Tíminn - 04.09.1976, Page 4
4
TÍMINN
Laugardagur 4. september 1976
í spegli tímans
Kynferðislegt
siðferðismat
Lengi haföi æösti draumur
Nancy Donnelly, tvitugrar
stúlku I Oxon Hill, Md., U.S.A.
veriö aö veröa sjóliösforingi i
kaupskipaflota Bandarikjanna.
Hún fékk inngöngu I sjóliðsfor-
ingjaefnaskóla ' kaupskipaflot-
ans i Kings Point, N.Y. En dvöl
hennar þar varö heldur enda-
slepp. Astæðan til þess var sú
aö komið var aö henni ásamt
skólabróður hennar I rúminu i
herbergi hennar i heimavist
skólans. Ekki tókst aö bera
kennsl á karlmanninn, þar sem
hann var snöggur aö íela sig
undir rekkjuvoöunum, en
Nancy var rekin fyrir agabrot.
Alitiö er, aö rekkjunautur
hennar hafi veriö þá- og nú-
verandi unnusti Nancýjar,
Mark Lewis, sem líka stundaöi
nám við skólann i Kings Point
og er nú útskrifaður þaöan.
Nancy-er bitur yfir þeirri meö-
ferð, sem hún hlaut, og telur
ástæöu til aö halda, aö óllk meö-
ferð á henni og rekkjunautnum
eigi rætur að rekja til kynferöis-
fordóma. Rannsókn fer nú fram
á meðferð skólans á máli þessu.
Lesley-Ann datt í lukkpottinn
%
Lesley-Ann Down heitir ung,
brezk leikkona, sem gat sér gott
orð i sjónvarpsþáttunum brezku
„Upstairs — downstairs”. Það
eru ógrynni af ungum leikkon-
um, sem biöa eftir tækifærum til
að komast aö I kvikmyndum, —
og þá auðvitað helzt aö leika á
móti einhverjum þekktum leik-
ara, þvi að þá eru meiri mögu-
leikar til þess að myndin „slái i
gegn” og þá er frægðin á næsta
leiti.
Það var verið aö byrja á kvik-
myndinni „Bleiki pardusinn er
aftur á ferðinni,” og aöalhlut-
verkið, lögreglustjórann Jacpu-
es Clouseau, leikur auövitað
Peter Sellers, eins og I fyrri
myndinni um Bleika pardusinn.
Maud Adams, sænsk leikkona,
átti aö leika á móti Peter, en
hún sætti sig ekki við svefnher-
bergis-atriði, sem hún átti aö
leika I allsnakin, en þvi neitaði
Maud Adams. Þá var farið á
stúfana aö leita aö nýrri stúlku,
sem hæföi i hlutverkiö, og varö
Lesley-Ann Down fyrir valinu.
— Þar datt ég i lukkupottinn,
sagöi Lesley-Ann, að fá aö leika
á móti Peter Sellers! Ég skii
alls ekki hvaö Maud Adams
hafði á móti þessu svefn-
herbergis-atriöi. Jú, auövitaö
varö ég aö fara úr fötunum, en
hvaö meö það? — Áhorfendur fá
aöeins að fjá skuggamynd af
mér nakinni.
★ ★ ★
Nýjustu fréttir af aspirín
Lyfjaframleiðendur Bayer-
fyrirtækisins i Þýzkalandi hafa
nýlega sett á markað nýja teg-
und af hinu gamalkunna
aspirinlyfi. Þetta nýja lyf kalla
þeir „aspisol”. Það er vel upp-
leysanlegt I vökva, og þess
vegna hægt að gefa þaö meö
sprautu. Þannig verkar lyfiö
miklu fljótar á likamann, og
einnig endast áhrifin lengur.
Vfsindamennirnir, sem unnu aö
þessari uppgötvun, segja, aö
aspisol eigi eftir að koma að
miklu leyti i stað annarra sterk-
ari og hættulegri deyfilyfja, eins
og t.d. morfins. Margir sjúkl-
mgar verða að taka sterkar
verkjapillur daglega, t.d. viö
liöagigt og lika margir krabba-
meinssjúklingar. 1 sumum, og
jafnvei mörgum slikum tilvik-
um væri miklu heppilegra aö
nota aspisol, segja þeir, þvi að
morfin er svo vandmeðfariö og
hættulegt.
með morgunkaffinu
DENN!
DÆMALAU5I
„Nei, þaö er enginn krakki á
þessu heimili. — Þetta er elli-
heimili.”