Tíminn - 19.03.1977, Side 13
,'Laugardagur 19. marz 1977
13
þáttinn (18).
16.00 Fréttir.
16.15 Veöurfregnir. tslenskt
mál Gunnlaugur Ingólfsson
cand. mag. talar.
16.40 Létt tónlist
17.30 tJtvarpsleikrit barna og
unglingar „Hlini kóngsson”
eftir Ragnheiöi Jónsdóttur
(Fyrstútv. fyrir 18. árum).
Leikstjóri: Gisli Halldórs-
son. Leikendur: Kristin
Anna Þórarinsdóttir,
Guömundur Pálsson, Knút-
ur R. Magnússon, Gisli
Halldórsson, Arni Tryggva-
son Guðrún Asmundsdóttir,
Steindór Hjörleifsson,
Helga Valtýsdóttir og Hulda
Valtýsdóttir.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki
Tilkynningar.
19.35 Ekki beinlinis Böövar
Guömundsson ræðir við
Gunnar Frimannsson og
Þóri Haraldsson um heima
og geima. — Hljóöritun frá
Akureyri.
20.15. Sónata nr. 4 i a-moll eftir
Beethoven Oleg Kagan og
Svjatoslav Rikhter leika á
fiðlu og pianó. — Frá tón-
listarhátiöinni I Helsinki s.l.
sumar.
20.35 Fornar minjar og saga
Vestri-byggöar á Grænlandi
Gisli Kristjánsson flytur
ásamt Eddu Gisladóttur
þýðingu sina og endursögn á
bókarköflum eftir Jens
Rosing. — Fyrsti þáttur.
21.00 Hljómskálatónlist frá út-
varpinu i Köln Kynnir:
Guðmundur Gilsson.
21.30 „Morgunkaffi”,
smásaga eftir Solveigu von
SchouBz ! éra Sigurjón
Guðjónsson þýddi.
Guðmundur Magnússon
leikari les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (36).
22.25 Otvarpsdans undir
góulok Flutt verða ýmiss
konar danslög af hljómplöt-
um, en framan af verða
Haukur Morthens og Ragn-
ar Bjarnason aðalsöngvar-
ar og stjórnendur. (23.55
Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
sjonvarp
Laugardagurinn
19. mars
17.00 íþróttir Umsjónarmað-
ur Bjarni Felixson.
18.35 Emil i Kattholti. Loka-
þáttur. Bylurinn mikli.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Sögumaður Ragn-
heiður Steindórsdóttir
19.00 tþróttir.
Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Hótel Tindastóll. Bresk-
ur gamanmyndaflokkur.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
21.00 Úr einu I annað.
Umsjónarmenn Berglind
Asgeirsdóttir og Björn
Vignir Sigurpálsson. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
22.00 Lifsþorsti(Lustfor Life)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1956, byggö á
samnefndri sögu eftir
Irving Stone, og hefur hún
komið út i islenskri þýðingu
Þórarins Guðnasonar. Leik-
stjóri Vincente Minelli.
Aöalhlutverk Kirk Douglas,
Anthony Quinn og Pamela
Brown. Myndin lýsir ævi
hollenska listmálarans
Vincents van Goghs
(1853—1890) og hefst, þegar
hann gerist prédikari i
belgisku kolanámuhéraði.
Honum ofbýður eymdin og
hverfur aftur heim til Hol-
lands. Þar byrjar listferill
hans. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
00.00 Dagskrárlok.
Hættulegt ferðalag
mm
eftir AAaris Carr
við gætum komið á fót einhverju fyrirtæki.
Þau eru allt öf örugg með sig, hugsaði Penny um leið
og hún yfirgaf þau. Þegar ég vaknaði í morgun, hafði
ég ekki minnsta grun um að ég mundi hitta Roy og að
hann reyndist vera Tapajoz. Hún taldi sig geta skilið að
Roy væri ákaf ur, en alls ekki hvers vegna Júlíu var svo
mikið í mun að þau giftu sig sem fyrst. Hún mundi ekki
lyfta fingri til hjálpar öðrum, nema hafa einhvern
hagnað af því sjálf. Hvað gat það orðið henni í vil að
reka svona á eftir Roy? Ef til vill var hún afbrýðisöm
vegna þess að Mike hafði komið með hana hingað, en
henni hlautþóað vera Ijóst, að Mike hafði ekki minnsta
áhuga á henni, sem hann reyndi ekki að dylja gremju
sína yfir að hún hafði óhlýðnast skipunum hans. Júlía
gat ekki verið jafn örugg um Mike og hún vildi vera
láta. Bara að hún vildi hætta að skipta sér af hlutum,
sem komu engum við nema Roy og henni sjálfri.
Smekklaust af henni, að gefa í skyn, að Roy vantaði
peninga að minnsta kosti svona sama daginn og þau
Roy sáust í fyrsta sinn. Aðstæðurnar voru nógu erfiðar
fyrir, þó Júlía væri ekki að blanda sér í málin.
Grace var að baða barnið, þegar Penny leit inn til
hennar og staldraði við um stund. Sú litla hafði stækkað
til muna og var hin hraustlegasta.
Vincent segir, að hún sé hraust og heilbrigð á allan
hátt, sagði Grace stolt. — Hún er líka svo þæg og góð.
— Neil ætti að vera ánægður yf ir því Penny brosti og
strauk dúnmjúkan koll barnsins. — Hvað á hún að
heita.
— Faðir þinn hét George, ekki satt? Við Neil vorum
að hugsa um að láta hana heita Georgiönu. Ef föður
þíns hefði ekki notið við, væri þetta sjúkraskýli ekki
hérna og hvað hefði þá orðið um mig og barnið? Þá
hefðir þú varla verið hérna heldur. Grace horfði þakk-
látá hana. — Við Neil getum aldrei fullþakkað þér.
— Marfa, Neil og Fanný hefðu sjálfsagt bjargað
þessu. Börnum tekst yfirleitt að komast í heiminn,
hvernig sem þau fara að þvf. En mér þótti vænt um að
geta hjálpað þér, Grace. Þú varst hugrökk og hjálpaðir
mikið til sjálf. Ég verð að játa að ég hafði áhyggjur
vegna þess að þú hafðir dottið. Það hefði getað valdið
vanda.
— Þú vissir ekki, að ég get verið hörkutól, þegar eitt-
hvað er í húfi, sagði Grace og brosti. — Að eðlisfari er
ég mesti klauf i, brýt hluti, hrasa og helli niður ef hægt
er. Neil stríðir mér mikið með því.
— Farðu varlegar næst, sagði Penny alvarleg. — Þú
varst heppin í þetta sinn.
Penny eyddi síðari hluta dagsins á veröndinni og
fylgdist með Paul og öðrum innfæddum pilti, sem
reyndu að koma skipulagi á blómabeðin umhverfis
torgið milli kofanna. Fanný kom öðru hverju út og skip-
að þeim fyrir og Penny dáðist að því hvað hún var
ákveðin. Ekki var að sjá að steikjandi hitinn hefði
minnstu áhrif á hana og hún var ein þeirra fáu í búðun-
um, sem ekki lagði sig á heitasta tíma dagsins. Það var
henni að þakka hvað allt var hreint og þrifalegt i
búðunum, því í rauninni höfðu þeir innfæddu engan
áhuga á garðyrkju og án Fannýjar væri áreiðanlega
alltá kafi í gróðri. Hvergi annars staðar sást lífsmark
og Penny var fegin að Roy hafði ekki leitað hana uppi
eftir samtalið við Júlíu. Hún gerði ráð fyrir að Mike
hefði f undið honum eitthver verkefni, því hún hafði séð
á eftir þeim yf ir að verzluninni fyrir góðri stundu.
Hún horfði á Fannyju og velti fyrir sér hvað hún ætti
að gera varðandi heimboðið til þeirra Wills um kvöldið.
Þau höfðu ekki boðið Roy. Átti hún að fara án hans?
Eða átti hún að f inna sé afsökun? Hvort sem hún gerði,
særði hún einhvern. Guði sé lof að kofarnir beggja
megin við hana voru tómir. Með því móti var hún meira
út af fyrir sig.
Þegar hún gekk yfir að matsalnum um kvöldið, var
hún enn ekki búin að ákveða hvað gera skyldi Fanný
heilsaði henni fagnandi og ekki bætti það úr skák. —
Það verður svo gaman í kvöld, Penny. Paul gaf mér
nýja uppskrift af ávaxtasalti, sem ég ætla að hafa á
boðstólum. Vonandi verður það gott.
— Það verður það áreiðanlega fyrst þú býrð það til
svaraði Penny og settist í sæti sitt. Hún vonaði að Roy
vildi láta vera að sýna eignarrétt sinn yfir henni við
þessa máltíð. Mike virtist í betra skapi núna og brosti
meira aðsegja þegar hann settistgegnthenni. Roy kom
ekki f yrr en góðri stund seinna og enginn hafði minnzt
einu orði á að hann vantaði.
— Hann er að Ijúka verki fyrir mig sagði Mike, eins
og ekkert væri sjálfsagðara. — Hænsnin sluppu út og
hann er að laga girðinguna. Hann leit ekki á Pennýju
sem fór að gruna hann um að hafa falið Roy verkið
beinlínis til að hann yrði af máltíðinni með hinu fólkinu.
— Hann hefði líklega getaðtekið sér matarhlé, sagði
Penny og horfði ögrandi á Mike.
Hann var hugsandi á svip. — Hann borðar annað
hvort með Júlíu í skýlinu eða á eftir okkurMike greip
vínglasiðog tæmdi það í einum teyg. — Han virtist ekki
hafa neitt á móti því að halda áfram með girðinguna
áðan. Svo þarf hann víst að ræða eitthvað við Júlíu.
Penny slakaði á. Nú gat hún farið til Fannyjar á eftir,
fyrst Roy var upptekinn annars staðar. Skyndilega
gerði hún sér grein fyrir að hún hafði verið eins og fest
upp á þráð og gramdist það. Ef til vill hafði hún bara
imyndað sér að hitt fólkið sýndi henni andúð? Skrýtið,
en í hádeginu, þegar Roy hafði verið hérna, hafði and
rúmsloftið verið allt annað. Nú voru allir rétt eins og
þeir áttu að sér.
Mike náði henni í trjágöngunum. Hann var klæddur
Ijósum buxum og skyrtu, fráhnepprti í hálsinn. Andlit
hans var dökkbrúnt og það var kímnisglampi í augun-
um. Pennýju fannst hann líta óvenju vel út þá stundina.
— Það dimmir ekki f yrr en eftir hálftíma, sagði hann
glaðlega. — Langar þig ekki að ganga niður að ánni?
— Jú garnan. Hún leit á hann, svolítið feimin og ekki
alveg viss um hvernig hún átti að bregðast við þessu
óvænta tilboði. — Ég hef gott af því að ganga svolítið,
þegar ég sit eða ligg allan daginn.
— Vincent sagði mér, að þú ætlaðir að hjálpa þeim i
sjúkraskýlinu áfram.
— Já, hann hefur svo mikið að gera. Það er það -
minnsta sem ég get gert. Hef ur þú nokkuð á móti því?
— Nei, síður en svo. Mér finnst það tilvalið. Hann
brosti svo skein í hvítar tennurnar í brúnu andlitinu. —
Það kemur íveg fyrir aðþú misstígir þig oftar.
— Ég vissi ekki að ég hefði misstigið mig. Er svo
mikið um f reistingar hérna, eða hvað? Ekkert næturlif,
ekkert nema heimboðin hjá Fannýju. Ég hlakka til að
bragða nýja salatið hennar í kvöld. En ef ég held áf ram
að gera ekkert nema sofa og borða, sprengi ég utan af
mér fötin.
Þau voru komin að stígnum, sem lá niður að ánni.
Mike nam staðar og leit f ast á hana. — Ég held að varla
sé hætta á þvi. Þú lýtur mun betur út núna en þegar ég
sá þig fyrst. Skuggarnir undir augunum eru horfnir og
þú er ekki eins döpur á svipinn.