Fréttablaðið - 28.02.2006, Síða 36
28. febrúar 2006 ÞRIÐJUDAGUR24
menning@frettabladid.is
!
Svolítið af Mozart, heilmik-
ið af Schumann og splunku-
nýtt eftir Atla Heimi.
Færeyski píanóleikarinn
Johannes Andreasen leikur
við hvern sinn fingur í Saln-
um í kvöld.
„Ég setti Mozart á efnisskrána af
því að hann á 250 ára afmæli,“
segir færeyski píanóleikarinn
Johannes Andreasen, sem heldur
tónleika í Salnum í Kópavogi í
kvöld í tónleikaröðinni Tíbrá.
Á tónleikunum ætlar hann að
leika sónötu og fantasíu í c-moll
eftir Mozart og sinfónískar etýður
eftir Schumann, en einnig frum-
flytur Jóhannes nýtt verk eftir
Atla Heimi Sveinsson.
„Atli Heimir nefndi þetta fyrst
við mig fyrir nokkru að hann væri
að spá í að skrifa fyrir mig verk,“
segir Johannes. „Síðan minnti ég
hann á þetta og svo kom þetta frá
honum núna fyrir jólin. Þá hafði
hann samið þetta í haust. En því
miður er hann staddur í Tékklandi
núna og kemst því ekki á tónleik-
ana. Það hefði verið gaman að hafa
hann með.“
Johannes segir þetta nýja
píanóverk Atla Heimis vera frek-
ar stutt en ákaflega fjölbreytt,
ýmist kraftmikið eða lágvært.
„Mér finnst þetta mjög spenn-
andi, sérstaklega hægu kaflarnir,
þeir eru mjög fallegir.“
Eftir hlé ræðst Johannes síðan í
það stórvirki að flytja sinfónísku
etýðurnar eftir Schumann, sem er
eitt aðalverk píanóbókmenntanna.
„Flestir píanóleikarar glíma
við þetta verk, en þetta er í fyrsta
skipti sem ég flyt það,“ segir
Johannes.
Johannes er fæddur í Þórshöfn
í Færeyjum, kennir þar við Fær-
eyska tónlistarskólann og hefur
víða komið fram með ýmsum tón-
listarmönnum, bæði færeyskum
og þekktum erlendum einleikur-
um. Hann hefur oft leikið einleik
með Færeysku sinfóníuhljóm-
sveitinni og hefur einnig komið
fram með íslenska tónlistarhópn-
um Caput og Blásarakvintett
Reykjavíkur.
„Mér finnst alltaf fagnaðarefni
að koma til Íslands því ég bjó hér
á árunum 1993-96. Þá kenndi ég
við Tónlistarskóla Kópavogs,
þannig að mér finnst ég vera hér á
heimaslóðum.“
JOHANNES ANDREASEN Í kvöld sest hann við píanóið á sviði Salarins í Kópavogi, þar sem
hann segist vera á heimaslóðum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Hrifinn af hægu köflunum
Kl. 12.05
Guðrún Eva Mínervudóttir
rithöfundur heldur fyrirlestur í
hádeginu í dag um þýðingu sína
á bókinni Leynilíf býflugnanna
(The Secret Life of Bees) eftir
Sue Monk Kidd. Fyrirlesturinn
er haldinn í stofu 102 í Lögbergi
á vegum Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur.
> Ekki missa af ...
... sýningu Kvikmyndasafns
Íslands á mynd Rogers Corman,
The Fall of the House Usher,
sem hann gerði árið 1960 eftir
smásögu Edgars Allans Poe í
Bæjarbíói klukkan 20 í kvöld.
... sýningum á verkum Snorra
Arinbjarnar og Gunnlaugs
Blöndal, sem opnaðar voru í
Listasafni Íslands um síðustu
helgi.
... fjölskyldutónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í Háskóla-
bíói á laugardaginn kemur. Hinn
rómaði Kór Kársnesskóla syngur
með hljómsveitinni.
Skáldafélagið Nýhíl stendur
fyrir uppákomu í kvöld á Café
Rosenberg við Lækjargötu, sann-
kallaðri sprengidagskrá enda
haldin á sjálfan sprengidag.
„Þetta verður klassískt Nýhíl
kvöld,“ segir Kristín Eiríksdótt-
ir, ein þeirra skálda sem koma
fram í kvöld. „Þau hafa yfirleitt
verið haldin á Grand Rokk en við
höfum vært okkur yfir á Rosen-
berg.“
Auk Kristínar lesa úr verkum
sínum þau Haukur Már Helga-
son, Þórunn Valdimarsdóttir,
Didda, Ófeigur Sigurðsson, Guð-
rún Eva Mínervudóttir, Ingibjörg
Magnadóttir og Kari Ósk Ege.
„Þetta kvöld er reyndar haldið
út af því að tveir meðlimir Nýhils
eru að fara til útlanda,“ segir
Kristín. Þær Ingibjörg Magna-
dóttir og Guðrún Eva Mínervu-
dóttir eru báðar að flytja til
Berlínar.
„Við ætluðum bara að ná í þær
áður en þær færu,“ segir Kristín,
en þótt Ingibjörg og Guðrún Eva
fari af landi brott þá hefur Nýhil
bæst liðsauki sem ætti að geta
fyllt í skörðin því nýverið gengu
þær Þórunn Valdimarsdóttir og
Didda til liðs við Nýhil.
Dagskráin á Café Rosenberg
hefst klukkan 22. Aðgangseyrir
er enginn og allir velkomnir. ■
Sprengidagskrá Nýhils
KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR Hún er ein þeirra Nýhílskálda sem lesa upp úr verkum sínum á
Nýhílkvöldi á Café Rosenberg. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
FEBRÚAR
25 26 27 28 1 2 3
Þriðjudagur
■ ■ KVIKMYNDIR
20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
hryllingsmyndina The Fall of the House
of Usher eða Hús hinna fordæmdu frá
árinu 1960. Myndina byggir leikstjór-
inn Roger Corman á smásögu eftir
Edgar Allan Poe. Sýnt er í Bæjarbíói,
Strandgötu 6, Hafnarfirði.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Færeyski píanóleikarinn
Jóhannes Andreasen heldur einleiks-
tónleika í Tíbrá í Salnum, Kópavogi.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.00 Sigurlið laganema við
Háskólann á Akureyri, sem er á leið
í úrslit alþjóðlegu Jessup málflutn-
ingskeppninnar, flytur styttar útgáfur
af erindum sínum á Lögfræðitorgi
Háskólans á Akureyri í stofu L201 á
Sólborg.
12.05 Guðrún Eva Mínervudóttir rit-
höfundur heldur fyrirlestur um þýðingu
sína á bókinni Leynilíf býflugnanna (The
Secret Life of Bees) eftir Sue Monk Kidd.
Fyrirlesturinn er haldinn í stofu 102 í
Lögbergi á vegum Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur.
■ ■ SAMKOMUR
22.00 Nýhil stendur fyrir uppákomu á
Café Rosenberg við Lækjargötu.
Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist
á hvar@frettabladid.is ekki síðar en
sólarhring fyrir birtingu.
Tvær sýningar Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu
verða framlengdar um viku, eða til næsta sunnu-
dags. Þetta eru sýningar Gabríelu Friðriksdóttur og
Kristínar Halldórsdóttur Eyfells. Báðum sýningunum
átti að ljúka um síðustu helgi en aðsóknin hefur
verið svo góð að ástæða þótti til að gefa fleirum
kost á að kynna sér þær.
Gabríela Friðriksdóttir var fulltrúi Íslands á
Feneyjatvíæringnum síðastliðið sumar þar sem hún
sýndi verkið Versations / Tetralógía sem nú er uppi
í Hafnarhúsinu. Um er að ræða innsetningu sem
stendur saman af fjórum myndböndum, sem hún
gerði m.a. í samvinnu við Björk Guðmundsdóttur,
Daníel Ágúst Haraldsson, Ernu Ómarsdóttur, Sigurð
Guðjónsson, Borgar Þór Magnason og Jónas Sen.
Kristín Halldórsdóttir Eyfells (f. 1917) bjó og
starfaði lengi vestan hafs en hún lést árið 2002.
Sýning Kristínar varpar ljósi á lífsverk afkastamik-
illar listakonu sem helgaði málverkinu mestan
sinn tíma. Á sýningunni eru sýnd fjölmörg verka
Kristínar; stórar, litríkar og grófgerðar andlitsmyndir
einkum af þekktum einstaklingum á sviði stjórn-
mála eða lista.
Gabríela og Kristín áfram