Tíminn - 19.03.1977, Blaðsíða 4

Tíminn - 19.03.1977, Blaðsíða 4
4 mmm Laugardagur 19. marz 1977 skák Helgi teflir — á opnu móti í Banda- ríkjunum Gsal-Reykjavik— Hinn ungi og efnilegi skákmaður Helgi ólafs- sonhélt i gær til Bandarikjanna, þar sern hann mun keppa á opnu móti Kaliforniu. A mótinu verður teflt eftir Monrad-kerfi og eru há verBlaun i boði. Ekki er vitaö um fjölda þátt- takenda né hversu margir stór- meistarar tefla á mótinu. Petrosjan sigraði á þessu móti i fyrra, en fyrir tveimur árum tefldi- Guömundur Sigurjónsson á þessu árlega móti. Bxf6 Bg7 Rb8 b6 c6 Dc8 Be6 Rd7 exf4 b5 bxc4 Smyslov teflir í Eden — Alster í Bústöðum Gsal-Reykjav ik — ABstoðar- menn Spasskys og Hort, Smysl- ov og Dr. Alster eru iðnir við aö tefla fjöltefli viö Islendinga meðan áskörendaein vigiö stendur yfir. Smyslov teflir i dag á Akur- eyri, eins og viö höfum skýrt frá, — og á mánudaginn teflir hann við sunnlenzka skákmenn i gróöurhúsinu Eden i Hvera- gerði og mun þetta vera í fyrsta sinn, sem teflt er i gróðurhúsi á íslandi, alla vega svona opin- berlega. Dr. Alster teflir hins vegar i dag við unga skákmenn i æsku- lýðsheimilinu Bústöðum i Bú- staðakirkju og er það Æskulýös- ráö Reykjavikur sem hefur veg og vanda að fjölteflinu, sem hefst klukkan tvö. 10. skákin á sunnudag Gsal-Reykjavik — Tiunda um- ferðin i áskorendaeinviginu milli Spasskys og Horts verður tefld i Kristalsal Loftleiöahót- elsins á sunnudag. Spassky sem hefur hlotið 5 vinninga úr fyrstu 9 umferðunum á móti 4 vinning- um Horts — hefur svart i skák- inni á morgun og þvf mætti ætia að Tékkinn myndi tefla stift til sigurs með hvita liðinu, enda verður hann að bæta hag sinn ef hann ætlar sér að koma út sem sigurvegari einvigisins. I dag tefla Kortsnoj og Petrosjan á Italiu, Polugajevski og Mecking i Sviss og Larsen og Portich i Rotterdam. Gsal-Reykjavik — Friörik ólafsson stórmeistari tefldi I gær við skákmeistara V-Þýzka- iands, Wockenfush— haföi Friðrik svart. Wockenfush, sem er aiþjóðlegur meistari, tefidi af varfærni i skákinniog ætiaði sér sennilega aldrei meira en hálf- an vinning. Friðrik var þó ekki sáttur á jafntefli, en fann enga örugga vinningsleið — og eftir 21. leik sættust þeir á aö skipta vinningnum á milii sin. Þetta var 12. umferöin á skák- mótinu i Bad Luterberg, en þar hefur veriö teflt mjög stift frá byrjun. 1 11. umferö tefldi Friðrik viö heimsmeistarann Karpov og fór skákin i biö. Hafði Friörik þá smá vonarglætu um jafntefli — og þegar setzt var niður við skákina i fyrrakvöld hafði Friðrik fundið leið til jafnteflis, og þótt skákin færi aftur i bið —• glataði Friðrik ekki mögu- leikanum á jafntefli, og eftir 95 leiki varð Karpov aö sættast á þaö. Skák Friðriks og Karpovs var lengsta skákin á mótinu til þessa. Karpov, sem leiðir á mótinu i Þýzkalandi, tefldi i gær við Cosm, og fór skákin I biö. Skák Friðriks tefldist þannig I 11. Bxf6 12. Rd5 13. Dd3 14. Db3 15. Hadl 16. Re3 17. Kh2 18. c4 19. f4 20. gxf4 21. Dc2 ■ Jafntefli Heimsmeist- arinn varð að sættast á jafntefli — við Friðrik I boði borgarstjóra gær: Hvitt: Wockenfush Svart: Friðrik Ólafsson Pirc-vörn r 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. g3 Bg7 5. Bg2 0-0 6. Rge2 Rc6 7. 0-0 Bd7 8. h3 e5 9. dxe5 dxe5 10. Bg5 h6 Gsal-Reykjavik — Birgir tsleif- ur Gunnarsson borgarstjóri bauð til veizlu I gær I tilefni af áskorendaeinvfginu miili Boris- ar Spasskys og Vlastimils Horts. Aö sjáifsögðu voru skák- meistararnir aðal veizlugest- irnir I gær, en auk þeirra bauö borgarstjóri forráðamönnum Skáksambands islands og þeim, sem lagt hafa fram- kvæmd áskorendaeinvigisins lið, og að auki ýmsum skák- mönnum. Ljósmyndari Timans G.E. tók þessar myndir I hófi borgar- stjóra i gær og á myndinni til vinstri sjást Spassky og eigin- kona hans, Marina, með dr. Alster aöstoðarmanni Horts — en á myndinni til hægri heilsar Hort borgarstjórahjónunum, Birgi og Sonju. Barnavinafélagið Sumargjöf Fnrnhntía S. — Sími 27277 Forstaða leikskóla Frá 1. júni er laus staöa forstöðumanns leikskólans Tjarnarborgar. Laun samkvæmt kjarasamningi borgar- starfsmanna. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Sumargjafar og þar eru veittar nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 1. april. Stjórnin. Verzlunarstjóri Óskum að ráða vanan verzlunarstjóra i matvöru- og vefnaðarvöruverzianir okkar á Þórshöfn. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf, sendist Kaupfélagi Langnesinga fyrir 1. april. Kaupfélag Langnesinga Þórshöfn — Simi 8-1200 Norræna félagið Kvöldvaka í Kópavogi Norræna félagið I Kópavogi efnir til kvöldvöku sunnudaginn 20. marz kl. 20.00 i Hamraborg 11. Andrés Kristjánsson skólafull- trúi skýrir frá úrslitum ritgeröa- samkeppni meöal skólabarna um vinabæi Kópavogs. Félagið efndi til þessarar samkeppni i tengsl- um við norrænu menningarvik- una i kaupstaönum á liðnu sumri. Barnakór Kársnesskóla syngur og Björn Th. Björnsson, listfræð- ingur leiöir fundarmenn um Is- lendingaslóöir i Kaupmannahöfn meö myndum og tali. Að sjálf- sögðu eru allir velkomnir á kvöld- vökuna. Leiðrétting Misritazt hefir nafn i fyrirsögn minningargreinar um Ingibjörgu Jónasdóttur og Þórð Guðmunds- son s.l. fimmtudag. Er Ingibjörg ranglega nefnd Jónsdóttir. Einnig hafa orðið linubrengl I miðdáiki greinarinnar, fyrir miðju. Setn- ingin á að hljóða þannig: Þetta bæjarstæði er eitt hið fegursta á sléttiendi I Mýrdal. Það stendur hæfilega langt frá hinu fagra fjalli Pétursey til aö njóta fegurö- ar þess. Jörð til leigu Jörð á Austurlandi er laus til ábúðar ef viðunandi tilboð fæst. Upplýsingar i sima 97-1282. Árnesingamót 1977 Arnesingamót 1977 verður haldið f Domus Medica við Egilsgötu laugardaginn 26. mars og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Húsið veröur opnaö kl. 18.30. Dagskrá I. Formaður félagsins Arinbjörn Kolbeinsson setur mótið. II. Heiöurgestur mótsins Hjalti Gestsson ráöunautur á Selfossi flytur ávarp. III. Guömundur Guðjónsson óperusöngvari syngur ein- söng viö undirleik Skúla Halldórssonar. IV. Björn ó. Björgvinsson stjórnar almennum söng meöan borðhald stendur. V. Létt músik veröur leikin milli atriöa. VI. Dans hefst um kl. 22 og leikur hljómsveitin Kátir karl- ar fyrir dansi. VII. 1 danshléi skemmtir Ómar Ragnarsson mótsgestum með nýjum léttum gamanþætti. Aðgöngumiðar veröa seldir I Domus Medica 22. og 23. mars kl. 17 til 19. Þar verða einnig tekin frá borð. Verði aðgöngumiöa er mjög stillt i hóf. Arnesingar austan og vestan fjalls eru hvattir til að fjöl- menna á mótið og taka meö sér gesti. Stjórn Arnesingafélagsins I Reykjavik.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.