Fréttablaðið - 28.02.2006, Page 19

Fréttablaðið - 28.02.2006, Page 19
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. GÓÐAN DAG! Í dag er þriðjudagurinn 28. febrúar, 59. dagur ársins 2006 Kærleikssamtökin veita fólki leiðsögn við að yfirstíga erfiðleika í lífinu. Þau standa fyrir unglingastarfi, bænahóp og námskeiði sem nefnist Meðvitund. Þau verða með opið hús í Gerðubergi annað kvöld. Sigurlaug G. Ingólfsdóttir er potturinn og pannan í Kærleikssamtökunum sem stofnuð voru haustið 2004. Hún kveðst vilja hjálpa fólki að auka sjálfsaga og kærleika en hvern- ig ætlar hún að fara að því? „Með því að miðla því sem mér hefur reynst best í líf- inu,“ svarar hún og heldur áfram. „Þetta gengur út á að horfast í augu við sjálfan sig og eigin hegðun og átta sig á hverju maður vill breyta. Síðan er auðvitað að setja sér markmið og vinna að þeim með jákvæðu hugarfari. Finna hvernig maður getur nýtt góða eiginleika og kærleika til að ná þessum markmiðum.“ Sigurlaug hefur stundað heilunarnám hjá Guðspekifélaginu og er jógakennari frá Jóg- astúdíói Ásmundar. Hún kveðst leggja fram námskeiðsgögn í einföldu formi og býður líka upp á fjarnám gegnum tölvu, ef fólk vill nýta sér tæknina. „Þetta byggist svo mikið á sjálfsvinnu. Það sem á sér stað er að það er á meðvitaðan hátt verið að taka út neikvætt og setja inn jákvætt og læra að viðhalda því. Við viljum ekki hafa vírus í tölvunum okkar en við getum líka litið á heila okkar sem tölvu og við getum sett þar inn vírusvarnir með sjálfsvinnu,“ útskýrir hún. Hún ætlar líka að sinna unglingum og þá verður hún í Miðbergi, félagsmiðstöð Breiðhyltinga. „Ég vil efla og styrkja unga fólkið með ýmsum hætti og gera það meðvitað um eig- inn persónuleika. Það hefur jákvæð áhrif á líðan þess í daglegu lífi og samskiptum.“ Dagskráin mun hefjast 8. mars en Sigurlaug ætlar að kynna starfsemina nánar annað kvöld, kl. 20 í Gerðubergi. gun@frettabladid.is Markmiðið að skoða og bæta sjálfan sig Sigurlaug segir puðið í efnisheiminum ekki bestu leiðina til að öðlast hamingju heldur þurfi andlegt jafnvægi að koma til. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 8.39 13.40 18.43 Akureyri 8.28 13.25 18.23 Djúpar karlmannsraddir höfða frekar til kvenna þegar þær eru frjóastar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem gerð var í Skotlandi. Ástæða þessa er talin vera að konur álíti djúpraddaða karlmenn líklegri til að halda heilsunni og geta þeim fleiri börn. Þegar konur eru ekki á sínum frjóasta tíma kjósa þær hins vegar karlmenn með hærri og kvenlegri raddir þar sem konum finnst þeir karlmenn líklegri til að festa ráð sitt. Greint var frá þessu á BBC. www.brudkaup.is er mjög góð heimasíða fyrir þá sem eru að undirbúa brúðkaupið. Þar inni má finna gátlista sem ættu að gagnast vel við undirbúnininn. Listunum er skipt upp eftir tíma, það er, sérstakur gátlisti er fyrir þá sem hafa níu til tólf mánuði til stefnu, annar fyrir þá sem hafa um sex mánuði og einnig eru gát- listar sem gott er að hafa daginn fyrir brúðkaupið og á sjálfum brúð- kaups- degin- um. ALLT HITT [HEILSA BRÚÐKAUP] SKÓRNIR MIKILVÆGIR Góðir skór eru mikilvægasti útbúnaðurinn þegar farið er út að hlaupa segir Gunnar Páll Jóakims- son þjálfari. HEILSA 4 SÁLMAR VINSÆLLI Séra Bjarni Karlsson, sóknarprest- ur Laugarneskirkju, segir vinsældir hefðbundinna sálma í brúð- kaupum hafi aukist undanfarið á kostnað dægurlaga. BRÚÐKAUP 6 HEILSUVERSLUNIN YGG- DRASILL STENDUR FYRIR FJÖLBREYTTUM UPPÁKOMUM Í MARS. Verslunin Yggdrasill á Skóla- vörðustígnum hefur lengi staðið fyrir margs konar námskeiðum og fyrirlestrum. Í mars stendur verslunin fyrir vikulegum uppákomum sem allar tengjast heilsuninni á einhvern hátt. Á heimasíðu verslunarinnar, yggdrasill.is, má nálgast frekari upplýsingar um atburðina. Atburðirnir eru allt frá sígaunakvöldi með magadansi og öllu tilheyrandi, til fyrirlesturs um fæðuó- þol þar sem fjallað verður um greiningu fæðuóþols og sjúkdóma frá sjónarhóli náttúrulækninga. Námskeiðin fara fram í verslun Yggdrasils, Skólavörðustíg 16, og standa frá klukkan 20 til 22. Sígaunakvöld og fæðuóþol Yggdrasill stendur fyrir vikulegum fyrirlestrum og uppákomum í mars.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.