Fréttablaðið - 28.03.2006, Side 43

Fréttablaðið - 28.03.2006, Side 43
ÞRIÐJUDAGUR 28. mars 2006 SMS LEIKUR ! TAKTU ÞÁTT! VINNINGAR VERÐA AFHENDIR HJÁ BT SMÁRALIND. KÓPAVOGI. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. 99 KR/SKEYTIÐ. FRUMSÝND 30. MARS 11. HVER VINNUR! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO Á DATE MOVIE DVD MYNDIR • PEPSI • GEISLADISKAR BOLIR OG MARGT FLEIRA UM ÁSTINA, RÓMANTÍKINA OG ANNAN EINS VIÐBJÓÐ! ÞÉR MUN STANDA AF HLÁTRI! FÓTBOLTI Fabio Capello, stjóri Juventus, segir að Patrick Vieira, miðjumaður liðsins, hafi ekkert að sanna þegar hann mætir sínum gömlu félögum í stórleik Meist- aradeildarinnar í kvöld. „Augljóslega verður þetta sér- stakur leikur fyrir Patrick. Hann hefur samt ekkert að sanna. Hann fór fyrir liði Arsenal með frábær- um árangri í mörg ár og hjálpaði því að vinna til titla. Arsenal og Vieira ákváðu bara að skilja síð- asta sumar og ég er viss um að stuðningsmenn liðsins skilja það,“ sagði Capello. Vieira sjálfur segist hlakka mikið til endurkomunnar. „Þegar maður spilar á ný gegn sínum gömlu félögum líður manni ekki eins og fyrir hvaða leik sem er, þetta verður mjög sérstakt. Ég átti margar frábærar stundir á Highbury og býst við góðum við- tökum frá stuðningsmönnunum,“ sagði miðjumaðurinn franski, sem hefur átt gott tímabil með Juventus á Ítalíu. „Leikmenn Arsenal spila frá- bæran fótbolta, ekki ósvipaðan og AC Milan á Ítalíu. Þeir njóta fót- boltans út í æsar og eru með stór- kostlega einstaklinga innanborðs. Þeir byggja sinn leik upp á tækni frekar en á sálfræði en ég tel að við höfum það sem þarf til að leggja þá að velli,“ sagði Patrick Vieira að lokum. - hþh Átta liða úrslit Meistaradeildarinnar hefjast í kvöld þar sem leik Arsenal og Juventus ber hæst: Vieira snýr aftur á Highbury PATRICK VIEIRA Snýr aftur á Highbury í kvöld en hann yfirgaf Arsenal síðasta sumar. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.