Tíminn - 24.11.1976, Side 15

Tíminn - 24.11.1976, Side 15
Miövikudagur 24. nóvember 1976 15 TÍMÁ- spurningin Spurt á ferö meö Herjólfi: Hvernig likar þér aö ferðast meö Herjólfi? Guömundur Valdimarsson vélstjóri, Vestmannaeyjum — Mér likar vel að ferðast með skipinu, og fer frekar með þvf en fljúg- andi, ef ég hef tima til. Samúel Helgason netageröarmaöur, Reykjavik:—Það er fint að ferðast með Herjólfi, og hann er gott sjóskip a.m.k. i mótvindi. Hildur Þorláksdóttir húsmóöir, Reykjavik: — Þetta er min fyrsta ferð með skipinu, þannig aö ég get illa sagt um það. En skipið er fallegt og mér lizt vel á það. Ragnar Sigurbjörnsson sjómaöur, Vestmannaeyjum: — Herjólfur er skinandi skip og mjög gott að geta farið með bilinn með sér þegar maður er á ferð milli lands og eyja. Það var mikil samgöngubót þegar hann kom hingað. Barbro Glad frá Finnlandi, en er nú nemi i Reykjavik: - Þetta er min fyrsta ferð með skipinu, en mér likar vel og það ruggar ekki eins mikið og gamli Herjólfur. r © m lesendur segja Kaupkröfur, gróðastéttin og landhelgin Nú siðustu vikur hafa nær dag- lega dunið yfir okkur bæði i út- varpi og sjónvarpi alls konar samþykktir og kröfur um mikl- ar kauphækkanir þessari eða hinni starfsstéttinni til handa. Allir, sem láta til sín heyra, þykjast mjög illa settirmeð kjör sin. Þó hafa fáir verið eins há- værir og frekir i kröfugerð sinni og stjórn bandalags háskóla- manna. Mér finnst það mikill galli á allri þessari kröfugerð, að mjög sjaldan er sagt frá þvi um leið, hver mánaðar eða árslaun þess- ara starfshópa eru. En ég held að segja megi, sem betur fer, að mikill meirihluti þjóðarinnar hafi sæmileg lifskjör. Það sézt bezt á þvi, að litið verður vart við sparnað hjá flestum, miklu fremur að lifsgæðakapphlaupið aukist jafnt og þétt. Mætti þar nefna mörg dæmi. Auðvitað á þetta ekki við nærri alla. Ég tel, að meiri jöfnuður ætti að vera i launa- kjörum hér á landi. Mér er vel ljóst, að lægstlaunaða fólkið og ungt fólk, sem er að stofna heimili, býr við slæm kjör, og þau þarf að bæta. Þjóðfélagið hefur efni á þvi. En hefur þjóð- félagið efni á þvi að hækka kaup þeirra hæstlaunuðu? Ég held ekki, að minnsta kosti ekki nema með þvi að stórhækka beina skatta á þeim um leiö. Og þá fer hagnaður þeirra að verða vafasamur. Einstakar raddir hafa stundum heyrzt um að draga úr tryggingabótum. Ég tel, að það væri einhver sú fantalegasta aðgerð, sem hægt væri að gripa til, þvi margt af þvi fólki sem nýtur tryggingar- bóta er einmitt fólkið, sem er allra verst sett i þjóðfélaginu i dag. Eitt er það i kaupgjaldsmál- um, sem þyrfti að ráða bót á að minu áliti. Það þyrfti að banna með lögum allar yfirborganir.. Ég tel, að þær eigi drjúgan þátt i' dýrtiðaraukningunni, og ýti mjög undir almennar kaup- hækkanakröfur. Mér finnst, að þeir kauptaxtar, sem samið er um hverju sinni, eigi að gilda á meöan samningar standa. Það er óhæfa, að atvinnurekendur berji sér á brjóst á meðan á samningaþófi stendur og þykist alls ekki geta borgað hærra kaup, en strax að samningum loknum með tilheyrandi kaup- hækkunum, geti þessir sömu menn haldið áfram yfirborgun- um, eins og ekkert hafi breytzt. Að minu áliti þarf að breyta hér til. Gerðir samningar eiga að gilda i hverri starfsgrein. 011 frávik frá þeim ættu að vera ó- heimil. Einnig að stjómvöld breyti með lagaboði gerðum samningum. Ég hygg, að ef yfirborgana- ósiðurinn væri bannaður, gætu atvinnurekendur hækkað kaup- ið talsvert við láglaunastéttirn- ar. Auk þess held ég, að það mundi hamla verulega gegn þessari verðþenslu i þjóðfélag- inu. Hækkandi verð á útflutnings- vörum landsmanna nú siðari hluta þessa árs, og hækkað verð á alls konar vörum innanlands, ýtir eflaust undir kaup- hækkunarkröfur. En hafa menn gleymt hinum gifurlega við- skiptahalla frá i fyrra? Ég hélt að hin svokölluðu rauðu strik hefðu verið sett i samningana siðastliðinn vetur, til þess að launþegar fengju bættar upp þær hækkanir, sem ófyrirsjáan- legar voru þá. Ég held, að enginn góður Islendingut' óski eftir þjóðar- gjaldþroti. En hvert stefnir þeg- ar flestar stéttir þjóöfélagsins heimta meira en er til skipta? Það er furðulegt, að fólk i vel menntuðu og sæmilega siöuðu þjóðfélagi skuli rifast eins og hungraðir úlfar um hverja þá krónu, sem kann að vera til skipta, og allra furðulegast er, að háskólagengnir menn skuli vera þar fremstir i flokki. Þess- ir menn sem þjóðin er búin að kosta mestu til, á meðan erfiðis- menn sem skapa þjóðarauðinn vinna hörðum höndum. Ég held að timi sé kominn til þess að þeir staldri við og meti, hvað gert hefur verið fyrir þá. Vilja þessir hörðustu kröfu- hópar þjóðargjaldþrot? Það læðistað manni sá grunur, að til séu áhrifamenn i röðum þessa fólks, sem ekkert hefðu á móti þvi að Islendingar yrðu meira og meira háðir erlendum stór- veldum eða auðhringum. Aður en ég lýk þessum orðum langar mig að beina þvi til alþingis og rikisstjórnar, að skipuö verði nefnd til að kanna, hvort hérá landi séu ekki til ein- staklingar, fyrirtæki eða jafnvel starfshópar, sem raka saman peningum á kostnað almennings oghvort ekki væri hægtað ná til þessara manna og láta þá skila einhverju umtalsverðu fé i rikissjóð, sem alltaf er hálftóm- ur, og nota það til almennings- heilla, fremur en þvi sé varið i alls konar lúxuslifnað og svall. Ég held, að ef slik könnun yrði gerð i alvöru, myndi margur sætta sig betur við sin kjör, og þing og stjórn hafa sóma af. Bráðum kemur að þvi, að al- þingi og rikisstjórn verða að taka örlagarikar ákvarðanir i landhelgismálunum. Þá sést bezt, hvort hagsmunir Islands verða metnir meira en þjón- ustulundin við hin auðugu riki á Vesturlöndum. Þær ákvarðanir verða skráðar óafmáanlegu letri á spjöld sögunnar. Ég skora á alþingismenn að hugsa sig vel um áður en þeir framlengja samninginn við Breta eða aðrar erlendar þjóðir, eða afsala rétti islands á nokk- urn hátt. Það verður tekið eftir afstöðu sérhvers þingmanns og ráðherra i þessu örlagarika máli. 1«. nóvember 1976 Sigurður Lárusson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.