi brauzt þar út aö
nýju á mánudag.
Þeldökkir fréttamenn og
önnur vitni i bæjarhverfinu
hafa skýrt frá þvi, aö Zulu-
mennirnir myndi meö sér
stóra hópa — oft allt aö þúsund
manns — og séu þeir vopnaðir
kylfum, hnifum, spjótum og
öxum.
Þeir brutust inn á heimili og
réöust á fjölskyldur. Menn
voru baröir og særöir og stúlk-
ur dregnar æpandi á brott. í
nokkrum tilvikum bárust
fregnir af nauðgunum.
Zulumennirnir, sem aö
mestu eru einhleypir og vinna
verkamannastörf i Jó-
hannesarborg, virtust vera i
fararbroddi fyrir herferð gegn
þeim blökkumönnum, sem
hafa reynt að þvinga verka-
menn þá sem búsettir eru i So-
weto til verkfalla.
Zulumenn
róðast inn
í Soweto...
Reuter, Tokyo. — Sovézkur
varðbátur tók i gær nlutíu og
Gaullista, og ástæöan fyrir afsögn
hans er vaxandi ágreiningur milli
hans og forseta landsins.
1 afsagnarbréfi sinu sagöi
Chirac meöal annars: — Ég hef
ekki það sem ég tel nauösynlegt
til þess að gegna hlutverki minu á
þessum tima og þvi hef ég, vegna
aðstæðna, ákveöiö aö segja af
mér embætti. —
Eins og frönsk stjórnlög gera
ráð l'yrir, varö afsögn forsætis-
ráðherrans til þess að öll franska
rikisstjórnin sagöi af sér. Búizt er
þó viö, aö margir ráöherrar muni
gegna embættum sinum áfram i
rikisstjórn Barre.
Þetta pólitiska uppgjör kemur
eftir margra vikna óvissu um
framtið forsætisráöherrans.
Hann staöfesti f gær orðróm um
að hann heföi i siðasta mánuöi
skýrt forsetanum, sem ekki er úr
flokki Gaullista, frá þeirri ætlun
sinni að segja af sér.
Af bréfum, sem á milli hafa
fariðog forsetaembætti hefur birt
opinberlega, má sjá að hann
sendi inn afsögn sina þann 26. júli,
þegar forsetinn haföi hafnaö
beiðni hans um aukin völd til þess
Framhald á bls. 12
Jacques Chirac.
Dr. Al-Kholi kominn til Beirút d ný:
Koma hans talin bjartsýnismerki
— engin merki um frið þó sjdanleg enn
Reuter, Beirút, —Embættismenn
Arababandalagsins ræddu i gær
viö striösaöila I Libanon, til þess
að reyna aö fá þá til aö viröa
vopnahlé það sem að nafninu til
gildirilandinu. Vopnahlé þetta er
hið fimmtugasta og fimmta á
ífjÉfl&SHORNA
^íllVIILLI
niu tonna japanskan fiskibát,
með átta manna áhöfn, út af
Hokkaido, sem er nyrzta eyja
Japan, aö þvi er japanska
strandgæzlan skýrði frá.
Haft var eftir áhöfn á
systurbát þess japanska, að
Taiyo Maru, en svo heitir
báturinn, hafi verið tekinn
fyrir utan landhelgi Sovétrikj-
anna og fluttur tii sovézku
eyjarinnar Sakhalin.
Sovétmenn hafa nokkrum
sinnum tekiö japanska fiski-
báta út af Hokkaido og haldið
þvi fram aö þeir hafi brotið
landhelgi Sovétrikjanna.
Enn skjólfa
Filippseyjar
Reuter, Manila. Smávægileg-
ur jaröskjálfti gekk I gær yfir
Manila á Filippseyjum, átta
dögum eftir aö jaröskjálfti og
flóðbylgja uröu um átta þús-
und manns aö bana á eyjun-
um.
Skjálftinn i gær stóð i fimm-
tán sekúndur.
Talið var óliklegt aö skjálft-
inn hafi valdið tjóni, og varla
gat talizt aö ibúöar borgarinn-
ar yrðu varir viö hann.
rúmlega sextán mánuðum, en
þann tima hefur borgarastyrjöld-
in i landinu nú staðið.
Á sama tima virðast tilraunir
til þess að stöðva sprengjuhriöina
yfir ibúðarhverfi i Beirút-borg
vera aö renna út i sandinn.
Hassan Sabri Al-Kholi, sendi-
maður Arababandalagsins, átti i
gær fund meö leiðtogum vinstri
sinnaðra Libanonmanna og
Palestinumanna, i vesturhluta
Beirút, — sem vinstri menn hafa
á valdi sinu.
Útvarpsstöð hægri-sinnaðra
falangista sagöi i gær, aö hann
myndi eiga fund með leiðtogum
hægri manna i dag i austurhluta
borgarinnar.
Dr. Kholi kom aftur til Beirút i
gær, eftir tíu daga ferð til Kairó
og Damaskus. Endurkoma hans
er talin merki um að hann áliti
ástæður til bjartsýni — sem hefur
þó verið sjaldgæf i Libanon
undanfarið, eftir fimmtiu og fjög-
ur misheppnuð vopnahlé, þar af
þrjú hin siðustu undir eftirliti
Arababandalagsins.
Ibrahim Koleilat, leiðtogi sjálf-
stæðrar hreyfingar Nasserita,
Framhald á bls. 12
írska stjórnin fær aukin
völd gegn skæruliðum
Reuter, Dublin.—Taliö er liklegt,
aö tillögur rikisstjórnar trska
lýöveldisins um aukin völd sér til
handa, til þess aö berjast gegn
irska lýðveldishernum og öörum
hryðjuverkasamtökum, mæti
andstööu á þingi og viöar, vegna
takmarkana þeirra, sem stjórnin
vill setja á borgaralegt frelsi I
landinu.
Þó var i gær talið efalaust aö
,,Járnhnefa”-lög Liam Cosgrave,
forsætisráöherra Irlands, myndu
ná fram að ganga á þingi innan
fárra vikna — hugsanlega meö
nokkrum breytingum til mála-
mynda.
Irska þingið, sem nú er I frii,
veröur kallaö saman á þriðjudag I
næstu viku til þess aö samþykkja
yfirlýsingu um aö neyöarástand
riki i landinu.
Eftir það munu umræður hefj-
ast um frumvarp stjórnarinnar
um neyðar-vald, en samkvæmt
þvi yrði heimilt að halda grunuö-
um i fangelsi I sjö daga og
fangelsisdómar fyrir afbrot, sem
tengd eru aögeröum skæruliöa,
yröu hertir til muna.
Þá er I frumvarpinu gert ráö
fyrir þvi, aö her og lögregla fái
aukin völd til leita, handtöku og
upptöku muna og eigna.
Talsmaður Fianna Fail-flokks-
ins, sem er I stjórnarandstööu,
sagðist i gær telja frumvarpiö
veita of mikil völd og jafnframt
varaði hann viö þvi, aö harka
þeirra gæti skapaö samúö meö
IRA meöal almennings.
Samkvæmt frumvarpinu mætti
dæma til tiu ára fengelsisvistar
fyrir aö hvetja fólk til aö ganga I
eða styöja IRA, eöa aðrar ólög-
legar hreyfingar, svo og má
dæma „guöfeöur” og aðra stjórn-
endur skæruliöa til sömu refsing-
ar.
Frumvarpiö er mun harðara en
búizt haföi veriö viö, þótt vitaö
hafi verið að rikisstjórnin haföi
i undirbúningi strangar aögeröir
Framhald á bls. 12