Tíminn - 09.02.1977, Síða 15
MiOvikudagur 9. febrúar 1977.
15
Framleiðslukostnaður
minnstur í mesta vot-
heysverkunarhéraðinu
JH-iteykjavik. — Þaö er*rétt
— ég hef látið svo um mælt, að
ég gæti nærri þvi flett upp i
kaupfélagsreikningunum og
dæint af þeim, hvaða bændur
ekki verka vothey að ráði,
sagði Jón Alfreðsson, kaupfé-
lagsstjóri á Hólmavfk, við
Timann. Það eru auðvitað
undantekningar á báða bóga,
en i stórum dráttum er það
svo, að reikningarnir bera
með sér, hvernig heyverkun-
inni er varið.
Þaö eru þó ekki nema fáir
bændur hér um slóðir, er ekki
leggja hina mestu rækt við
votheysverkun, og það mun
lika vera rétt, að hér er til-
kostnaður bænda á hverja
frainleiðslueiningu minni en i
öðrum héruðum landsins.
Þetta getur varla stafað af
þvi, að hér sé svo miklu betra
undir bú en annars staðar, og
ekki er það heldur af þvi að
hér séu stórbú. Búin eru yfir-
leitt litil á þann mælikvarða,
sem nú er á slikt lagður. En
afurðireru viðast mjög góðar,
og má geta þess, að meðalvigt
dilkaskrokka i sláturhúsinu
eru yfir sextán kilógrömm, en
þó mun sem næst 70% slátur-
dilka vera tvilembingar.
Vafalaust á votheysverkun-
in mikinn þátt i þvi, aö fram-
leiöslukostnaöur verður lágur
á hverja framleiðslueiningu,
þótt kjarnmiklir sumarhagar
stuðli lika að þvi, að lömbin
eru væn. Votheysverkuninni
fylgir að minnsta kosti þrennt,
auk þess að hún eykur afurðir
og dregur úr kostnaði: Betri
fóðrun en fæst meö þurrheys-
gjöf, minni fóðurbætisþörf og
minni vélaþörf.
0 Fischer
innar” með endurkomu
Fiscbers og Spasskys hingaö
til lands, vill það með þessu
gera sitt til þess að fá Fischer
fram á sjónarsviöið á ný, þó
ekki sé nú talað um skáksvið-
ið, segir i frétt frá S.í.
Þess má geta að lokum, að
systir Fischers og mágur áttu
stutta viðdvöl hér á landi á
siðasta ári og höfðu þá sam-
band við Sæmund Pálsson.
Boris Spassky, fyrrverandi
heimsmeistari hefur titkynnt
Skáksambandinu að hann
muni kema hingaö til lands 20.
febrúar eg f fylgd með honum
veröur Marina kona hans. Þau
hjón eru nú búsett I Frakk-
landi, en Spassky er við þjálf-
un og undirbúning i Þýzka-
landi, og hefur m.a. undanfar-
ið þreytt æfingaeinvigi við
bandarfska stórmeistarann
Kavalek.
Vasily Smyslov, fyrrum
heimsmeistari, sem verður
aðstoðarmaöur Spasskys á
mótinu hér við Hort, mun
væntanlegur til landsins frá
Moskvu um svipað leyti og
Spassky ásamt eiginkonu
sinni.
Ekki hefur Skáksamband-
SKIPAUTGCRÐ RÍKISINS
M/s Hekla
fer frá Reykjavík þriöju-
daginn 15. þ.m. austur um
land i hringferö.
Vörumóttaka
fimmtudag, föstudag og til há-
degis á mánudag til Vest-
mannaeyja, Austfjarðahafna,
Þórshafnar, Raufarhaf nar,
Húsavikur og Akureyrar.
inu borizt tilkynning frá
Vlastimil Hort um aðstoöar-
mann hans, né hvenær þeirra
tvegg ja sé von. Hort hafði ósk-
aö eftir þvi, að einvigið hæfist
viku fyrr en áætlað var, en
stjórn Skáksambandsins sá
sér ekki fært að verða við
þeim tilmælum vegna hins
skamma undirbúningstima og
hefur FIDE tilkynnt Hort þá
ákvörðun.
Forráöamenn áskorenda-
einvigisins milli Mecking og
Pokigajevskys sem fram fer I
Luzerne, hafa mælzt til þess,
að skipzt verði á leikjum frá
þessum tveimur einvigjum og
þeir sendirum telex, og er það
mál á athugunarstigi. Gæti
jafnvel svo farið, að samning-
ar tækjust milli þeirra fjög-
urra aöila, er standa að áskor-
endamótunum, um að skiptast
á leikjum.
Einvigi Horts og Spasskys
hefst 27. fáirúar á Hótel Loft-
leiðum. Yfirdómari verður
Guðmundur Arnlaugsson og
Gunnar Gunnarsson aðstoðar-
dómari, en hann hlaut nýlega
viðurkenningu FIDE sem al-
þjóðadómari.
0 Aflinn
107,2, Sigurvon 105,7, ólafur Frið-
bertsson 97,8.
BOLUNGARVÍK: Dagrún tv.
262,7 lestir, Guðmundur Péturs
116,0, Hugrún 91,6, Sólrún 31,1,
Kristján 28,4, Sævar 20,5.
SKIPAUTGCRe RIKISINS
m/s Baldur
fer frá Reykjavlk fimmtu-
daginn 10. þ.m. til Breiða-
fjarðarhafna.
Vörumóttaka
til hádegis á fimmtudag.
ISAFJÖRÐUR: Guðbjörg tv.
293,6 lestir, Július Geirmundsson
tv. 283,8, Páll Pálsson tv. 220,6,
Guðbjartur tv. 137,3, Orri 114,8,
Víkingur III 99,6, Guðný 56,3.
SOÐAVÍK: Bessi 301,6 lestir.
Framanritaðar aflatölur eru
miöaðar við óslægðan fisk.
Aflinn I hverri verstöð f janúar
1977 og 1976.
Patreksfjörður 1.107 lestir (992
lestir), Tátknafjörður 311 lestir
(448 lestir), Bfldudalur 125 lestir
(0), Þingeyri 339 lestir (316 lest-
ir), Flateyri500 lestir (386 lestir)
Suöureyri 460 lestir (648 lestir)
Bolungarvlk553 lestir (945 lestir),
tsafjörður 1.206 lestir (2.006 lest-
ir) Súðavflc302 lestir (420 lestir),
Samtals i janúar sl. 4.903 lestir og
I fyrra 6.161 lestir.
O Stórátak
tók i sama streng og bætti þvi við,
að fyrstu æfingarnar sem boðað
hefði veriö á, heföu verið á mjög
svo óheppilegum tima — eöa kl.
22 á föstudagskvöidi og siöan á
sunnudagsmorgni kl. 9.30. i Hafn-
arfirði. Björg sagði að það væri
ekki beint heppilegur tlmi fyrir
þær stúlkur, sem ættu heima i
Reykjavik. Þá benti Björg á, að
Fram-liðiö hafði verið i keppnis-
ferö á Akureyri, á sama tima og
æfingarnar voru.
Þá kom þaö fram, aö eftir þess-
ar tvær æfingar heföi landsliðs-
nefndin ákveöið að útiloka eldri
stúlkurnar frá landsliöinu og þar
með að sundra þeim iandsliðs-
kjarna, sem fyrir var. Stúlkurnar
spurðu hvort þetta væri rétt
stefna, að skella hurðinni á þær
landsliðskonur, sem hefðu ekki
getað mætt á þessar æfingar — og
útiloka þær frá landsliöinu ævi-
langt. Þær bentu á aö aðeins 5-6
landsliðsmenn i karlalandsliðinu
hefðu um langan tima, mætt á æf-
ingar. — Voru þá sett aldurstak-
mörk? spurðu þær.
Þaö kom margt i ljós á fundin-
um i gærkvöldi — og eftir að hafa
hlustaö á okkar beztu handknatt-
leiksstúlkur bera fram kvartanir
Bændafundur d Snæfellsnesi
Rekstrarvörur á
að greiða niður
— ef halda d verðlagi til
neytenda niðri
Sunnudaginn 6. feb. gekkst
Búnaðarsamband Snæfellinga
fyrir almennum bændafundi á
Breiðabliki i Miklaholtshreppi.
Fundarefniö var kjaramálin,
lánamál og afuröasaían. Frum-
mælendur á fundinum voru þeir
Gunnar Guðbjartsson formaður
stéttarsambandsins, Ólafur
Sverrisson kaupfélagsstjóri og
Agnar Guðnason blaöafulltrúi.
Fundarstjóri var Páll Pálsson á
Borg og fundarritari Erlendur
Halldórsson I Dal. A fundinum
mættu um 80 manns.
Eftirfarandi tillögur voru sam-
þykktar á fundinum:
1. Endurskoða þarf afurðasölu-
lögin sem nú gilda og færa þau i
það horf að samtök bænda geti
samið beint við rikisvaldið og
bændum verði tryggðar tekjur
sambærilegar við aörar stéttir.
2. Hækka þarf afuröa- og
rekstrarián til landbúnaðarins
svo hægt verði að greiða út til
framieiðenda a.m.k. 92% af
grundvallarverði við móttöku.
3. Telji rikisvaldið nauðsynlegt
að halda verði á landbúnaðar-
vörum niðri til neytanda veröi
það gert á fyrsta stigi fram-
leiöslunnar en ekki á lokastigi.
Felldur verði niður söiuskattur
á öllum landbúnaðarvörum.
4. Lækkaöir verði vextir á stofn-
lánum og veðdeildarlánum til
landbúnaðarins og felld verði
niöur verðtrygging þeirra.
Jafnframt veröi Stofnlánadeild
tryggt nægilegt fjármagn eftir
öðrum leiðum.
5. Felldir verði niöur allir tollar
og yfirfærslugjald (vörugjald)
af vélum og verkfærum til
landbúnaðarins.
6. Aö ekki verði hvikaö frá þeirri
stefnu að tryggja útflutning bú-
vöru með greiðslu útflutnings-
bóta, svo sem lög heimila.
7. Að bændum verði séö fyrir
ódýrri raforku til fóðurverkun-
ar i þvi skyni að draga úr notk-
un innflutts kjarnfóðurs.
8. Fundurinn varar háttvirt Al-
þingi við þvi aö samþykkja
framkomið skattalagafrum-
varp vegna þeirra stórfelldu
ágalla sem á þvi eru.
9. Fundurinn telur óeðlilegt aö
stjórnvöld beiti verðstöðvunar-
lögum þannig að drátturverði á
framkvæmd umsaminna verð-
hækkana búvara vegna
kostnaðarauka við framleiðsl-
una, en slikur dráttur veldur
kauplækkun bænda.
sinar, þá er greinilegt að viða er
pottur brotinn i sambandi við
kvennahandknattleik. Þaö er
greinilegt aö stjórn H.S.I. þarf aö
gera stórátak fljótlega, til að
reyna aö rétta við kvennahand-
knattleikinn.
Til sölu
er 21 hestafla Massey
Ferguson snjósleöi.
Uppl. í síma (96) 2-23-
36.
Atþýðuflokksins hangið á blá-
þræði um aö vera til eöa ekki
til- I siöustu alþingiskosning-
um fékk flokkurinn aðeins
einn þingmann kosinn, en til
viðbótar reiknuðust honum
fjórir uppbótarþingmenn.
Vegna eigin aðgerða hefur
fiokkurinn glatað trausti
þjdðarinnar.”
— a.þ.
Auglýsið í Tímanum
V
O Víðavangur
Alþýöuflokksmönnum sjálf-
um. Hitt er ljóst, aö þau geta
ekki orðið Alþýðufiokknum á
neinn hátt til framdráttar,
heldur miklu fremur til að
draga mjög verulega úr fylgi
hans mebal þjóðarinnar, sem
að visu er litið fyrir.
í mörg ár hcfur lif
( Verzlun €? Þjónusta )
'*/Æ/Æ/Æ/ÆJr/A
JÆ'Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/j^
LOFTPRESSUR OG SPRENGINGAR i 5
Tökum að okkur alla loftpressuvinnu, z
borun og sprengingar. Fleygun, múr- 5 2
brot oa röralaanir. 5 2
2 2
2 2
* 5
r/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/^ f/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/^
brot og röralagnir.
Þórður Sigurðsson — Sími 5-38-71
i i Blómaskreytingar i
pipulagnmgameistari i 5 .« .... ,
símar 4 40 94 & 2-67-48 J J viö oll tækifæri
Viðgeröír Breyt*n9ar f f M°CHELSEN. f
^ ^ Hveragerði • Simi 99-4225
I
ir/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆÆ/Æ/Æ/r/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/já ^/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/já ^r/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/4
Vandlátir blECk
v veli° jack
f.;
Þessar frábæru
snyrtivörur fást í öllum helztu
verzlunum landsins
Efnaverksmiðjan Atlas h.f.
Sími 2-70-33