Fréttablaðið - 07.04.2006, Síða 56
44 7. apríl 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
������������������
���������������������������
���������������������������������������
�����
��
�������
�������
����� ����� �� �����
�����������������������
�������������������������������������������
�����������������������������������������������������
���������������������������
�������������������������������������
��������������������������������������
����������
����� �����
����� ����� �� �����
����������������
��������������������������������
�����������������������������������
������������
��������������������������
������������������
��������
������������������
�����������������������������
���
��
��
��
���
��
��
��
��
��
��
��
��
�����������������
Það er síður en svo djúpt tekið í árinni
að halda því að fram að handknatt-
leiksmaðurinn Vilhjálmur Halldórsson,
sem leikur með Skjern í Danmörku, sé
óheppnasti handboltamaður Íslands og
þótt víðar væri leitað. Vilhjálmur hefur í
tvígang lent í því að missa tennur í leik,
hann hefur fótbrotnað, handleggsbrotn-
að tvisvar og í síðara skiptið er hann féll
af húsþaki. Þetta er meðal þess helsta
sem hefur komið fyrir hann en í raun er
Vilhjálmur heppinn að vera hreinlega á
lífi því honum hefur líka tekist að velta
bíl heilan hring. Það ökutæki spændi
aldrei aftur upp malbikið heldur fór
beint í brotajárn.
„Þetta er ansi langur sjúkralisti og það
má vissulega segja að ég sé heppinn
að vera á lífi,“ sagði hinn seinheppni
Vilhjálmur, sem getur huggað sig
við að unnustan hans, Tinna Jök-
ulsdóttir, er að læra sjúkraþjálfun
og klárar námið í vor. „Það veitir
ekkert af sjúkraþjálfara á heimilið
miðað við minn meiðslaferil,“
sagði Vilhjálmur og hló dátt.
Hvort sem það er sambúð-
inni við Vilhjálm að kenna
eður ei þá er athyglisvert
að meiðslin hafa elt
Tinnu þennan veturinn en
hún spilar handbolta með
Gróttu. Hún lenti í því að
slíta krossbönd á æfingamóti
fyrir Íslandsmótið og lenti í
kjölfarið í læknamistökum sem
framlengdu tímann utan vallar.
Þegar hún kom loksins til baka
sneri hún sig í fyrsta leik og lenti aftur
á sjúkralista.
Ótrúleg óheppni eltir því þetta
handboltapar en merkilegt nokk
hefur Vilhjálmur nánast sloppið
við meiðsli í allan vetur og
slíkt gerist ekki á hverju ári.
„Ég marðist illa á nefinu
í eitt skipti en annars
hef ég alveg sloppið
við meiðsli. Reyndar er
öruggara að segja núna
7, 9, 13 svo ekki fari illa
á næstu dögum,“ sagði
hinn seinheppni en síkáti
handboltamaður Vilhjálmur
Halldórsson, sem á vafalaust
eftir að spara stórar fjárhæðir
þegar konan hans lýkur námi.
VILHJÁLMUR HALLDÓRSSON: ÓHEPPNASTI HANDBOLTAMAÐUR ÍSLANDS SKYNSAMUR Í MAKAVALI
Veitir ekki af sjúkraþjálfara á heimilið
KÖRFUBOLTI „Við ætlum okkur að
sjálfsögðu að tryggja okkur titil-
inn á heimavelli en það verður
ekki auðsótt. Keflavík er með
sterkt lið og við vanmetum það
alls ekki,“ sagði Pálína Gunnlaugs-
dóttir, leikmaður Hauka, við
Fréttablaðið í gær fyrir þriðja
leikinn gegn Keflavík sem fram
fer á Ásvöllum í kvöld.
Pálína tryggði Haukum sigur-
inn með glæsilegri þriggja stiga
körfu á lokasekúndum annars
leiksins í Keflavík en vonast til
þess að þurfa ekki að endurtaka
leikinn.
„Ég vona nú að við verðum búin
að tryggja okkur sigurinn fyrr í
þessum leik,“ sagði Pálína, sem
hefur átt góðan vetur með Hauk-
um og skorað tæp tólf stig í leik.
Eftir að hafa rótburstað Keflavík í
fyrsta leiknum, 90-61, lentu
Haukastúlkur í vandræðum í
öðrum leiknum í Keflavík þar sem
þær tryggðu sér sigurinn á loka-
sekúndunum eftir að hafa verið
undir mest allan leikinn.
Með stórleik Megan Mahoney
og gífurlega sterkri vörn tókst
Haukum að landa sigrinum og
getur liðið því tryggt sér titilinn á
heimavelli í kvöld.
„Það er enginn sérstakur undir-
búningur hjá okkur fyrir þennan
leik, við leggjum alla leiki alveg
eins upp. Við erum með breiðan
hóp góðra leikmanna og erum full-
vissar um að við klárum þetta,“
sagði Pálína eldhress að lokum.
- hþh
Haukastúlkur geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld:
Við vanmetum ekki Keflavík
ANNAR BIKAR Í KVÖLD? Pálína og félagar
lyfta hér deildabikarnum. Þær gætu lyft
Íslandsbikarnum í kvöld.
FÓTBOLTI Svipað mál kom upp á síð-
ustu leiktíð er Tite Kalandadze og
Roland Valur Eradze gengu í raðir
Stjörnunnar frá ÍBV eftir uppboð
sem á sér eflaust enga hliðstæðu í
íslensku íþróttalífi. Stjörnumenn
kærðu ÍBV eftir uppboðið fræga
og hafa gert slíkt hið sama núna
þar sem þeir segja Stjörnumenn
hafa rætt við markvörðinn Flor-
entinu Grecu án þeirra leyfis en
hún verður samningslaus í sumar.
„Flora hefur staðfest þetta við
okkur og þess vegna höfum við
kært. Mér þykir líklegt að Stjarn-
an sé búin að gera samning við
Floru,“ sagði Hlynur Sigmarsson,
formaður handknattleiksdeildar
ÍBV, en hann er einnig ósáttur við
hversu langan tíma tekur fyrir
dómstól HSÍ að taka málið fyrir.
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, býst ekki við
því að málið verði tekið fyrir á
næstu dögum og væntanlega ekki
fyrir páska. Niðurstaða málsins
mun ekki hafa nein áhrif á fram-
haldið þar sem aðeins er hægt að
sekta í slíkum málum.
„Ég er ósáttur við hvernig
Stjarnan hagar sér í þessu máli.
Bergþóra, móðir Þorsteins sem er
yfir handknattleiksdeildinni, steig
í pontu á ársþingi fyrir tveim
árum síðan og hraunaði yfir okkur
og kallaði okkur öllum illum nöfn-
um fyrir að gera nákvæmlega það
sama og Stjarnan er að gera núna.
Stjarnan lék sama leik í fyrra og
mér finnst lágmark að lið sem eru
að predíka að farið sé eftir lögum
geri það síðan sjálf,“ sagði Hlynur,
sem játaði að hafa gerst brotlegur
um nákvæmlega sama hlut fyrir
tveim árum síðan en hefði síðan
haldið sig innan lagarammans.
Hlynur heldur því fram að einn
þeirra sem sé að atast í málinu sé
Bragi Bragason en hann situr í
landsliðsnefnd kvenna og er einnig
að starfa fyrir Stjörnuna.
Einar Þorvarðarson segist hafa
rætt við Braga og óskað eftir því
að hann væri ekki að skipta sér af
leikmannamálum félagsins. Einar
sagðist ekki vita hvort Bragi hefði
komið að þessu ákveðna máli og
hefði ekki spurt hann.
„Bragi, Aðalsteinn Eyjólfsson
þjálfari og Þorsteinn formaður
eru aðalmennirnir í því að fá Flor-
entinu yfir til Stjörnunnar,“ sagði
Hlynur mjög ósáttur.
Þorsteinn Rafn Johnsen, for-
maður handknattleiksdeildar
Stjörnunnar, vildi lítið tjá sig um
málið þegar eftir því var leitað en
hafnaði þó ásökunum Hlyns. „Ég
hef ekki heyrt af þessari kæru. Ég
hef ekki talað við neinn leikmann
hjá Hlyni né nokkur frá okkur.
Mín samviska í málinu er mjög
góð,“ sagði Þorsteinn.
Þess má síðan geta að Stjarnan
og ÍBV mætast í deildarbikar-
keppni kvenna sem fram fer í lok
mánaðarins og verður áhugavert
að fylgjast með þeim leikjum í
ljósi þess sem nú er komið upp.
henry@frettabladid.is
ÍBV kærir Stjörnuna á ný
Forráðamenn handknattleiksdeilda ÍBV og Stjörnunnar eru komnir í hár sam-
an annað árið í röð vegna leikmannamála. ÍBV segir Stjörnuna hafa rætt við
markvörð sinn, Florentina Grecu, án leyfis og því hafi félagið kært.
FLORENTINA GRECU Hefur verið einn besti leikmaður Íslandsmótsins síðustu ár og því þarf
ekki að koma á óvart að hún sé eftirsótt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Jóhann í Þrótt
Þróttarar halda áfram að styrkja sig fyrir
átökin í 1. deildinni og nýjasti liðsaukinn
er miðjumaðurinn Jóhann Hreiðarsson
sem búinn er að gera þriggja ára samn-
ing við félagið. Jóhann kemur frá Val en
var síðasta sumar að láni hjá Víkingi.
> Ólafur við það að hætta?
Miklar líkur eru á því að handknattleiks-
kappinn knái Ólafur Sigurjónsson leggi
skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla.
Þetta er gríðarleg blóðtaka fyrir ÍR en
Ólafur hefur verið einn besti maður
liðsins undanfarin ár. „Það er skemmd
í krossböndunum hjá mér og það er
eitthvað sem þarf að slíta upp og laga
aftur ef ég á að spila hraða íþrótt eins
og handbolta. Ég er því 80 prósent viss
um að hætta í
boltanum, en
ég mun leggj-
ast vandlega
yfir þetta og
skoða málið
í nokkrar
vikur áður
en ég tek
lokaákvörðun,“
sagði Ólafur
við Fréttablaðið
í gær.