Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 6
6 28. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR KJÖRKASSINN Á að leyfa útlendingum að fjár- festa í íslenskum sjávarútvegi? Já 40% Nei 60% SPURNING DAGSINS Í DAG Viltu láta reisa friðarsúlu Yoko Ono í Viðey? Segðu þína skoðun á visir.is BRUSSEL, AP Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í gær að veita 120 milljónum evra, andvirði tæplega 9,5 milljarða króna, í bráðaaðstoð til palestínsku heimastjórnarinnar áður en ný stjórn undir forystu Hamas-sam- takanna tekur við völdum. Hamas eru ennþá á lista Evrópusambands- ins yfir hryðjuverkasamtök. Fjárhagsaðstoðinni er ætlað að forða Palestínu frá „efnahagslegu öngþveiti“ sem ella væri yfirvof- andi, að því er franski utanríkis- ráðherrann Philippe Douste-Blazy lét hafa eftir sér. Fénu er ætlað að standa straum af kostnaði við orkukaup, heilbrigðis- og mennta- þjónustu og launum starfsmanna palestínsku heimastjórnarinnar. ■ Utanríkisráðherrafundur ESB: Veita fé til Palestínu PLASSNIK OG SOLANA Utanríkisráðherra Austurríkis, sem fer með formennskuna í ESB, og utanríkismálastjóri ESB á ráðherra- fundinum í Brussel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL ,,Framhaldsskólar eiga að keppa um nemendur og starfs- fólk á grundvelli eigin stefnu og markmiða,“ segir í ályktun frá Sambandi ungra sjálfstæðismanna sem fagnar ákvörðun mennta- málaráðherra um að leggja af sam- ræmd stúdents- próf í framhalds- skólum. Jafnframt er kallað eftir breyt- ingum á reglum um samræmda kennsluskrá á framhaldsskóla- stigi svo að skólarnir hafi meira val um kennsluefni og kennslu- hætti. SUS hvetur stjórnvöld til að stuðla að aukinni þátttöku einka- aðila í menntamálum á öllum skólastigum. - sdg Ungir sjálfstæðismenn: Samkeppni um nemendur BORGAR ÞÓR EINARSSON FOR- MAÐUR SUS MENNTAMÁL Margir starfsmanna Menntaskólans á Ísafirði eru ýmist reiðir eða sárir eftir að til- kynnt var um fyrirhugað brott- hvarf Ólínu Þorvarðardóttur skólameistara. Þetta segir Gísli Halldórsson, fjármálastjóri skól- ans. Gísli segir að kennararnir vilji að farið verði að ráðum Félagsvís- indastofnunar Háskólans um að sex til sjö kennarar víki ákveði skólameistari að gera það vegna deilnanna þeirra á milli. Hann segir aðra starfsmenn sjá fyrir sér gríðarlega erfiða framtíð eigi brotthvarf Ólínu eitt að leysa vandann. Guðmundur Þór Kristjánsson, kennari í vélstjórnar- og málm- iðnaðardeild við skólann, segir stærstan hluta kennarahópsins, sextán til sautján manns, hafa þagað þann tíma sem átök á milli skólameistara og hóps kennara hafi staðið og látið allt yfir sig ganga. Hann geti ekki hugsað sér að starfa áfram innan skólans láti menntamálaráðuneytið brott- hvarf Ólínu nægja: „Við hin höfum alla tíð trúað að ráðuneytinu væri alvara með úttekt Félagsvísinda- stofnunar og ætlaði að nota hana sem verkfæri að lausn málsins. Svo komumst við að því að það ætlaði aðeins að nota þann hluta niðurstöðunnar sem því hentaði. Stærsti hluti kennaranna var hafður af fífli með því að láta okkur skrifa undir samkomulag sem aldrei stóð til að standa við. Við erum fjúkandi reiðir yfir því.“ Þorsteinn Þorsteinsson, for- maður Skólameistarafélags Íslands, segir brotthvarf Ólínu verða skoðað í félaginu á næst- unni. - gag Kennarar Menntaskólans á Ísafirði vilja að allir sem áttu í illdeilunum víki: Sitja eftir reiðir og sárir DEILA SEM DREGUR DILK Á EFTIR SÉR Ólína undirbýr sig fyrir sjónvarpsviðtal í gærkvöld. Hún segir að hún hafi ákveðið að láta af störfum svo að sá árangur sem hún hafi náð í starfi glatist ekki. „Ég get alltaf fundið mér annað starf og hafið nýtt líf,“ sagði Ólína í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK LÆKNISFRÆÐI Ástralskir vísinda- menn þróa nú nýja meðferð gegn sykursýki þar sem sjávarþang gegnir mikilvægu hlutverki. Litlum hylkjum er sprautað í líkama sjúklingsins en þau inni- halda frumur sem framleiða ins- úlín. Hylkin eru búin til úr þangi sem líkaminn hafnar ekki sem aðskotahlut og því er lyfjagjöf til að bæta ónæmiskerfið óþörf. Þetta kemur í veg fyrir alvarlegar auka- verkanir sem er vandamál við meðferð sykursjúkra. - shá Ný meðferð þróuð í Ástralíu: Þang notað gegn sykursýki DÓMSMÁL Eyjólfur Sveinsson, fyrrverandi stjórnarformaður Vísis.is, og Svavar Ásbjörnsson, fyrrverandi fjármálastjóri sama fyrirtækis, neituðu báðir að bera ábyrgð á millifærslum sem sam- tals námu tæplega 25 milljónum króna af reikningi Vísis.is ehf. yfir á reikning Fréttablaðsins ehf. í apríl árið 2002. Eyjólfur og Sveinn voru í for- svari fyrir eignarhaldsfélagið Vísi.is og Fréttablaðið ehf., sem gaf Fréttablaðið út áður en það fór í þrot fyrir um þremur árum. Eyjólfi er gefið að sök að hafa fyrirskipað Svavari, sem var fjármálastjóri bæði Vísis.is ehf. og Fréttablaðsins ehf., að milli- færa tæpar 25 milljónir í 24 milli- færslum frá 29. apríl 2001 til 27. maí sama ár. Í ákæru ríkislögreglustjóra segir að Eyjólfi og Svavari hafi báðum verið kunnugt um að ekki hafi verið innistæða fyrir milli- færslunum, auk þess sem ekki hafi verið heimild til yfirdráttar. Þá hafi skuldastaða Vísis.is ehf. verið með þeim hætti að afar ólíklegt hafi verið að fyrirtækið hafi getað borgað til baka þá upp- hæð sem í heild var millifærð yfir á reikning Fréttablaðsins ehf. Eyjólfur er einnig ákærður, ásamt Sveini Eyjólfssyni föður sínum, fyrir brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda en brotin voru framin í rekstri Dags- prents á Akureyri. Eyjólfur var stjórnarformaður félagsins en Sveinn sat í stjórninni. Í ákærunni eru þeir sagðir ábyrgir fyrir því að Dagsprent hf. hafi ekki staðið í skilum við sýslumanninn á Akureyri. Sam- tals nema kröfurnar rúmlega tveimur milljónum krónum. Eyjólfur og Sveinn sögðust ekki bera ábyrgð á þessum greiðslum og samkvæmt vitnis- burði þeirra í héraðsdómi var hvorugum þeirra kunnugt um hvers vegna þessi gjöld voru ekki greidd, og bar Eyjólfur því við að hann hefði ekki þekkt mikið til hvernig fjármálum Dagsprents hf. var háttað. Marteinn Kr. Jónasson, fram- kvæmdastjóri prentfyrirtækis- ins Nota Bene hf., er ákærður ásamt Eyjólfi og Karli Þór Sig- urðssyni, sem báðir sátu í stjórn fyrirtækisins, fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt. Þrímenning- arnir eru í ákæru ríkislögreglu- stjóra sagðir ábyrgir fyrir því að ekki voru greiddar tæpar fimmt- án milljónir í virðisaukaskatt. Eyjólfur neitaði því í gær að hafa átt að bera ábyrgð á þessari greiðslu og bar við minnisleysi þegar hann var spurður nánar út í stjórnskipun fyrirtækisins. magnush@frettabladid.is Neita ábyrgð á óreiðu Eyjólfur Sveinsson og Sveinn Eyjólfsson neita ábyrgð á fjármálaóreiðu fyrirtækja tengdum Frjálsri fjölmiðl- un. Vanskil á virðisaukaskatti og opinberum gjöldum nema um áttatíu milljónum króna. ÞEIR SEM ÁKÆRÐIR HAFA VERIÐ * Eyjólfur Sveinsson * Sveinn R. Eyjólfsson * Svavar Ásbjörnsson * Marteinn Kr. Jónasson Karl Þór Sigurðsson Ómar Geir Þorgeirsson Sigurður Ragnarsson Ólafur Haukur Magnússon Valdimar Grímsson Sverrir Viðar Hauksson * Alvarlegustu ákærurnar eru á hendur Eyjólfi Sveinssyni, Sveini R. Eyjólfssyni, Svavari Ásbjörnssyni og Marteini Jón- assyni, en þeir eru ákærðir fyrir að bera ábyrgð á vanskilum og ógreiddum opin- berum gjöldum fyrirtækja er nema tugum milljóna króna. STÓRIÐJA Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirði hafa hrundið af stað undirskriftar- söfnun á netinu gegn álveri á Norð- urlandi. Söfnunin hófst um miðja síð- ustu viku og í gær höfðu á áttunda hundrað manns skráð nöfn sín á mótmælalistann. Hlynur Halls- son, varaþingmaður vinstri grænna í Norðausturkjördæmi og félagi í samtökunum, segir mótmælin ekki beinast eingöngu gegn álveri í Eyja- firði heldur á Norðurlandi í heild. Á morgun mun Alcoa tilkynna hvort félagið ætli að ráðast í álversframkvæmdir á Norður- landi. „Fari svo þá munum við samt halda mótmælum áfram,“ segir Hlynur. - kk HLYNUR HALLSSON Undirskriftalisti á netinu: Gegn álveri á Norðurlandi LÖGREGLA Lögreglan á Akureyri hefur undanfarna mánuði rann- sakað meint blygðunarbrot karl- manns á Akureyri gagnvart ungum börnum sem búsett eru vítt og breitt um land. Er maður- inn grunaður um að hafa hringt í símanúmer af handahófi og klæmst við börn sem svöruðu hringingum hans ef foreldrar þeirra voru ekki heima. Guðmundur St. Svanlaugs- son, rannsóknarlögreglumaður á Akureyri, segir sex kærur hafa borist vegna mannsins en unnið hefur verið að rannsókn málsins frá því í fyrravor. „Ein kæran kemur frá umdæmi lögreglunnar á Akur- eyri en hinar eiga uppruna sinn í öðrum lögregluumdæmum. Svo virðist sem maðurinn hafi notað tvö óskráð símanúmer eingöngu í þessum tilgangi en um er að ræða einsetumann sem ekki hefur áður komið við sögu lög- reglunnar,“ segir Guðmundur. Ekki hefur verið tekin form- leg skýrsla af manninum en Guð- mundur segir að hann verði yfir- heyrður í næstu viku. Börnin sem maðurinn er grun- aður um að hafa klæmst við eru á aldrinum 10 til 13 ára og af báðum kynjum. - kk Einsetumaður á Akureyri grunaður um að klæmast við börn í síma: Valdi börnin af handahófi EYJÓLFUR SVEINSSON SKOÐAR MÁLSGÖGN Hart var sótt að Eyjólfi fyrir dómi í gær en hann firrti sig ábyrgð á fjármálaóreiðu, sem leiddi til ákæra á hendur tíu manns vegna vangoldinna opinberra gjalda og ógreidds virðisaukaskatts. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGMENN RÆÐA MÁLIN Halldór Jónsson, lögmaður Eyjólfs, er lengst til vinstri á myndinni en við hlið hans er Einar Hálfdánarson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VIÐSKIPTI Útistandandi lán Íbúða- lánasjóðs drógust saman um tæp 13 prósent í fyrra eða um 54 millj- arða. Hagnaður af rekstri sjóðsins nam rúmum 1,1 milljarði króna sem er svipuð afkoma og árið áður. Útlán námu 73,7 milljörðum króna, en alls voru greidd upp lán fyrir 128 milljarða króna. Mark- aðshlutdeild sjóðsins á íbúðalána- markaði hefur dregist saman og er 47 prósent samanborið við 68 prósent árið áður. Bankarnir hafa aukið sína hlutdeild úr 19 prósent- um í 41 prósent á sama tímabili. Vanskil hjá Íbúðalánasjóði eru í lágmarki. - hh Samdráttur hjá Íbúðalánasjóði: 128 milljónir greiddar upp BARN Foreldrar sex barna hafa kært mann- inn fyrir dónasímtöl.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.