Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 24
[ ]Stórar brúðkaupsveislur með miklu tilstandi geta verið skemmtilegar. Það er hins vegar ekki gott að hafa svo miklar áhyggjur af boðskortum og blóma-skreytingum að það gleymist að njóta dagsins með makanum.
Flestir gifta sig á sumrin og
margir velja brúðkaupsdaginn
með afmæli eða merkileg tíma-
mót í huga. Fólk pantar kirkju
og prest yfirleitt með góðum
fyrirvara en Bjarni Karlsson
hefur þó gefið fólk saman með
þriggja daga fyrirvara.
,,Margir gifta sig á sumrin í von
um að eiga bjartan og sólríkan dag,
en þegar uppi er staðið eru það
aðrir þættir en veðrið sem ráða
gæðum dagsins,“ segir Bjarni
Karlsson prestur í Laugarnes-
kirkju. Þegar brúðkaupsdagurinn
er valinn er meðal annars tekið til-
lit til þess hvort stór ferðahelgi sé
fyrirsjáanleg. ,,Stundum miðar
fólk einnig brúðkaupsdaginn við
aðra viðburði svo sem afmæli eða
mikilvæg tímamót. Ég hef gefið
hjón saman á brúðkaupsdegi for-
eldra annars aðilans. Eldri sæmd-
arhjón höfðu átt farsælt hjónaband
og unga parið áleit það mikið gæfu-
merki að gifta sig á sama degi.“
Margir panta kirkju og prest
með árs fyrirvara. ,,Síðan eru aðrir
sem kýla á þetta með mánaðar fyr-
irvara. Fólk sér kannski gloppu í
dagatalinu og rými í fjárhaginum
og ákveður að drífa í þessu,“ segir
Bjarni og bætir því við að um dag-
inn hafi hann gift par með þriggja
daga fyrirvara. ,,Þau voru að fara í
nám til Indlands og ætluðu að gifta
sig að ári liðnu. Þau komust hins
vegar að því að það gæti kostað
mikil vandræði að vera ógift á Ind-
landi og því var brúðkaupi skellt á
í mesta skyndi. Athöfnin fór fram
á skrifstofunni hjá mér og var
mjög hátíðleg og yndisleg stund þó
engu væri til tjaldað.“
Bjarni kveðst sjá vissa breyt-
ingu í tónlistarvali í brúðkaupsat-
höfnum. ,,Mér finnst gömlu góðu
brúðkaupssálmarnir úr sálmabók-
inni vera að koma aftur. Tónlistar-
menn svo sem Páll Óskar Hjálm-
týsson hafa tekið þá upp og gert að
sínum og þeir bara virka. Mér
finnst breytingin vera virkilega
dýrmæt, ekki vegna þess að það
megi ekki syngja hvaða tónlist
sem er í kirkjum, heldur vegna
þess að með því að hafa mikla
breidd í tónlistarvali og slá á
marga tilfinningastrengi verður
brúðkaupsreynslan miklu dýpri.“
Mjög misjafnt er hvernig tónlist-
inni sé háttað. Margir vilja hafa
uppáhaldssöngvara sinn í athöfn-
inni en einnig er algengt að vina-
hópur brúðhjónanna syngi eða við-
staddir einfaldlega taki lagið
saman. ,,Það sem skiptir öllu er að
tónlistin sé lifandi og gefin af heil-
um hug. Ég er á móti því að fólk
noti tónlist af diskum því þá er
brúðkaupsathöfnin ekki lengur í
núinu.“
Bjarni segir það þó ráða úrslit-
um að þetta mikilvæga skref sé
tekið af einlægni. ,,Mesti óvinur
hjónavígslunnar er yfirborðs-
mennskan alveg eins og yfirborðs-
mennskan og hraðinn er mesti
óvinur hjónabandsins,“ segir
Bjarni að lokum.
mariathora@frettabladid.is
Bjarni segir yfirborðsmennsku einn mesta óvin hjónabandsins.
Sálmarnir snúa aftur
Fræðsluerindi um samband
lesbía verður haldið í Laug-
arneskirkju klukkan 20.00 í
kvöld.
Þær Guðlaug Jónsdóttir og Guð-
rún Óskarsdóttir munu gefa við-
stöddum innsýn inn í ást sína og
sambúð á mannræktarkvöldi í
Laugarneskirkju í kvöld klukkan
20.00. Þær eru í staðfestri samvist
og eiga saman eina dóttur, auk
þess sem Guðrún á eldri dóttur úr
fyrra sambandi.
Samveran hefst á kvöldsöngi í
kirkjunni en klukkan 20.30 flytja
þær Guðlaug og Guðrún mál sitt.
Hægt er að koma beint á fræðslu-
erindið og er þá gengið inn í safn-
aðarheimilið. Allir eru velkomnir.
Lesbíur
ræða málin
Kvöldsöngur verður í kirkjunni á undan
erindinu. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
• Brúðarkjólar
• Smókingar og kjólföt
• Hátíðarbúningar herra
Rýmingarsala - Frábær verð
Brúðarbær
brúðakjóla- og fataleiga
Hjallabrekku 37, Kópavogi
Sími 554-0993