Fréttablaðið - 28.03.2006, Page 46

Fréttablaðið - 28.03.2006, Page 46
 28. mars 2006 ÞRIÐJUDAGUR34 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT: 2 tæma 6 kringum 8 mæli- eining á hljóðstyrk 9 hjör 11 til dæmis 12 fíflast 14 keilulaga fyllitæki 16 í röð 17 um e-ð tvennt 18 einkar 20 klaki 21 krafs. LÓÐRÉTT: 1 gola 3 ógrynni 4 ein- angrun 5 á móti 7 skikkja 10 sjór 13 sæti 15 dýrahljóð 16 hald 19 kusk. LAUSN: HRÓSIÐ ...fær söngkonan Lisa Ekdahl fyrir frábæra tónleika sem hún hélt á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi í Háskólabíói. TÓNLISTIN Ég hlusta eiginlega á allt frá klassískri tónlist og yfir í popp. Daglega hlusta ég nú samt mest á tónlist eins og er spiluð á Létt 96,7. Ég er mikið fyrir rólega og þægilega tónlist og held svolítið mikið upp á Celine Dion og Robbie Williams en iPodinn minn er troðfullur af alls kyns tónlist. Það fer svo algjörlega eftir því hvernig skapi ég er í hvað ég vel að hlusta á hverju sinni. BÓKIN Ég er afar hrifin af spennusögum og af þeim sem ég hef lesið stendur Mýrin upp úr. Eftir að ég las hana drakk ég allar hinar bækurnar hans Arnalds í mig. Það besta við bækurnar hans er að þær eru spennandi frá upphafi til enda. Þær grípa mann strax og það er nærri ómögulegt að leggja þær frá sér. BÍÓMYNDIN Oftast vel ég einhvers konar grínmyndir til að horfa á og þá finnst mér Dumb and Dumber klassísk. Ég verð samt líka að nefna The Notebook af þeim dram- atísku myndum sem ég fíla. Sagan á bak við hana er æðisleg. Ég er þó ekkert sérstaklega mikið fyrir svona ástarmynd- ir, vinkona mín dró mig á hana en hún var vel þess virði. BORGIN Það er tvímælalaust Reykjavík. Ég bjó þar alveg þangað til við fluttum hingað norður fyrir um einu og hálfu ári. Þar eru allir vinir mínir og mér finnst hún vera passlega stór. Þar getur maður fundið allt og svo er borgin líka rosalega falleg. Ég mun örugglega flytja þangað aftur í framtíðinni en í augnablikinu er stefnan tekin á að fara eitthvað út. BÚÐIN Zara er í miklu uppáhaldi hjá mér. Þar er hægt að fá flott föt á góðu verði og auk þess er þjónustan frábær. Það er engin Zara hér fyrir norðan en það er einmitt eitt af því sem vantar sárlega. Ég fer alltaf til Reykjavíkur til að versla í Zöru. VERKEFNIÐ Núna er ég bara að læra og búa mig undir Ungfrú Ísland sem fer fram hinn 24. maí. Það er smá lægð í þessu núna en ég er á fullu í ræktinni og legg áherslu á að huga að hollu mataræði. Ég þurfti ekki mikið að taka mig á fyrir Ungfrú Norðurland enda hef ég alltaf verið í íþróttum. Ég breytti mataræðinu þó töluvert og get vitnað um það að manni líður mun betur þegar lögð er áhersla á gott mataræði. AÐ MÍNU SKAPI SELMA ÓSK HÖSKULDSDÓTTIR, UNGFRÚ NORÐURLAND Celine Dion, Mýrin og The Notebook LÁRÉTT: 2 losa, 6 um, 8 fón, 9 löm, 11 td, 12 atast, 14 trekt, 16 tu, 17 tví, 18 all, 20 ís, 21 klór. LÓÐRÉTT: 1 kula, 3 of, 4 sóttkví, 5 and, 7 möttull, 10 mar, 13 set, 15 tíst, 16 tak, 19 ló. Svör við spurningum á síðu 8 1. Viktor Júsjenko. 2. Randy Quaid. 3. Reading. [ VEISTU SVARIÐ ] Þorskhnakkar-Lúðusteikur-Hlýrasteikur Keilusteikur-Löngusteikur-Túnfiskur Humar á Tilboði Laxafiðrildi-flök Forréttahlaðborð-Kartöfluréttir-surimi Fiskbúðin Vör Höfðabakka 1 s: 587-5070 Ljósmyndarinn Matthías Árni Ingimarsson fær að öllum líkind- um birta mynd sem hann tók af Jakobínarínu á SXSW-rokkhátíð- inni í tónlistartímaritinu Rolling Stone og kemur hún fyrir sjónir lesenda í apríl. Matthías var nývaknaður í Kaliforníu þegar Fréttablaðið náði í skottið á honum enda átta tíma mismunur. Þokubakki lá yfir rík- inu en Matthías stundar nám við Brooks Institute of Photagraphy og býr í Ventura sem liggur á milli Santa Barbara og Los Angeles. „Ég var að taka myndir fyrir Morgunblaðið af íslensku hljóm- sveitunum sem spiluðu þarna,“ úskýrir Matthías en hann er mikill tónlistaáhugamaður og reynir að fylgjast vel með gangi mála. „Þegar ég kom heim fékk ég sím- hringingu frá Rolling Stone sem vildi athuga hvort ég ætti mynd af Jakobínarínu,“ bætir hann við og það reyndist ekki mikið mál að láta tímaritinu í té eina mynd enda mikill heiður. Þá eru meiri líkur en minni að mynd Matthíasar af tón- leikum PJ Harvey komi í rokk- tímaritið Mojo á næstunni. Margir kannast eflaust við Matthías af öðrum vettvangi en hann lék lengi með meistaraliði Hauka í handknattleik og stóð iðu- lega vaktina í vörninni. Skórnir hafa heldur ekki verið lagðir alfar- ið á hilluna því Matthías heldur sér við með því að æfa einu sinni í viku og spilaði meðal annars leik í hinni víðfrægu höll Staples Center þar sem Los Angeles Lakers leika sína heimaleiki. -fgg Með mynd í Rolling Stone MATTHÍAS ÁRNI Tók myndir af ungl- ingahljómsveitinni Jakobínarínu en hún birtist í aprílhefti tónlistartímaritsins Rolling Stone. MYND/MATTHÍAS Nokkrir heppnir gestir Kaupþings í Lúxemborg fá að reyna sig í víta- spyrnukeppni gegn fyrrum mark- verði Manchester United og danska landsliðsins, Peter Schmeichel, en hún verður haldin í tengslum við heimsmeistararkeppnina í Þýska- landi sem hefst 9. júní. Hinir útvöldu fengu nýverið sendan veg- legan svartan íþróttapakka frá bankanum þar sem á stóð „You‘ve made the squad“ eða „Þú komst í liðið“ en þar er verið að vísa til þess að hinir heppnu hafi verið valdir í lið markmannsins goð- sagnakennda. Pakkinn innihélt muni sem tengjast knattspyrnu á einn eða annan hátt og má þar nefna glæsilega takkaskó enda nauðsynlegt að vera vel skóaður áður en tekist er á við markvörð- inn. Að sögn Helgu Thors hjá skrif- stofu forstjóra Kaupþing banka hefur undirbúningurinn fyrir ferð- ina staðið nokkuð lengi yfir. „Það starfa í kringum 120 manns hjá Kaupþingi í Lúxemborg og þar er lögð mikil áhersla á persónulega þjónustu,“ segir Helga og bætir við að starfsemin þar sé í stöðugum vexti. „Þetta verða gestir frá helstu viðskiptalöndum Kaupþings og því er um mjög alþjóðlegt lið að ræða, rétt eins og gengur og gerist í knatt- spyrnuheiminum,“ útskýrir hún. Að sögn Helgu er bankinn með viðburðaskrifstofu í London og þar kannaðist einhver við markvörð- inn góðkunna. „Síðan var bara hringt í hetjuna, sem fannst þetta mjög fyndin hugmynd og ákvað að slá til enda hafði hann aldrei gert neitt þessu líkt,“ segir Helga en samkvæmt heimildum blaðsins eru nokkrir gestanna farnir að sparka á markið því Schmeichel hefur lofað þeim sem ná að skora úr þremur vítum glæsilegum vinn- ingi. Peter Schmeichel er einhver fremsti markvörður allra tíma. Hann hóf ferilinn hjá danska knatt- spyrnufélaginu Brøndby en fór þaðan til enska risans Manchester United og vann þar fimm meist- aratitla auk þess sem hann leiddi United til sigurs gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu árið 1999 í mögnuðum úrslitaleik. Hápunkturinn á ferlinum var eflaust þegar Schmeichel stóð á milli stanganna hjá danska lands- liðinu þegar Danir urðu Evrópu- meistarar árið 1992. freyrgigja@frettabladid.is KAUPÞING Í LÚXEMBORG: BÝÐUR ALÞJÓÐLEGU LIÐI GESTA Á HM Schmeichel reynir að verja vítaspyrnur PETER SCHMEICHEL Ófáir sóknarmenn urðu að lúta í lægra haldi fyrir markverðinum danska, sem var ótrúlega sigursæll á ferli sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FRÉTTIR AF FÓLKI Hljómsveitin The Bad Plus heldur vart vatni yfir heimsókn sinni til landsins á bloggsíðu sinni. Sveitin spilaði á Nasa fyrr í þessum mánuði og komst í kynni við þjóðarrétt Íslendinga; hákarl og brennivín. Piltunum þótti mikið til Black Death-flöskunnar koma og drukku stíft á litlum bar ásamt Jónsa, söngvara Sigur Rósar. Eitthvað var þeim þó í nöp við hákarlinn en lyktin ein nægði til að fæla þá frá. „Risastór og vöðvamikill forsögulegur náungi átti hins vegar ekki í miklum erfiðleikum með að sporðrenna fisknum,“ skrifa félagarnir á heimasíðu sinni. Eftirtektarverðast þótti hljómsveitinni þó hversu nálægðin við „fræga fólkið“ er mikil. „Minnti okkur á Minneapolis þar sem við höfum rekist á Prince allnokkrum sinnum.“ Tökur á stórmyndinni Stardust fóru fram í nágrenni Hafnar í Hornafirði um helgina en fjörutíu manna tökulið kom hingað til lands í þeim tilgangi að fanga íslenskar vetrarhörkur. Veður- guðirnir voru tökumönnum hliðhollir og gekk allt mjög vel að sögn Helgu Margrétar Reykdal, framkvæmdastjóra True North, sem hafði veg og vanda af komunni. Leikstjórinn Matthew Vaughn var himinlifandi með aðstæðurnar hér á landi en undirbúningur fyrir myndina heldur áfram þar vestra. Ólíklegt þykir að tökuliðið komi hingað á ný en eins og greint var frá í Fréttablaðinu eru vandræði með innflutning á hestum. Fyrir kvikmyndaáhugamenn má þó láta þess getið að leikarinn Mark Strong var meðal þeirra „smástirna“ sem sóttu landið heim um helgina en hann hefur leikið smáhlutverk í kvik- myndum á borð við Tristan & Isolde sem frumsýnd var í Laug- arásbíói með mikilli viðhöfn, Óskarsverð- launamyndinni Syriana og Oliver Twist eftir Roman Polanski. - fgg

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.