Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 10
10 28. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR UMFERÐ „Þeir þjóta hér gegnum bæinn jafnvel á 70 kílómetra hraða. Á sama tíma er lögreglan að mæla einhverja ökumenn úti á þjóðvegunum meðan öryggi bæj- arbúa situr á hakanum,“ segir Smári Örn Árnason íbúi á Grund- argötu, en hún liggur þvert gegnum bæinn á Grundarfirði. Hann segir að frá því að skipa- flutningar lögðust niður og brú var reist yfir Kolgrafarfjörð hafi umferð flutningabíla aukist gríð- arlega. „Ég þori ekki lengur að hafa börnin mín úti að leika við götuna líkt og tíðkast hefur. Á dögunum var ekið yfir köttinn minn en það er minna miðað við að ekki er langt síðan hér varð umferðarslys,“ segir hann. Talsverð útgerð er frá Ólafsvík og fylgja henni miklir flutningar til og frá bænum að sögn Smára Arnar en einnig eiga Landflutn- ingabílar oftsinnis leið um Grundarfjörð. „Það eru hraðahindranir í miðj- um bænum en þangað til komið er að þeim er þessum bílum ekið á alltof miklum hraða. Ég hef kvart- að undan nokkrum ökuþórum til lögreglu en hún gerir ekkert í málinu. Við íbúar við Grundar- götu höfum rætt málin og stendur okkur öllum stuggur af þessu,“ segir Smári Örn. - jse Mikil umferð flutningabíla veldur ugg á Grundarfirði: Hraðakstur gegnum bæinn SMÁRI ÖRN ÁRNASON MEÐ BÖRN SÍN Smári Örn með fjölskylduna við Grundar- götu. Nikulás er við hlið föður síns og svo er Jóhanna með Súsönnu systur sína í fanginu en fremstur er heimilishundurinn Pollí. ÚTHRÓPA BUSH Sjía-múslímar í Kasmír hrópa vígorð gegn Bandaríkjunum í mótmælagöngu í Srinagar í gær, sem efnt var til í tilefni af sprengjutilræði í Gullnu moskunni í Samarra í Írak. Á skiltinu stend- ur „Múslímamorðinginn G.W. Bush“. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KJARAMÁL Árni Stefán Jónsson, framkvæmdastjóri SFR stéttarfé- lags í almannaþjónustu, verður næsti formaður félagsins sam- kvæmt tillög- um uppstill- ingarnefndar sem voru samþykktar á trúnaðar- mannaráðs- fundi í sein- ustu viku. Ný stjórn verður kjörin á aðalfundi SFR 25. mars og berist ekki aðrar tillögur 25 dögum fyrir fundinn eru tillögurnar sem trún- aðarráðið samþykkti sjálfkjörnar. Jens Andrésson sem hefur verið formaður undanfarin ár lætur af embætti á aðalfundinum. - sdg Tillögur uppstillingarnefndar: Jens hættir sem formaður SFR JENS ANDRÉSSON ... nú færðu Gouda 11% í sneiðum! Nýtt! ÍRAK Þriggja daga samfelldu útgöngubanni var aflétt í Bagdad í gærmorgun. Hræðsla er þó enn ofarlega í huga fólks og margir óttast að kyrrðin í morgun sé bara lognið á undan storminum. Á sunnudag fundust lík 36 manna til viðbótar þeim 165 sem látið hafa lífið í átökum í landinu síðan hryðjuverkamenn sprengdu einn mesta helgidóm sjía-múslima, Gullnu moskuna í Samarra, síðast- liðinn miðvikudag. Sprengjum var varpað í hverfi sjía í gærmorgun. Fjórir létust og sextán særðust. Fjórtán sérsveit- armenn íraska hersins féllu í skot- bardaga við herskáa sjía-múslíma í suðurhluta Bagdad á sunnudag. Bílsprengja drap átta í borginni Karbala og átök víðar um landið drógu enn fleiri til dauða. Óttast margir að átök síðustu daga séu undanfari almennrar borgarastyrjaldar og reyna stjórn- völd nú allt til að viðhalda stjórn í landinu. Útgöngubannið var liður í þeirri viðleitni. Vonast er til að viðræður um myndun þjóðstjórnar haldi áfram nú í vikunni. ■ AUÐAR GÖTUR Vegna útgöngubannsins voru stríðsvagnar einu ökutækin sem sáust á götum Bagdad um helgina. AFP/NORDICPHOTOS Ekkert lát á blóðbaðinu í Írak: Útgöngubann hefur skilað litlum árangri REYKJAVÍK Anna Kristinsdóttir borg- arfulltrúi hefur ákveðið að taka ekki að sér formennsku í samstarfs- hópi um legu Sundabrautar þar sem aðstæður hennar hafa breyst og hún mun ekki sitja nema út þetta tímabil. Samþykkt hefur verið í framkvæmdaráði að Dagur B. Eggertsson taki við formennsku. „Það er ómögulegt að vita hversu langt þetta samráðsferli verður og ég tel eðlilegast að setja þetta í hendurnar á öðrum. Ég sit áfram sem fulltrúi framkvæmdaráðs en mér fannst óeðlilegt ef upp kæmi sú staða að ég myndi hætta og ein- hver annar þyrfti að setja sig inn í þennan feril,“ segir hún. - ghs Vinnuhópur um Sundabraut: Dagur tekur við formennsku Endast styst í starfi Danir eru duglegastir meðal Evrópuþjóða í því að skipta um atvinnu, samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var á vegum fram- kvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Frá þessu er greint á fréttavef danska ríkisútvarpsns. Þar segir einnig að hver Dani hafi að meðaltali verið í sex störf- um. Næst koma Bretar, Svíar og Finnar, en á hinum endanum eru Austurríki og nýju Evrópusambandslöndin. DANMÖRK BAUGSMÁL Tyge Trier, danskur sér- fræðingur í mannréttindalöggjöf, telur að sakborningar í Baugsmál- inu ættu að íhuga að skjóta máli sínu til Mannréttindadómstólsins í Strassborg komist Hæstiréttur að því að heimila megi endurupptöku málsins á grundvelli ákæruliðanna 32 sem vísað var frá dómi 10. október síðastliðinn. Trier gerði grein fyrir niðurstöð- um sínum á fundi með blaðamönn- um í gær, en hann hefur unnið nærri þrjátíu blaðsíðna greinargerð um málið fyrir Baug Group. Í greinargerðinni segir að vegna þess hve annmarkarnir séu marg- víslegir í Baugsmálinu í heild sé það mat höfunda hennar að þegar á þessu stigi hafi verið brotið gegn sjöttu grein mannréttindasáttmála Evrópu. „Ef ríkissaksóknara væri heimilað að leggja fram nýja ákæru varðandi ákæruliðina 32 myndi það enn fremur að okkar mati gefa til- efni til þess að ætla að brotið hafi verið gegn réttinum til réttlátrar málsmeðferðar vegna annmark- anna og geðþóttans sem einkennt hafa endurskoðun ákærunnar.“ Síðan segir að á grundvelli til- tækra gagna virðast því vera traustar forsendur fyrir kröfu um niðurfellingu málssóknar gegn sak- borningum á grundvelli ákærulið- anna 32 sem vísað var frá dómi. Um þetta vísar Trier aftur til sjöttu greinar mannréttindasáttmálans og telur að til þess að telja megi að brotið hafi verið gegn henni verði að leggja heildarmat málsatvika til grundvallar. Tyge Trier furðaði sig á niður- stöðu norska saksóknarans Mortens Eriksen í Morgunblaðsgrein síðast- liðinn laugardag, en Eriksen gagn- rýndi meðal annars hversu strang- ar kröfur Hæstiréttur gerði um verknaðarlýsingu meintra brota. Tyge Trier vísaði í þessu efni enn á ný til sjöttu greinar mann- réttindasáttmálans um að hver sá sem borinn sé sökum um refsiverða háttsemi eigi að fá án tafar vit- neskju í smáatriðum um eðli og orsök þeirrar ákæru sem hann sæti. Trier gerði athugasemdir við það sem hann kallaði eyðu í íslenskri löggjöf,en hvergi væri kveðið á um frest ákæruvaldsins til endurskoð- unar og ákvörðunar um að kæra aftur á grundvelli eldri gagna. Vísast myndi Mannréttindadóm- stóllinn telja það mannréttindabrot hefði ákæruvaldið í raun geðþótta- vald um þann frest sem það tekur sér í þeim efnum. johannh@frettabladid.is Mannréttindi þegar brotin Tyge Trier, sérfræðingur um mannréttindalöggjöf, telur efni til þess að vísa Baugsmálinu til Mannrétt- indadómstóls Evrópu, komist Hæstiréttur að því að heimilt sé að höfða málið á ný á grundvelli ákærulið- anna 32. sem vísað var frá dómi. Settur saksóknari tekur ákvörðun um slíkt snemma í næsta mánuði. GESTUR JÓNSSON, HREINN LOFTSSON OG EINAR Þ. SVERRISSON Verjendur í Baugs- máli og stjórnarformaður Baugs hlýða á mál Tyge Trier, en hann tók að sér að skoða Baugsmálið þegar í október síðastliðnum. TYGE TRIER SÉRFRÆÐINGUR UM MANNRÉTTINDALÖGGJÖF Trier kynnti nærri 30 blaðsíðna álitsgerð sína á Hótel Nordica í gær. Í henni er rakinn fjöldi dóma sem Mannréttindadóm- stóll Evrópu hefur kveðið upp. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.