Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ���������� ��������������� ������������� Níutíu þúsund kall fær nýliði í slökkviliðinu útborgaðan í grunnlaun um mánaðamót. Hann hefur þá gengið í gegnum þjálfun til að geta fyrirvaralaust stokkið í gallann og vaðið eld og reyk fyrir okkur hin. Hann er tilbúinn til að sækja meðvitundarlaust fólk inn í logandi hús – þjálfaður til að mæta aðstæðum sem við í okkar daglega amstri getum vart gert okkur í hugarlund. Auk þess kemur hann kallaður innan örfárra mínútna ef við þurfum á sjúkrabíl að halda í skyndi og þar skipta mínútur oft sköpum. Hann æfir linnulaust til að koma til bjargar á erfiðustu stundum lífsins. Níutíu þúsund kall útborgaður í grunnlaun. NÝVERIÐ tók þessi þjóð umræð- una um laun leikskólakennara og flestir voru sammála um að reyna að halda þeim hópi af götunni og tosa mannskapinn upp fyrir hung- urmörkin – hvernig sem það hefur þó lukkast. Á sama tíma þurfa aldraðir að skilja að borði og sæng á ævikvöldinu vegna húsnæðis- eklu. EF verðbréfasali, stjórnmálamað- ur og forstjóri strönduðu snekkju sinni á eyðieyju og dönsk þyrla með íslenskri björgunarsveit lenti þar á ströndinni gætu björgunar- menn kannski spurt glópana hver hin eiginlegu verðmæti væru. Myndu strandaglóparnir þá nefna bréfin í Aktavís og KB, einkavæð- ingu bankanna, stóriðjuna, virkj- anirnar, útrásina, rússneska bjór- inn og EES? Það er ólíklegt – og ef þeir gerðu það væri freistandi að skilja þá eftir. Nei, þeir myndu nefna börnin, fjölskylduna og heimilið. Þeir myndu nefna örygg- ið og heilsuna og kannski biðja um matarbita líka. ÞÓ er það nú svo að flestir sem starfa við að tryggja þetta öryggi, hlúa að börnum, grípa inn í þegar heilsan gefur sig og vaða inn í log- andi byggingar eru á mánaðar- launum sem jafngilda launum verðbréfasalans fyrir hádegi á þriðjudegi. Öfugsnúið verðmæta- mat er gömul saga og ný og ekki líður á löngu þar til eina leiðin til að hafa þetta lykilfólk á mann- sæmandi launum verður að fá kostunaraðila á björgunaraðgerð- ir. Þá má merkja slökkviliðsbún- ingana hinum og þessum stórfyr- irtækjum og mála á bílana í bleiku og gulu: Þessi björgunaraðgerð er í boði Glaums, Haugs eða Draugs. ER nema von að slökkviliðsmenn séu bálreiðir? Verðmæta- matið �������������� ������� ���������� ���� ���������������� �������������� ������ AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.