Tíminn - 04.09.1976, Qupperneq 11

Tíminn - 04.09.1976, Qupperneq 11
Laugardagur 4. september 1976 TÍMINN. 11 hljóðvarp LAUGARDAGUR 4.september 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00,8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Sigurður Gunnarsson heldur áfram sögu sinni „Frændi segir frá” (4). Óskalög sjúklinga kl. 10.25: Kristin Svein- björnsdóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 tJt og suður Asta R. Jóhannesdóttir og Hjalti Jón Sveinsson sjá um sið- degisþátt með blönduðu efni. (16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir). 17.30 Ferðaþættir eftir Bjarna Sæmundsson fiskifræðing. Oskar Ingimarsson les úr þókinni ,,Um láð og lög” (2). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Fjaðrafok Þáttur i umsjá Sigmars B. Hauks- sonar. 20.00 óperutónlist: 20.55 Frá Húsavik til Kalifomiu með viðdvöl i Wihnipeg. Pétur Pétursson ræðir við Ásgeir P. Guðjohnsen. 21.20 Danslög frá liðnum árum. Dieter Rieth- sextettinn og hljómsveit Gerhards Wehners leika. 21.50 „Hvernig herra Vorel tilreykti sæfrauðspipuna”, smásaga eftir Jan Neruda. Halldreður örn Eiriksson islenzkaði. Steindór Hjörleifsson leikari les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir Danslög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. sjonvarp Laugardagur 4. september 18.00 tþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Maður til taks. Breskur gamanmyndaflokkur. Þeg- ar kötturinn er úti. Þýðandi Stefán Jökulsson. 21.00 Pýramidarnir, elstu furður heims. Pýramldarn- ir egypsku eru frægustu fornminjar i heimi og laða árlega til sin skara ferða- manna og visindamanna. í þessari mynd er sögð saga þeirra, skýrt nákvæmlega frá rannsóknum á þeim, greint frá greftrun konunga, smurningum og lýst þeirri dulúð, sem hvilir yfir pýra- mfdum. Þýðandi Þórhallur Guttormsson. Þulur Sigur- jón Fjeldsted. 21.50 Cluny Brown. Bresk gamanmynd frá árinu 1946. Aðalhlutverk Charles Boyer og Jennifer Jones. Myndin hefst i Lundúnum árið 1939. Ung stúlka, Cluny Brown, sem alist hefur upp hjá frænda sinum, pipulagning- armanni, hefur mikið yndi af að hjáípa honum við störf hans. Hann vill að hún læri nytsamleg störf við kvenna hæfi ogkemur henni i vist á sveitasetri. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 23.25 Ðagskrárlok. ET í JÖTUNHEIMUM FJALLANNA S9 annar meiddist í síðu. Þó hefði kannski enn verra hlotizt af, ef Eiríku hefði ekki tekizt að sefa bróður sinn. Hann var þó ekki mýkri á manninn en svo, er hann fór, að hann steytti kreppta hnefana að fólkinu. Enginn áræddi að elta hann út á vatnið og freista þess að lækka í honum rostann í góðu tómi. Menn voru vægast sagt forviða. Þetta var í fyrsta skipti i sögu byggðarinnar, að maður frá Marzhlíð lét hendur skipta. Jafnvel mennirnir, sem meiðslin hlutu, höfðu ekki sinnu á því að bölva og heitast við hann. Þeir f urðuðu sig bara á því, að það skyldu vera óbrotin bein í skrokknum á þeim eftir aðganginn. Jónas sagði hvorki föður sínum né bræðrum frá senn- unni, sem orðið hafði á Saxanesi. En sagan lá samt ekki í þagnargildi. Þegar Jónas kom að Laufskálum, nokkrum dögum síðar, spurði Aron hann, hvernig því véki við, að hann skyldi ráðast á Saxanesbændurnar með hníf og byssu. Jónas þybbaðist við. Hvers konar kjaftasögur voru þetta? Hann hafði ekki notað önnur vopn en hnef- ana. Byssan hafði hangið heima og hníf urinn — ja, hann þurfti ekki á honum að halda. Loks sagði Jónas bróður sínum, hvaðgerzt hafði á Saxanesi og þegar Aron vissi, að lagðar höfðu verið hendur á hann, áður en berserks- gangurinn kom á hann, harðnaði á honum brúnin. — Þetta var rétt, Jónas, sagði hann grimmdarlega. Það er kominn tími til þess, að fólk viti, að Hlíðarmenn láta ekki troða á sér. Jónas virti Aron fyrir sér. — Hefir einhver hér á Laufskálum verið að hnotabít- ast við þig? spurði hann seinlega. — Hvað áttu við? — Ég myndi kannski taka þann hinn sama í karphúsið, þegar tóm gæfist til. Aron var hugsi litla stund. En svo fullvissaði hann bróður sinn um það, að allt væri eins og það ætti að vera. Þrátt fyrir þessa staðhæfingu Arons, var Jónas mjög ögrandi við fólkið í Laufskálum. En það lét eins og það yrði þessekki vart. Aron lét þetta afskiptalaust, og með sjálfum sér naut hann þess að heyra, hvernig Jónas kastaði hnífilyrðum á báða bóga, án þess að nokkur þyrði að gjalda þessum óspektarmanni í sömu mynt. Nú fékk það sjálft að reyna, hvernig það var að taka þegj- andi við hverju, sem að því var rétt! Þegar hann var háttaður um kvöldið, spurði kona hans: — Hvað hefir eiginlega gripið bróður þinn? — Ekki neitt, held ég. — Hann var sífelltað reyna að koma af staðófriði. — Það getur ekki verið rétt. — Jú. Af hverju er hann orðinn svona æstur? — Það veit ég ekki, svaraði Aron. Og það var satt, því að hann furðaði sig manna mest á því, hve uppivöðslu- samur Jónas var orðinn. — Og hann er dónalegur við kvenfólk. — Það er alls ekki rétt. — Jú, segi ég. Hann hrækti að Ellu, þegar hún kom inn og spurði hann, hvernig hann hefði fariðað því að bjarga sér í stórhríð uppi á háf jöllum. Hann hlýtur að vera orð- inn geggjaður. Aron þagnaði, því að hann vissi það af gamalli reynslu, að konan varð alltaf að hafa síðasta orðið. Hann hug- leiddi þetta hins vegar með sjálf um sér, og hann gat ekki borið á móti þvi, að framkoma Jónasar hafði verið einkennileg. Hafði hann ringlazt í útilegunni? Jæja — ef það kæmi ekki f ram nema innan hæf ilegra takmarka, þá höf ðu bændurnir við Kolturvatnið bara gott af því. En að hann væri dónalegur við kvenfólk — hefði hrækt að Ellu — nei, þaðgatekki verið. Hann var vissulega ekki neinn kvenhatari! Kona Arons hafði því miður rétt fyrir sér. Jónas var ekki lengur mjúkur á manninn við stúlkurnar. Það lá við að hann nísti tönnum í hvert skipti, sem ung stúlka kom í námunda við hann. Þær reyndu að gera sig eins blíðar í máli og þær gátu og dilluðu sér framan í karlmenn, en þegar til alvörunnar kom — ja svei, þá var fyrst spurt um það, hvort menn ættu kýr og hús og hefðu þolanlegt jarðnæði. Allt átti að vera til reiðu — ekki annað en ganga inn og setjast við kjötpottinn! Það voru þó fáar stúlkur á Laufskálum, og þess vegna hafði Jónas látið svo lítið að þiggja þar næturgistingu. Jónas fór frá Laufskálum morguninn eftir, urrandi eins og hundur, sem misst hef ir af kjötbeini. Hann fór þó ekki heim, heidur tók stefnu yfir að Saxnesi. Já — þeir höf ðu dreift út þeirri sögu, að hann hefði ráðizt á þá með hníf og byssu. Þeir skyldu ekki sleppa við syndagjöldin! HVELL G E I R I D R E K I K U B B U R 'Hinum megin viö eldána . og ísvegginn!

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.