Tíminn - 24.11.1976, Qupperneq 1
Sviptingar í Landsmálafélaginu Verði
Siá bls. 3
TÆNGIRf
Áætlunarsfaðir:
Bíldudalur-Blönduós-Búðardalur
Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
; Súgandaf jörður
Sjúkra- og ieiguflug
um allt land
Símar:
2-60-60 oq 2-60-66
t3
266.
tölublað—Miðvikudagur—24. nóvember—60 árg. j
Hörð gagnrýni vegna vinnu-
bragða stjórnarformanns SVR
og forstjóra fyrirtækisins
— stjórn SVR hefur verið sniðgengin varðandi
ákvarðanatökur í þýðingarmiklum málum
FJ-Reykjavik. — A fundi
stjórnar Strætisvagna
Revkjavikur 3. nóvember sl.
kom fram mjög hörð gagn-
rýni frá Leifi Karlssyni, full-
trúa Framsóknarfiokksins I
stjórninni, ú vinnubrögð
stjórnarformanns SVR og
forstjóra fyrirtækisins. Sam-
kvæmt bókun Leifs Karls-
sonar virðast þessir aðilar
hafa sniðgengið stjórn SVR
varðandi ákvarðanatökur i
veigamiklum málum.
Bendir Leifur m.a. á, að
keypt hafi veriö tæki til
fyrirtækisins, án vitundar
stjórnarinnar og án þess, að
gert væri ráö fyrir þeim
kaupum i fjárhagsáætlun.
Einnig gagnrýnir hann, að
ráðinn hafi verið háttsettur
starfsmaður viö fyrirtækið
án þess,
auglýst.
að sú staða væri
Einnig gagnrýnir Leifur
Karlsson, hvernig staðið var
að samþykkt vetraráætlun-
ar SVR, hönnun nýrra akst-
ursleiða og loks öryggisbún-
að strætisvagnanna f vetrar-
færöinni.
Bókun Leifs er birt á bls. 8
i blaöinu í dag. Þar birtist
einnig svar stjórnarfor-
manns SVR, Sveins Björns-
sonar, verkfræðings, og mót-
bókun Leifs við þvi, Loks er
á siðunni bókun Þorbjörns
Broddasonar, borgarfull-
trúa, þar sem hann tekur
undir gagnrýni Leifs og átel-
ur þau viðbrögð stjórnarfor-
mannsins að svara efnislegri
og formlegri gagnrýni á per-
sónugrundvelli.
„Ekki hægt að laga
gallann í holu nr. 5"
— segir
Valgarð
Stefónsson
hjó
Orkustofnun
Gsal-Reykjavik. — Meðan
ekki hefur verið athugað
hvort hægt sé að nýta holuna
einsog hún er, finnst mér
óviðeigandi að segja að hún
sé ónýt. Það er hins vegar
rétt að ekki er hægt aö laga
þennan galla, sagði Valgarð
Stefánsson jarðfræðingur
hjá Orkustofnun Isamtali við
Timann i gærkvöidi.
I ljós kom nýlega, þegar
dýpka átti holu nr. 5 við
Kröflu, að fóöring i henni
hafði skekkzt, þannig að bor-
inn komst ekki niður á nema
40metra dýpi. Hola þessi var
boruð fyrir u.þ.b. ári, niður á
1300 metra dýpi og átti nú að
dýpka hana niður á 1800
metra.
— Það er ljóst, að ekki
verður hægt að dýpka þessa
holu, en hins vegar er það
enn ókannaö, hvort ekki er
hægt að nýta holuna eins og
hún er, þrátt fyrir þennan
galla, sagði Valgarð.
Um orsakir þessa galla
kvaðst Valgarð ekki geta
tjáð sig um, þar eð tilgátur
um þær væru nokkrar. Þess
má þó geta, að ein skýringin
er sú, aö fóðringin hafi
skekkzt i Leirhnúksgosinu i
fyrravetur.
Týr að leggja úr höfn:
Stjórnlokar
Olíudælur - Olíudrif
■■EEmZSlZlK
Siðumúla 21 — Simi 8-44-43
Unglingarnir
sem
réðust að
lögreglunni:
,,Geta
ótt
von ó
dómi"
Gsal-Reykjavik. — Að sögn
varðstjóra almennu lögregl-
unnar i Reykjavik geta þau
ungmenni, sem veittust að
lögregluþjónum i starfi sfð-
astliðið föstudagskvöld á
svonefndu Hallærisplani, átt
von á dómi. Málum þessara
unglinga er ekki lokiö, held-
ur aðeins þeirra, er hand-
teknir voru fyrir ölvun, og
hlutu þeir sekt.
Nokkur ungmenni hindr-
uðu lögregluna gróflega i
starfi þetta föstudagskvöld,
reyndu aö ná unglingum úr
höndum lögregluþjóna og
réðust að þeim sjálfum með
offorsi og látum. Mynd Tim-
ans i gær frá einum þeirra
atburða, er gerðust á
Hallærisplaninu sl. föstu-
dagskvöld, sýnir glöggt
hversu alvarlegt þetta var,
og hefur myndin vakiö mikla
athygli, — enda sýnir hún
svo ekki verður um villzt, að
þarna áttu sér stað alvarleg-
ir atburðir, en ekki einhver
litilsháttar leikaraskapur
barna, eins og sumir vilja
halda fram.
Máli þessa pilts, sem á
myndinni sést ráðast á lög-
regluþjón er ekki lokið — og
verður sennilega ekki lokiö
með dómssátt, heldur með
dómi, að sögn varðstjórans.
Námsmenn höfðu ekki
áhuga, þegar á reyndi
Gsal-Reykjavik — Varðskipið
Týr, sem verið hefur til viö-
geröar i Arósum að undan-
förnu.ernú að leggja af staö
heimleiöis, og átti skipið að
halda úr höfn i gærkvöldi eða i
dag, að sögn Péturs Sigurðs-
sonar forstjóra Landhelgis-
gæzlunnar.
Engir námsmenn munu fara
með skipinu til Islands, enda
reyndust þeir ekki hafa neinn
áhuga á ferðinni, þegar til
kastanna kom. Svo sem
kunnugt er sendu námsmenn i
Danmörku dómsmálaráðu-
neytinu bréf, þar sem þeir
óskuðu mjög eindregið eftir
þvi að fá heimild ráðuneytis-
ins til þess að flytjast heim
með varðskipinu, þar eð fjár-
skortur — vegna þess hve
dregizt hafði aö úthluta náms-
lánum — hindraði frekara
nám.
Dómsmálaráðuneytið heim-
ilaði námsmönnum að fara
heim með varðskipinu og fól
Guðmundi Kjærnested aö
athuga málið. Jafnframt var
þeim tveimur námsmönnuro
sem undirrituðu bréfið til
ráðuneytisins, falið að kanna
hug námsmanna til þessa
boðs. Kom i ljós, að náms-
mennirnir höfðu engan áhuga
á þvi að flytjast til Islands og
hverfa frá námi, og virðist þvi
bréf þeirra til ráðurieytisins
hafa verið sýndarmennska
ein.
Innkaupastofnun ríkisins sniðgengur útboðsvenjur — Sjá