Tíminn - 24.03.1977, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.03.1977, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 24. marz 1977 Banka- menn sigur- sælir — í skákkeppni stofnana Gsal-Rvlk — Bankamenn voru sigursælir i skákkeppni stofn- ana.sem er nýlokiö. Keppt var I tveimur flokkum, A-flokki og B-flokki, og voru 32 fjögurra manna sveitir, sem kepptu á þessu árlega móti. 1 A-flokki bar sveit Lands- bankans sigur Ur býtum, hlaut 18,5 vinning af 28 mögulegum. I 2.-4. sæti uröu sveitir Útvegs- bankans, Menntaskólans I Hamrahlíö og Timaritsins Skákar, meö 17,5vinninga, og I 5. sæti varö sveit Breiöholts h.f. 1 B-flokki bar sveit Isals sigur úr býtum, hlaut 19 vinninga. Unglingasveit T.R. i Bolungarvik Taflfélag Reykjavikur sendi nýlega 18 unglinga á aldrinum 10-19 ára i keppnisferð til Bolungarvikur. Fyrst var keppt viö Bolvíkinga, og fóru leikar þannig, aö sveit T.R. sigraöi glæsilega, hlaut 17,5 vinning á móti hálfum vinningi Bolvlk- inga. Næsta dag styrktu Bolvlk- ingar sveit slna meö tsfiröing- um og Súövíkingum — og fóru leikar þá þannig, aö T.R. sveitin hlaut 14 vinninga, en hin sveitin 4. Loks var keppt I hraöskák, og hlaut T.R. sveitin þá 113,5 vinn- inga.kveit Bolvlkinga 66,5 vinn- inga. Larsen alveg heillum horfinn Gsal-Reykjavik — Bent Larsen, hinn sókndjarfi og skemmtilegi skákmaður Dana er gjörsam- lega heillum horfinn i einviginu viö Portisch, sem teflt er i Rott- erdam. t gær stjórnaöi Larsen hvitu mönnunum, en þegar staöan fór i biö var Daninn tal- inn meö mun iakari stööu. Fari svo aö Portisch vinni skákina hefur hann hlotiö 6 vinninga en Larsen 3. Kemur Fischer? Gsal-Reykjavik — Svo sem kunnugt er, sendi Skáksamband tslandsekki alls fyrir löngu fyrr um heimsmeistara, Robert Fischer bréf, og bauö honum aö koma til tslands, annaö hvort núna meöan á áskorendaeinvig- inu stæöi eöa i sumar. Þvl miöur hefur enn ekkert heyrst til Fischers um þetta boö — en frétzt hefur um hringingar til Sæmundar Pálssonar frá Bandarikjunum og benda öll sólarmerki til þess aö Fischer hafi veriö á linunni. Hins vegar var Sæmundur ekki viö, i þau tvö skipti er hringt var — og þvl er ekkert vitaö enn. En vonandi skýrist máliö á næstunni. Hort Gsal-Reykjavík. — Ef einvígið dregst á langinn, eins og horfur eru á, má búast við þvi að mótshaldið hlaði utan á sig meiri kostnaði — en eins og staðan er i dag, eru miklar likur á þvi, að einvlgið standi undir sér, sagði Einar S. Einarsson forseti Skák- sambandsins i samtali við Tlmann i gær. Einar sagöi aö samningur Skáksambandsins viö Flugleiöir um keppnisaöstööu á Loftleiöa- hótelinu væri háöur tlmatak- mörkum, og geröur heföi veriö sá fyrirvari I samningum aö flytja þyrfti skákeinvígiö annaö, ef þaö drægist úr hömlu aö ljúka þvl. — En þessi tlmatakmörk sagöi Ein- ar, eru ekki alveg á næsta leiti, og ég held aö þaö sé ekki ástæöa til þess aö hafa áhyggjur af þessu núna. Persónulega tel ég aö ein- vfginu ljúki I næstu viku. Tlminn spuröi Einar aö þvl, hvort einhver sérstakur staöur væri liklegur, ef einvlgiö þyrfti aö flytjast úr Loftleiöahótelinu, og kvaö hann svo ekki vera. — Aösóknin aö einvlginu hefur veriö betri en viö bjuggumst viö, sagöi Einar. — 1 áætlunum okkar geröum viö ráö fyrir 10 skákum, og nú þegar hafa veriö tefldar 11. Skáksambandiö hefur reynt aö halda kostnaöi I lágmarki, og af einvíginu heföi aldrei getaö oröiö nema vegna fjárstuönings frá ýmsum aöilum, svo og glfurlega mikilli sjálfboöavinnu. Ef Hort og Spassky veröa jafnir aö 12 umferöum loknum, keppa þeir 2ja skáka einvlgi, þar til ann- ar hvor hefur sigraö. — Fræöilega séö getur einvlgiö staöiö frain á sumar, raunar til eilíföar, sagöi Einar. — Þaö er mikiö I húfi fyrir keppendur, því ekki aöeins hlýtur sá er blöur lægri hlut hálfri milljón kr. lægri fjárupphæö, heldur missir hann llka af tæki- færi til þess aö keppa viö sigur- vegarann úr Rotterdam-einvig- inu, Larsen eöa Portisch — og þar meö áframhaldandi þátttöku I keppninni um réttinn til þess aö skora á heimsmeistarann. Þaö er skiljanlegt meö tilliti til þessa, aö hvorugur keppendanna leggi út I óþarfa áhættu, — þeir vilja hafa vaðiö fyrir neöan sig. Einar sagöi, aö hann teldi sigurvegarann úr þessu einvlgi eiga mjög góöa möguleika á sigri yfir Portisch eöa Larsen, og þar meö komast I sjálft kandldataein- vígiö, sem sker úr um þaö hver keppir viö Karpov um heims- meistaratitilinn. Mjög vel hefur veriö látiö af að- búnaöi öllum á Loftleiöahótelinu, og að sögn Einars hafa útlending- ar, sem hér eru vegna einvígisins, fullyrt þaö, aö Islendingar væru fremstir mótshaldara I heimin- um. — Spassky og Hort láta mjög vel yfir veru sinni hér, og þaö er ekki lengur neitt fararsniö á þeim,sagöiEinar. Fyrir 10. skák- ina var fararsniö á þeim báöum, Spassky ætlaöi til Genf til þess aö taka þátt I 1. alþjóöléga Genf- ar-mótinu, og Hort ætlaöi á skák- mót I Frakklandi. Þeir hafa nú báðir afboðaö þátttöku slna á þessum mótum til þess aö kljást áfram hér I Reykjavlk. Spassky og Hort, svo og Skák- sambandsstjórnin, munu sitja hóf hjá Kristjáni Eldjárn forseta Is- lands á morgun, föstudag. Tlmamynd: Róbert Spasskyhjónin og Smyslovhjónin fyrir frumsýninguna i gær. Sjónvarpsmynd af einvígi aldarinnar frumsýnd i gær og Spassky var meðal áhorfenda Gsal-Reykjavik — Skáksamband tslands og Iöntækni frumsýndu I gær 15 minútna langa sjónvarps- mynd úr einvigi aldarinnar, skákeinvigi þeirra Boris Spasskys og Robert Fischers I Laugardalshöll 1972. Spassky var meöal áhorfenda á frumsýn- ingunni ásamt Marinu konu sinni, Smysiovhjónunum, Hort og Dr. Alster — Skáksambandsmönnum og blaöamönnum. Mynd þessi var gerö eftir myndsegulbandi uno 1975 og sýnir hún hluta úr nokkrum af- drifarlkum skákum einvfgisins, svo og úr lokahófinu. Myndgæöin eru frekar bágborin, en sem söguleg heimild mikils virði. Bandarlkjamaöurinn Chester Fox, fékk á slnum tima einkarétt til allrar kvikmyndatöku og ann- arar myndatöku af heims- meistaraeinvlginu 1972. Þó aö Fox fengi ekki á slnum tlma aö taka kvikmyndir af nema fyrstu 3 skákunum i einvígi þeirra Fisch- ers og Spassky, varö þaö ekki til þess aö einvigiö yröi ekki fest á myndband. Eins og menn sem fylgdust meö einvlginu sáu, var hægt meö þeim tæknibúnaöi er Iöntækni h.f. bjó til og setti upp i Höllinni, aö sýna nærmyndir af skákmönnunum á stóra sýningarskerminum yfir sviöinu. Myndir þessar komu frá fjarstýröum sjónvarpsupptöku- vélum er festar voru aftan á skerminn. Meö þessum vélum var hægt aö fylgjast með hinum minnstu hreyfingum, sem fram Framhald á bls. 23 Helgi stendur sig vel Gsal-Reykjavik — Helgi ólafs- son skákmaöur er nú staddur I Kaliforniu i Bandarikjunum, þarsem hann tekur þátt I sterku skákmóti. Helgi hefur lokiö þremur skákum á mótinu og er meðal efstu manna meö tvo vinninga. Hann geröi sér litiö fyrir i fyrstu umferö og náöi jafntefli viö Larry Evans, hinn þekkta stórmeistara Bandarikj- anna. Þá vann hann alþjóölegan meistara i næstu umferö, sem viö vitum ekki nafniö á — óg I 3. umferðinni náöi hann jafntefli viö annan bandarlskan stór- meistara Larry Kristjansen. Jaf ntef lis leg staða á Italiu Gsal-Reykjavik — Victor Korts- noj og Tigran Petrosjan tefldu I gær 9. einvigisskák sina á ttallu — og haföi Kortsnoj hvitt. Skák- in fór I biö i gærkvöldi aö f jöru- tlu leikjum loknum — og er staöan talin jafnteflisleg. Kortsnoj hefur vinningi betur en Petrosjan i einviginu, hefur hlotið 4,5 vinninga, en Petrosjan 3,5. Skákinni veröur framhaldiö i dag. Engin skák í dag: Hort bað um frest Gsal-Reykjavik — Vlastimil Hort hefur óskaö eftir þvf, aö 12. einvfgisskákinni, sem tefla átti I dag, veröi frestaö. Hefur Hort lagt fram veikindavottorð — og hefur fresturinn veriö sam- þykktur. Þetta er í fyrsta sinn I einvigi Horts og Spasskys, aö skák er frestað, en í hinum áskorendaeínvlgunum öllum hefur skák eöa skákum veriö frestaö. Hvor keppenda hefur heimild til þess aö fá þremur skákum frestaö vegna veikinda. Ekki er vitaö hvers eölis veikindi Horts eru, en sagt er aö hann sé „sloj” Þá hafa bæöi Spassky og Hort óskaö eindregiö eftir því, aö 12. einvígisskákinni, sem tefla á næstkomandi sunnudag veröi seinkaö um þrjá klukkutima og hefjist kl. 17 I staö 14. Hefur Skáksambandiö oröiö viö ósk þeirra. Hort og Spassky eru nú jafnir aö vinningum aö ellefu skákum loknum, báöir hafa hlotiö 5 og hálfan vinning. I gær átti Kortsnoj, hinn land- flótta Sovétmaöur, 46 ára af- mæli. Eflaust hefur hann fengið heillaskeyti vlöa aö og m.a. fékk hann skeyti frá Spassky I gær, en þeir hafa ávallt veriö góöir vinir. 1 dag á Smyslov aöstoöar- maöur Spasskys 56 ára afmæli. Smyslov, varö heimsmeistari i skák fyrir 20 árum, þá 36 ára aö aldri. A laugardaginn á svo Marina Spassky afmæli, en um aldur hennar vitum viö ekki. Þá má loks geta þess aö fyrir nokkru átti Bent Larsen 40 ára afmæli.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.