Tíminn - 18.01.1977, Blaðsíða 7
:
Kennarar
tlna gjarnan til sannar eða ósann-
ar, beinar eða óbeinar skammir
um vöru keppinautarins eöa bara
um keppinautinn sjálfan.
Nú tek ég fram, að það hvarfl-
ar ekki að mér að ampicillinhylki
Pharmaco h.f. séu ekki ágæt
vara, svo forðað sé frá öllum mis-
skilningi þar að lútandi, enda er
það allt önnur vara sem Sverrir
Magnússon er að reyna að selja,
sem sé þá, að þessi sömu hylki
séu „islenzk framleiðsla”, svona i
hælana á áróðursherferð fyrir
islenzkum iðnaði.
Hið sanna i málinu er auðvitað,
að altilbúið ampicillinduftið er
keypt frá erlendum fram-
leiðanda, og hylkin hjá öðrum
slikum, duftinu pakkað i hylkin
hérlendis og hylkjunum siðan I
sölupakkningar, eða með öðrum
orðum um er að ræða tvöfalda
innlenda pökkun, þegar satt og
rétt er skýrt frá.
Fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Pharmaco h.f. Werner Ras-
musson lyfsali er einarður maður
og hreinskilinn og segir blaða
mönnum blátt áfram, sbr. dagbl.
Timinn 16. des. s.l. að verð fram-
leiðslu Pharmaco h.f. sé of lágt
innlendra verðlagsákvæða vegna,
enda sé svo að erlend (innflutt)
lyf séu 1/3 hluti selds magns en
geri 3/4 hluta söluverðs.
Sverrir Magnússon stjórnar-
formaður man hins vegar ekkert
eftir þvi að hann er umboðsmaður
fyrir Asta, Bayer, Eli Lilly,
Hassle, Lundbeck & Co., Pharma
Rodia og Rousell Laboratories
svo nokkur helztu umboð
Pharmaco h.f. f hópi sérlyfja-
framleiðanda séu nefnd. Hann
hefur alveg gleymt þessu þegar
hann ber sér á brjóst og lýsir
dugnaöi sinum og sinna við að
berjast við vonda erlenda sér-
lyfjaframleiðendur. Eða getur
verið að Sverrir Mgnússon lyfsali
hafi gaukað þvi að stjórnarfor-
manninum Sverri Magnússyni,
að 2. málsgrein 57. greinar lyf-
sölulaga nr. 30 frá 29. april 1963
hljóði svo: „Starfandi læknar
(dýralæknar, tannlæknar)
lyfsalar og aörir starfsmenn
lyfjabúða mega ekki vera
umboðsmenn fyrir erlenda sér-
lyfjaframleiðendur” og að nú hafi
verið hlustað i og utan skaflsins.
Tilviljanir eða
orsakatengsl
Pharmaco h.f. var stofnað 2.
febrúar 1956 og tilkynnt til firma-
skrár 5. april 1956, en hvorki
heyrðist frá 20 ára afmælinu i
febrúar eða april 1976, enda vissi
þá enginn að framkvæmdastjóra-
skipti yrðu i desember, enda var
stuönings að kynningu islenzks
iðnaðar ekki að vænta fyrr en að
hausti, og siðast en ekki sizt, það
var ekki fyrr en i desember sem
islenzka sjónvarpið lét sér detta i
hug að filma nýjar vélar Lyfja-
verzlunar rikisins og skrafa við
fólk um lyfjaframleiöslu og lyf ja-
verð. Það er liklega erfitt aö vera
svo sjálfstæður að menn geti, vilji
og þori, i eigin nafni, á eigin
spýtur, aö eigin frumkvæði.
Aumingja maðurinn
Þessi grein er nokkuð seint á
ferð sé miðað frá Þjóðviljagrein-
inni 17. des. s.l., en ég var lengst
af að vona aö hin tilvitnuöu orð,
væru að verulegu leyti „heila-
spuni” pólitisks blaðamanns, sem
teldi sig þurfa að syngja Magnúsi
Kjartanssyni fyrrverandi ráð-
herra heilbrigöismála lof og dýrð
fyrir að styrkja islenzka
„kapitalista” gegn áþján er-
lendra „kapitalista”, og gæti þá
ekki sem skyldi skynsamlegs hófs
i orðavali né sannreyndi yfir-
lýsingar, sinar eða annarra, en
Sverrir hefur þagað þunnu hljóði
— það er ekki um að villast hann
er enn „að vinna” fyrir fyrir-
greiðslunni.
Það verður ekki i efa dregið, aö
Sverrir Magnússon er með lærð-
ustu lyfjafræðingum landsins og
búðir hans i Hafnarfirði, Hafnar-
borg og Hafnarfjaröarapótek
bera vitni slyngum kaupmanni og
duglegum, og ekki verður honum
vits frýjað. Mér finnst þvi ástæða
til að ætla, að enn geti svo farið að
honum takist úr skaflinum og
undan vaxtaoki fyrirgreiðslunnar
að skriða og vonandi þá litt eða
ekki kalinn.
Reykjavik, i janúar 1977.
: Tafla C
Eengi £/ísl.kr.
Penbritin srrásölu-
ver^ ísl.kr.
.Eanmörk amDÍcillin
hvlki 250 mg
1973 1973 1973 1974 1975 1976
maí nóv. des.
227.40 204.- 196.80 272.90 341.95 316.10
fob.3.82 okt.) fob.4.20
2532.- 2028.- 2028.- 3096.- 3966.- 4165.-
2870.- 2870.- 2870.- 4245.- 6161.- 7150.-
,kr. 1366.65 2021.50 2765.80 3217.-
ampicillin Pharmaco
ísl.kr. 1980.- 1980.
ampicillin Svíbjóð
ísl.kr. 2033.- 2033.
gengi 100.00 S.kr./ísl.kr.
maí)
1671.- 2491.
2512.- 3765.-
2033.- 2935.- 4092.- 4954.-
1903.70 2748.15 3831.85 4524.20
1 , |Tafla D hylki 5 00 mg
1973 1973 1973 1974 1975 1976
'maí nov. des.
gengi £/ísl.kr. 227.40 204.00 196.80 272.90 341.95 316.10
Penbritin smásölu- fob.5.98 okt.) fob.6.57
verð ísl.kr. 3727.- 3169.- 3169.- 4845.- 6204.- 6519.-
Danmörk ampicillin
smásöluverð ísl.kr. 5087.- 5087.- 5087.- 7512,- 10.877.- 12.651.-
gengi D.kr. 100.00/ísl.kr. 1366.65 2021.50 2765.80 3217.00
ampicillin Pharmaco
mai;
smásöluverð 3495.- ^jf95.- 2651.- 4470.- 4507.- 6100.-
ampicillin Svíþjóð
smásöluverð 3524.- 3524.- 3524.- 5085.- 7093.- 8591.-
gengi 100.00 S.kr./ísl.kr. 1903.70 2748.15 3831.- 4525.20
Tafla E
Penbritin frá nóv. rf72 til nóvember "76 hækkun 71.1%
ampicillin Pharmaco frá des. "72 'til maí "76 hækkun 87.7%
|!Ta.fla._p Penbritin frá nóv. "72 til nóvember "76 hækkun 71.4%
ampicillin Pharmaco frá des. "72 til maí "76 hækkun 91.7%
Tafla F 1969 1972 1973 1974 1975 1976
Heildsöluálagning sérlyfj a 12.8% 18.0% 13.0% 16.0% 17.1% 17.1%
smásöluálagning
sérlyfja g 4 3.0% 60.0% 56.5% 67.6% 75.3% 75.3%
an Reykjavikurþéttbýlis, þar
náigast hlutfall ofaglærðra
sums staðar 50%. Háu hlutfalli
öfaglærðra fylgja tfð kennara-
skipti, og fer ekki hjá þvi að
þetta ástand bitni á undirstöðu-
menntun nemenda og náms-
gengi þeirra i nútið og framtið”.
Þannig segir i álitsgerð, sem
unnin var af sameiginlegum
starfshópum nemenda og kenn-
ara við Kennaraháskóla Islands
og samþykktar á fundi
Kennarafélags KHl 11. þ.m. og
á fundi nemendaráðs sama
skóla 13. þ.m.
Tildrög þessa máls eru þau,
að á fundi, sem haldinn var á
vegum Kennarafélags KHl 13.
nóvember s.l. var samþykkt að
verja mánudeginum 15. nóvem-
ber til að ræða um kjör og
starfsskilyrði kennara og ann-
arra opinberra starfsmanna
Nemendum var boðin þátttaka i
þessum umræðum, og voru unn-
ar þrjár álitsgerðir. 1 fyrsta
lagi um stöðu og hlutverk kenn-
ara i grunnskóla, I öðru lagi um
starfsaðstöðu við Kennarahá-
skóla Islands og i þriðja lagi um
námslán.
Tilvitnun hér að framan er úr
fyrstu álitsgerðinni og segir þar
jafnframt:
„Ljóst er, að skortur á fag-
lærðum kennurum stafar ekki
af þvi að svo fáir hafi aflað sér
kennaramenntunar undanfarin
ár. Skv. könnun, sem gerð var
af starfsmanni menntamála-.
ráðuneytis sl. haust hafa aðeins
um 55% þeirra, sem útskrifazt
hafa með almennt kennarapróf
á sl. tiu árum, ráðizt tii kennslu-
starfa. Ekki er vafi á að hrakleg
launakjör kennara eiga drýgst-
an þátt i því, að kennaramennt-
að fólk hefur i stórum stil leiðzt
inn á aðrar starfsbrautir en
kennslu. Þessar staðreyndir
leiða hugann að þvi, sem verður
að teljast undirrót þessa ó-
fremdarástand, þ.e. vanmati
stjórnvalda og almennings á
hlutverki kennara”.
1 álitsgerðinni er fjallað um
nauðsyn þess, að grunnskóla-
kennarar sameinist i ein heild-
arsamtök og hvaða verkefni
biða þeirra samtaka. Siðan seg-
ir:
,,Ef firra á þjóðina stórvand-
ræðum i skólamálum mega
stjórnvöld þau, sem fara með
menntamál og fjármál, einskis
láta ófreistað til að ráða bót á
rikjandi ástandi.
1 þessu sambandi eru eftir-
talin úrlausnarefni brýnust:
1. Efla þarf KHl sem þunga-
miðju almennrar kennara-
menntunar i landinu og endur-
menntunar kennara.
2. Gera þarf kennarastarf i
grunnskóla svo eftirsóknarvert,
með tilliti til launa og allrar
starfsaðstöðu, að fólk með
kennaramenntun beri sig eftir
lausum stöðum. Er vandséð að
stjórnvöld komist hjá því að
beita I þessu skyni þeim ráðum,
sem tiltæk eru og þjóna yfirlýst-
um markmiðum löggjafans.
3. Samræma þarf kröfur um
menntun kennara i hinum ýmsu
kennsiugreinum grunnskóla,
hvort sem þær eru bóklegar eöa
verklegar. Það eitt samrýmist
þvi markmiði grunnskóla að
stuðla beri að „alhliða þroska,
heilbrigði og menntun hvers og
eins”.
4. Gera þarf skipulega áætlun
um menntun réttindalausra
manna, sem fengizt hafa við
kennslustörf, Margir þeirra ’
hafa starfað árum saman og
öðlazt mikla starfsreynslu.
Virðist eðlilegt að taka tillit til
hennar þegar kveðið verður á
um lengd námstima. Ihuga þarf
og vandlega leiðir til að styrkja
þessa einstaklinga til náms”.
Affit af álitsgerðum kennara
og nemenda við KHl hafa verið
send fjármálaráðuneytinu, öll-
um aiþingismönnum og sér-
samböndum innan kennara-
stéttarinnar, auk fjölmiöla.
Útungunarvél
Útungunarvél óskast.
Tilboð sendist Tíman-
um fyrir 20. janúar
merkt Útungunarvél
1961.