Tíminn - 18.01.1977, Síða 9

Tíminn - 18.01.1977, Síða 9
Þriðjudagur 18. janúar 1977. 9 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Augiýsingastjóri: Steingrfmur Gislason.Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargötu, símar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aöal- stræti 7, simi 26500 — afgreiðslusímí 12323 — auglýsinga- slmi 19523. Verð I lausasölu kr. 60.00. Askriftargjald kr. 1.100.00 á mánuði. Blaðaprenth.f., Rógsherferðin gegn Einari Ágústssyni Rétt ár er nú liðið siðan hafin var einstæð rógs- herferð gegn ólafi Jóhannessyni dómsmálaráð- herra og var uppistaða hennar dylgjur um, að hann hefði hindrað rannsókn Geirfinnsmálsins svonefnda af annarlegum ástæðum. Þessari árás hefur verið hrundið og stendur dóms- málaráðherra sterkari eftir en áður. En róg- burðarmennirnir hafa samt ekki gefizt upp. Ný rógsherferð er hafin, og henni er stefnt gegn Ein- ari Ágústssyni utanrikisráðherra. Rógburðar- mennirnir vita, að Einar Ágústsson nýtur mikillar og verðskuldaðrar viðurkenningar vegna fram- göngu hans i landhelgismálinu, sem var ekki að- eins þjóðinni til sóma, heldur átti góðan þátt i hin- um eftirminnilega sigri, sem vannst með Oslóar- samningnum. Þess vegna skal nú reynt að hamla gegn þessum vinsældum hans og koma höggi á hann og flokk hans um leið.. Þess varð fljótt vart eftir að Oslóarsamningur- inn var gerður, að vissir rógburðarmenn beindu vopnum sinum sérstaklega að Einari Ágústssyni. Þetta kom m.a. berlega i ljós i viðtali, sem Einar Ágústsson átti við einn af blaðamönnum Þjóðvilj- ans, sem birtist i blaðinu 25. september siðastl. Viðtal þetta snerist um húsbyggingarlán, sem Einar Ágústsson hafði fengið i Landsbankanum. Blaðamaðurinn segir þar frá þvi, að sú saga sé á kreiki, að Einar hafi sem bankastjóri átt óeðlileg skipti við bilstjóra, sem gengi undir nafninu Batti rauði, og siðan hafi haldizt fjármálaleg tengsl milli þeirra og m.a. af þeim ástæðum hafi Einar verið orðaður við ávisanahring, sem mjög er á dagskrá um þessar mundir. í framhaldi af þessu spyr blaðamaður svo spurningar, sem Einar svar- ar itarlega. Söguburðinum er eigi að siður haldið áfram. Það gerist svo rétt fyrir jólin, að umræddur bilstjóri er handtekinn með sérstökum hætti og mál hafið gegn honum. Þvi er haldið fram, að hann hafi gert sig sekan um ýmsa fjármálalega glæpi, en þó er það ekki gert að aðalatriði, heldur hitt, að hann hafi notið hjálpar og verndar valdamanna. Jafnframt er svo látið kvisast út, að hér sé fyrst og fremst átt við utanrikisráðherra. í siðustu viku þykjast höfundarnir svo leggja fram sönnunar- gögnin um hin óeðlilegu tengsl ráðherrans og bil- stjórans. Það er upplýst, að bilstjórinn hafi farið á fund ráðherrans og beðið hann að hlutast til um, að frestað yrði fullnægingu fangelsisdóms ákveðins manns um nokkra daga vegna erfiðra ástæðna hans. Ráðherrann ræðir svo við viðkomandi yfir- vald um frestun i tvo daga, en af þvi mun ekki hafa orðið. Það er flestum kunnugt, að ráðherrar hafa við- talstima, þar sem menn geta komið og koma með alls konar kvartanir, og mun þess ekki dæmi, að þar sé farið i manngreinarálit. Ráðherrar reyna svo að bregðast við og veita mönnum úrlausnir eftir þvi hvemig málavextir eru. í umræddu tilfelli taldi utanrikisráðherra eðlilegt, að tveggja daga frestur yrði veittur og fór fram á það, en slikt er ekki óvenjulegt, þegar sérstakar erfiðar ástæður þykja fyrir hendi. Það er gott dæmi þess, hvernig reynt er að koma Einari Agústssyni á hné, þegar lagzt er svo lágt að nota tilfelli eins og þetta honum til dómsfellingar. Vafalaust sjá lika rógburðarmennimir, að þeir þurfa að gera betur, ef tilgangur þeirra á að nást. Þjóðin getur átt von á ófögrum vinnuaðferðum næstu vikur eða mánuði, en vinir og samherjar Einars Ágústssonar óttast ekki leikslokin. í BYRJUN slöustu viku lagði samsteypustjórn borg- aralegu flokkanna 1 Sviþjóö fram fyrsta frumvarp sitt. Frumvarpið þykir bera þess svip, að ekki hafi orðiö mikil stefnubreyting viö stjórnar- skiptin. 1 stórum dráttum einkennist það af sömu megin- stefnu og fráfarandi stjórn Sósialdemókrata fylgdi. Megináherzla er lögð á að tryggja atvinnuöryggiö og óbreytta félagslega samhjálp. Þess vegna er gert ráð fyrir verulegum halla á fjárlaga- frumvarpinu. Tekjurnar eru áætlaöar 109.3 milljaröar sænskra króna, en útgjöldin 125 milljarðar. Þaö erþví gert ráð fyrir hvorki meira né minna en 15.7 milljarða tekju- halla og hefur hann aldrei verið áætlaður meiri. A fjár- lögum yfirstandandi árs eru tekjurnar 101.9 milljarðar, út- gjöldin 116.2 milljarðar og tekjuhallinn 14.4 milljarðar sænskra króna. Eins og vænta mátti, deila Sósialdemókratar mjög hart á fjárlagafrumvarpið og telja ekki gætt nægilegs sparnaðar og þvi verði tekjuhallinn alltof mikill. Þessi gagnrýni fær þó vart mikinn hljómgrunn, þegar þess er gætt, að raun- verulega fylgir stjórnin stefnu fyrirrennara sinna og leggur megináherszlu á sömu megin- atriði og þeir, þ.e. atvinnu- öryggi og félagslega samhjálp. Stjórnin segirvafa- laust réttilega, að þaö myndi leiða til atvinnuleysis, ef grip- ið væri til frekari samdráttar. Það sjónarmið hefur framar öðru mótað fjárlagafrum- varpið. VART verður sagt, að veru- legar nýjungar sé að finna i frumvarpinu, enda segir Ingi- mar Mundebo fjármálaráð- herra, sem er úr Frjálslynda flokknum, að litill timi hafi gefizt til breytinga að þessu sinni. Meöal nýjunga má telja það, aö aukin aöstoð er veitt minni fyrirtækjum og eins þeim atvinnugreinum, sem eru taldar standa höllustum fæti. Þetta er gert til að tryggja atvinnuöryggið og til að koma i veg fyrir, að at- vinnureksturinn færist um of i hendur stórfyrirtækja. Þá eru gerða r ráðstafanir til þess, að þegar barn fæðist, geti annað foreldranna fengið orlof I sjö mánuði og stefnt er að þvi, aö þetta orlof lengisti niu mánuði innan tveggja ára. Þetta er gert til að tryggja betri umönnun ungbarna. Jafn- framt er stefnt að auknu átaki 1 byggingu barnaheimila. Tekjuskattur á einstaklingum er nokkuö lækkaöur. EIli- og örorkulifey rir hækka. Framlög til baráttu gegn fikniefnum eru aukin sérstak- lega, en óleyfileg verzlun með þau eyk?t nú Iskyggilega I Sviþjóö eins og vlðar. Til að vega á móti útgjaldahækkun- ununum eru ýmsar álögur hækkaöar, en mest hækka þó skattar á bifreiðum. Raf- magnsverö hækkar talsvert, þá hækka skattar á áfengi og tóbaki. Sjónvarpsgjöld hækka verulega. Þannig hækkar af-, notagjald á litasjónvarpstæki úr 320 krónum i 400, og á svart- hvltum sjónvarpstækjum úr 220 1 280, allt talið i sænskum krónum. JAFNFRAMT fjárlaga- frumvarpinu var lögð fram þjóðhagsáætlun og féll það i hlut Gösta Bohmans efna- hagsmálaráðherra að gera Ingemar Mundebo fjármálaráðherra grein fyrir henni, en hann er formaður Ihaldsflokksins. Aætlunin ber þaö meö sér, að efnahagsstaða Svia er á margan hátt erfið. Verð á sænskum iðnaðarvörum hefur hækkað all miklu meira siöustu árin en á sambæri- legum iönaöarvörum, sem eru framleiddar I löndum Efna- hagsbandalagsins. Einna erfiðust er samkeppnin við Vestur-Þjóðverja, sem stafar m.a. af þvi, að laun eru um 20% hærri i Sviþjóð en I Vestur-Þýzkalandi. Sviar hafa pvi fariö heldur halloka á ýmsum erlendum mörkuöum siðustu tvö árin. Þvi hefur orð- ið verulegur halli á utanríkis- viðskiptum Svia siðustu tvö árin eða um 7 milljarðar sænskra króna 1975, og I ár er hann áætlaður 11 milljarðar. Reiknað er með, að erlendar lántökur nemi milli 16-18 milljörðum sænskra króna á árinu 1977. Verðbólgan nam um 10% á árinu 1976, en stjórnin stefnir að þvi, að hún verði 5-6% á þessu ári. Aherzla er lögð á það i þjóöhagsáætluninni, að þetta geti þó þvi aöeins orðiö, að launþegar gæti hófs I kröf- um sinum, en framundan eru nú meiri háttar kjarasamn- ingar i Sviþjóð. Sósialdemó- kratar ráða i verkalýöshreyf- ingunni, og mun þvi nú veitt sérstök athygli, hvort þeir gæta nú sama hófs og þeir geröu meöan þeir fóru meö rikisstjórnina. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Fjármálastefnan er óbreytt hjá Svíum Aðaláherzla lögð á atvinnuöryggið Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.