Fréttablaðið - 11.12.2005, Síða 49
TILKYNNINGAR
ATVINNA
SUNNUDAGUR 11. desember 2005 11
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Bifvelavirkjar.ai 12/9/05 11:50:30 AM
Áhugaverð störf í boði
MENNINGAR- OG FERÐAMÁLASVIÐ
Bókaverðir í Sólheimasafn
Verkefnin eru m.a. þjónusta við gesti/notendur, afgreiðsla,
frágangur og uppröðun safnefnis og starf með börnum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun. Auk góðrar íslensku-
kunnáttu er nauðsynlegt að geta lesið og talað annað
tungumál.
• Grunnþekking í notkun tölva.
• Starfið krefst frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða.
• Viðkomandi verður að hafa ánægju af mannlegum sam-
skiptum og vera fær um að vinna í hópi.
• Áhugi á lestri og bókmenntum.
Meirihluti starfsmanna Borgarbókasafns eru konur og eru
karlar því sérstaklega hvattir til að sækja um. Vinnutími er
breytilegur því safnið er opið á kvöldin og um helgar.
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Óttarsdóttir, safnstjóri,
aslaug.ottarsdottir@reykjavik.is.
Laun og kjör skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og St. Rv.
Umsóknir berist Önnu Torfadóttur, borgarbókaverði,
Borgarbókasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 101 Reykjavík
eigi síðar en mánudaginn 19. desember n.k.
Á heimasíðu Borgarbókasafns, www.borgarbokasafn.is eru
nánari upplýsingar um starfsemina.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Menningar- og ferðamálasvið ber ábyrgð á menningarmálum og rekstri
menningarstofnana Reykjavíkurborgar í umboði menningar- og
ferðamálaráðs. Sviðið sinnir ferðamálum og ber m.a. ábyrgð á heild-
stæðri kynningu á Reykjavík og rekstri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna
í Reykjavík. Þá sér sviðið jafnframt um skipulagningu og framkvæmd
ýmissa viðburða og hátíða s.s. Vetrarhátíðar og Menningarnætur.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
F.h. Framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar –
skrifstofu gatna- og
eignaumsýslu,
er óskað eftir umsóknum verktaka til þátttöku
í væntanlegum lokuðum útboðum og/eða
verðkönnunum vegna viðhaldvinnu o.fl. á
fasteignum borgarinnar á
eftirfarandi starfsviðum:
• Blikksmíði Loftræstikerfi, rennur og niður föll,
hreinsun loftstokka
• Múrverk Múrviðgerðir utanhúss, almennar viðgerðir
• Húsasmíði Almenn viðhaldsvinna utanhúss og innan.
• Innréttingar Sérsmíði innréttinga og hurða.
• Pappalagnir Ýmsar viðgerðir og endurnýjun á þakpappa.
• Raflagnir Almennt viðhald og endurbætur.
• Pípulagnir Almennt viðhald og endurbætur
• Járnsmíði Ýmiskonar sérsmíði
• Málun Ýmiss viðhaldsvinna og endurmálun.
• Garðyrkja Endurbætur á lóðum
• Dúkalögn Gólfdúkalagnir
• Steypusögun Steypusögun, múrbrot og kjarnaborun
• Jarðvinna Ýmiskonar jarðvegsframkvæmdir
• Stíflulosun Losun á stíflum og hreinsun lagna
• Þrif Ýmiskonar þrif fasteigna ofl.
Einungis þeir verktakar koma til greina, sem eru í
skilum með lífeyrissjóðsiðgjöld og opinber gjöld.
Þeir verktakar sem áður hafa skilað umsókn,
þurfa að endurnýja umsókn sína.
Umsóknareyðublöð fást afhent í upplýsingaþjón-
ustu Ráðhúss Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, einnig er
hægt að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu
Innkaupa- og rekstrarskrifstofu,
www.reykjavik.is/utbod
Umsóknum ásamt umbeðnum gögnum, skal skilað
til upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur,
eigi síðar en 28. desember 2005. Leyfilegt er að
senda útfyllta umsókn sem og umbeðin gögn,
á faxnúmerið 411 1048. 10647
VIÐHALDSVINNA
Auglýsing um tillögu að
Aðalskipulagi Seltjarnarness
2006-2024
Bæjarstjórn Seltjarnarness auglýsir tillögu
að Aðalskipulagi Seltjarnarness 2006-2024
samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Tillagan samanstendur af greinargerð og
skipulagsuppdrætti. Einnig eru lögð fram til
upplýsinga fornleifaskrá Seltjarnarness ásamt
athugasemdum og umsögnum stofnana og
sveitarfélaga.
Aðalskipulagstillagan verður til sýnis frá og
með 12. desember 2005 til og með 12. janúar
2006 á eftirtöldum stöðum: Á Bókasafni
Seltjarnarness, á heimasíðu sveitarfélagsins
www.seltjarnarnes.is og hjá Skipulagsstofnun,
Laugavegi 166, 105 Reykjavík.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
athugasemdir við skipulagstillöguna og skulu
þær hafa borist skrifstofu Seltjarnarnesbæjar
eigi síðar en 27. janúar 2006. Þeir sem ekki
gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast
samþykkir tillögunni.
S E L T J A R N A R N E S B Æ R
Auglýst er eftir framboðum til prófkjörs í Reykjavík
Ákveðið hefur verið að efna til prófkjörs til að velja sex
efstu frambjóðendur Framsóknarflokksins í Reykjavík við
borgarstjórnarkosningarnar 27. maí 2006.
Prófkjörið fer fram laugardaginn 28. janúar 2006.
Hér með er auglýst eftir framboðum.
Frambjóðendur geta þeir einir orðið sem hafa kjörgengi til
borgarstjórnar Reykjavíkur og eru félagsmenn í
Framsóknarflokknum.
Framboðum skal skila skriflega til skrifstofu
Framsóknarflokksins, Hverfisgötu 33 (2. hæð),
101 Reykjavík. Yfirlýsingu um framboð skal fylgja mynd
og stutt æviágrip. Framboðsfrestur er til kl. 16.00
fimmtudaginn 29. desember 2005.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Framsóknarflokksins í síma 540 4300.
Stjórnir kjördæmasambanda framsóknarmanna í Reykjavík.
Út er komin ný útgáfa af Verðbanka Hönnunar
fyrir húsbyggingar og þéttbýlistækni.
Verðbanki Hönnunar fæst keyptur í
eftirfarandi hlutum:
Húsbyggingar, yfir 2.500 grunn- og
einingarverð
Ákveðnir kaflar úr húsbyggingum;
-Jarðvinna og burðarvirki
- Frágangur utanhúss
- Tæknikerfi
Þéttbýlisbanki, yfir 700 grunn- og
einingarverð.
Verðbankinn er á verðlagi í nóvember 2005
Upplýsingar um Verðbanka Hönnunar er að
finna á heimasíðu Hönnunar: www.honnun.is
Grensásvegi 1 | 108 Reykjavík | Sími: 510 4000 | Fax: 510 4001
Hö
nn
un
Nóvember 2005