Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 32
 28. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR20 timamot@frettabladid.is Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ágústa María Ahrens áður til heimilis í Barmahlíð 19, lést laugardaginn 18. febrúar á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 1. mars, kl. 15:00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað, en þeir sem vilja minnast hennar láti Félag aðstandenda Alzheimers- sjúkra njóta þess. (Sími 898-5819) Georg Ahrens Hauksson Ingibjörg Sveina Þórisdóttir Erlendur Hauksson Kristín Helgadóttir Sonja Georgsdóttir Ingi Haukur Georgsson Sigrún Pétursdóttir Ágústa Ruth Ahrens Georgsdóttir Ragnar Páll Dyer Ólafur Haukur Erlendsson Sigrún Björgúlfsdóttir Almar Þór Ingason Annamaría Alesdotter Haraldur Haukur Ingason og barnabarnabörn. Að kvöldi þessa dags árið 1986 var Olof Palme, hinn ástsæli for- sætisráðherra Svíþjóðar, skotinn til bana í Stokkhólmi. Palme og eiginkona hans, Lisbeth Palme, lögðu leið sína í kvikmyndahúsið Grand þetta örlagaríka kvöld og höfðu mælt sér mót við son sinn og unnustu hans. Kvikmyndasýningunni lauk rúmlega ellefu. Palme- hjónin kvöddu soninn fyrir utan kvikmyndahúsið og gengu í áttina að gatnamótum við Tunnelgötu sem í dag heitir Olof Palmes gata. Þegar þau komu að gatnamótun- um steig fram maður og hleypti af tveimur skotum úr magnum- skammbyssu af gerðinni Smith & Wesson. Annað skotið hitti Olof Palme og varð honum að bana. Hitt skotið særði Lisbeth Palme. Byssumaðurinn hljóp síðan burt í austurátt eftir Tunnelgötu. Morðið var sænsku þjóðinni mikið áfall og það vakti vitaskuld óhug um öll Norðurlönd þar sem það hafði ekki tíðkast að ráða þjóðarleiðtogum bana. Rannsókn morðmálsins varð síðan eitt allsherjar klúður og enn hefur ekki fengist botn í það hver banaði Palme í raun og veru og hvílir málið því enn þungt á Svíum. Árið 1989 var maður að nafni Christer Pattersson dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið en dómurinn var afturkallaður nokkrum mánuðum síðar. ÞETTA GERÐIST > 28. FEBRÚAR 1986 Olof Palme skotinn til bana OLOF PALME MERKISATBURÐIR 1849 Fyrstu gullleitarmennirnir koma til San Fransiskó. 1920 Þilskipið Valtýr ferst fyrir sunnan land og með því þrjátíu menn. 1950 Breska olíuskipið Clam ferst við Reykjanes. 27 skipverjar farast en 23 er bjargað. Voru flestir þeirra kínverskir. 1975 Yfir fjörutíu látast í neðan- jarðarlestarslysi í London. 1983 Samþykkt er á Alþingi að Ó, Guð vors lands! verði þjóðsöngur Íslendinga. 2001 Tíu látast í lestarslysi á Englandi þegar bíll kastast af þjóðvegi yfir á járnbraut- arteina. Snorri Vilhjálmsson er fyrsti Íslending- urinn til að útskrifast með meistara- gráðu í golfvallaarkitektúr. Hann útskrifaðist frá Edinborgarháskóla síð- astliðið vor og hefur síðan unnið að verkefnum fyrir Swan Golf Designs í Essex. Undanfarna daga hefur hann hvílt hugann og lúin bein á Íslandi en heldur á morgun til Austurríkis til að vinna fyrir fyrirtækið Golf and Land Design sem tekur að sér verkefni um alla Evrópu. „Ég fór út í þetta af því ég hafði mik- inn áhuga á golfi,“ segir Snorri sem hefur spilað golf frá þrettán ára aldri. Hann gerir ekki mikið úr sigrum sínum sem kylfingur en viðurkennir þó að hafa orðið unglingameistari í Garðabæ. Atvinnumennskan var þó of fjarlægur draumur og því var nám í golfvallaarki- tektúr kjörið tækifæri fyrir Snorra til að geta starfað við golf allan daginn. Snorri segir golfmenningu á Íslandi svipa mjög til þeirrar í Skotlandi. „Þar geta allir spilað golf og þetta er ekki snobbíþrótt,“ segir hann glaðlega og telur að svipað eigi við um Austurríki. Hins vegar sé annað uppi á tengingnum í Þýskalandi og Bandaríkjunum þar sem vellir eru lokaðir fyrir félaga og dýrt er að spila. Hann vill ekki gera upp á milli golf- valla á Íslandi en segir marga mjög góða. „Það er sérstaklega íslenskri náttúru að þakka,“ segir Snorri sem telur að oft sé betra að gera minna en meira og leyfa náttúrulegum einkenn- um að halda sér við golfvallagerð. Hann á sér enga uppáhaldsvelli en finnst fjölbreytnin best. „Mér finnst bæði gott að spila við sjóinn og í skóg- arvöllum,“ segir Snorri og finnst skemmtilegt að sjá mismuninn á þess- um völlum. Inntur eftir því hvort Íslendingar muni njóta starfskrafta hans í nálægri framtíð segist hann meira en til í það ef bjóðist skemmti- legt verkefni. Hann segir þróunina töluvert á uppleið hér á landi og skemmtilegt að sjá að erlendir golfarar séu farnir að sýna landinu áhuga, en fyrirhuguð er bygging alþjóðlegs keppnisvallar við Þorlákshöfn sem hinn heimsþekkti kylfingur Nick Faldo mun aðstoða við. Snorri segir töluverða þróun vera í golfinu um allan heim. Nú beri mest á uppbyggingu golfvalla og golfmenning- ar í austurhluta Evrópu sem er að opn- ast fyrir hugmyndinni auk þess sem meira fjármagn sé sett í íþróttina þar. Snorri veit ekki með vissu hvaða verkefni bíða hans á næstu mánuðum. Hins vegar er ljós að golfið er allt um kring í lífi hans. „Maður er allan dag- inn að hugsa um golf,“ segir Snorri og minnist þess að hreinlega var ætlast til þess að hann hugsaði og talaði um golf allan tímann sem hann var í náminu. „Þetta var eitthvað sem maður var skammaður fyrir hér í gamla daga,“ segir arkitektinn og hlær. ■ SNORRI VILHJÁLMSSON: HANNAR GOLFVELLI Í AUSTURRÍKI Golfvellir hans ær og kýr GOLFVALLAARKITEKT Snorri segir golfmenningu á Íslandi svipa mjög til þeirrar í Skotlandi þar sem allir geta spilað golf og íþróttin er laus við að vera snobbíþrótt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AFMÆLI Tryggvi Pálsson hagfræðingur er 57 ára. Edda Jónsdóttir myndlistarmaður er 64 ára. Mats Wibe Lund ljósmyndari er 69 ára. Hilmar Foss, skjala- þýðandi og dómtúlk- ur, er 86 ára. JARÐARFARIR 13.00 Jóna Þorsteinsdóttir frá Langholti í Flóa, síðast til heimilis í Seljahlíð, Hjalla- seli 55, Reykjavík, verður jarðsungin frá Hallgríms- kirkju. 13.00 Jón Þór Ólafsson verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju. 14.00 Bryndís Sigrún Karlsdóttir, áður til heimilis í Brekku- götu 29, Akureyri, verður jarðsungin frá Glerárkirkju. Börn og auglýsingar verða til umræðu á málþingi sem haldið verður á morg- un, öskudag, á Grand hóteli Reykjavík frá 12.30 til 16.45. Umboðsmaður barna, talsmaður neytenda og Heimili og skóli standa fyrir málþinginu sem ber yfirskriftina Börn og auglýsingar – er vilji til að setja frekari mörk við markaðssókn sem beinist að börnum? Sjónum verður beint að ýmsum þáttum sem snerta málefnið. Til að mynda hver staðan er í dag, gildandi reglur hérlendis og erlendis auk þess sem farið verður yfir fræðin sem liggja að baki. Má nefna að Baldur Kristjánsson, dósent í sálfræði við Kennaraháskóla Íslands, mun fjalla um auglýsingalæsi barna. Fjallað verður sérstaklega um börn sem neytendur en María Kristín Gylfa- dóttir, formaður Heimilis og skóla, reynir að svara spurningunni: Eiga auglýsendur að bjóða börnum upp í dans? Þá verður fjallað um markaðinn og hvort auglýsingar hafi í raun áhrif á börn og unglinga, auk þess sem Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsætis- ráðuneyti og fulltrúi í fjölmiðlanefnd, fjallar um ábyrgð ljósvakamiðla og annarra fjölmiðla gagnvart börnum. Í lok málþings stjórnar Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttastjóri NFS, pallborðsumræðum. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. ■ Málþing um börn og auglýsingar AÐ LEIK Á málþinginu Börn og auglýsingar verður reynt að svara þeirri spurningu hvort vilji sé til að setja frekari mörk við markaðssókn sem beinist að börnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HENRY JAMES (1843-1916) LÉST ÞENNAN DAG. „Hugmyndir eru, í raun og veru, afl.“ Henry James var bresk/bandarískur rithöfundur en þó nokkrar af sögum hans hafa verið kvikmyndaðar. Sigurður Sigurðarson, tamn- ingamaður og knapi, var kosinn íþróttamaður HSK, héraðssambandsins Skarp- héðins, árið 2005. Sigurður varð heimsmeistari í fjór- gangi á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Svíþjóð síðastliðið sumar á hestin- um Silfurtoppi frá Lækjar- mótum. Átján íþróttamenn voru tilnefndir í kjörinu sem var lýst á laugardag á Héraðs- þingi HSK í Hveragerði. Í öðru sæti varð kylfingurinn Hlynur Geir Hjartarson og þriðja Vigdís Guðjónsdóttir, frjálsíþróttakona í því þriðja. ■ Knapi valinn íþróttamaður HSK SIGURÐUR SIGURÐARSON KNAPI Valinn íþróttamaður HSK árið 2005. FÆDDUST ÞENNAN DAG 1901 Linus Pauling hlaut nóbelsverðlaun fyrir efnafræði árið 1954 og friðarverð- laun nóbels árið 1962. 1632 Jean Baptiste Lully tónskáld.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.