Tíminn - 24.11.1976, Síða 6

Tíminn - 24.11.1976, Síða 6
6 Miðvikudagur 24. nóvember 1976 Áburðarsíló Við geymslu tilbúins áburðar heima á bújöröunum er nýtt viðhorf að mótast meðal grann- þjóða okkar með því að geyma hann i plastsilóum og hafa þannig tiltækan til dreifingar, þegar við á. Það þótti mikil framför, þeg- ar horfið var frá þvi að nota pappfrspoka um áburðinn, sem bændur keyptu og kaupa frá út- löndum eða frá Áburðarverk- smiðjunni i Gufunesi. Plast- pokarnir komu i þeirra stað, þeir eru vist sterkari og þola beturalla meðferð en margfald- ir pappirspokar, og einkum verja þeir áburðinn vel gegn vætu. En þeir kosta fjármuni, mikla fjármuni, og svo þarf að losna við þá með góðu móti — nokkuð, sem ýmsum gengur misjafnlega. Alltaf kemur eitthvað nýtt, svo á þessu sviöi sem vlðar. Rétt eins og geymsla og flutningur kornvöru fór aö mestu fram i pokum, en nú er i auknum mæli horfið að meðför- um öllum með kornvöru sem lausrar vöru, i bingjum, silóum og sérlegum flutningavögnum, sem nefnd er „búlkvara”, svo viröist einnig horfa um meöferð tilbúins áburðar, að minnsta kosti þar sem skilyröi henta svo að hagkvæmt reynist. Áburðarsiló Það bar við á siðastliðnum vetri, að á skrifstofu mfna fékk ég heimsókn af Norðmanni nokkrum, sem tjáði mér, að nú væri i uppsiglingu nýtt fyrir- komulag um geymslu tilbúins áburðar, rétt eins og kornvöru. Þetta nýja fyrirkomulag bygg- ist á þvi fyrst og fremst, að meginmagn tilbúins áburðar er nú selt sem blandaður áburður, við það fækkar þeim tegundum poka, sem fyrr geymdu hin ýmsu afbrigði frumefnanna. Hjá þeim, sem hafa einhliða áburðarnotkun að mestu, þykir það hið mesta hagræði að hafa meginmagnið einhæft, og þá er engin hætta á, að neinn villist á tegundum. Þvi var það svo, að norsk plastverksmiðja fór inn á þá braut að reyna framleiðslu plastgeyma undir tilbúinn á- burð, silóa.sem komið sé fyrir á viðeigandi stað heima á hverri bújörð, þangað sé svo áburðin- um ekiö lausum og honum blás- iö upp i geymana. Framleiðsla silóa af þessu tagi hófst veturinn 1974-75, og búið er að koma allmörgum fyrir á bújörðum i Noregiog Sviþjóð I báðum þess- um löndum hafa samvinnufélög bændanna gengizt fyrir og hlut- azt til um útbreiðslu þessara þörfu geymsluskilyrða, sem ekki hafa enn náð útbreiöslu, en eru á tilraunastigi, og er búizt við, að innan tiðar verði eins al- menn og fóðursilóin eru hjá bændum. Heimsókn i verksmiðju áburðarsilóa Ég varað störfum að ákveðnu verkefni i Osló um þriggja vikna skeið nú i október, en bjó 40 km fyrir austan Osló hjá kunningja- fólki. Barst þá i tal einn daginn, Þyrildreifarinn er færður inn undir stútinn á þessu 9-10 tonna silói og svo ekur dráttarvélin beint á teig til dreifingar. Hér er mannlegt erfiöi sparað. Trönurnar undir silói standa á steyptum undirstööum og festing öll er ramger. kraftfóðurs, þegar áburður er ekki i honum, ef viðeigandi þykir. En geta svo bændurnir, sem prófað hafa, tekið undir þessi meðmæli kaupfélagsins? Þann- ig er eðlilegt, að spurt sé. Allt að þessu hefur hverjum kaupanda silós verið fengiö eyðublað með mörgum spurningum til útfyllingar, sem þeir skulu svara og tjá kosti og galla I þessu sambandi. Ég hef undir höndum ljósrit af langri röð slikra umsagna og get tjáð, aðsvo að segja allt telja bændur jákvætti þessu sambandi. Stað- bundin skilyrði hjá nokkrum hafa sýnt smá annmarka, sem unnt hefði verið að sjá við, ef öll skilyrði hefðu verið skoðuð fyr- irfram, en reynslan virðist sanna, að hér sé á ferð nýjung, sem á framtið i nánd og góðar viðtökur. Fagfólk i Noregi, Svi- þjöð og Finnlandi hefur tekið nýjunginni mæta vel. Það má svo sem vel vera, að flest verði fundið sliku til foráttu, rétt eins og gerzt hefur með skyldar geymslur á okkar landi, svo sem fóðursiló og votheysturna. Hvað sem öllu liður er þó alveg vist, að á móti stofnkostnaði kemur sparnaður á plastpokum, 20pokar á hverju tonni áburðar. Og vist sparar þetta mann- lega krafta að þurfa ekki að hnoðast með 50 kg áburðarpoka frá vagni, i geymslu og svo i dreifara. Það er álika erfiðissparnaður eins og bændur hrósa tilkomu mjólkurtankanna i stað brús- anna. Og svo er máske mesti og stærsti kosturinn að hafa áburð- inn heima i beztu fáanlegum geymi að vorinu, þegar vega- bönn eru, en reynslan hefur þvi miður oftorðið sú, að þá er helzt skyldi dreifa áburðinum', er hann á verzlunarstað eða enn lengra i burtu og pokarnir, sem sjá má frá þjóðvegum sumar- langtá túnum bænda, komu allt of seint, og þvi fá þeir að liggja úti til hausts, ef ekki til næsta vors. Og hvað um árangurinn af þeim áburðarkaupum og áburðarnýtingu? Með «in“ handtaki er spjaldið fyrir tæmistút fært til hiiöar og áburðurinn streymir I dreifarann. að sölumaður plastverksmiðju i Aurskog-Höland hefði heimsótt mig siðastliðið vor, en fjölskyld- an, sem ég bjó hjá, þekkir hann mæta vel. Það var einmitt hann, sem þá tjáði mér um hin nýju siló, er umrædd verksmiðja framleiðir og hafði hann hug á að athuga hvort þörf mundi fyr- ir slika framleiðslu á Islandi. Varð að ráði, að ég skryppi einn daginn til þess að skoða umrædda plastverksmiðju, er framleiðir fiskkassa úr plasti fyrst og fremst, en hóf fram- leiðslu heilsteyptra áburðar- silóa úr plasti fyrir um það bil tveim árum, svo sem áður get- ur. Það var einmitt hinn sami kunningi, er hafði heimsóttmig, er nú tók á móti mér i verk- smiðjunni til þess að sýna hvað hér um ræðir, en raunar hafði ég litið nokkur siló af nefndu tagi hjá bændum i Sörumsand og grennd. Hans Thorkildsen heitir sölu- maður, og það var hann, sem fór með mér og sýndi allar at- hafnir við framleiðslu þeirra tveggja stærða áburðarsilóa, sem til þessa hafa verið fram- leidd, allt frá „módelsmiði” þeirra til þess er þau eru full- gerð og upp sett til notkunar. Þærtvær gerðir, sem um ræð- ir, rúma 9 og 14 tonn af blönduð- um áburði. Silóin eru stöðluð i samráði við Norsk Hydro, Felleskjöpet i Noregi og Supra i Sviþjóð, stofnanir, sem fram- leiöa áburð og selja hann. Silóin eru gerð úr efni, sem öðrum fremur þolir hnjask og þarf mjög lftið viðhald, og frostþol þess er viðurkennt svo og sýru- þol. Búnaður til þess að fylla og tæma er einfaldur og aögengi- legur mjög, áburðinum er dælt i gegnum rör og fylling er ofanfrá en tæming úr stút að neðan, en silóið þarf að festa á trönur, þar sem áburðardreifarinn kemst inn undir, svo að áburðurinn geti runnið beint i dreifarann. Við fyllingu kemur bill að silói með lausan áburð og loftþrýsti- búnað, sem flytur áburðinn i siló. Svo einfalt er það, og þarna hefur bóndinn áburðinn heima hjá sér og getur gripið til hans án alls erfiðis, hvenær sem hann vill dreifa á tún eða ekru. Trönurnar, sem bera geyminn, þurfa að sjálfsögðu að vera traustar og rammlega festar og svo háar, að ekki valdi vand- kvæðum að aka að og fylla áburðardreifarann. Þetta er kynningarblað kaupfélagsins i Oslo.Þaö þarf ekki nánari skýringa. Hvað segja svo bændur um þessa nýjung? Þeir eru þvi ekki óvanir að fá þungavöru heimsenda i lausu máli. Kornhlaða og áburöar- hlaða af þessu tagi eru bara tvær hliðstæður. Á kynningarblaði, sem Felleskjöpet (kaupfélagið) i Osló hefur sent bændum, eru taldir nokkrir kostir, sem fylgja þvi að nota siló sem þetta til áburðargeymslu. En þeir eru: Það sparar erfiöi við að lyfta 20-50 kg pokum i hverju tonni. Það léttir vorstörfin og þau ganga greiðar. Gey mslan er ævinlega þurr og geymsluskilyrði hin ágæt- ustu. Þetta borgar sig, þegar stund- ir liða. Geymirinn er sterkur og þolir vel allt hnjask. Auðvelt er að treysta trönur þær, sem bera geyminn. Fylling og tæming er svo auð- veld, sem orðið getur. Viðhald silós er hreinir smá- munir. Geyminn er hægt að setja upp þar seni bezt þykir við eiga. Hann má nota til geymslu Cipax gjodsel- Sllo

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.