Tíminn - 04.09.1976, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Föstudagur 3. september 1976
Hrafn Bragason, umboðsdómari í óvísanakeðjumólinu:
Reikningshafarnir sköpuðu sér ótrú-
lega mikið fé, sem þeir óttu ekkert í
Á fundi með fréttamönnum i
gær lagöi Hrafn Bragason, um-
boðsdómari I ávisanakeöjumál-
inu, fram eftirfarandi greinar-
gerð:
Þann 24. ágúst s.i. var ég und-
irritaður skipaður skv. sér-
stakri umboðsskrá til þess að
fara með rannsókn vegna um-
fangsmikiliar notkunar á inni-
stæðulausum tékkum. Ég mun
sinna þessum umboösstörfum
meðfram minu fasta starfi og
vonast til að geta eytt til starf-
ans umtalsverðum tima. Skil-
yrði fyrir þvi, að ég tók þetta
starfaðmér, voru þau, aöég
fengi alla hugsanlega aðstöðu
og aðstoð frá Sakadómaraem-
bættinu i Reykjavik, Dóms-
málaráöuneytinu, Saksóknara-
embættinu, Seðlabanka Islands,
Reikningsstofu bankanna og
bankastofnunum landsins.
Hingað til bendir ekkert til þess
aö mér veröi ekki látin þessi að-
stoð i té. Að máli þessu mun
starfa með mér Guðmundur
Guðmundsson, rannsóknarlög-
reglumaður, og ennfremur geri
ég ráð fyrir, að veröa að kalla til
ýmiss háttar aðra aðstoð, sér-
staklega ýmiss konar sérfræði-
aöstoö.
Þegar ég tók við máli þessu,
hafði það verið til athugunar i
Sakadómi Reykjavikur þó
nokkurn tima. Það má þvi
segja, að ég komi i þetta mál i
miöju kafi. Samkvæmt upplýs-
ingum Sakadóms Reykjavikur
var upphaf rannsóknar þessar-
ar það, að snemma ársins 1976
bárust Sakadómi Reykjavikur
kærur vegna innistæðulausra
tékka, sem útgefnir voru af
tveimur aöilum hér I borg. A
svipuðum tima voru yfirlit og
tékkar stórfyrirtækis hér i borg-
inni skoðuð vegna rannsóknar
annars máls. Vegna upplýsinga,
sem fram komu við rannsókn
vegna þeirra kæra er að framan
getur, aö við athugun á framan-
greindu reikningsyfirliti og
tékkum þessa fyrirtækis, vökn-
uðu grunsemdir um, að hér væri
um svokallaöa keðjutékkastarf-
semi að ræða. Seölabanki Is-
lands bauö aöstoð við rannsókn
þessa máls, og var hún þegin.
Að höfðu samráði við Seðla-
banka Islands var saminn listi
yfir reikningshafa, sem taldir
voru þessu tengdir og þann 25.
marzs.l. varallmörgum banka-
stofnunum send bréf meö beiðni
um, að gögn yrðu látin I té varð-
andi nöfnin á listanum. Gögn
þessi bárust svo smám saman
og voru að berast allt frá I júni-
mánuð. Jafnhliða var hafin at-
hugun gagna, sem borizt höfðu
starfsmönnum Seðlabankans,
og þótti fljótlega sýnt, að mikið
hagræöi og vinnusparnaður
mundi verða af þvi að mata
tölvu Reikningsstofu bankanna
með upplýsingum, sem fengust
við þessa athugun. Var þetta
gert að ósk Sakadóms Reykja-
vikur. Úrvinnsla Reikningsstofu
bankanna ásamt bréfi Seðla-
banka Islands barst svo Saka-
dómi Reykjavikur þann 9. ágúst
s.l..
Orvinnsla Reikningsstofu
bankanna er yfirlit yfir tékka-
hreyfingar á 26 reikningum árin
1974 og 1975, ásamt stöðu þess-
ara reikninga á hverjum tima
þessi ár. Reikningsstofan vann
þetta yfirlit eftir þeim upplýs-
ingum, sem hún fékk sérstak-
lega I þessu skyni frá Seðla-
bankanum. Listarnir sem fyrir
liggja, eru mismunandi niður-
rööun þessara upplýsinga, þar
sem reynt er að leita svara viö
þeim spiimingum, sem vaknaö
höfðu rtieð mismunandi uppröö-
un og samtengingu gagnanna.
Af tölvuútskriftunum má rekja
leið hvers tékka um bankakerf-
ið. Rúmlega 16.000 voru til með-
ferðar. Færðar voru um það bil
57.000 athafnir, en þá er átt við
útgáfu tékka, framsal tékka og
bókun tékka, hvert sem eina at-
höfn. Heildarupphæð þeirra
tékka, sem teknir voru I þessa
athugun nam um 2 milljörðum.
Rétt er aö taka það fram, að hér
er ekki um það að ræða, aö þetta
fjármagn hafi náðs út úr banka-
kerfinu, heldur bendir talan ein-
göngu til umfangs könnunarinn-
ar. í þessari könnun kemur
fram, að 5 aðilar hafa hver um
sig gefiö út ávisanir fyrir 100-557
milljónir á tveggja ára timabili.
8 aðilar hafa framselt yfir 100
milljónir hver yfir timabilið.
Hér er sumpart um einhverja
sömu aðila að ræða sem útgef-
endur i einu tilfelli en framselj-
endur I öðru. Rétt er aö láta þess
getið, að hér er sumpart um fyr-
irtæki að ræöa i fullum rekstri,
og þarf þvi útgáfa þetta mikill-
ar upphæöar ekki endilega að
vera tortryggileg.
Athugaðir voru 26 reikningar,
en þaö eru aðeins 15 menn, sem
ávisa á þessa reikninga. Nokkuö
ljóst er, að sumir útgefenda
koma fram fyrir aðra aöila. Svo
virðist sem sllkir aðilar geti æt-
iö fundið sér nýja aöila til þess
að opna bankareikninga fyrir
sig, hafi þeirra eigin reikning-
um verið lokað. Þá er hér um 12
fyrirtæki að ræða, sum þeirra
eru ekki á firmaskrá.
Seðlabanki Islands hefur með
bréfi dags. I gær staðfest að af
bankans hálfu sé litið á bréf
bankans frá 9. ágúst 1976 til
Sakadóms Reykjavikur, þess
sem áður er getið, sem kæru.
Þvi er haldið fram, aö við könn-
un á ofangreindum tékkareikn-
ingum komi I ljós, að reiknings-
hafar hafi notað þá að verulegu
leyti til þess aö stofna til og viö-
halda umfangsmikilla og flók-
inna tékkakeöju. Með tékka-
keðju eöa keðjusölu á tékkum sé
átt við, að greindir reiknings-
hafar hafi selt tékka á banka-
reikninga sina i öðrum banka,
enda þótt innistæða hafi ekki
verið fyrir hendi, en siðan séð
um, I flestum tilvikum, að áður
en tékkar kæmu fram I reikn-
ingsbanka væri búið að leggja
inn á reikningana og þá, að þvi
er virðist, með öðrum tékka,
eða tékkum, sem eins hafi verið
ástatt um, eins og hina fyrri.
Reikningshafarnir hafi siöan
viöhaldið tékkakeðjunni og á
þennan hátt skapað sér ótrúlega
mikið fé, sem þeir hafi ekkert
átt I. Þetta megi ljóslega sjá á
tölvuútskriftum tékkareikning-
anna. Fullyrðir bankinn, að vix-
ilviðskipti með tékka, með notk-
un tveggja eða fleiri reikninga,
hafi veriö skipulögð til að ná út
fé meö blekkingum úr bönkun-
um. Vlsa þeir I þvi sambandi
m.a. til 4. gr. tékkalaga frá 1933
og ákvæða hegningarlaga, sem
beitt hefur verið til þessa við
tekkamisferli. Það meinti mis-
ferli, sem hér er lýst, hefur frá
9. júni sl. verið gert erfiðara,
þar sem Reikningsstofa bank-
anna vinnur nú daglega alla
tékka af stór-Reykjavikursvæð-
inu.
Eftir að Seðlabanki Islands
haföi sent Sakadómi Reykjavik-
ur umrædda kæru frá 9. ágúst
1976, tilkynnti bankinn við-
skiptabönkum viðkomandi
reikpingshafa um hvað málið
snérist, og að það varðaöi
þennan tiltekna reikningshafa
bankans. Þann 26. ágúst sl. rit-
aði ég þessum tilgreindu við-
skiptabönkum bréf, þar sem ég
óskaði eftir ákveðnum upplýs-
ingum um þessa reikningshafa
þeirra. Ég hefi þegar þessar
upplýsingar i höndum. Enginn
þessara banka hefur þó enn sem
komið er gefið upp, aö þeir hafi
tapað fjármunum vegna þeirrar
starfsemi þessara reiknings-
hafa, sem hér hefur verið gerð
að umtalsefni. 1 þessu sambandi
er rétt að taka fram, að jafnvel
þótt ákveðnir aðilar nái fjár-
magni úr bönkum með tékka-
keðju, þá er ekki þar með sagt,
aö viðkomandi bankar tapi
endilega fjármagni. Hitt er rétt-
ara, aö reikningshafinn tekur
sér á þennan hátt lán án þess að
spyrja nokkurn að þvi og án
þess, að minnsta kosti i sumum
tilfellum, að borga nokkuð fyrir
það. Hversu umfangsmikið mál
þetta er að fjármagni til, liggur
ekki fyrir i dag. Þá þarf að at-
huga enn nokkra fleiri reikn-
ingshafa og aðra reikninga
þeirra reikningshafa, sem hér
hafa verið gerðir að umræðu-
efni. Ennfremur þarf að færa
rannsóknina nær deginum i dag,
og verður það gert. Framundan
er þvi enn frekari vinna i Seðla-
banka, Reikningsstofu bank-
anna og hjá fleiri sérfræðingum,
sem ég verð að kalla til. Sam-
kvæmt þeirri reynslu, sem þeg-
ar er fengin, hlýtur þessi rann-
sókn aö taka töluveröan tíma.
Nú þegar liggur fyrir mikið
magn skjala og annarraxgna,
en ðað á eftir að aukast.Rann-
sókn, sem þessi, hefur ekki áður
verið framkvæmd hér. Ég leyfi
mér að fullyrða, að hún er ekki
möguleg án þess aö tekin sé i
notkun öll hjálpartæki og fjöldi
aðila sé reiöubúinn að vinna
saman að sameiginlegu mark-
miði. Þetta markmið er það að
komast að raun um, hvað þarna
gerðist i raun og veru, hvað
þetta er, sem við erum með i
höndunum. Mér sem dómara
ber að rannsaka allar hliðar
þessa meinta misferlis þeirra
reikningshafa, er hér koma við
sögu og þá lika hvort það sem
þeir eru grunaðir um er rétt-
mætt. Það verður siðan ákvörð-
un Rikissaksóknara hvort þeir
veröa ákærðir. Hver siðan
dæmir i málinu verði ákært er
óráðiö.
Rannsókn min er aðeins saka-
málsrannsókn, en sú spurning
vaknar óneitanlega hvort ekki
hluti þessa máls varði banka-
kerfiö sem slfkt. Seðlabanki ís-
lands er lögum samkvæmt eftir-
litsaðili með viðskiptabönkun-
um. Honum ber að senda við-
skiptabönkunum athugasemdir
sinar telji hann hag eða rekstur
innlánsstofnunar óheilbrigðan,
slikar athugasemdir skulu til-
kynntar bankamálaráðherra.
Min rannsókn og rannsókn
bankans getur að vissu marki
fléttast saman. Varðandi
bankakerfið og þá bankarann-
sókn, sem hér hefir verið rætt
um og er sem hjálpargagn i
þeirri rannsókn sem ég fæst við,
vil ég fullyrða að fyrir banka-
kerfið hefur hún verið mjög
þörf. Það má draga af henni
ýmsan lærdóm og ég þykist hafa
vitneskju um það úr bankakerf
inu að fullur vilji sé til þess að
reyna að koma i 'veg fyrir slika
meinta misnotkun á bankakerf-
inu I framtiðinni, en það er ekki
mitt mál heldur bankakerfisins
sem sliks og stjórnvalda.
Eins og ég hefi nú lýst þá er
rannsókn þessa máls á þvi stigi
að ekki kemur til mála af minni
hálfu að birta nöfn 'þessara
reikningshafa sem hér um ræð-
ir. Astæöur þess eru að rann-
sókninni er að minu viti skaði
gerður með þvi. Þeim bönkum
sem máliö er skyldast hefur
þegar verið tilkynnt um það. Þá
er sýnilegt að þáttur sumra
framseljenda er meiri en sumra
þessara reikningshafa, þar sem
eins og áður er sagt, sumir
reikningshafanna koma fram
fyrir aðra aðila. Með birtingu
nafna þessara reikningshafa
væri aðeins verið að birta nöfn
sumra þeirra sem flettast inn i
þetta mál, sumpart væri þá ver-
ið að hengja bakara fyrir smið.
Dómarar standa ekki að slikum
verkum. Dómsvaldið i lýðræðis-
riki eins og okkar vill láta alla
njóta sannmælis og telur þjóðfé-
laginu bezt þjónað með þvi. Ég
vil samt ekki láta hjá liða að
taka það fram að listar sem
gengið hafa manna á meðal og
ég hef heyrt ávæning af eru
meira eöa minna brenglaöir.
Enginn fótur er fyrir þeirra
nafna sem á þeim stendur. Mál-
um er blandað saman, farið er
að tengja þetta mál alls óskyld-
um málum eða málum sem á
þessu stigi málsins engan veg-
inn er hægt að fullyrða að séu
þÝað nokkru tengd.Tittvil ég
segja aö nöfn þessara reikn-
ingshafa og þeirra er starfa i
skjóli þeirra ættu ekki að sæta
neinum tiðindum I bankakerf-
inu.
Reykjavik 3. sept. 1976
Hrafn Bragason.
SEPTEM-SÝNING OPNUÐ
Valtýr Pétursson sýnir m.a. blómamyndir
September, eða Septem-sýn-
ingin 1976 verður opnuð I Norræna
húsinu á laugardaginn, en sýn-
ingin hefur nú verið haldin þrjú ár
i röð. Formaður sýningarnefndar
er Valtýr Pétursson, listmálari.
Við hittum hann að máli og
spurðum um sýninguna og fl.
Hann hafði þetta m.a. að segja:
Að þessu sinni taka sjö mynd-
listarmenn þátt i sýningunni, en
það eru Jóhannes Jóhannesson,
Karl Kvaran, Guðmunda Andrés-
dóttir, Þorvaldur Skúlason,
Kristján Daviðsson, Sigurjón
ólafsson og Valtýr Pétursson.
Þarna veröa sýnd um það bil 60
listaverk og eru þau öll til sölu.
— Nú eru liðin 40 ár siðan
Septem-sýningin var fyrst haldin.
Hefur myndlistin breytzt á þess-
um tima hjá ykkur?
— Það hefur oröiö viss þróun,
sem mjög auövelt er að koma
auga á meö samanburði. 1
gamla daga var þetta ekki eins
persónulegt og núna er. Til
dæmis sá ég gamla mynd eft-
ir mig á sýningu á verkum
Gunnars Sigurðssonar i Geysi,
en svo kom i ljós að myndin
var eftir Karl Kvaran. Þannig
geta menn séð, að þetta var hvað
öðru likt svona fyrsta sprettinn,
en svo hefur hver og einn þróað
sin sjálfstæðu einkenni með árun-
um.
— En þú sjáifur. Hvernig
myndir ert þú með?
— Ég er með blómamyndir. —
Já, blómamyndir, tómar blóma-
myndir, og ég tek það fram að
fyrir nokkrum árum heföi ég ekki
leyft svona nokkuð á sýningu, þar
sem ég hefði haft einhver ráð.
Svona breytist allt i listinni.
— Við vorum ofsóttir og taldir
viðsjárverðir. Núna lita ekki aðr-
ir niöur á okkur en ungir mynd-
listarmenn, (sumir) sem telja
okkur kredduspámenn.
Ég hélt annars aö ég væri að
drepast á dögunum, veikindi
steöjuðu að, en núna er ég aftur
orðinn friskur og hefi tekiö til við
ný viðfangsefni, hefi reyndar
aldrei skemmt mér betur i listinni
en einmitt nú, og það er vottur
um heilbrigði.
— En hinir?
— Það er enginn vafi á þvi, að
það eru góöir hlutir á þessari sýn-
ingu. Hér eru vel sjóaðir lista-
menn, eins og allir vita, og þeir
koma fram með eitthvað nýtt, þvi
það er eins og það tilheyri þessari
sýningu, öörum fremur, — og við
hótum að halda áfrain að sýna
JG