Tíminn - 06.10.1976, Blaðsíða 10

Tíminn - 06.10.1976, Blaðsíða 10
10 Tvær sýningar á ínúk á Stóra sviðinu Hér kemur rétta myndin Sunnudaginn 12. sept. siðast liðinn birtist hér I blaðinu viö- tal við Aage Nielsen-Edwin myndhöggvara, og um leið voru birtar myndir af nokkr- um listaverka hans. Þá urðu þau mistök, að með einum myndatextanum birtist röng mynd. Það sem var sagt vera Skálholtssveinninn, var ekki hann, heldur mynd af allt öðru verki eftir Aage. Hér birtist nú mynd af Skál- holtssveininum, og um leið er listamaðurinn beöinn velvirö- ingar á þessum mistökum. Sýning Þjöðleikhússins á ÍNÚK heldur enn áfram aö vekja athygli leikhúsfólks um viða veröld. Um helgina kom leikhóp- urinn heim frá Belgrad I Júgó- slaviu, þar sem INÚK var sýnt þrisvar sinnum á alþjóölegri leik- listarhátiö, en á hátið þessari sýndu margir helztu leikflokkar og leikhús veraldar verk sin. Hér er um aö ræða sameiningu tveggja leiklistarhátiða, júgó- slavneskrar hátiðar, BITEF, sem haldin hefur verið árlega og Leik- húss þjóöanna, sem upphaflega var haldiö i Paris, en er nú haldin i ýmsum löndum til skiptis. A há- tlöinni i Belgrad voru sýndar sýn- ingar frá mörgum þeim leikhús- um, sem nú ber hæst I leiklistar- heiminum, og má þar nefna sýn- ingar eins og sýningu Peter Brooks á leikritinu IK, þýzka sýn- ingu frá Berlin á leikriti Becketts, Beðiö eftir Godot i leikstjórn höf- undar, sýningar á Hamlet og fleiri verkum frá Taganka leik- húsinu i Moskvu undir stjórn Ljubimovs, sýningar frá Óöin- leikhúsinu i Holstebro undir stjórn Eugeno Barba og svo mætti lengi telja. Alls sýndu milli 20 og 30 leikflokkar á hátiðinni. Hátiðin hófst 10. september, en frumsýningin á INÚK var 23. sept. og var uppselt á allar þrjár sýningar Þjóðleikhússins strax áður en hátiðin hófst. Var sýning- unum sem endranær afbragösvel tekið og hlaut góða dóma. Júgó- slavneska sjónvarpið tók sýning- una upp og var ÍNÚKsýnt iheild I sjónvarpi um alla Júgóslaviu. Að lokinni hátiðinni I Belgrad fór hópurinn til þriggja annarra staða meö sýninguna og var leik- ritið sýnt einu sinni á hverjum eftirtaldra staða: i Titógrad I Montenegro, i Cacek og I Nis. Vegna þrálátra eftirspurna hefur veriö ákveðið að hafa tvær sýningar á INÚK á Stóra sviði Þjóðleikhússins, á laugardaginn og á þriðjudagskvöld. Alls hefur INÚK nú veriö sýnt 217 sinnum I 19 löndum. Leikstjóri INÚKS er Brynja Benediktsdóttir en aðrir i hópnum eru Ketill Larsen, Krist- björg Kield, Helga Jónsdóttir og Þórhallur Sigurösson. Sýningar- stjóri er Þorlákur Þórðarson en höfundar ásamt hópnum er Haraldur ólafsson. Miðvikudagur 6. október 1976 Miðvikudagur 6. október 1976 11 MER HEFUR ALLTAF ÞÓTT VÆNT UM fyM BENEDIKT GRÖNDAL 1D AG er hálf önnur öld liðin sið- an Benedikt Gröndal skáld fæddist. Af þvi tilefni sneri Tim- inn sér til Gisla Björnssonar smiðs I Reykjavík, en hann er að öllum likindum eini núlifandi Islendingurinn, sem man Grön- dal og kann frá honum að segja af eigin sjón og heyrn. GIsli Björnsson varð hundrað ára á siðast liðnum vetri, en ber aldur sinn frábærlega vel. Hann segist samt hafa hætt að vinna fyrir tuttugu árum, — þegar hann stóð á áttræðu, — og nú segist hann eiginlega ekki gera neitt, nema ab stauta ofurlitið fyrir sjálfan sig, eins og hann komst að oröi, þegar talið barst aö honum sjálfum, en annars var erindið á fund hans ekki að rekja ævisögu hans, heldur aö spyrja hann um Benedikt Grön- dal. — Já, kynni okkar Gröndals hófust með dálltið sérstökum hætti, segir öldungurinn og brosir I kampinn, — en við skul- um ekki tala mikið um það, og alls ekki skrifa um það I blöð. Ég hafði alltaf mætur á Grön- dal, þótt f yrsti fundur okkar hafi kannski verið dálitiö svona og svona. Eftir aö við höfðum kynnzt, kom ég mjög oft I Náttúrugripa- safnið til hans, en þar var hann það sem viö kölluðum safn- stjóra á þeim árum, Safnið var I Doktorshúsinu, sem svo var kallað, en ég átti heima á Vest- urgötu 24, og það var þar rétt hjá. — Spjölluðuð þið þá um nátt- úrufræði? — Nei, við töluðum ósköp litið saman, en hann var ákaflega viljugur að sýna mér það, sem á safninu var, og lýsa þvi fyrir mér. Mér fannst Benedifct Grön- dal frábærlega skemmtilegur maður, og flestum held ég að hafi lifcað vel við hann. Hann var áreiðanlega fróðari um náttúrufræði en nokkur annar maður, sem þá var uppi á Is- landi. — Á hvaða árum var það, sem þú umgekkst Gröndal mest? — Þetta var rétt um siöustu aldamót. Oft sáum við Gröndal ganga fram og aftur um flæðar- málið, þegar mikil fjara var, og virða fyrir sér skeljar og steina. Vel má vera, að stundum hafi hann þá stungið fallegri skel I vasa sinn, þótt ég viti það ekki, en varla held ég, að hann hafi fundið verulega sjaldgæfa hluti, það var ekki mikið um þá. — En hvað um bókmenntirn- ar? Rædduð þið Gröndal nokk- urn tima um slika hluti? — Nei, blessaöur vertu. Ég var ekki neinn fræðimaður i þeim efnum, en Gröndal aftur á móti alls staðar heima. Auðvitað kannaöist ég við Heljarslóðarorustu, hana höfðu vist flestir lesið, og ég vissi bæði af lestri hennar og teiknari. Ég kynntist ýmsum nemendum hans, og ég gat ekki fundiö annaö en að þeir dýrkuðu hann sem kennara, þótt auðvit- að væri hann ekki fullkominn maður fremur en við hin. Til dæmis þótti hann nokkuð ölkær á þeim árum, sem ég þekkti til hans. — Fannst þér, þegar þú komst I safnið til hans, að hann hefði sérstakar mætur á ein- hverri einni grein náttúruvis- inda umfram aðrar? — Ekki varö þess vart i um- gengni hans við gesti safnsins. Hann leysti vel og greiðlega úr öllum spurningum og útskýrði fyrir mönnum það, sem þeir vissu ekki. Ég man vel eftir þvi, aö einu sinni, þegar ég var staddur I safninu, þá var þar unglingspiltur noröan úr landi, og haföi sá aldrei komiö I safniö fyrr. Hann vaö að skoða fugla og nefndi þá öðrum nöfnum en Benedikt. En Gröndal sagðist hafa vanizt öðrum nöfnum og bætti viö: Ég held viö förum ekkert að skýra þá upp, fugla- greyin. — Manstu.hvaða fuglar þetta voru, eða hver munur var á nöfnum þeirra hjá þeim Grön- dal og piltinum? — Nei, ég er búinn aö gleyma þessu, þaö er svo langt siðan, en ég man, að fuglarnir voru litlir — allt smáfuglar. Benedikt Gröndal bjó I litlu húsi, ekki fallegu, fyrir neðan Vesturgötuna, og kallaði það Skrinu. Það var hálfgert bak- hús, með „brotnu” þaki, sem kallað var, og llktist verfcfæra- skrinu I laginu. Þannig stóð á nafngiftinni. Allir þekktu Benedikt Grön- dal, og reyndar þekktust flestir Reykvikingar fyrir svona sjötiu til áttatiu árum, bærinn var svo litill og fámennur miðað við þaö sem seinna varö. — Þykir þér ekki gaman að hafa fengið að kynnast þessum sérke'nnilega manni? — Jú, þaö þykir mér, og mér hefur alltaf þótt vænt um Bene- dikt Gröndal, þetta yar svo mikilhæfur maður og haföi marga góða kosti. Mér fannst lika mjög gaman að koma i safnið, og var orðinn vel kunn- ugur þvi. Ég hætti ekki að koma á safnið, heldur var tiður gestur þar, eftir daga Gröndals, og eiginlega alltaf, svo að segja fram á siðustu ár. — Þú hefur þá öðlazt áhuga á náttúruvisindum ? — Ekki öðru visi en sem tóm- stundagaman. Ég var bundinn við starf mitt og heimili og átti ekki neinn kost á þvi aö stunda náttúrufræöinám I eiginlegum skilningi, þau voru færri tæki- færin þá en nú, En ég hafði mikla ánægju af þessu grúski á safninu, — og menn verða nú lika aö gera eitthvað sér til gamans. —VS. — segir hundrað ára gamali maður í Reykjavík, sem kynntist Gröndal og man vel eftir honum Gisli Björnsson. kynnum við höfundinn, að Grön- dal var einhver fyndnasti maður sinnar samtiðar á Is- landi. Hann var hnyttinn I til- svörum, orðheppinn og skemmtilegur, þótt sjálfur ætti hann á ýmsan hátt erfitt. Þegar ég þekkti til, var kona hans lát- in, og hann bjó með dóttur sinni, sem Helga hét. Hún varð seinna læknisfrú I Hafnarfiröi, eins og kunnugt er. Hún hafði orð á sér fyrir fegurð. Aftur á móti fannst mér Benedikt ekki vera friður maður. — Er hún lik Gröndal, þessi mynd, sem viða er til af honum? — Já, hún er mjög lik honum. Benedikt var i lægra lagi á vöxt, en fremur þrekinn, þó varð hann aldrei feitur. Ég leit svo á, að Benedikt Gröndal væri listamaöur á öll- um sviðum, hvar sem hann tók til hendi. Hann var ekki aðeins náttúrufræðingur, skáld og húmoristi með afbrigöum, heldur var hann lfka snilldar en það var hinn 25. nóvember 1966, sem við gáfum út fyrstu bókina, LANDIÐ ÞITT, eftir Þorstein Jósepsson. Við minnumst afmœlisins með þeim hœtti að gefa a/menningi kost á að eignast „feg- ursta og dýrasta prentgrip á íslandi“ eftir Benedikt Gröndal með sérstaklega hagstœðum kjörum. Bók þessa gáfum við út til þess að minnast 150 ára afmœlis Gröndals, 6. október 1976. Bókin er með eftirmála á íslensku og ensku um Gröndal sem náttúrufrœðing, eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Greiðslukjör: Bókin kostar 60 þúsund krónur, en hin hagstœðu greiðslukjör eru þannig að kaupandinn þarf aðeins að greiða 20 þúsund krónur við móttöku og siðan 10þúsund annan hvern mánuð eða 5 þúsund mánaðarlega. Tilboð þetta stendur til afmœlisdags 'ns 25. nóvember n.k., nema að bœkurnar seljist fyrr upp. Bókin fœst aðeins í forlagi okkar Vestur- götu 42, sími 25722 og ípóstkröfu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.