Tíminn - 19.03.1977, Blaðsíða 6
6
Laugardagur 19. marz 1977
i timans
UTLITIÐ
BLEKKIR
Kvenfólk hefur löngum haft áhyggjur af aldri sínum og
vildi víst flest gjarnan vera á milli tvítugs og þrltugs
bróðurpart ævinnar. Ungar stúlkur á táningaaldri gera
sitt bezta til að líta út fyrir aö vera eldri, og þær, sem árin
eru farin aö færast yfir, reyna að viöhalda unglegu útliti
eftirbeztu getu. Hér segir þó frá tveim brezkum snótum,
sem alveg er öfugt farið. önnur þeirra, Liza Marshall, er
16ára og nýútskrifuð úr skóla. Hún leitar sér nú atvinnu,
en verður fyrir ýmiss konar vandræöum, þegar hún er
beöin aðskýra frá aldri slnum I atvinnuumsóknum. Henni
er nefnilega ekki trúaö, þegar hún segir sem satt er, að
hún sé aðeins 16 ára. Hún er álitin vera a.m.k. 10 árum
eldri, og atvinnumöguleikar fyrir 26 ára konu meö skóla-
göngu og reynsluleysi Lizu á vinnumarkaði, eru fáir. Hún
segir, að það hafi verið spennandi, þegar hún var 12 ára,
aö vera álitin fullorðin, og notaði hún sér það óspart þá. Þá
komst hún inn á dansstaöi og krár óáreitt, og fullorðnir
karlmenn veittu henniathygli. En nú eru hún vaxin upp úr
þvl aö hafa gaman af þessu, enda er henni alvörumál aö fá
atvinnu. Hin snótin, sem viö ætlum aö segja frá, er 27 ára
gömul leikkona, Liz Bagley. Hennar vandamál er þaö, að
hún fær bara hálfgerö barnahlutverk, þvl aö hún þykir
hafa svo krakkalegt útlit. Maöurinnhennar.sem er 25 ára,
er sömu annmörkum háður, óg segja þau hjón, að þau geti
helzt ekki fariö inn á veitingastöi, þau fá varla afgreiöslu.
Vonandi leysast vandamál þessara tveggja kvenna af
sjálfu sér með tlmanum.
r- r -i
iÍMSB
wm
|M
r
Liza Marshall
V
m
Liz Bagley