Tíminn - 19.03.1977, Blaðsíða 5
Laugardagur 19. marz 1977
5
Siiiil.il
Norðurlöndin þinga um refsiaðgerðir
gegn Suður-Afríku
gébé Reykjavik — Nýlega var
haldinn fundur I Kaupmanna-
höfn um aukna samræmingu og
virkni i refsiaftgeröum gegn
apartheid-stjórninni i Suöur-
Afriku. Þaö voru fulltrúar rikis-
stjórna Noröurlanda og stjórn
Norræna verkaiýössambands-
ins, sem hefur sex milljónir
iaunþega innan sinna vébanda,
em áttu sameiginlegar viöræöur
um þessi mál. Þessi fundur var
sá fyrsti af þessu tagi, þar sem
beinar viöræöur fóru fram milii
fulltrúa norrænu rikisstjórn-
anna og samtaka launþega um
brýn sameiginleg vandamál.
Var þaö samdóma álit manna á
fundinum, aö þar heföu fariö
fram gagnlegar viöræöur um
kröfur Norræna verkalýössam-
bandsins til norrænu rikis-
stjórnanna um hertar aögeröir
á fjölmörgum sviöum gagnvart
stjórn Suöur-Afriku.
Eftir itarlega kynningu á
þeim aðgeröum, sem hingaö til
hefur veriö beitt gegn Suður-
Afrikustjórn, lofuöu rikis-
stjo'rnafulltrúarnir aö leggja til-
lögur Norræna verkalýössam-
bandsins fyrir ríkisstjórnir sin-
ar, jafnframt þvi sem áfram-
haldandi sambandi var heitiö á
milli rikisstjórnanna og verka-
lýöshreyfingarinnar á Noröur-
löndum um þessi vandamál.
1 kröfum Norræna verkalýös-
sambandsins eru fjórtán tillög-
ur um refsiaðgeröir og fara þær
hér á eftir: 1. Aö rikisstjórnir
Noröurlanda vinni ötullega aö
þvi aö öryggisráö SÞ samþykki
bann viö nýfjárfestingum I Suö-
ur Afriku. 2. Aö rikisstjórnirnar
leggi sig fram svo sem unnt er
til aö stuöla aö þvi aö öryggis-
ráðiö geri þegar i staö ráö-
stafanir tilaö koma á alþjóölegu
banni gegn vopnasölu til S-
Afrlku. 3. Að norrænu rikis-
stjórnirnar vinni að þvf, aö
öryggisráö SÞ útiloki S-Afriku
frá alþjóölegri þátttöku á sviöi
efnahagsmála, menningar-
félags- og Iþróttamála. 4. Aö
rikisstjórnirnar beiti sér fyrir
þvi hjá SÞ, aö unniö sé gegn
efnahagsáhrifum S-Afriku í öör-
um Afrikurikjum. 5. Aö
stjórnirnar veiti fjárhagslegan
stuöning til menntunar s-
afriskra flóttamanna i Lesotho
og nálægum löndum. 6. Aö nor-
rænu ríkisstjórnirnarleggibann
viö nýfjárfestingum i S-Afriku.
7. Aö öllum útflutningi og inn-
flutningitil og frá S-Afriku, sem
á sér staö á vegum rikisvaldsins,
veröi hætt. 8. Aö s-afriskum
skipum og flugvélum veröi
bannaö aö athafna sig á Noröur-
löndum. 9. Aö ríkisstjórnimar
bæti þeim launþegum, sem
kunna aö veröa fyrir tekjumissi
vegna aögeröa gegn S-Afriku,
tjóniö eftir þvi sem viö veröur
komiö. 10. Aö ríkisstjórnirnar
beiti sér gegn iþróttasamskipt-
um milli S-Afriku og Noröur-
landanna. 11. Aö rikisstjórnirn-
ar vinni aö þvi i gegnum rikis-
stofnanir, i samvinnu viö al-
þýöusamböndin, aö veita
hörundsdökkum launþegum i S-
Afriku tækifæri til iönnáms og
lögfræðilega og fjárhagslega
aöstoð til handa fórnarlömbum
baráttunnar gegn apartheid. 12.
Aö aukið veröi viö framlag rikj-
anna til mannúöarmála til
handa frelsishreyfingum S-
Afriku. 13. Aö stjórnirnar vinni
ötullega aö þvl aö dreifa upp-
lýsingum um apartheid-kúgun-
ina I S-Afrlku, gegnum fræöslu-
kerfiö og á annan hátt. 14. Aö
rikisstjórnirnar vinni gegn or-
lofsferöum og fólksflutningum
til S-Afriku og þeirra land-
svæöa, sem S-Afrika hefur yfir-
ráö yfir.
Lét af formennsku eftir
fimmtán ár
NÝLEGA hélt félagið aðalfund
sinn I félagsheimili sinu að Hátúni
12. Stjórn félagsins skipa nú Rafn
Benediktsson, formaður, Sigurð-
ur Guðmundsson varaformaður,
Vilborg Tryggvadóttir ritari,
Ragnar Sigurðsson gjaidkeri og
Guðriður óiafsdóttir vararitari.
Sigurður Guðmundsson, sem
undanfarin 15 ár hefur verið
formaður félagsins baðst nú und-
an endurkjöri sem formaður.
Einnig báðust Arni Sveinsson,
gjaldkeri og Hlaögeröur Snæ-
björnsdóttir, vararitari, undan
endurkjöri.
í félaginu eru nú 519 aðalfélag-
ar og 382 styrktarfélagar, eöa
samtals 901 félagi.
Niunda þing fatlaöra á Noröur-
löndum, var haldiö i fyrsta sinn
hér á landi i Reykjavik, dagana
8.-13. júni sl. og s'átu það 10 full-
trúar frá félaginu. Einnig sátu 22
fulltrúar félagsins þing samtak-
anna, sem haldið var i Sjálfs-
bjargarhúsinu að Hátúni 12, dag-
ana 8.-10. október s.l.
Félagsstarfið svipaö og undan-
farin ár. Spilavist, opiö hús, fönd-
ur og bazarvinna, skemmtikvöld
og árshátiö og námskeiö i mat-
reiðslu. i júni var farin fjölmenn
3ja daga skemmtiferð austur að
Skaftafelli i öræfum. Einnig voru
heimsóknir milli Sjálfsbjargarfé-
laganna á Akranesi og Reykja-
vik.
Aðaltekjulind félagsins er hinn
árlegi bazar, sem haldinn er i
byrjun desember ár hvert. Einnig
hefur félagiö tekjur af sölu minn-
ingarkorta og merkjasölu. A ár-
inu bárust félaginu tvö 5 þúsund
króna áheit.
Selfoss — Selfoss
Tilboð óskast i iðnaðarhúsið Gagnheiði 3,
Selfossi sem er 810 ferm. að stærð.
Tilboð óskast i húsið i heild eða i einingum
fyrir 23. mars n.k. Nánari upplýsingar
veita Eggert Jóhannesson simi 99-1620 eða
Sigurjón Erlingsson sími 99-1218.
AUGLÝSIÐ í TÍAAANUM
)
AFMÆLISTÖNLEIKAR
f Austurbæjarbíói laugardaginn 19. mars 1977
ÞORSTEINN HANNESSON ÓPERUSÖNGVARI 60 ÁRA
/ dag kl. 14.30:
SÖNGSKRÁ
FYRJR HLÉ
Robert Stolz.............. Ob blond, ob braun
Sigurður Björneson
Ámi Thorsteinson ......... Enn ertu fögur sem forðum
Halldór Vilhelmsson
Agathe Backer-Gröndahl Mot kveld
EHn Sigurvinsdóttir
Edvard Grieg.............. En dröm
Nanna Egils Bjömsaon
Söngur Þórs
Jón Ásgeirsson............ úr „Þrymskviðu"
Guðmundur Jónsson
Þorsteinn Valdimarsson .. Kýrgæla
Guðrún Tómasdóttár
Irskt þjóÖlag
úts.: H. Hughes........... The Spanish Lady
Rut Magnússon
EFTIR HLÉ
Vaughan Williams............ Silent Noon
Garðar Cortes
C. W. Gluck................. Aría úr Orfeus og Efridis
Sólveig Björling
George Gershwin.........»,.. I got plenty of nothing
úr „Porgy and Bess“
Kristinn Hallsson
Franz Schubert.............. Seligkeit
Elísabet Erlingsdóttir
Giuscp?)e Vcrdi............. Aría úr „Ernani44
Jón Sigurbjömsson
Giuseppe Verdi.............. Dúett úr „ll Trovatore"
Svala Nielsen og Magnús Jónsson
Jón Þórarinsson ............ Fuglinn í fjörunni
Ámi Thorsteinson ........... Rósin
Þorsteinn Hannesson
Pianólcikc.rar:
Carl Billich, Guðrún A. Kristinsdóttir, Gústaf Jóhannesson, Krystina
Cortes og ólafur Vignir Albertsgon.
AÐGÖNGUMIÐASALA í AUSTURBÆJARBÍÓI