Tíminn - 19.03.1977, Page 15
Laugardagur 19. marz 1977
15
Rósa Hjörvar
Helga Eysteinsdóttir
Dýrmæt
minningargj öf
HINN 14. marz, á fæðingar-
degi Rósu Hjörvar, sem nú er
fyrir skömmu látin, barst
Kvenfélagasambandi tslands
tilkynning um, að börn hennar
hefðu ákveðið að gefa sam-
bandinu glitofiö veggteppi úr
búi hennar. Skal þaö varöveitt
i minningu tveggja kvenna,
Rósu Hjörvar og Helgu
Eysteinsdóttur, sem teppið óf.
Helga Eysteinsdóttir var
kunn fyrir handavinnu sina.
Hún var móðir Asmundar
Sveinssonar myndhöggvara
ogþeirra systkina. Þetta teppi
óf hún handa vinkonu sinni,
Rósu Hjörvar, áriö 1921 og var
það fyrsta stóra teppiö, sem
hún óf, en vitað er um a.m.k.
fjögur önnur, sem hún óf
siöar. Rósa Hjörvar kom tepp-
inu á Iðnaðarsýninguna I
Reykjavik áriö sem hún eign-
aöist það og hlaut það verð-
laun. Er verölaunaskjalið
varöveitt og mun fylgja tepp-
inu að Hallveigarstööum.
Rósa Hjörvar var fædd 14.
marz 1892 að Litla-Vatnshorni
i Haukadal i Dölum og voru
foreldrar hennar Daði Daöa-
son bóndi þar og kona hans
Guðbjörg Jóhannsdóttir frá
Kasthúsum i Reykjavik. Rósa
flutti með foreldrum sinum til
Reykjavikur árið 1902 og árið
1917 giftist hún Helga Hjörvar
rithöfundi. Þeim varð átta
barna auðið. Rósa andaðist 5.
janúar s.l. Hún var glæsileg
kona og væn á alla lund.
Helga Eysteinsdóttir var
fædd aö Höll i Þverárhlið 6.
júli árið 1861. 1883 giftist hún
Sveini Finnssyni frá Háafelli I
Miðdölum og hófu þau búskap
þar, bjuggu siöan aö Kvenna-
brekku um sex ára skeiö, en
eftir það — og lengst af — aö
Kolstööum I Miödölum, Þau
Helga og Sveinn eignuðust
ellefu börn, sem upp komust.
Arið 1925 fluttist Helga að
Eskiholti I Borgarfirði þar
sem synir hennar Bjarni og
Finnur bjuggu lengi og þar
andaðist hún 15. júni 1935.
(FréttfráKvenfélagasam-
bandi lslands)
á AKUREYRI
vió kynnum árgeró 1977, laugardaginn 19/3 og sunnudaginn 20/3, kl. 14- -1829
SNIÐILL HF. - Skoda umboóió - 'Oseyri 8 - Akureyri
þúgerir hvergi betri kaup
AMIGO 105 - kr. ca. 860.000.-
AIMIGO 120 L - - - 960.000.-
AMIGO 120 LS-- - 1010.000,-
þetta eiga bílar að kosta
Skoda Amigo er mjög falleg og stilhrein bifneið. Hún er
búin fjölda tæknilegra nýjunga og öryggió hefur verió
aukió til muna. Kömió og skoóió þessa einstöku bifreió
á bilasýningu okkar.
■An ■ ...
JOFUR hf
Tdckneska bfieócwmboóió ó íslandi
AUOWÍKKU 44>46 - KÓfWOGl - StMl 42600
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
AÐALFUNDUR
Samvinnubanka Islands h.f.
Sigrí&ur Björnsdóttir fyrir framan eitt verka sinna á sýn-
ingunni.
Sigríður sýnir í
Norræna húsinu
JB-Rvik. Laugardaginn 19.
marz opnar Sigriður Björns-
dóttir sýningu á verkum sin-
um INorræna húsinu. Sigriöur
stundaði myndlistarnám I
Reykjavik og London og er
þetta fimmta einkasýning
hennar. Aður hefur hún haldið
þrjár einkasýningar i Reykja-
vik og eina i Stokkhólmi auk
þess sem hún hefur tekið þátt i
fjölda samsýninga bæöi hér
heima og erlendis. Sextiu og
ein mynd er á sýningunni og
eru þær flestar málaðar á sið-
ustu tveim árum en nokkrar
eru 10-15 ára. Myndirnar eru
akrýl myndir málaöar á
striga. Þær eru allar til sölu.
Sýningin stendur yfir dagana
19.-28. marz og verður opin frá
kl. 2-22 daglega.
verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal,
laugardaginn 19. marz 1977
og hefst kl. 14
ATH: Ekki hliðarsal, eins og kom fram í augl.
í biaðinu f gær
Bankaráð
Samvinnubanka
Islands h.f.