Tíminn - 16.04.1977, Qupperneq 5

Tíminn - 16.04.1977, Qupperneq 5
Laugardagur 1». aprll 1877 5 Höfundur sitjandi fyrir miöju og leikararnir i kring um hann. Barnalán Kjartans Ragnarssonar í Iðnó „Blessað barnalán” heitir nýtt verk eftir Kjartan Ragn- arsson sem frumsýnt verður þriðjudaginn 19. april hjá Leik- félagi Reykjavikur. Þetta er annað verkið sem tekið er til sýningar i Iðnó eftir Kjartan. Saumastofan hefur verið sýnd þar alls 125 sinnum. Þetta verk er skopleikur eða ærslaleikur sem gerist austur á landi i þorpi og snýst einkum um fjölskyldulif á einu heimili, þar sem býr fyrrverandi mátt- arstólpi félagslifs i þorpinu. Atburðarásin byggist að sjálf- sögðu á misskilningi og óvænt- um uppákomum, og ærslin veröa með ýmsu móti, raunar bæði þessa heims og annars. — Inn i leikinn dragast börn þeirrar gömlu, en þau koma i ó- vænta heimsókn að sunnan, norðan og vestan frá Ameriku. Auk þeirra flækjast ýmsir fyrir- menn þorpsins inn i málin, eink- um presturinn og raunar einnig læknirinn. Höfundur er sjálfur leikstjóri en leikmynd gerir B jörn B jörns- son, lýsingu annast Daniel WilÚamsson. — Eitt aðalhlut- verkið i leiknum er i höndum Herdisar Þorvaldsdóttur, en hún hefur ekkileikið i Iðnósiðan 1949, þá i Hamlet. Nú leikur hún sem gestur frá Þjóðleikhúsinu, fer með hlutverk Þorgerðar gömlu. Börn hennar leika: Guö- rún Asmundsdóttir, Valgerður Dan, Soffia Jakobsdóttir, Asdis Skúladóttir, Steindór Hjörleifs- son. Séra Benedikt er leikinn af Siguröi Karlssyni,Lóu prestsfrú leikur Sólveig Hauksdóttir, Bina á löppinni er leikin af Sigriði Hagalin, Tryggva Ólaf leikur Guðmundur Pálsson en Tryggva lækni Gisli Halldórs- son. Með hlutver.kbiskups fer Gestur Gislason. önnur sýning á „Barnaláni” veröur miðvikudaginn 20. april og uppselt er á þessar tvær fyrstu sýningar. Kvenfélagið Von 70 ára SE-Þingeyri — Kvenfélagið Von á Þingeyri átti sjötiu ára afmæli 17. febrúar. Ekki varð við komiö að minnast afmæl- isins þá, og var þaö haldið há- tiðlegt laugardaginn 26. marz með veglegu hófi i félags- heimilinu á Þingeyri. Þangað var boðið mökum félagskvenna og ýmsum vel- unnurum. Undir borðum voru ýmis skemmtiatriði, auk þess sem formaður félagsins rakti sögu þess i fáum dráttum. Félagið hefur frá upphafi látið ýmis liknar-og menningarmál á fé- lagssvæöinu til sin taka, þar á meðal gefið rausnarlegar gjafir til kirkju og sjúkraskýl- is á Þingeyri. 1 hófinu var Vonarkonunum þakkaður þessi stuðningur við almannaheill og meðal annars afhenti Þórður Jónsson, odd- viti Þingeyrarhrepps, félaginu eitthundrað þúsund krónur að gjöf sem þakkarvott frá hreppsbúum. Að loknu borðhaldi skemmti fólk sér við dans fram eftir nóttu. Fyrstu stjórn Vonar skipuðu þessar konur: Ólina Finn- bogason, Helga Samsonar- dóttir, Jóhann Proppé, Guðrún Benjaminsdóttir og Camilla Hall. Núverandi stjórn skipa Guðrún Sigurðar- dóttir gjaldkeri og Soffla Ein- arsdóttir og Guðrún Magnús- dóttir meðstjórnendur. Vegna mistaka hefur birting þessarar fréttar dregizt hjá blaðinu Frá stóðhestastöð Búnaðarfélags tslands, Eyrarbakka. Kynning á stóðhestum fer fram dagana 21. april og 21. mai 1977 frá kl. 13-19 báða dag- ana. Tamdir folar verða sýndir frá kl. 14,30 til 16. Hrossaræktarráðunautur. Sakadómur leitar eftir ungum manni — í tengslum við dómsrannsókn morðsins á Guðmundi Einarssyni HV-ReykjavIk.— Þaö er rétt að við þurfum aö ná sambandi við einn mann til viðbótar, i tengsl- um við moröið á Guðmundi Einarssyni. Það kom fram fyrir allnokkru siðan að við værum að leita eftir sambandi við ákveö- inn aöila og þetta er sá sami. Viö höfum til þessa reynt að ná sambandi við hann eftir á- kveðnum leiðum, en án árang- urs, og gæti jafnvel staðið til að lýsa eftir honum núna, þótt það sé aðeins einn mögnleiki, sem á- samt öðrum er I athugun, sagði Gunnlaugur Briem, sakadóm- ari, I viðtali viö Tlmann i gær. — Annars er þetta mál ekki komiö á þann rekspöl, aö unnt sé að ræða um það opinberlega, sagði Gunnlaugur ennfremur, að öðru leyti en þessu, að við þurfum að ná sambandi við manninn, en þaö hefur ekki tek- izt. Af Guðmundarmálinu er þaö annars aö segja, aö þessari dómsyfirheyrslu, svo og mjög rækilegri framhaldsrannsókn, á vegum lögreglunnar, er nú svo til lokið. Dóma er þó ekki að vænta I bráð, þvi Geirfinnsmál- ið er alveg eftir og þau verða tekin I sameiningu. Við hættum að reykja F.I. Reykjavlk. — Mánudag- inn 25. april hefst ab tilhlutan sjónvarpsins námskeið fyrir þá, sem vilja hætta að reykja. Námskeiöið stendur I viku og lýkur laugardagskvöldið 30. april. Verða leiðbeiningar á hverju kvöldi að loknum frétt- um. Hópur fólks, sem hefur ákveðiö að hætta aö reykja drepur I siðustu sigarettunni fyrsta kvöld námskeiðsins og fær siöan ráðleggingar um það hjá reyndum leiðbeinanda, hvernig bregðast eigi viö erfiöleikum fyrstu daganna. Námskeiðið er haldið meö það fyrir augum, aö þeir, sem vilja hætta að reykja, noti þetta tækifæri og myndi hópa, t.d. á vinnustööum eða heimil- um og fari að dæmi þátttak- enda I sjónvarpssal. Athygli skal vakin á þvi, að 1 fréttatima sjónvarpsins sunnudagskvöldiö 17. april verður stutt viðtal viö for- mann islenzka bindindis- félagsins, en þar gefur hann þeim góö ráö, sem vilja hætta að reykja 25. april meö hópn- um I sjónvarpssal. Þar sem réttarhöldin yfir banamönnum Guðmundar Einarssonar eru lokuö, fékkst Gunnlaugur ekki til að ræða það, sem komið hefði fram við þau, né heldur til að skýra frá neinu i sambandi við þau. Tim- inn hefur þó fregnað, að tveir sakborninganna I Guömundar- málinu hafi dregið játningar sinar til baka. Þetta fékkst ekki staðfest. 40 sidur sunnu MYKJUDREIFARINN afkastamikli Howard dreifir öllum tegundum búfjáráburðar — jafnt lapþunnri mykju sem harðri skán. Rúmtak 2,5 rúmmetrar (eða 1400 Itr.). Belgvið dekk 1250x15. Spyr jið nágrannann um gæði Rota- spreader og sannfærist. Fyrirliggjandi IZA lJ/ODUSf 3 LAGMÚLA 5, REYKJAVIK. SIMI 81555 II | ii FIRMAKEPPNI FIMLEIKASAMBANDS ÍSLANDS verður í Iþróttahöllinni ó morgun, sunnudag, kl. 15. — Forgjafarkeppni. Allir hafa jafna möguleika til sigurs. — Spennandi keppni. — Fimleikasambandið.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.