Tíminn - 15.02.1977, Síða 13

Tíminn - 15.02.1977, Síða 13
Þriöjudagur 15. febrúar 1977 13 14.30 Þeim var hjálpaö Sæmundur G. Jóhannesson ritstjóri á Akureyri flytur erindi. 15.00 Miödegistónleikar Sinfóniuhljómsveitin i Chi- cago leikur Sinfónisk til- brigöi eftir Hindemith um stef eftir Weber, Rafael Kubelik stjórnar. Konung- lega filharmoniusveitin I Lundúnum leikur „Flórida”, hljómsveitar- svitu eftir Delius, Sir Thomas Beecham stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Popphorn. 17.30 Litli barnatiminn Finn- borg Scheving stjórnar tlmanum. 17.50 A hvitum reitum og svörtum. Guðmundur Arn- laugsson flytur skákþátt. 18.20 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir, Fréttaauki Tilkynningar. 19.35 Vinnumál Arnmundur Backman og Gunnar Eydal lögfræðingar stjórna þætti um lög og rétt á vinnumark- aði. 20.00 Lög unga fólksins Asta R. Jóhannesdóttir kynnir. 20.50 Aö skoöa og skilgreina Kristján E. Guðmundsson og Erlendur S. Baldursson sjá um þátt fyrir unglinga. 21.30 Ungverskurkonsert fyrir fiðlu og hljómsveit op. 11 eftir Josep Joachim Aaron Rosand og Sinfóniuhljóm- sveit útvarpsins i Lúxem- borg leika: Siegfried Köhler stjórnar. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (8) Kvöld- sagan: „Siöustu ár Thor- valdsens” Endurminningar einkaþjóns hans, Carls Frederiks Wilkens. Björn Th. Björnsson les þýðingu sina (7). 22.45 Harmonikulög Hljóm- sveit Karls Grönstedts leikur. 23.00 ■ A hljóðbergi „Morð i dómkirkjunni” — „Murder in the Catherdral” eftir T.S. Eliot. Robert Donat og leik- arar The Old Vic Company flytja Leikstjóri: Robert Helpman — Sfflari hluti. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Þriðjudagur 15. febrúar 20.00 Fréttir og veöur. 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Ugla sat á kvisti Siöari hluti skemmtiþáttar, sem helgaður er gamanvisna- söngvurum og hermikrák- um, sem verið hafa fólki til skemmtunar á liðnum ár- um. Meðal gesta i þættinum eru Arni Tryggvason, Jón B. Gunnlaugsson, Karl Einarsson og ómar Ragnarsson. Umsjónar- maöur Jónas R. Jónsson. Aöur á dagskrá 18. maí 1974. 21.15 Skattapóiitik Forvigis- mönnum stjómmálaflokk- anna boðið i sjónvarpssal til umræðu um skattalaga- frumvarpið og skattamálin I heild. Umræðum stýrir Clafur Ragnarsson ritstjóri. 22.05 ColditzNýr, bandariskur framhaldsmyndaflokkur I 15 þáttum um hinar ill- ræmdu Colditzfangabúöir en þangað sendu nasistar þá striðsfanga, sem reynt höföu að flýja úr öðrum fangabúöum. Mynda- flokkurinn lýsir m.a. lifinu I fangabúðunum og flóttatil- raunum fanganna. Aðal- hlutverk Robert Wagner, David McCallum, Edward Hardwicke og Christop Neame. Þýöandi Jón Hior Haraldsson. 22.55 Dagskrárlok indamaður og verðið því að kenna oss. og svaraði: „Ég er ekki neitt, ég ræddi um trúmál, til að hafa ofan af fyrir yður. Ég vissi svo sem að ég mundi segja eitt- hvað heimskulegt. En þér höfðuð verk í fótleggnum og ég gerði mér vonir um að skemmta yður......" „Jæja, Kata, við skulum þá gleyma þessu, við erum vinir eins og áður." Hinrik var of slægvitur til að trúa á undanlátssemi Katrínar, en honum hafði tekizt að koma inn hjá henni viðeigandi þrælsótta. Hann vissi, að nú hafði hann lokað munni hennar svo duga mundi, þess vegna bar hann eng- an kala til hennar framar. Heilsu hans hrakaði stöðugt. Katrín þekkti alla hans leyndustu kvilla og duttlunga- Hinrik ætlaði ekki að gera Gardiner það til geðs, að skipta um hjúkrunarkonu, eða leyfa honum að svipta sig vini. Þegar konungshjónin höfðu lokið samtali sínu, fóru þau saman í göngutúr út í garðinn. Hinrik studdist þung- lamalega við arm Katrínar, þá birtist Risley allt í einu, með eina sex varðmenn með sér. Risley nálgaðist þau, hann var afar alvarlegur á svip. Hinrik var búinn að gleyma hlutverki Risleys. Konungur varð svo reiður, að honum lá við köfnun, hann úthúðaði Risley og kallaði hann þorpara og 'fífl. Að öllum líkindum hefði Hinrik barið Risley, eins og hann var vanur að berja Cromwell, ef hann hefði haft þrek til þess. Risley varð furðu lost- inn, en tókst að þegja og þola móðganirnar. Dauðinn. Þetta sumar var Hinrik heldur hress, Katrín hjúkraði honum af stakri þolinmæði og næstum of mikilli um- hyggju. Hún var orðin þrjátíu og f jögra ára og ekki gat hún beðið í það óendanlega. Um haustið virtist Hinrik stórhraka. Hann var að vísu aðeins fimmtíu og fimm ára, en hann var að deyja, vegna spiks og ofáts, blóðrás- in mæddi mjög á heilann. Hann gat ekki lengur hreyft sig, það var búið að gera honum hjólastól, svo hann kæmist á milli herbergja. Svo fékk hann lömun í hand- legginn, þá gat hann ekki lengur skrifað nafnið sitt, en enginn fékk umboðtil að skrifa undir fyrir hann, því enn ætlaði hann sér að vera allsráðandi. Konungur lét gera merki, sem þrem skrifurum var fengið til varðveizlu, þeir máttu aðeins líma merkið á, í viðurvist konungs og þeirra allra þriggja. Hinrik gerðist nú gleyminn og hugsun hans varð óskýr. Eftir því hafði Katrín beðið. Hún vissi vel, að strax og hann væri allur mundu Howardarnir reyna að reka Sey- mourana af höndum sér og taka í sína vörzlu bæði unga konunginn og ríkisstjórnina f yrir litla prinsinn. Því gekk Katrín i lið með Cranmer og Seymourunum til að eyði- leggja Howardana. Þetta fólksagði Hinrik, aö hinn ungi Surrey ætlaði sér að kvænast Maríu, og mundi vafalftið myrða Edward prins. Þau sökuðu Gardiner um að vera i vitorði með Howördunum. Hinn tólfta desember, kölluðu ráðherrarnir þá Gardiner og Surrey fyrir ríkisráðið og létu þá svara til saka. Gardiner hafði séð óveðrið fyrir, og hafði því tek- izt að ávinna sér hylli konungs, en Surrey var látinn í Tower sakaður um að hafa notað hið konunglega skjald- armerki. Howard var einnig hnepptur í varðhald, en hon- um tókst að verja sig, vegna þess að hann var kænni en sonurinn. Um tuttugasta desember urðu þau Katrín og Seymour- bræðurnir hrædd um að spilið væri tapað. Þá f ékk Hinrik annað slagtilfelli, og þau óttuðust að hann dæi, áður en hann léti drepa Howardana. En konungi var hjúkrað af alúð og hann hresstist einu sinni enn. Á jóladag leið hon- um greinilega betur og næsta morgun lögðu þau fyrir hann lagafrumvarpið, sem hann hafði áður samið, um stjórn ríkisins. Þau fengu konung til að útiloka frá ríkis- stjórn þá Howard, Gardiner og einn kaþólskan ráðherra aðauki. Þau útbjuggu einnig nýja erfðaskrá sem þau af- hentu konungi til undirskriftar nokkrum dögum seinna. í erfðaskránni ánafnaði Hinrik Edward hásætiðeftir sinn dag, síðan skyldi María taka við og þá Elísabet en í erfðaskránni neitaði konungur að viðurkenna nokkurn rétt til ensku krúnunnar, til handa systurdóttur sinni, Maríu litlu Stuart, Skotadrottningu. Bati Hinriks entist út allan janúarmánúð, og allan þann tíma reyndu þau Katrín, Cranmer og Seymour- bræðurnir að fá flýtt réttarhöldunum yfir Howördunum. Surrey sat í Tower og fágaði síðustu kvæði sín, en How- ard sárbað Hinrik um miskunn, hann taldi upp f yrir kon- ungi allt það, sem hann hafði unnið í hans þágu og bauð honum aleigu sína. Howard-feðgarnir voru ekki yfir- heyrðir sameiginlega. Hinn nítjánda janúar var Surrey leiddur fyrir almennan dómstól, þrátt fyrir konunga- blóðið sem rann í æðum hans. Rétturinn lýsti yf ir því, að Surrey hefði sótzt eftir að komast í hásætið og dæmdi hann til dauða. En það var í þingsölunum, sem Cranmer og Seymour- arnir og allt hið konunglega hjukrunarlið, sem hafði haldið Hinrik innan veggja, heimtaði höfuð Howards. Hinn tuttugasta og fjórða janúar dæmdu báðar þing- deildir Howard til dauða, án þess að gefa honum kost á að verja sig. Og tuttugasta og fimmta janúar steig Surrey upp á aftökupallinn og lagði hið langa og skrýtna höfuð sitt á höggstokkinn. Samkvæmt hefðbundnum vana varð að fresta aftöku Howards, þar til eftir að þingi yrði slitið, en hinn tuttug- asta og sjötta fékk Hinrik enn’eitt slagtilfelli. Þá héldu Katrín og Seymourarnir að konungur væri að ganga þeim úr greipum. Þau létu því ekki dragast að senda af stað aftökuskipan, sem þau staðhæfðu að Hinrik hefði undirritað. Hinrik lá í risastóru rúmi sínu, í herbergi með þungum veggtjöldum, þennan dimma janúarmorgun og dauðinn var á næsta leiti. Katrín sat hjá honum, enn var kon- ungur með ráði og rænu, hann horfði á skuggana. Um kvöldið sögðu læknarnir, að komið væri að endalokunum og nú mætti ekki dragast lengur að segja konungi sannleikann, svo hann gæti snúið huga sín- um til Guðs. Hefðarmaður nokkur gekk að hvílunni og framkvæmdi þessa skyldu, það var ekki að sjá að Hinrik yrði undrandi við orð mannsins. Hin fyrri hræðsla hans var algjörlega horfin, honum hafði fundizt lífið heldur fábrotið upp á síðkastið, og hann vænti sér einskis f ram- ar, hann var þvi sáttur við að segja skilið við þessa jarð- vist. Konungur sagði: „Margt hef ég misgjört, en Herr- ann Jesús er líknsamur og mun f yrirgefa mér, þó syndir mínar væru margfalt stærri en þær eru". Það var aug- Ijóst að konungur átti fullkominn sálárfrið. Hefðarmað- urinn sem sagði konungi að úrslitastundin væri komin, spurði hann nú, hvort hann óskaði að ná prestsfundi. Konungur játti því, hann sagði: „Mér þætti gaman að hitta Cranmer, en ekki núna, heldur seinna, nú ætla ég að sof na". Að svo mæltu sof naði hann og Cranmer kom. Framkoma Cranmers var þýð og auðmjúk. Hann var því vel fallinn til að taka fólk til hinna síðustu skrifta, en Hinrik sagði ekkert. Hann hafði beðið þar til um seinan, nú gat hann ekkert nema .ranghvolft augunum, andlit hans var orðið eldrautt. Cranmer tók í hönd konungs og spurði; „Deyið þér í trúnni á Krist?" En Hinrik svaraði ekki, þessi heimur var honum horfinn. Að Tower voru menn önnum kafnir við að reisa af- Hinrik konungur VIII og konur hans sex Eftir Paul Rivol Katrín leit undan

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.